Morgunblaðið - 20.08.1985, Page 52

Morgunblaðið - 20.08.1985, Page 52
BTT KORT Ali5 StlUMR KEILUSALURINN OPINN 1000-00.30 ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. < _> Morgunblaðid/ RAX Skyld’ann vera bíiinn meö kvótann? Skákmeistarar hætt komnir í Bröttubrekku: „Ekki tími til að hugsa um skák- byrjanir á leiðinni“ MESTA mildi var að fjögur ungmenni — þar af þrír úr hópi fremstu skákmanna íslendinga — meiddust ekki alvarlega þegar bíll þeirra fór út af veginum í Brötiubrekku á föstudagskvöldið og niður í gil, um sjö metrum neðan við veginn. „Þetta gerðist tiltölulega hratt og því ekki mikill tími til að hugsa um skákbyrjanir eða miðtafl á leiðinni niður,“ sagði Jón L. Árna- son stórmeistari, sem var öku- maður í ferðinni. Hann var á sjúkrahúsinu á Akranesi alla helgina, þar sem óttast var að hann hefði hlotið innvortis meiðsli. Hann reyndist talsvert marinn en ómeiddur að öðru leyti. Ásamt Jóni í bílnum var bróðir hans Ásgeir, unnusta hans Jenný Axelsdóttir og Jóhann Hjartarson stórmeistari. Þeir bræður voru frammí, báðir með bílbelti. Þau ætluðu að renna fyrir lax í Hörðu- dalsá „en í staðinn endaði ferðin í læk í gljúfurbotninum og þar fundum við engan fisk“, sagði Jón. Jenný slapp ómeidd, Jóhann fékk skurð á hökuna en Ásgeir skarst á hendi og gagnauga. „Það blæddi talsvert úr sárinu á höfðinu á Ásgeiri," sagði Jón, „en það var gert að því í Búðardal með aust- urlenskum vefjarhetti, sem mér sýndist hafa farið honum mjög vel.“ Svartamyrkur var þegar slysið varð „og aðstæður vægast sagt mjög slæmar," sagði Jón. „Við komum þarna í blindhæð og svo tók brekka við af henni og kröpp Bannað að selja bjór- líki frá 15. september Reynslan af sölu bjórlíkis svo slæm að erfitt er að horfa á aðgerðarlaus, segir Jón Helgason dómsmálaráðherra JÓN Helgason dómsmálaráð- herra hefur gefið út reglugerð sem bannar veitingahúsum að framreiða öl, sem áður hefur verið blandað áfengi. Reglugerð- in öðlast gildi þann 15. septem- ber. Jón Helgason sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fram- reiðslubannið næði aðeins til þess öls sem blandað er áfengi fyrirfram, án þess að viðskipta- vinurinn sjái hvernig blöndunin fer fram. „Það er eftir sem áður hægt að selja öl og áfengi, en því verður þá helt þannig saman að menn viti hvað þeir eru að drekka,“ sagði Jón. Sagði Jón að reynslan af bjór- líkissölunni væri svo slæm, „að erfitt væri fyrir ráðuneyti, sem ber lögum samkvæmt að að reyna að draga úr illum afleið- ingum áfengisneyslu að horfa upp á aðgerðalaust", eins og hann orðaði það. Jón sagði að lögreglan hefði lengi fylgst með þeim stöðum sem bjóða upp á bjórlíki og reynt að gera sér grein fyrir þeim af- leiðingum sem þeir hafa: „Olvun- arakstur hefur aukist til muna í kjölfar fjölgunar smærri vínveit- ingahúsa og lýsingar lögreglunn- ar á umhverfi þessara staða eru satt að segja heldur ömurlegar," sagði Jón. Jón var spurður hvort hann teldi að ástandið myndi batna þótt bannað yrði að selja bjórlíki, úr því að sterk vín yrðu áfram á boðstólum. „Þetta er tilraun til að sporna við því versnandi ástandi sem þessir staðir hafa augljóslega haft í för með sér. Og kannski stafar það að einhverju leyti af því að menn vita ekkert hvað þeir eru að drekka og drekka meira af þeim sökum," sagði Jón Helgason dómsmálaráðherra. beygja. Það má segja að þetta hafi verið blindhæð-beygja-brú og allt ómerkt fyrr en komið er fast að brúnni. Ég lenti með bílinn í mikilli lausamöl í vegarkantinum en náði honum inn á aftur. Þá virðist sem hafi sprungið á einu hjóli, því ég missti stjórn á bíln- um og hann endasentist niður í gljúfrið og endastakkst einu sinni á leiðinni. Á meðan við vorum að falla hafði ég hvað mestar áhyggjur af því að lenda í hyl, því ég heyrði fossnið, en svo vorum við í vatnslitlum læk þegar við vorum búin að átta okkur á hvað gerðist. Sjálfur fékk ég bylm- ingshögg framan á mig við lend- inguna og var hreint ekki viss um að ég væri í tölu lifenda þegar billinn stöðvaðist." Hests leitað á gúmbáti LÖGREGLUMENN á báti leituðu um miönættið að hesti, sem hafði slit- ið sig lausan á Geldinganesi og synt til hafs með hnakk og beisli. Knapinn sá hestinn hverfa út í myrkrið og synda út frá nesinu. Hætt er við að hesturinn hafi fljótlega flækst í beislinu og var því ekki talið líklegt að hann næð- ist lifandi. Ekkert lát á norðaust- anáttinni Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni er ekkert lát á norðaustanáttinni. J Næstu daga verður því áfram vætutíð fyrir norðan og austan og búast má við skúrum á Suður- og Vesturlandi vegna lægðarinnar sem er við landið. Vonast er til að eitthvað glaðni til sunnan- og vestanlands í lok vikunnar. Trillurnar búnar að ná aflamarki ársins: Veiðunum ekki stjórnað með sama hætti næsta ár — segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráöherra „SMÁBÁTARNIR voru komnir með rúmlega 17.000 tonna afla fyrsta ágúst síðastliðinn og er það mest þorskur. Þeir eru því búnir að veiða meira nú en miðað var við að þeir veiddu allt árið. Þetta sýnir okkur fyrst og fremst að nánast útilokað er að halda afla innan ákveðinna marka, ef ekki er ákveðið hámark á hvern einasta bát. Við erum reynslunni ríkari í þeim efnum. Að mínu mati verður ekki hægt að standa að stjórnun þessara veiða með sama hætti á næsta ári,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, í samtali við Morgunblaðið. „Við erum að fara yfir umsókn- ir, sem borizt hafa um leyfi til veiða eftir fyrsta september og það er gert meðal annars vegna óska smábátaeigenda um að skilið verði á milli þeirra, sem hafa aðal- atvinnu af þessum veiðum og hinna, sem ekki eru eins háðir þeim. Við sjáum hins vegar að það er mun meira mál, en menn hugðu í fljótu bragði og verulegum erfið- leikum bundið að setja almennar reglur, sem skilja þar í milli. Ég vil taka það fram, að við vor- um ekki nægilega vissir um þann grunn, sem trillukvótinn var byggður á og einnig hefur þessum bátum fjölgað mjög mikið. Við verðum að sjálfsögðu að taka tillit til þess,“ sagði Halldór Ásgrims-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.