Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985 51 Fjárhús, hlaða og hesthús brunnu að Ósabakka Vatnsleysuströnd, eitt af verkunum á sýningunni. Steingrímur sýnir í Eden STEINGRÍMUR St. Th. Sigurösson listmálari opnar afmælissýningu á verk- um sínum í Eden í Hveragerði í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Þetta er 58. sýning málarans mánuði sótt viðfangsefni á Suður- heima og erlendis og sú níunda nes, Hafnir, Bátsenda, Garðskaga, sem hann heldur í Eden. Sýning- Njarðvíkur, Voga og Vatnsleysu- una tileinkar Steingrímur Suður- strönd, svo dæmi séu tekin. nesjum. Á henni eru 32 myndir, Sýning Steingríms í Eden allar nýjar og flestar gerðar í olíu. stendur til 2. september. Hefur Steingrímur undanfarna Leikbrúðuland, f.v. Hallveig Thorlacius, Gunnarsdóttir og Helga Steffensen. Þórhallur Sigurðsson, Bryndís í leikför til Suður-Evrópu Selfossi, 19. úúsL AÐFARANOTT laugardagsins 17. ágúst varð mikill bruni á Osabakka I á Skeiðum, þegar til grunna brunnu fjárhús, 900 m3 hlaða og hesthús. Tjón hjónanna á Ósabakka, Kára Sveinssonar og Jónu Eiríks- dóttur, er mjög tilfinnanlegt þar sem húsin voru illa tryggð og þau eingöngu með fjárbúskap. Þau höfðu lokið heyskap og allt hey komið í hlöðu, 7—800 baggar, en aðeins litlum hluta af heyinu tókst að bjarga. Það var Jóna sem fyrst varð vör við eldinn þegar hún af tilviljun fór að húsunum upp úr klukkan tólf á miðnætti til þess að kanna hvort þar væri allt lokað. Þá var mikill reykur í húsunum og hún hljóp heim og gerði slökkviliðinu viðvart. Þegar þau hjónin komu að húsunum aftur voru þau orðin al- elda og eldurinn breiddist ört út. Þegar slökkviliðið á Selfossi kom á vettvang voru húsin fallin. Engar skepnur voru í húsunum nema hænsni sem köfnuðu. Kári Sveinsson bóndi sagði að ekki væri um annað að ræða en byggja þetta upp aftur. Mögulegt væri að nota steinsteyptan grunn sem var undir fjárhúsinu en ann- ars yrði að byggja upp á nýtt. Jóna Eiríksdóttir húsfreyja vildi að fram kæmi gott þakklæti til allra þeirra sem hjálpuðu þeim og einn- ig til slökkviliðsins sem brá skjótt við. Þau Kári og Jóna búa á Ósa- bakka I ásamt tveimur börnum sínum og hafa til aðstoðar einn snúningastrák. Sig. Jóns. Brunnið og blautt heyið keyrt í burtu. Morjyunblaöiö/Kristján Sæmundsson Brunarústirnar á Ósabakka, en þarna voru áður fjárhús og hlaða. LEIKBRÚÐULAND leggur í dag af stað í leikför til Suður-Evrópu með sýn- inguna Tröllaleikir, þar sem því hefur verið boðin þátttaka í alþjóðlegum brúðuleikhúshátíðum í Júgóslavíu, ft- alíu og Frakklandi. Þau sem fara eru l*órhallur Sigurðsson, Hallveig Thorl- acius, Bryndís Gunnarsdóttir og Helga Steffensen. í Júgóslavíu verður sýnt á þremur stöðum. Fyrstu tvær sýningarnar verða í Ljubljana. Þá verður sýnt í Zagreb, en það eru alþjóðleg samtök esperantista sem standa fyrir þeirri hátíð og er þetta í 18. skipti sem hún er haldin. Mótið stendur yfir dagana 24. ágúst til 1. september. Þá verður haldið til Rómaborgar á brúðuleikhúshátíð sem tileinkuð er þróun Eþíópíu og Afríku. Er þetta í þriðja sinn sem slíkt mót er haldið i Róm, sem tileinkað er vissum heims- hluta. Allur ágóði af þessum sýning- um rennur til hjálparstarfs í Afríku. Þriðja alþjóðlega brúðuleikhús- hátíðin sem Leikbrúðuland tekur þátt í er Charlevile-Mazieres í Frakklandi og stendur hún yfir dag- ana 21. til 29. september. Þessi hátíð er kölluð leikhúshátið heimsálfanna fimm og er haldin annað hvert ár. (Fréttatilkynning) Skólaritvélar Olympia ritvélamar eru allt í senn skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og fáanlegar í mörgum gerðum. Carlna áreiðanleg vél, búin margs konar vinnslu sem aðeins er á stærri ritvélum. Traveller de Luxe fyrirferðarlítil og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask og ferðalög. Reporter ratritvel með leiðréttingarbún- aði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra skrifstofuvéla þótt Reporter sé bæði minni og ódýrari. E KJARAN ÁRMÚLA22, SlMI 83022 108 REYKJAVÍK #l Playboy-hornsettiö er fyrirtaks svefnsófi og þægilegt sæti. Horniö er B: 140 x L: 190 cm., og svefnbreidd er 160 cm. Allt settiö: Horn, borö, stóll 17.660.- msvmhMfírmm -i—r~Ætm—r—t—i—i—i—i—i—i—r—í-1—i—i—I—l—roB T” KJAVIKj? 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.