Morgunblaðið - 20.08.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1986
27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
im Svd. Ingólfs.
látíð
Ingólfs
kaffisölu á meðan á hátíðinni stóð
en henni lauk um kl. 17.
Örlygur Hálfdanarson sagði að
Ingólfshátíðin hefði tekist afskap-
lega vel og veðrið eins og best
hefði verið á kosið. Gat hann þess
að upphaflega hefði verið ráðgert
að halda Ingólfshátíðina mun fyrr
á árinu, en forlögin hefðu tekið
þar í taumana. Líklega hefðu
vættir þær sem vísuðu land-
námsmönnunum leiðina hingað
talið fara betur á því að halda há-
tíðina á 199. afmælisdegi Reykja-
víkurborgar.
Aðspurður sagði Örlygur að
hugsanlega myndi Svd. Ingólfur
gangast fyrir samskonar hátíð á
200 ára afmæli Reykjavíkurborgar
að ári.
órí, afhjúpar annaó nafnspjaldið á hin-
>lfs, Jóni E. Bergsveinssyni, sem heitir
ðstoðar er Kristján Magnússon, björg-
já björgnnarsveitarmenn úr Svd. Ing-
linni sést hvar Haraldur nælir merki í
tri stendur ísak Viggósson og á milli
Niðurstöður rannsókna á Surtsey í ágústbyrjun:
FYRST eftir að Surtsey
myndaöist 1963 fóru vísinda-
menn oft á ári hverju í rann-
sóknarleiðangra út í eyna.
Hin síðari ár hafa siíkar ferð-
ir þó aðeins verið farnar ann-
að til þriðja hvert ár, enda
breytingar hægari á eynni
eftir því sem lengra líður frá
gosi. I byrjun þessa mánaðar
fóru sex jarövísindamenn af
þremur þjóðernum og tveir
líffræðingar í slíkan leiðang-
ur út í Surtsey og könnuðu
lífríkið og þær jarðfræðilegar
breytingar sem eru að verða
á eynni.
Sveinn Jakobsson, jarðfræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun
íslands, var einn leiðangurs-
manna. Morgunblaðið hafði tal
af honum á dögunum og spurði
hann út í förina og niðurstöður
rannsókna.
„Við vorum alls átta sem fór-
um þessa ferð“, sagði Sveinn.
„Fjórir íslenskir jarðvísinda-
menn, frá Náttúrufræðistofnun
íslands og Orkustofnun og tveir
erlendis vísindamenn að auki, frá
Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Ásamt okkur í förinni voru tveir
íslenskir líffræðingar, og dvöldu
þeir í tvo sólarhringa en við hinir
í fimm.
Árið 1979 var boruð rannsókn-
arborhola í Surtsey og síðan hafa
farið þar fram hitamælingar
með reglulegu millibili. Við
mældum holuna í ferðinni og
sýna mælingarnar hæga kólnun
á eynni sem svarar u.þ.b. tæpri
gráðu á ári. Mestur hiti í holunni
mældist að þessu sinni 145 gráð-
ur á celsius.
Þó að eyjan sé þannig smám
saman að kólna þá mældust 250
gráður á yfirborði hennar, rétt
suður af stóra hraungígnum.
Kom það okkur dálítið á óvart
hve hitinn var mikill, því að nú
eru liðin 20 ár síðan stóri gígur-
inn gaus. Þetta gæti kannski gef-
ið einhverja vísbendingu um það
að hitinn í Heimaeyjarhrauninu
í Vestmannaeyjum ætti að geta
enst Vestmanneyingum töluvert
áfram.
Gosaskan sem upprunalega
myndaðist hefur í gegnum árin
verið að breytast í móberg og
rannsökuðum við móbergssvæðið
ítarlega. Hafa nú um 80% af allri
gosösku ofansjávar breyst í hart
móberg af völdum hita og raka.
Einnig hugðum við að myndun
jarðvegs og voru tekin um 100
yfirborðssýni víðsvegar um eyna,
m.a. undir plöntum.
Landmælingar íslands tóku
loftmyndir af Surtsey 23. júlí sl.
og með hjálp þessara mynda er
fylgst með landmótun af völdum
sjávar og vinda, en hún gerist
mjög hratt. Undanfarin ár hefur
horfið í sjó u.þ.b. einn hektari á
ári. Surtsey var stærst í goslok,
1967, um 270 hektarar en er nú
komin í tæpa 200 hektari, þannig
að um 35% af upprunalegri
stærð hafa horfið í sjóinn.
Fljótlega eftir að Surtseyjar-
gosinu lauk kom í ljós að eyjan er
að síga. í ferðinni gerðum við
nákvæmar hæðamælingar í þeim
tilgangi að fylgjast með þvi
hvernig eyjan sígur saman. Er
sigið mest um miðbik eyjunnar
og er talið að hún hafi sigið um
þrjá til fjóra metra síðan 1967.
Surtsey. Myndin var tekin af Landmælingum íslands í ágúst 1984. Eyjan er um 1450 m á breidd frá
austri til vesturs.
Sjómælingar íslands gerðu
nýtt dýptarkort af svæðinu í
kringum eyna í júní- og júlímán-
uði sl. og kom þá ýmsilegt merki-
legt í ljós. Við gosið 1963 mynd-
uðust auk Surtseyjar tvær litlar
eyjar, Jólnir og Syrtlingur, sem
brotnuðu þó fljotlega niður. Með
dýptarmælingunum nýju kom í
ljós að hólarnir sem eftir standa
á botninum eru sífellt að lækka
eða um einn metra á ári. Þannig
er dýpið niður á Jólnir nú orðið
37 metrar. Er hér líklegast um
öldu- og straumrof að ræða,“
sagði Sveinn Jakobsson, jarð-
fræðingur að lokum.
Doktor Sturla Friðriksson var
annar líffræðinganna í förinni út
í Surtsey, en hann hefur frá upp-
hafi hugað að lífi í eynni. Morg-
unblaðið hafði tal af dr. Sturlu
og innti hann eftir niðurstöðum
rannsókna á lífinu í Surtsey.
„Við fundum alls níu tegundir
æðri plantna á eynni, þ.e. blóm-
plantna, sem er svipaður fjöldi
og við fundum í fyrra," sagði dr.
Sturla. „Undanfarin ár hefur
orðið mikil útbreiðsla á fjöruarfa
og melgresi í eynni, sem leggja
undir sig sandorpið hraunið.
Mikil fræseta verður í ár hjá
þessum plöntum og má búast við
að á næstu árum verði mikil
fjölgun af fjöruarfa, melgresi og
blálilju. Þessar tegundir vaxa nú
saman á sandinum og mynda
fyrsta samfélag æðri plantna í
Surtsey.
Plönturnar þrjár eru strand-
plöntur og því eðlilegt að þær séu
frumherjar á eynni, en öðrum
plöntutegundum hefur reynst
landnámið heldur erfitt. Því
stendur útbreiðsla annarra land-
nema að mestu í stað. Þó hefur
fundist einn nýr landnemi í ár
sem er skriðlíngresi. Frá upphafi
höfum við fundið um 20 tegundir
æðri plantna vaxandi á eynni, en
margar hafa týnt tölunni og nýj-
ar vaxið í staðinn."
Doktor Sturla kvað ýmsar
fuglategundir hafa numið land á
Surtsey í gegnum árin. „Teista,
ryta, fýll og svartbakur verpa
þar árlega. Svartbakurinn notar
melhólana sem skjól en borgar
fyrir sig með því að drita í hól-
ana og bera þangað fiskúrgang
sem rotnar og verður að áburði.
Þannig hafa bæði fuglar og gróð-
ur nokkurn hag af sambýlinu.
Erlendir vísindamenn hafa
mikinn áhuga á því að fylgjast
með framvindu lífs í Surtsey og
er hennar víða getið núorðið í
vistfræðilegum ritum. Upp-
græðsla og landnám plantna og
dýra á auðnum jarðar s.s. Surts-
ey, þykir mjög áhugavert rann-
sóknarefni og til marks um það
verður Surtsey m.a. til umræðu á
alþjóðafundi gróðurfræðinga
sem haldinn verður í Skotlandi í
lok þessa mánaðar. Þá má geta
þess að lokum að í september á
næsta ári verður haldin ráð-
stefna hér á landi um svipuð efni
og þá verður landnám lífs í
Surtsey og söndum og hraunum
íslands til umræðu," sagði dr.
Sturla Friðriksson.
Eyjan kólnar nú um
tæpa gráðu á ári