Morgunblaðið - 20.08.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
47
Bréfritari bendir á að í Fossvogskirkjugarði vinni 50—90 ungmenni við viéhald og umhiröu, og nú sé verið að slá
garðinn í þriðja sinn í sumar. Einnig vinni fjöldi unglinga í öðrum kirkjugörðum borgarinnar, meðal annars við
Suðurgötu, en þaðan er myndin.
Mikið starf er unnið í
Fossvogskirkjugarði
Haraldur Þór Skarphéðinsson
garðyrkjufræðingur, Kirkjugörðum
Reykjavíkur, svarar bréfi Soffíu
sem birtist í Velvakanda síðastlið-
inn föstudag:
Hverjum er gefur sér tíma til að
skoða kirkjugarðinn í Fossvogi
verður ljóst að þar er unnið mikið
starf yfir sumarmánuðina.
Garðurinn er langstærsti skrúð-
garður landsins, 30 hektarar
(300.000 fermetrar) að flatarmáli.
í sumar hafa starfað á milli 50
og 90 ungmenni við viðhald og um-
hirðu undir stjórn fullorðinna.
Hefir ekki aðeins njóla, heldur
öllu illgresi íslensku flórunnar,
verið sagt stríð á hendur.
Soffía bendir á að óslegið sé
neðst í garðinu og mun hún eiga
við syðsta hluta garðsins. Ég vil
benda á að þar er nú unnið að
slætti í þriðja skiptið í sumar.
Nýja sundlaug
í Kópavog
Kópavogsbúi hringdi:
Mig langaði að vekja hér máls
á nokkru sem hefur farið í taug-
arnar á mér og eflaust fleirum
nú um langt skeið. Þannig er mál
með vexti að ég fer alloft í sund
mér til upplyftingar og heilsu-
bótar. Þetta er orðið algengt hér
á landi; hefur mikið færst í vöxt
eftir að sundlaugum tók að
fjölga og er það vel.
Þegar ég var að alast upp vest-
ur á Súgandafirði fyrir um það
bil 30 árum var þar sundlaug.
Hún var að vísu ekki sérlega stór
enda ekki nema um 300 íbúar í
þorpinu. En við vorum ánægð
með sundlaugina, sérstaklega
krakkarnir auðvitað.
Mér skilst að íbúar Kópavogs
séu á fjórtánda þúsund nú um
þessar mundir og eins og nærri
má geta er sundlaug til í bænum.
En viti menn, hún er ekki stærri
en sundlaugin okkar gamla vest-
ur á Súgandafirði. Enda er mað-
ur alveg hættur að bregða sér í
sund eftir vinnu, því seinni part
dags er sundlaugarsvæðið eins
og iðandi kös. Fjöldi manns bú-
inn að skola vel af sér i lauginni
og hún orðin líkust drullupolli.
Að fá sér sundsprett er auðvitað
vonlaust. Maður má þakka fyrir
takist manni að troða sér ofan í
laugina.
Því spyr ég: Finnst ekki Kópa-
vogskaupstað fyrir neðan sína
virðingu að eina sundlaug bæj-
arins sé á stærð við smápoll i
sveitakaupstað fyrir þrjátiu ár-
um? Ég veit vel að Kópavogsbær
er ekki ríkari en gerist og geng-
ur, en hvernig væri nú samt að
drífa í því að byggja almennilega
sundlaug?
Guli litur-
inn ljótur
Ingibjörg Stefánsdóttir hringdi:
Mér þykir svo vænt um stræt-
isvagnana að ég vona að ekki
verði farið að mála þá í þessum
hræðilega ljóta gula lit og alls
ekki alveg einlita. Mér hefur
dottið i hug að ef endilega þarf
að breyta um lit mætti nota
þennan fallega græna, sem er á
nýju skýlunum og með honum
sítrónugulan lit. Slík litasam-
setning ætti að sjást langar leið-
ir.
Mér fyndist líka mjög gott ef
öll strætisvagnaskýli í bænum
yrðu máluð með þessum sama
græna lit.
Athugasemd
við leiðara
Mbl. 16. ágúst
GJS. hringdi:
I leiðara Morgunblaðsins
föstudaginn 16. ágúst, er sagt að
sá þekki litið til íslensks stjórn-
kerfis sem hneykslast á því að
upplýsingar „leki“ og ekki sé
hægt að halda neinu leyndu hér
á landi.
Þá mætti spyrja hvort sá sem
þetta skrifaði þekki vel til hins
íslenska stjórnkerfis og hvort
hann telji eðlilegt að svona
nokkuð sé látið viðgangast.
Finnst ekki Kópavogskaupstað fyrir neðan sina virðingu að eina sund-
laug bæjarins sé ekki stærri en smápollur í sveitaþorpi fyrir þrjátíu
árum? spyr Kópavogsbúi.
-----------------------------\
ENSKU TEIKNINGASKÁPARNIR
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SIMI 651000.
Fjölbreytt
úrval,
gott verð.
HIH
iWn
Bláskógar
Armúla 8,
Sími 68-60-80.
Húsgögn, gjafavörur