Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 65

Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 65
MORGUNBLAPIÐ, SUNNUDAGUR l. SEPTEMBER 1985 65 c Hann sagði að farþegarnir hefðu ekki vitað hvort þeir ættu að sitja, standa eða færa sig þegar eldurinn kom upp. Slökkviliðs- menn hefðu komið mjög fljótt á vettvang, en eldurinn verið jafnvel enn fljótari að breiðast út. „Reykjarmökkurinn i flugvél- inni var svo þykkur að hún var kolsvört að innan," sagði einn af starfsmannaslökkviliðsins á flugvellinum, Harold Jones. Minnstu munaði að tveir slökkvi- liðsmenn, sem komust inn í far- þegaklefann, þeyttust strax út aft- ur vegna sprengingar í súrefnis- hylki. „Ef þeir hefðu farið nokkrum metrum lengra inn í flugvélina þegar hylkið sprakk kynnu þeir að hafa látizt," sagði Jones. „Þegar ég heyrði sprengingu hrópaði ég til þeirra og skipaði þeim að snúa við. Síðan varð önnur sprenging og þeir þeyttust út.“ Að sögn Jones leið hálf mínúta frá því neyðarkall barst og þar til hafizt var handa um að úða froðu á flugvélina, sem var 200 metra frá slökkviliðsstöðinni. Eldur í eldsneyti, sem lak úr flugvélinni, var slökktur á tæpri mínútu með froðu, en það tók 10—15 mínútur að slökkva eldinn í farþegaklefan- um. Flugfreyja við opnu dyrnar ýtti einum þeirra sem af komust, Just- in Milne, út. „Þegar ég reis á fætur var ég ringlaður og leit í kringum mig,“ sagði Milne. „Nokkrir tugir farþega höfðu þá forðað sér út úr flugvélinni. Eg sá vin minn og við stigum upp í rútuna. Meðan ég beið sá ég sprengingarnar. Eldurinn læsti sig um alla flugvélina og stélið datt af. Ég var dasaður — þetta var eins og að horfa á sjónvarp." Flugfreyjan sem hjálpaði hon- um, Joanna Toff, dró nokkra aðra farþega út úr flugvélinni og ýtti öðrum út til að bjarga lífi þeirra. Hún lét sem hún heyrði ekki þegar hún var hvött til að forða sér frá vítislogunum. Troðfull vél Frásagnir farþeganna hafa vak- ið ýmsar spurningar, t.d. hvort farþegarnir hafi ekki verið of margir og sætin of mörg með hliðsjón af öryggi. í flugvélinni voru eins mörg sæti og leyfilegt var. í venjulegum Boeing-737-flugvélum eru notuð 115 sæti í áætlunarflugi, en í leiguflugi er bætt við 15 sætum. f flugvélinni, sem fórst í Manchest- er, voru 129 farþegar. í rannsókn slyssins verður spurt að því hvort of mörgu fólki sé troðið 1 farþegaflugvélar, hvort aðferðum við að flytja fólk úr flugvélum þegar hættu ber að höndum er ábótavant og hvort reglur um handfarangur séu nógu strangar. Einnig verður spurt hvort eldhætta stafi af efninu í sætunum og hvort flugvélabenzín- ið, sem notað er, sé of eldfimt. Flugvallarstjórinn, G.L. Thompson, sagði að slökkviliðs- Brunnið flak farþegaþotunnar eftir sprenginguna í hreyflinum. mennirnir hefðu aldrei séð eld breiðast eins hratt út. Komið hefur í ljós að slökkvi- liðsmennirnir höfðu ekki nægar birgðir af froðu til að kæfa eldinn. Greiðlega gekk að að slökkva eld- inn í vinstra hreyflinum og stélinu og í benzínspollinum umhverfis flugvélina og gera þannig farþeg- unum kleift að komast undan. En þegar farþegarnir forðuðu sér úr flugvélinni gaus aftur upp eldur. Froðu var úðað á bálið og eitthvað fór á nokkra farþega. Eldurinn var slökktur í annað sinn, en blossaöi upp aftur. Þá var öll froða slökkviliðsins á flugvellinum á þrotum og slökkvi- liðsmennirnir urðu að nota hand- slökkvitæki til að reyna að bjarga þeim 54 farþegum, sem enn voru inni í flugvélinni. Fimm mínútur liðu áður en liðs- auki barst frá slökkviliði Stór- Manchestersvæðisins. Þegar hann var kominn liðu enn tíu mínútur áður en allur eldurinn var kæfður. Froðubirgðir slökkviliðsins voru um 50% meiri en reglur segja til um. Ef það hefði aðeins haft lág- marksbirgðir hefði ástandið orðið ennþá alvarlegra. Átján menn eru í slökkviliðinu á flugvellinum og þeir hafa aldrei áður þurft að glíma við neyðar- ástandi sem þetta. Yfirvöld segja að ef það hefði tekið flugstjórann lengri tíma að fá flugvélina til að nema staðar og ef engir flugvall- arstarfsmenn hefðu beðið hennar við öllu búnir hefði enginn komizt lífs af. Dularfull bilun Flugvélin var með 15.000 lítra af eldsneyti i geymum í vængjunum og í einum geymi undir skrokkn- um. Brot frá hreyflinum, sem sprakk, rifu geyminn á vinstra vængnum og hundruð lítra af steinolíu skvettust á afturhluta flugvélarinnar. Að sögn Sunday Times varð dul- arfull bilun í hreyflinum þegar flugvélin kom frá Aþenu kvöldið áður en slysið varð. Flugvélin var í viðgerðaskýli um nóttina. Blaðið segir að við rannsókn slyssins sé gert ráð fyrir að óstöð- ugt streymi eldsneytis kunni að hafa átt þátt í sprengingunni í brunaholinu. Mælir, sem sýnir hitastig útblásturs, virðist hafa verið óstöðugur og það gefur til kynna að eitthvað hafi verið að hreyflinum. Nú hefur British Airways ákveðið að leggja fjórum þótum, sem eru búnar Pratt & Whitney JT8D-hreyflum, meðan skoðun á þeim fer fram. Stórar sprungur fundust í brunaholi hreyfla á sex Boeing- 737-flugvélum, sem voru skoðaðar í kjölfar flugslyssins. Eyðing í brunaholi virðist hafa valdið ofhitun á ytra málmbyrði holsins. Rannsókn á fleiri Boeing-737- flugvélum hefur leitt í ljós hreyf- ilskemmdir og sprungur, þótt ekki sé nákvæmlega vitað hvað olli bil- uninni í brennsluholinu. Rannsóknin varð til þess að flug óskoðaðra flugvéla með slíkum hreyflum í Bretlandi var bannað. Bannið nær einnig til Boeing-727- flugvéla og DC-9-flugvéla, sem eru búnar hreyflum frá Pratt & Whitney. Jafnframt hefur bandaríska flugmálastjórnin (FAA) fyrirskip- að skoðun á um 2.000 hreyflum af gerðinni Pratt & Whitney JT8D- 15 með svipuðu brennsluholi og í hreyflinum, sem brotnaði á flug- vellinum í Manchester, til þess að Mark Tatlock (isamt móður sinni ( sjúkrahúsi); slapp með skrámur. Debra Walley: „Við héldum að allt yrði í lagi.“ (tlr Observer) Hreyflllinn, sem var af gerðinni Pratt & Whitney JT8D, sprakk á viðkvæm- asta stað: rétt hjá vængnum. Stórt gat kom á eldsneytisgeyminn á vængnum. Hundruð lítra af flugvélabenzíni streymdu yflr hreyfilinn, flugvélarskrokk- inn og á jörðina. afstýra að svipuð sprenging og þar varð endurtaki sig. Skoðunin nær til mörg hundruð flugvéla. Hreyfillinn Pratt & Whitney JT8D knýr ekki aðeins Boeing- 737-þotur, heldur einnig Boeing-727 og DC9-þotur McDonnell Douglas-flugvélaverk- smiðjanna. Rúmlega 12,000 hreyflar eru í notkun í heiminum og tvær af hverjum þremur far- þegaþotum Bandarikjanna nota þær. Ein Boeing-727-þota Flugleiða er búin hreyfiltegundinni Pratt & Whitney JT8D-15 og Boeing-737- þota Arnarflugs er búin tegund- inni JT8D-9A. Starfsmenn FAA hafa lagt áherzlu á að skoðunin Justin Milne: flugfreyja bjargaði honum. nái aðeins til tegundarinnar JT8D-15., sem er með sams konar brennsluhol og var í hreyflinum, sem brotnaði í Manchester. Þetta er önnur rannsóknin á slíkum hreyflum á stuttum tíma. Fyrir tíu mánuðum fyrirskipaði Pratt og Whitney leynilega rann- sókn á hreyflinum í Bandaríkjun- um. Hún var fyrirskipuð vegna gruns um bilun í skífu, sem heldur saman hverflum eða túrbínum, en lítið virðist gert úr því atriði nú. Ákveðið var að rannsaka þetta vegna þess að hverfilskífur í sjö Pratt & Whitney hreyflum höfðu bilað síðan 1981. í Bretlandi og víðar hefur orðið vart bilunar í hverfilskífum í öðrum tegundum hreyfla og þeir hafa verið teknir úr umferð. Fyrirtækið Pratt & Whitney tekur þátt í rannsókn slyssins í Manchester og segir að enn sem komið sé bendi ekkert til þess að hverfilskífan hafi átt þátt í slys- inu nú. Rúmlega 300 Boeing-737- flugvélar eru búnar þessari hreyf- iltegund, þar af 70 í Bretlandi. Bandarískum flugfélögum var skipað að gera breytingar á hreyflinum eftir rannsóknina fyrir tæpu ári, m.a. á hverfilskíf- unni. Slíkar breytingar virðast ekki hafa verið gerðar á hreyflum af þessari gerð í brezkum flugvél- um, en afrit af skipun bandarískra loftferðayfirvalda voru send til allra landa, þar sem hreyfillinn er notaður. Bandarísk yfirvöld munu ekki telja að þessi hluti hreyfilsins hafi átt þátt f slysinu f Manchest- er. Eldsneytis Fyrsti hverfill Hreyfilhlíf Annar hverfill Þurr hluti • Fyrsta stig loftþjöppunar Lágþrýstiþjappa loftþjöppunar Háþrýstiþjappa Brennarar Þotuhreyfill (JT8D-15 Turbofan) — GH tók umu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.