Morgunblaðið - 20.08.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGIJR 20. ÁGÚST 1985
Fulltrúi verðlaunahafanna ásamt borgarstjóra og fulltrúa Umhverfismálaráðs.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg Láland, fegursta gata í Reykjavfk 1985.
MFMACNSVin’A
K'fKJAViKUR
...........;;;;;
■MiiiifMminm
..............
Höggmyndagarður Einars Jónssonar. „Nýmótun garðsins er gott dæmi um
umhverfi sem auðgar mannlíf í Reykjavík. Vel heppnað framtak, sem þegar
hefur sannað ágæti sitt með mikilli aðsókn.“
IBM Skaftahlíð 24. „Fær viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi við fyrir-
tæki sitt, þar sem m.a. hefur verið komið fyrir lýsingu og bekkjum."
Láland, fegursta gata
Reykjavíkur 1985
— sjö stofnanir og fyrirtæki verðlaunuð fyrir góða umgengni
LÁLAND í Fossvogi er fegursta gata
Reykjavíkur árið 1985. f greinargerð
dómnefndar um valið segir meðal
annars: „Að þessu sinni var leit að
fegurstu götunni erfiðari en oft áður, .
en að vandlega athuguðu máli vor-
um við sammála um að tilnefna Lá-
land, sem er einbýlishúsagata neðst
í Fossvogsdal. sem fegurstu götu
Reykjavíkur 1985.“
Viðurkenningin fyrir fegurstu göt-
una var að venju afhent við hátíð-
lega athöfn í Höfða á afmælisdegi
Reykjavíkur hinn 18. ágúst. Auk
verðlauna fyrir fegurstu götuna
fengu eftirtalin sjö fyrirtæki og
stofnanir viðurkenningar fyrir
snyrtimennsku og góða umgengni:
Rafmagpsveita Reykjavíkur, Kirkju-
garðar ReykjavíkurprófastsdæmLs,
Verslunin ('ompany Laugavegi 42,
Höggmyndagarður við Listasafn
Kinars Jónssonar, Kauði kross ís-
lands Nóatúni 21, IBM Skaftahlíð
24 og húseignin Borgartúni 17.
Sigurður Sigurðarson fulltrúi í
Umhverfismálaráði* Reykjavíkur
gerði grein fyrir sögu þessara
verðlauna. Kom fram hjá honum
að fyrir hartnær 40 árum hefði
Fegrunarfélag Reykjavíkur byrjað
að veita verðlaun fyrir fegursta
garð borgarinnar. Árið 1953 tók
Fegrunarnefnd borgarinnar við
þessu verkefni og síðar Umhverf-
ismálaráð við stofnun þess. Árið
1959 var fallið frá því að verð-
launa einstaka garða, vegna þess
að garðar borgarinnar voru orðnir
það margir að ekki var talið unnt
að skoða þá alla til hlítar. Var
þess í stað tekinn upp sá siður að
verðlauna fegurstu götuna og hef-
ur svo verið gert árlega síðan.
Davíð Oddsson borgarstjóri af-
henti verðlaunahöfunum viður-
kenningarskjöl og flutti stutt
ávarp. Sagði hann meðal annars
að hér væri að sjálfsögðu ekki um
neinn lokadóm að ræða heldur
væri þessum viðurkenningum
fyrst og fremst ætlað að sýna að
slík vinnubrögð eru mikils metin
og séu öðrum til eftirbreytni og
vera fólki þannig hvatning til
bættrar umhirðu. Borgarstjóri gat
þess að borgin hefði jafnan lagt
áherslu _ á að ýta undir snyrti-
mennsku og góða umgengni og nú
væri lögð á þetta sérstök áhersla
vegna 200 árá afmælis borgarinn-
ar á næsta ári. Meðal annars hefði
verið gengið í hús og athugasemd-
ir afhentar við það sem betur
mætti fara i umgengni og hefðu
margir þegar brugðist vel við þeim
tilmælum. Þá minnti borgarstjóri
á fegrunarvikuna sem haldin var í
vor og kvað hana hafa skilað mikl-
um árangri.
Að lokum sagði borgarstjóri að
þó mikið hefði áunnist væri enn
víða pottur brotinn í umgengni og
hvatti borgarbúa til að vinna
dyggilega að því að fegra borgina
enn frekar fyrir 200 ára afmælið
að ári.
Dómnefnd sem valdi fegurstu
götuna skipuðu: Vilhjálmur G.
Vilhjálmsson, Pétur Hannesson
og Hafliði Jónsson. Dómnefnd um
umhverfi fyrirtækja og stofnana
skipuðu: Sigurbjörg Áðalsteins-
dóttir, Einar E. Sæmundsen og
Helga Bragadóttir.
Hús Rafmagnsveitna Reykjavíkur i————■—
að Suðurlandsbraut 34. „Fær verð-
laun fyrir virðingarvert framtak,
hvað varðar hönnun mannvirkja og
umhverfis. Viðhald til fyrirmyndar."
Verslunin Company Laugavegi 42. „Fær viðurkenningu fyrir smekklegt um- Kapellur Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis. „Gott dæmi um stofnun, sem sýnt hefur skilning á mikilvægi
hverfi við verslunargötu." fallegs og snyrtilegs umhverfis."