Morgunblaðið - 20.08.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
7
Sá stóri sjónhverfing?
„Ég get ekkert fullyrt hvað aðr-
ir hafa séð þarna í Núpsfossum, en
ég sá þar ekkert nema klöpp sem
lítur út fyrir að vera lax sem ligg-
ur fast við botn, stór lax. Ég held
að þessi stóri lax sem talað hefur
verið um sé ekkert annað en sjón-
hverfing. Hins vegar var gríðar-
vænn lax í Arndísarhyl í Vesturá,
sennilega 25—30 punda fiskur og
nær að eltast við hann,“ sagði Ól-
afur Rögnvaldsson veiðimaður í
Miðfjarðará, er Morgunblaðið
ræddi við hann í gærdag, en hann
var þá á förum til síns heima með
hörkuafla í bílskottinu.
Slys um borð
í Sigluvík SI
SKIPVERJI um borð í togaranum
Sigluvík SI slasaðist síðastliðinn
laugardag er skipið var að veiðum.
Maðurinn var fluttur í sjúkrphús í
Reykjavík með aðstoð Landhelgis-
gæzlunnar, en var ekki talinn í
bráðri lífshættu.
Sigluvíkin var að veiðum norð-
austur af Horni er beiðni barst til
varðskipsins Týs um að það sækti
lækni til Siglufjarðar og kæmi
með hann á móti tðgaranum, sem
væri með slasaðan matln um borð.
*-Maðurinn hafði meðal annars rif-
brotnað illa og var óttazt að hann
hefði einnig meiðzt innvortis.
Maðurinn var síðan fluttur með
sjúkraflugvél til Reykjavíkur.
Áburðarverksmiðjan:
Enginn fundur
ENGIN hreyfing í samkomulagsátt
er enn í deilu ríkisins og iðnaðar-
manna í Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi, skv. upplýsingum ríkis-
sáttasemjara. Fundur hefur ekki
verið boðaður í deilunni en ríkis-
sáttasemjari er í stöðugu sambandi
við aðila málsins.
Verkfallið er ekki farið að hafa
áhrif á gang verksmiðjunnar' og
mun varla gera fyrr en þar fer að
verða vart við bilanir, sem þeir
tuttugu iðnaðarmenn, er nú eru í
verkfalli, hafa séð um að gerá við
jafnóðum.
Bflvelta á
Kísilveginum
BÍLVELTA varð á sunnudagskvöld-
ið á Kísilveginum svokallaða milli
Húsavíkur og Mývatnssveitar, þegar
bifreið af gerðinni Fiat Uno fór út af
veginum og endasentist tvær veltur
á sandlendi sex metrum fyrir neðan
vegarbrún.
Þrennt var í bílnum, tvær konur
í framsæti og einn maður í aft-
ursæti, en ekkert þeirra hlaut al-
varleg meiðsl. Bíllinn er gjörónýt-
ur.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
átti óhappið sér stað á blindhæð
og er talið að ökumaður hafi
snögghemlað í lausamöl og misst
stjórn á bifreiðinni. Konurnar í
framsætinu'voru báðar í bílbelti.
„Við fengum þrír vinirnir 67
laxa þessa þrjá daga. Þetta var
hörkuveiði og mikið af laxi að
ganga i ána. Alls veiddi hollið 82
laxa. Það fór mikil torfa upp
Miðfjarðarána í síðustu viku, við
sáum hana og mér sýndist að
megnið af laxinum hafi rennt sér
upp í Austurá. Það voru komnir
50—60 laxar í Myrkhyl. Þá var lax
að ganga í Miðfjarðaránni í morg-
un,“ bætti ólafur við. Hann sagði
jafnframt að heildaraflinn í sum-
ar næmi 775 löxum. Er það góð
veiði miðað við að stórlaxagöngur
voru lélegar svo ekki sé meira sagt
og smálaxinn seint á ferðinni.
Smáfiskurinn er uppistaðan í afl-
anum sem af er. Þeir eru því
ánægðir með gang mála í Miðfirð-
inum. Morgunblaðið ræddi einnig
við Böðvar Sigvaldason, formann
veiðifélags Miðfjarðarár. „Þetta er
allt farið að ganga okkur í haginn
og við erum afar ánægðir. Það
hefur verið fiskleysi hér í nokkur
ár, aðallega í fyrra, en þetta er allt
að snúast við. Nú er mikill lax að
ganga og fiskur í öllum hyljum,
áberandi mikið af hængum, áin er
full af hæng. Það er mikill lax í
Miðfjarðará, Austurá, vel dreifður
í Vesturá, en minnst í Núpsá.
Þann stóra í Núpsfossum höfum
við ekki séð um hríð. Sjálfur hef
ég ekki séð hann, en þaulvanir
menn hafa sagt af honum margar
sögur,“ sagði Böðvar.
Kosaveiði
Stórkostleg laxveiði hefur verið
í Laxá í Ásum meirihluta veiði-
tímabilsins, eru komnir um 1.250
laxar á land og er sá afli allur
tekinn á tvær stangir. Minna veið-
arnar á sögur veiðimanna af
Coho-laxveiðum í Alaska, þar sem
laxinn er svo gráðugur að bíta á að
menn fá leið á því að veiða hann.
Geysileg veiði hefur verið eins og
sjá má af tölunni. Kvótinn hefur
verið afnuminn og fjölmargir ým-
ist veitt 20 laxa á dag eða meira,
t.d. Guðlaugur Bergmann og frú,
33 laxa, Þórarinn Sigþórsson 30
laxa, Eyþór kokkur og Hermann
úrsmiður 24 svo eitthvað sé nefnt,
því af nógu er að taka. Þeir Guð-
laugur og frú og Þórarinn munu
þó eiga metið. Laxinn er af öllum
stærðum, smálaxinn er vænn, 5—6
pund, og alltaf nokkuð af vænni
laxi í bland. Mest er veiðin tekin á
maðk þó einstaka veiðimaður not
fluguna með góðum árangri.
Laxá í bing. með
hæstu töluna ...
„Það eru komnír 1.710 laxar á
land úr Laxá í Aðaldal og það
styttist í vertíðarlok," sagði Völ-
undur Hermóðsson í Árnesi í sam-
tali við Morgunblaðið í gærdag.
Hann sagði reytingsveiði hafa
verið síðustu vikuna. Þeir stærstu
hafa ekki látið freistast enn sem
komið er, ekki risinn við Laxa-
tanga að minnsta kosti. Veiðin er
fyrir löngu orðin miklu betri en í
fyrra, þegar hún nam rétt rúmum
1.000 löxum.
Fleiri ár nyrðra
Völundur í Árnesi færði Morg-
unblaðinu jafnframt tíðindi af
fleiri ám í nágrenninu. 470 höfðu
veiðst í Skjálfandafljóti sem er
metveiði og 215 laxar höfðu. verið
dregnir upp úr Mýrarkvísl.
Loksins
Með nýja gerð af gírkassa og vél
sem hönnuð er hjá Porsche verksmiðjunum í Þýskalandi.
Þaö er okkur ánægjuefni að geta boðið upp á bíl sem fer sigurför um Evrópu.
SEATIBIZA frá Seat verksmiðjunum spænsku sem eru sjöundu stærstu bílaframleiðendur í Evrópu
- staðreynd sem kemur mörgum íslendingum á óvart.
SEAT IBIZA er ótrúlega rúmgóður, með lituðu gleri í stórum gluggum. Hann er framhjóladrifinn
og hærra er undir lægsta punkt en almennt gerist á bílum í þessum stærðarflokki.
SEATIBIZA er með 63 hestafla vél og eyðir aðeins 4,8 lítrum á hundraði.
SEAT IBIZA er stórskemmtilegur, sprækur og spameytinn spánverji - sem er kominn hingað til þess að vera.
Verð frá kr. 385.000.-.
Komdu og skoðaðu’ann og keyrð’ann.
TÖGGURHH
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
BÍLDSHÖFÐA16, SlMAR 81530-83104
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!