Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST 1985
15
SMÁSÖGUR
STEFÁNS
Bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Stephcn King:
SKELETON CREW
Útg.: Macdonald 1985
Stephen King er meistari smá-
sögunnar með hryllings- eða ógn-
arívafi. Hann er mikið lesinn í
enskumælandi löndum og hefur
verið líkt við ýmsa fyrirrennara
sína sem hafa fengizt við að skrifa
magnaðar sögur og meðal bóka
hans eru The Shining, Firestarter
og The Dead Zone. Sjálfur segir
hjann um smásöguna: „Hún er
eins og koss í myrkri... frá
ókunnugum," en hún á að geta
skilið eftir áhrif þrátt fyrir það —
eða vegna þess.
í Skeleton Crew eru rösklega
tuttugu smásögur eftir King og
langflestar þeirra en ekki allar
hafa birzt áður í ýmsum ritum.
Höfundur skrifar snöfurlegan
formála sem er í skemmtilegum
tón. Hann segir í niðurlagsorðum:
„Ég ætla að leiða þig, lesandi, um
nokkra dimma og dularfulla vegi.
En ég held ég rati.“ Það má líka
fullyrða að Stephen King ratar
um þessa stigu, sem oft og einatt
eru býsna vandfetaðir. Og þó svo
að efnistök og söguefni bjóði upp á
hinar dularfyllstu lausnir, er það
að mínum dómi fyrst og fremst
andrúmsloftið í sögunum sem
ræður úrslitum. Þar tekst honum
oft með miklum afbrigðum.
Mrs. Todd’s Shortcut og The
Mist, sem er fyrsta saga bókarinn-
ar, eru dæmi um leikni Kings sem
er til fyrirmyndar. En þó að ég
hafi aldrei verið hneigð fyrir vis-
indaskáldsagnalestur eða eitthvað
í þeim dúr, reyndist það vera sag-
an The Jaunt sem hafði einna
mest áhrif á mig. Sagan hefst í
New York á 24. öldinni. Oates-
fjölskyldan er að leggja upp í ferð
til Marz. Heimilisfaðirinn hefur
unnið á Marz og margsinnis farið
þá för, en konan og börnin tvö
hafa ekki kynnzt þessu ferðalagi.
Ferðalagið fer þannig fram að far-
þegar til Marz safnast saman á
Umferðarmiðstöðinni og er síðan
einn af öðrum svæfður og sím-
sendur til Marz. Þetta er sem sagt
ekkert nýtt fyrirbrigði, en samt er
ýmislegt sem ber að hafa í huga
þegar maður er simsendur út í
Stephen King
geiminn. Meðan fjölskyldan bíður
eftir að röðin komi að sér, skýrir
Oates fyrir þeim aðdragandann og
þróunina að Marzferðum sem hóf-
ust fyrir nokkrum öldum, tveimur
eða svo. Bersýnilega voru lengi
gerðar tilraunir áður en farið var
að símsenda fólk í heilum hópum.
Framan af voru sakamenn og
óþjóðalýður notaðir sem tilrauna-
dýr og gekk á ýmsu. En nú hafa
menn sem sagt á þessu góð tök;
það er eitt skilyrða að menn verða
að láta svæfa sig. Og svo vaknar
Oates upp á Marz og sonur
hans, tólf ára, sem var svo ákaf-
lega eftirvæntingarfullur og lang-
aði svo ólýsanlega til að vita hvað
það fæli eiginlega í sér að þeytast
um heiminn — og lái honum það
náttúrlega enginn — hann hafði
platað við svæfinguna og sofnaði
ekki... Og lokakaflinn hlýtur að
snerta mann, þó svo að manni
finnist hann dálítið hryllilegur.
Önnur saga sem mig langar til
að nefna, ekki ýkja frumleg í
sjálfu sér nú á tölvuöld, er World
Processor of the Gods. Þar segir
frá manni sem með eins konar
heimagerðri tölvu, sem hann fær
frá ungum látnum frænda sínum,
getur eiginlega stjórnað heimin-
um. Hann getur þurrkað fólk út,
framkallað það aftur og vakið
látna til lífs.
Þetta er mikil bók og ekki alltaf
auðlesin bæði vegna þess að efni
Kings er stundum í flóknara lagi
og stundum verður maður líka að
gera hlé á og leggja hana frá sér
og hvíla sig ...
Opna bandaríska meistaramótið í skák:
Sævar Bjarnason
efstur íslendinga
með 8V2 vinning
Frá l*óri S. (.rondal, frétUriUra MorgunblaóNÍns a Miami, 17. ágúst.
OPNA bandaríska meistarmót-
inu í skák lauk í Hollywood í
Flórída á fóstudagskvöld. Efstir
og jafnir með 10 vinninga af 12
mögulegum voru Boris Spassky,
Yasser Seirawan og Joel Benja-
min. Næstir með 9Vi vinning
hver urðu Robert Byrne, Sand-
eep Joshi, Anatoly Dozorets og
Eduardo Celorio.
Efstur íslendinganna varð
Sævar Bjarnason með 8M>
vinning, Dan Hansson fékk 8
vinninga og Jóhann Þórir
Jónsson fékk 7. Píanóleikarinn
Þorsteinn Gauti Sigurðsson
sem dvelur um þessar mundir í
Flórída tók þátt í mótinu og
fékk hann 5'/2 vinning.
Nærri 500 keppendur víðs
vegar að úr Bandarikjunum og
frá öðrum löndum tóku þátt í
þessu móti.
JEnrijawMafoíifo
Áskriftcirshninn er 83033
Urio!
GÆÐI
ÖRYGGI — GLÆSILEIKI
ÍTÖLSK HÖNNUN — KLASSÍSK FEGURÐ
VELDU
AÐEINS
ÞAÐ
BESTA
Nú aöeins
vilhjíAlmssonhfMFj ! lAlT
■ ái~lil-|{ÉÉ’É^tHlf7 |__________
Smiöjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 — 77202.
VACUUM - PÖKKUNARVÉLAR
Litlar eöa stórar,
eins hólfs eöa tveggja hólfa,
m/tveimur lokum eöa veltitæki.
Einnig fyrirliggjandi ýmsar stærðir og
þykktir af vacuumpokum.
Sérlega gagnsæir og
níðsterkir
Berið saman verö og gæði
l*lnsl.os lil’
Bíldshöfða 10
símar 91-82655/671900