Morgunblaðið - 20.08.1985, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
41
þjóðsögur, heilaga ritningu eða
samtímabókmenntir, en í hvert
sinn flutti hann áheyrendum sín-
um einhver þarfleg umhugsunar-
efni eða hugvekjur.
Hið sama má segja um skóla-
setningar- og skólaslitaræður
hans. Þorsteinn var í hópi snjöll-
ustu ræðumanna, byggði ræður
sínar upp af viti og listfengi og
flutti þær af þrótti og sannfær-
ingu.“
Næst eftir skólastörfunum vil
ég nefna útgáfustörf Þorsteins, en
hann var um áratuga skeið bæði
mikilvirkur og vandlátur bókaút-
gefandi. Þessi starfsemi var í önd-
verðu sprottin af reynslu bernsku-
áranna: hann vildi bæta úr bóka-
skorti íslendinga og seðja fróð-
leiksfýsn ungra manna. Bókaút-
gáfan skyldi verða einn veiga-
mesti þátturinn í fræðslustarfi
hans. í því skyni hóf hann útgáfu
sérstaks ritsafns sem bar heitið
„Lýðmenntun", og voru fyrstu
bækurnar í safni þessu Himin-
geimurinn eftir Ágúst H. Bjarna-
son og Rousseau eftir Einar 01-
geirsson. En í þá daga átti bóka-
útgáfa hérlendis erfiðara
uppdráttar heldur en síðar varð,
og þessi viðleitni Þorsteins naut
einskis stuðnings af almannafé.
Því fór svo að útgáfa þessa rit-
safns, sem fór svo vel af stað,
hlaut að leggjast niður eftir þrjú
ár. Féll Þorsteini það þungt, því að
þetta hafði verið óskabarn hans.
En Þorsteinn hélt bókaútgáfu
sinni áfram á öðrum vettvangi og
prentaði hundruð bóka áður lauk.
Og bækurnar voru ekki valdar af
handahófi. Mesta rækt lagði hann
við ný íslensk skáldrit, kennslu-
bækur, valdar barna- og ungl-
ingabækur og þjóðsögur og þjóð-
fræði af ýmsu tagi. Þjóðsögum
unni hann mest næst á eftir forn-
sögunum og varð frábærlega vel
að sér í þeirri grein. Merkustu út-
gáfuverk hans í þjóðfræðum voru
Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar
(þrjú bindi, 1945), Gráskinna Sig-
urðar Nordals og Þórbergs Þórð-
arsonar (fjögur bindi eða hefti
1928—36), og síðast en ekki síst
Gríma (25 hefti, 1929-50). Til
Grímu var að upphafi safnað af
Oddi Björnssyni, en Þorsteinn og
vinur hans Jónas Rafnar læknir
sáu um útgáfuna.
Þorsteinn var einn af frumherj-
um FramsóknarHokksins og þing-
maður hans frá 1916—23, eins og
fyrr er getið. Á efri árum ritaði
hann um upphaf flokksins bækl-
ing sem nefnist Stofnsaga Fram-
sóknarflokksins. Innan þing-
flokksins var honum þegar sýndur
mikill trúnaður, meðal annars við
myndun ráðuneytis Jóns Magn-
ússonar um áramótin 1916—17.
Og þegar Alþingi kaus fjóra full-
trúa til að semja við Dani um
sambandsmálið 1918 var Þor-
steinn einn í þeim hópi, yngstur
allra í sambandslaganefndinni
sem svo var kölluð. Ekki vildi
hann sjálfur gera mikið úr sínum
hlut í störfum nefndarinnar, enda
lætur það að líkum að hinn ungi
maður, óvanur að mæla á danska
tungu, hefði sig minna í frammi
en hinir eldri menn og reyndari:
Jóhannes Jóhannesson, Bjarni
Jónsson frá Vogi og Einar Arn-
órsson; en enginn þarf að efa að
hann hefur stutt málstað íslands
af einurð og skynsemi. Á fimmtíu
ára afmæli fullveldisins, 1968,
voru í útvarpi og sjónvarpi langir
viðtalsþættir við Þorstein og
geymist þar merkileg raust og
mikilúðlegt yfirbragð hins aldna
garps.
Meðal merkustu nýmæla sem
Þorsteinn flutti á Alþingi voru lög
um þjóðleikhús (ásamt Jakobi
Möller, 1923) og lagafrumvarp um
Menntaskóla Norður- og Austur-
Iands, sem var vísað frá með ná-
lega jöfnum atkvæðum, en náði
fram að ganga fjórum árum síðar.
Fyrir skeleggan atbeina hans var
það og samþykkt á Alþingi 1919 að
barnakennarar skyldu verða emb-
ættismenn rfkisins og hljóta föst
laun, en áður hafði staða þeirra
verið ótrygg og launin harla bág-
borin. I þakklætisskyni fyrir
þennan stuðning gáfu barnakenn-
arar Þorsteini vandað gullúr, og
var sá gripur honum einkar kær.
Eftir að Þorsteinn hóf bóka-
verslun og bókaútgáfu á Akureyri,
opnuðust honum nýjar leiðir til að
auka við bókasafn sitt, bæði beint
með ýmiskonar bókaskiptum og
óbeint með þeim hætti að hann
lagöi allan ágóða af verslun sinni
og forlagi, þegar nokkur var, í
kaup á bókum. Eftir að hann flutt-
ist til Reykjavíkur helgaði hann
safninu nær alla starfskrafta sína,
og þeir voru býsna miklir þótt
hann væri aldraður orðinn og ætti
öðru hvoru við erfið veikindi að
stríða. Það var ógleymanlegt að
koma á heimili þeirra Sigurjónu í
Eskihlíð 21 og ganga um íbúðina
þar sem bókunum var drepið í
hvern krók og kima. Á Reykjavík-
urárunum jók hann enn við safnið
ýmsum kjörgripum, keypti meðal
annars tvær elstu Biblíurnar,
Guðbrandsbiblíu og Þorláksbiblíu.
Hann reyndi að kaupa yfirleitt
allar íslenskar bækur sem völ var
á. Sumt var vitanlega ófáanlegt
með öllu sem prentað var á fyrstu
tímum. Það voru mestmegnis
guðsorðarit eins og kunnugt er.
Prentun fornsagna og annarra
veraldarbóka hófst síðar, enda
tókst Þorsteini að ná í næstum all-
ar útgáfur íslenskra fornrita sem
komið hafa á frummálinu. Það var
því í sannleika vel til fallið að
hann skyldi ráðstafa bókum sín-
um til Stofnunar Árna Magnús-
sonar um sömu mundir og hand-
ritin tóku að berast heim frá
Danmörku. Svo var kallað að ríkið
keypti bókasafnið, en raunar gáfu
þau hjónin meira en helming and-
virðisins í sjóð sem verja skal til
framhaldandi bókakaupa. Bóka-
safn Þorsteins M. Jónssonar og
Sigurjónu Jakobsdóttur skipar nú
veglegan sess við hlið hinna end-
urheimtu handrita, til mikillar
nytsemdar fyrir þá fræðimenn
sem vinna að rannsóknum og út-
gáfu handritanna í Árnagarði.
Ef ég ætti að lýsa Þorsteini með
fáum orðum, þá vildi ég segja:
hann var atorkusamur, einarður,
hagsýnn og hreinskiptinn. Menn
vissu hvar þeir höfðu hann, og því
naut hann trausts allra, til að
mynda pólitískra andstæðinga
jafnt sem flokksbræðra sinna.
Ég get bent á tvennt sem sýnir
þetta glögglega. Hann sat, sem
fyrr segir, 14 ár í bæjarstjórn Ak-
ureyrar, þar af 12 hin síðari sem
forseti hennar og mörg síðari árin
var hann ávallt kjörinn með at-
kvæðum allra bæjarstjórnar-
manna. Munu slíks vera fá dæmi
hér á landi. Og hann var sátta-
semjari í vinnudeilum í umdæmi
Norðurlands frá 1939—’56 og naut
því slíks trausts og vinsælda í því
starfi að Norðlendingar vildu
endilega fá hann til að halda því
áfram þótt hann væri kominn yfir
sjötugt og fluttur í annan lands-
fjórðung; en hann taldi ekki fært
að verða við þeirri beiðni. Þessar
staðreyndir tala sínu máli og
sanna betur en mörg lofsyrði
hvern mann Þorsteinn hafði að
geyma.
Ég kynntist honum ekki fyrr en
eftir að hann var fluttur hingaö
suður; en hann hafði frá ungum
aldri verið tryggðavinur tengda-
föður míns, Egils Þorlákssonar, og
föðurbróður míns, Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu, og mun það ekki
hafa spillt fyrir mér þegar fund-
um okkar bar saman. En náin
urðu kynni okkar ekki fyrr en á
allra síðustu árum hans, þegar
hann var kominn hátt á níræðis
aldur og ég vann með honum að
því að koma bókasafni hans í
vörslu Árnastofnunar. En þá urðu
kynnin líka mjög náin, og ég leyfi
mér að segja að ég hafi borið til
þeirra hjóna sonarlega ást og virð-
ingu. Þá snerist tal hans oft um
bækurnar — of oft, að mér nú
þykir, því það var svo skemmtilegt
og fróðlegt að ræða við hann um
önnur efni, um ýmis viðfangsefni
og vandamál mannlegs lífs, eða
heyra hann segja frá mönnum
sem hann hafði þekkt, frá merkis-
atburðum og átökum sem gerst
höfðu í samtíð hans. Sú er bót að
hugarheimur hans og spekimál
hafa með nokkrum hætti varð-
veist í ræðum hans og ritgerðum,
sem samkennarar hans gáfu út er
hann lét af skólastjórn, í bókinni
Skráð og flutt. Þar lifir hann enn,
hinn fróði sögumaður, hinn vitri
uppalandi og góði drengur.
Jónas Kristjánsson
René Guinot snyrtivörurnar erufyrst ogfremst unnar úr
náttúrulegum hráefnum, adallega jurtum og ávöxtum,
þær fara í gegnum strangt gœðaeftirlit og prófanir
við fullkomnustu aðstœður.
René Guinot gefur marga valkosti.
* ACN lína fyrir feita húð.
* Normal húðlína.
* Hydraseve lína fyrir þurra húð.
* NU lína fyrir líkamann, sápa, body lotion,
cellulite krem, mýkjandi og styrkjandi olíur,
gelkrem fyrir bólgna fætur, æðaslitskrem, brjóstakrem,
brjóstaampullur og brjóstaolía.
* UV lína, krem sem flýtir fyrir brúnkumyndun,
sólvarnarkrem, eftirsól krem. .
* Effective lína fyrir 25 ára og eldri.
Effective er nýjung frá René Guinot.
€FF€CTIV6
Effective línan er nýjung frá René Guinot.
Mikilvœgasta innihaldsefni hennar er mucopolys-
accharides en það er náttúrulegt efnasamband í bandvef
húðarinnar sem, ásamt kollageni og elastini
(teygjuefni), breytist og rýrnar með aldrinum.
Samband þessara efna hjálpar húðinni að viðhalda
stinnleika sínum. Krem sem innihalda mucopolys-
accharides binda einnig sérstaklega vel raka í húðinni.
Niðurstöður fjölda rannsókna hafa sýnt að ótvíræð
tengsl séu milli magns af mucopolysaccharides í bandvef
húðar og aldurs hennar.
kygfgftotrr^
,llð
Eðlileg nýmyndun á mucopolysaccharides húð fer
stigminnkandi fram að 30 ára aldri, er síðan nokkuð
stöðug milli 30 og 35 ára aldurs en minnkar all hratt
eftir það.
Upp úr þrítugsaldri fer húð að sýna ýmiss einkenni
aldurs, missa teygju og stinnleik og þorna.
Reglubundin notkun Effective kremanna, sem
innihalda samband af kollageni, elastini (teygjuefni) og
mucopolysaccharides, eykur varnarmátt húðarinnar
gegn þessum einkennum.
Effective hentar normal til þurri húð 25 ára og eldri.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Snyrtistofan Ársól, Grímsbæ v/Bústaðaveg R. S: 31262
Snyrtistofan Ásýnd, Garðastræti 4, R S: 29669
Snyrtistofan Salon Ritz, Laugavegi 66, R S: 22460
Snyrtistofan Pema, Reykjavíkurv. 64, Hafnarf. S: 51938
Snyrtistofa Lilju, Engihjalla 8, Kópavogi S: 46620
Snyrtistofan Andromeda, Iðnbúð 4, Garðabæ S: 43755
Snyrtistofan Dana, Hafnargötu 49, Keflavík S: 92-3617
Snyrtistofa Nönnu, Strandgötu 23, Akureyri S: 96-26080
Snyrtihúsið, Eyrargötu 27, Selfossi S: 99-2566
Snyrtistofa Ágústu Guðnad., Miðstr. 14, Vestm. S: 98-2268
^miCjuíiuf
Einkaumboð á tslandi
f SHptbtóíiH
ÁÆýiid