Morgunblaðið - 20.08.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
5
„Komst á tindinn
á viljastyrknum
og frekjunni“
— segir Helgi Benediktsson, sem
kleif 7.273 metra hátt fjall í Pakistan
„FJALLGANGAN var mjög erfið og ekki sú ganga sem maöur naut út í
ystu æsar, en hún haföist á viljastyrknum og frekjunni," sagði Helgi
Benediktsson í samtali við Morgunbíaðiö, en hann er nýkomin heim eftir
að hafa klifið fjallið Diran í Pakistan, 7.273 metra hátt, og er það hæsta
fjall sem íslenskur fjallgöngumaður hefur klifið til þessa.
Leiðangurinn var breskur und-
ir stjórn hins fræga fjallgöngu-
manns Doug Scott, sem þekktur
er sem alreyndur Himalayafari.
Leiðangursmenn voru tuttugu, en
aðeins fimm komust á tindinn.
Hitabeltissjúkdómar hrjáðu leið-
angursmenn og sagðist Helgi
hafa lagst í magaveiki strax við
komuna til höfuðborgar Pakist-
ans og legið í vikutíma. „Leiðang-
ursmenn fóru á undan mér en
þegar ég var orðin hress náði ég
þeim og við komum okkur upp
búðum í 3.500 metra hæð. Við
höfðum ekki ákveðið fyrirfram
hvaða fjall yrði fyrir valinu, en
við leituðum fyrir okkur, könnuð-
um aðstæður víða og fórum að-
lögunarferðir. Kom okkur mjög á
óvart hversu vel aðlagaðir við
vorum þunna loftinu þrátt fyrir
að hafa ekki farið nema í 5.000
metra hæð áður í sama leiðangri.
Það tók okkur tvo daga að
ganga inn eftir löngum jökli að
rótum fjallsins og þar tjölduðum
við í 4.200 metra hæð. Frá þeim
búðum hækkuðum við okkur um
1.500 metra á einum degi, sem er
mjög mikil hækkun. Næsta dag
fóru félagar mínir alla leið á
tindinn, en ég var seinn fyrir og
hvíldist í búðum austurrískra
leiðangursmanna, sem voru búnir
að reyna við tindinn í vikutíma,
en aðeins þrír þeirra höfðu náð
honum. Daginn eftir fór ég síðan
Helgi Benediktsson er hann lagði af stað úr aðalbúðunum upp á við.
upp á fimm og hálfum tíma, var
um hálftíma að litast um í snjó-
komunni, vindinum og skýjunum
þarna uppi og hélt síðan niður á
leið og fór niður í 5.800 metra
hæð á sama degi. Nokkuð var-
hugavert var að sér niður því ný-
fallinn snjór var á tindinum, sem
fór undir mannbroddana hjá mér
og því erfitt að fóta sig.“ Helgi
taldi að frostmark hefði verið í
um 6.000 metra hæð.
Súrefnið efst uppi var um einn
þriðji af því sem það er yfir sjáv-
armáli. „Ég mæddist mikið — svo
mikið að ég sólbrann á tungunni."
Helgi sagðist hafa byrjað 14 ára
að klífa fjöll hér heima. Sautján
ára fór hann í fyrsta sinn í Alp-
ana og hefur farið þangað 10
sinnum síðan. Helgi sagðist vera í
Hjálparsveit skáta og hafa fengið
góða þjálfun þar.
Tvö fiski-
skip seldu
erlendis
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla sinn
í Bretlandi í gær. Fengu þau þokka-
legt verð fyrir hann. Einnig var nokk-
uö af fiski selt úr gámum og var verð
fyrir hann nokkuð mismunandi eftir
gæðum.
Runólfur SH seldi alls 138,9 lest-
ir í Grimsby. Heildarverð var
5.708.700 krónur, meðalverð 41,10.
Aflinn var að mestu þorskur. Vörð-
ur ÞH seldi 62,4 lestir í Hull. Heiid-
arverð var 2.271.700 krónur, meðal-
verð 36,41. Alls verða um 500 lestir
af fiski upp úr skipum héðan seldar
í Hull og Grimsby þessa viku og um
480 lestir af fiski úr gámum.
Dauft yfir
loðnuveiði
ENGIN loðnuveiði var um helgina og
er heldur dauft yfir veiðinni eftir
þokkalega byrjun um mánaðamótin.
Nú eru 10 skip haidin til veiðanna í
nágrenni Jan Mayen.
Alls eru nú komnar um 10.000
lestir af loðnu á land, mest af fimm
fyrstu skipunum, sem héldu til
veiða. Loðnunni hefur hingað til
aðeins verið landað á Raufarhöfn
og Eskifirði.