Morgunblaðið - 20.08.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
Indland:
Kosningar boð-
aðar í Punjab
Nýju Delhí, 19. ágúst. AP. ^
ALKÍKISSTJÓRNIN á Indlandi hefur ákveðid, að kosningar skuli fara fram í
1‘unjab-ríki 22. september nk. Greinir menn á um hvort þessi ákvörðun sé
skynsamleg og óttast margir, að kosningarnar kunni að ýu undir frekari ólgu í
ríkinu.
í kosningunum verður kosið um
117 þingsæti á þinginu í Punjab og
Lögðu hald
á 676 kg
af kókaíni
Mexíkóborg, 19. ágúst.
MEXÍKÖNSK yfirvöld hafa lagt
hald á 676 kg af kókaíni að verð-
mæti allt að 191 milljón dollara, en
efnið átti að fara til Bandaríkjanna.
Aldrei hefur jafnmikið af kókaíni
verið gert upptækt í einu í Mexíkó.
Fréttastofan Notimex kvað hóp
sérhæfðra lögreglumanna frá Int-
erpol hafa lagt hald á efnið á laug-
ardag eftir að hafa stöðvað flutn-
ingabifreið skammt frá landa-
mærunum að Kaliforníu.
í framhaldi af þessari aðgerð
gerðu hermenn atlögu að af-
skekktum búgarði í norðvestur-
hluta Durango-fylkis og lögðu
hald á 10 tonn af marijuana. Efnið
hafði verið þurrkað og því pakkað
í umbúðir og sýnilega ætlað fyrir
Bandaríkjamarkað, að sögn heryf-
irvalda.
í fréttatilkynningu hersins, sem
gefin var út á laugardagskvöld,
sagði, að tveir menn hefðu verið
handteknir vegna málsins, en
hvorki var sagt frá því, hvenær
áhlaupið var gert né nánar greint
frá atvikum.
Veöur
víöa um heim
Uogst Hsnt
Akurayri 10 rignmg
Amstardam 22 36 haiöskirt
Aþena 32 léttskýjaA
Barcakma 28 Mttakýjað
Bartin 13 21 skýjaA
Brllaaal 10 23 skýjaA
Chicago 21 25 heiðskírt
Dubtin 11 19 •kýjað
Fanayiar 25 heiðskírt
Franklurt 11 21 skýjað
Ganl 9 24 haiðskirt
Hctnnfci 7 24 haiðskirt
Hong Kong 28 33 hatöskirt
JerÚMtom 18 28 heiðskirt
Kaupmannah. 14 18 skýjað
Las Palmas 25 ióttskýjað
Lissabon 17 28 heiöskirt
London 16 20 rigning
Los Angetes 19 28 skýjaðt
Lúxomborg 21 akýjað
Malaga vantar
Mallofca 30 heiðskirt
Miami 27 32 skýjað
Montreal 15 24 heiöakírt
Moskva 18 29 heiðskirt
Naw Yorfc 20 26 skýjað
Osló 14 25 akýjað
París 17 24 tkýjað
Peking 20 28 haiðskírt
Reykfavík 13 rigning
Rió de Janeiro 14 34 skýjað
Rómaborg 21 30 heiðakirt
Stokkhólmur 15 22 skýjað
Sidney 9 17 rigning
Tókýó 27 31 heiðskirt
Vínartoorg 12 19 rigning
Þórshöfn 12 rigníng
um 13 sæti á þjóðþinginu í Nýju
Delhí. Einn helsti leiðtogi hófsamra
sikha í Punjab réð Gandhi forsætis-
ráðherra mjög frá því að boða til
kosninga fyrr en kyrrt væri orðið t
rikinu og það sama gerðu allir tals-
menn stjórnarandstöðunnar á Ind-
landi. Sagði sikhaleiðtoginn, Har-
chand Singh Lonowal, forystumaður
í hófsömum armi Akali Dal, stjórn-
málaflokki sikha, að mikil hætta
væri á, að hryðjuverkamenn létu
aftur til sín taka ef kosningar væru
haldnar nú.
AP/Símamynd
Örvilnuð hjón leita skjóls eftir bílasprengjuna í hverfi Múhameðstrúarmanna í Beirút í dag. Maðurinn heldur á
kornabarni þeirra hjóna í fanginu. Sprengingin reyndist vera hefndaraðgerð kristinna eftir að bflasprengja sprakk
fyrir utan verslunarhús í kristna hluta borgarinnar á laugardag.
Múhameðstrúarmenn og kristnir sprengja á víxl í Beirút:
„Þetta var helvíti líkast“
— sagði sjónarvottur að blóðbaðinu á laugardag
BeiruC 19. ágúfiL AP.
KTÓRMARKAÐURINN Melki í einu úthverfa kristna hluta Beirút breyttist
í eldhaf þegar bílasprengja sprakk á laugardag. Talið er að 55 manns hafi
farist og 120 særst í sprengingunni.
Fjöldi fólks, aðallega konur og
börn, var staddur í markaðnum að
kaupa nýlenduvörur til helgarinn-
ar þegar sprengjan sprakk.
Karlmenn, konur og börn staul-
uðust blóðrisa út úr reykhafinu og
neituðu að trúa því sem gerðist.
Þau voru heppin: Fjöldi manns
brann upp til agna í eldinum.
Eldtungurnar teygðu sig út úr
markaðnum og bílastæðið framan
við hann stóð í björtu báli.
Minnst fimmtíu bílar á stæðinu
sprungu í loft upp er eldur komst í
eldsneytisgeyma þeirra og elds-
neytið skvettist út um allt og
magnaði bálið.
Kraftur sprengingarinnar var
slíkur að fimm gangandi vegfar-
endur sem áttu leið framhjá hóf-
ust á loft og þeyttust 300 metra
vegalengd.
Það tók björgunarsveitir og
sjúkrabíla þrjá stundarfjórðunga
að koma til björgunar, slík var
umferðin út úr borginni.
Björgunarmenn ruddust inn í
eldhafið til að bjarga fólki sem var
lokað inni í verslunarhúsinu.
Japanir skjóta á
loft gervihnetti
Tókýó, 19. igúst AP.
JAPANSKA vísinda- og geimferða-
stofnunin skaut í dag, mánudag, á
loft gervihnetti, sem gera á mikil-
vægar athuganir í marsmánuði næst-
komandi á vatnsefnishjúpi
Halley-halastjörnunnar, að sögn
embættismanna stofnunarinnar.
Hnettinum var skotið á loft með
þriggja þrepa MU-3S-eldflaug kl.
8.33 að staðartíma (sunnudag kl.
23.00 að ísl. tíma) frá Kago-
shima-geimrannsóknastöðinni i
Kyushu.
Hnötturinn hét upphaflega
„Stjarna A“, en var skírður upp og
nefndur „Halastjarna", er hann
kom út fyrir aðdráttarsvið jarðar
um 491 sekúndu eftir flugtak.
Upplýsingar frá „Halastjörnu"
og „Fyrirrennara", sem skotið var
upp í janúarmánuði, munu bætast
við þá vitneskju, sem hnettir frá
Bandaríkjunum, Sovétríkjunum
og Evrópsku geimferðastofnun-
inni munu afla um Halley-hala-
stjörnuna.
Um borð í „Fyrirrennara" er
myndavél sem skynjar útfjólublá
geisla og á með henni að safna
upplýsingum um áhrif Halley-
halastjörnunnar á svokallaða sól-
vinda.
Halastjarnan fer umhvcrfis
sólu á 76 ára fresti, síðast árið
1910.
Björgunarmennirnir komu rauð-
eygir úr reykjarkófinu með
brennda og óþekkjanlega líkami á
málmbörum.
Margir misstu útlimi, aðrir voru
svo illa brenndir að þeir voru
óþekkjanlegir og sagði einn sjón-
arvotta að þetta hefði verið helvíti
líkast.
Forsætisráðherra Líbanon sagði
tilræðismennina vera óargadýr og
sjaldan hefur sprengiárás vakið
jafn mikinn viðbjóð í Beirút, bæði
meðal Múhameðstrúarmanna og
kristinna.
Linnulitlar sprengingar og átök
voru í Beirút um helgina og í dag
sprungu tvær bílasprengjur.
„Fjöldamorð, fjöldamorð," æpti
kona viti sínu fjær af skelfingu er
hún kom hiaupandi niður Aljazar
götu gegnum biksvart kæfandi
reykjarkófið eftir að bílasprengja
sprakk fyrir utan skyndibitastað í
múslimahverfi Beirút á hádegi í
dag að staðartíma.
Flokkur sem kallar sig svörtu
herdeildirnar kveðst hafa komið
sprengjunum fyrir til að hefna
dauða þeirra sem fórust þegar
bílasprengjurnar sprungu í
kristna hluta Beirút á miðvikudag
og laugardag.
Fyrri sprengjan sem sprakk í
dag eyðilagði fjölbýlishús í Karak-
ol, íbúðarhverfi drúsa, og kviknaði
í fjölda bifreiða sem áttu leið eftir
götunni. Að minnsta kosti einn
maður brann lifandi í bifreið sinni
fyrir framan skelfd bjargarlaus
vitni.
Ritskoða tékknesk yfirvöld
ræður sovézkra leiðtoga?
V ínarhorg, 19. ágúsL AP.
TÉKKNESKI hópurinn, sem kenndur er við mannréttindayfirlýsingu mennta-
manna frá 1977, segir í yfirlýsingu, að (ékknesk yfirvöld hafi upp á síðkastið
ritskoðað ræAur sovézkra leiAtoga áAur en þær hafa birzt á prenti í Tékkóslóv-
akíu.
Segir mannréttindahópurinn, að
tékkneskir valdamenn séu slíkir
harðlínumenn að þeim líki ekki
Mikhail S. Gorbachev, leiðtogi sov-
ézka kommúnistaflokksins. Hann sé
miklu frjálslegri en forverar sínir. í
kjölfar innrásarinnar í Tékkó-
slóvakíu 1968 og í tíð Leonids
Brezhnevs urðu Tékkar einhverjir
mestu bandamenn Sovétmanna.
Mannréttindahópurinn elur hins
vegar einhverja von í brjósti um
breytingar. Hvetur hópurinn Sov-
étmenn til þess að sýna friðarvilja í
verki með því að fækka í herjum
sínum í Tékkóslóvakíu. Slík ráðstöf-
un mundi auka á virðingu Tékka
fyrir Moskvustjórninni og ætti að
liðka fyrir vígbúnaöartakmörkun og
afvopnun, og stuöla að friðsamlegri
sambúö Varsjárbandalagsins og
NATO.
Mannréttindahópurinn var stofn-
aður 1977 í kjölfar HelSinkiráð-
stefnunnar 1975. Samtökin beina oft
og iðulega spjótum sínum að tékkn-
eskum yfirvöldum, sem þau saka um
brot á tékkneskum lögum og al-
þjóðasáttmálum um mannréttindi.
Japanska flugslysið:
Farþegi skrifaði skilaboð
til fjölskyldu sinnar
Tokýó, 19. ífisL AP.
AÐEINS nokkrum mínútum áður en breiðþota japanska flugfélagsins
JAL hrapaði í miðhluta Japans í síðustu viku, hripaði einn farþeginn niður
hugsanir sínar í vasabók þegar hann beið dauða síns að sögn fjölskyldu
hans.
Hinn 52 ára gamli Hirotsugo
Kawaguchi hóf að skrifa skila-
boðin, sem stíluð voru á uppkom-
in börn hans þrjú, meðan flestir
farþeganna voru að leita að súr-
efnisgrímum og björgunarvest-
um í vélinni. Hófust þau á þess-
um orðum: „Verið góð við hvert
annað, og verið móður ykkar að
liði.“ Síðan sagði hann: „Ég er
mjög sorgmæddur, enda er ég
viss um að ég eigi ekki eftir að
lifa af slysið — þó veit ég ekki af
hverju." Eins og kunnugt er
komust aðeins fjórir farþegar
lífs af í slysinu, en Kawaguchi
var meðal þeirra sem fórust.
Eftir að Kawaguchi gerði sér
grein fyrir því að flugvélin hafði
verið stjórnlaus í fimm mínútur
skrifaði hann: „Ég vil ekki stíga
framar í flugvél, Guð hjálpi
mér.“
Sérfræðingar segja að lýsing
Kawaguchi á því hvað gerðist f
flugvélinni eftir að flugmennirn-
ir misstu stjórn á henni hafi
reynst mjög mikilvæg við rann-
sókn málsins. Þar segir Kawag-
uchi m.a. að mikill reykur hafi
myndast í vélinni, og telur hann
að sprenging hafi orðið í
farþegarými. Eftir það hafi
flugvélin byrjað að hrapa: „Hvað
mun nú gerast?", spurði hann.
Síðan sagði hann: „Tsuyoshi,
sonur minn, ég treysti á þig.“
Hann beindi svo orðum sínum að
konu sinni og sagði: „Þetta er
voðalegt. Bless. Sinntu börnun-
um eins vel og þú getur.“ Kawag-
uchi sagði að klukkan hefði verið
hálf sjö þegar flugstjórinn til-
kynnti í hátalarakerfi vélarinn-
ar að hann hefði ekki lengur
stjórn á henni Þá hefðu heyrst
miklar drunur í þotunni og hún
misst hæð.
Alls skrifaði Kawaguchi 17
málsgreinar og hljóðaði hin síð-
asta svo:„ Ég er þakklátur fyrir
að hafa átt þess kost að lifa
hamingjusömu lífi fram að
þessu.“
Skilaboðin voru skrifuð í vasa-
bók, sem sýnd var í japanska
sjónvarpinu, en stundum var
skriftin næstum ólæsileg. Sonur
Kawaguchi, kvaðst hafa símað
skilalwð föður síns til fjölskyldu
sinnar þegar hann mætti á
slysstaðinn, sem er bratt fjall-
lendi.