Morgunblaðið - 01.09.1985, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 01.09.1985, Qupperneq 67
MOKGUNBLAEHÐ, SCTNNUDAGUR l. SEPTEMBKR 1985 um Varmárlandsins, melinn sunn- an við Álafossverksmiðjuna og nefndi nýbýlið Meltún. Nú hófust ræktunarstörfin að græða upp ör- foka mel og þetta tókst á tiltölu- lega skömmum tima og þar hafa þau hjón búið notadrjúgu búi en mestur bústofn var hjá þeim 11 kýr og 40 ær og tvö til þrjú hundr- uð varphænsni. Öllum leið vel í návist Eiríks og til þess var tekið hve natinn hann var með búfé sitt en það skilaði honum góðum afurðum og efna- hagur þeirra fór batnandi. Síðustu árin fækkaði Eiríkur við sig fén- aðinn er aldurinn færðist yfir og nú átti hann aðeins fáar kindur og hænsni til heimilisnota. Það þrengist nú óðum að litla nýbýlinu þeirra Siggu og Eiríks en hann byggði öll húsakynni sjálfur og bera húsin vitni hagleik og smekkvísi þeirra hjóna. Baráttan á lífsleiðinni var hörð en kjarkur Eiríks og þeirra beggja mikill en augljóst er að heilsuleys- ið var Eiríki fjötur um fót því fjórum sinnum varð hann að dvelja á Vífilsstöðum. Aldrei var kvartað en stöðugt álag vegna vanheilsu bar Eiríkur svo að fáir vissu hvað leið. Kjarkur hans og dugnaður færði honum sigur í hverri raun, þar til hann féll af völdum elli kerlingar. Við samferðafólkið þökkum Ei- ríki nú á skilnaðarstundinni góða viðkynningu og hin mörgu farsælu handtök við fegrun og viðhald húsakynna okkar á liðnum ára- tugum. Þessi prúði hæglætismað- ur sagði fátt en hélt sínu striki í strangri lífsbaráttu þar til yfir lauk. Við færum eftirlifandi ætt- ingjum hans samúðarkveðjur en minningin um góðan dreng lifir. Útför hans verður gerð mánu- daginn 2. september frá Lága- fellskirkju. Jón M. Guðmundsson Þegar Eiríkur Guðmundsson er allur og kvaddur hinztu kveðju, þykir okkur við hæfi að minnast hans nokkrum orðum og þakka meira en hálfrar aldar kynni, tengdir, vináttu og samfylgd. Hér í Bæ er hugur fólks allur á einn veg þegar Eiríks er minnzt, um hann á fólk ekki nema góðar og ánægjulegar minningar. Og römm var sú taug er tengdi Eirík og Sig- ríði konu hans heimiíunum í Bæ, vinátta og velvild sem aldrei bar neinn skugga á. Hann mun hafa verið fæddur að Botni í Súgandafirði 20. maí 1907 og af vestfirzku bergi brotinn, tvímenningur að skyldleika við þá þjóðkunnu bræður frá Kirkjubóli í Valþjófsdal. Það duldist engum, að Eiríki stóðu styrkir og sterkir stofnar, svo sem fram kom hvar- vetna þar sem hann kynnti sig. Kynni Bæjarfólks af Eiríki hófust með því, að hann kom sem ungur maður til þess að setjast á skóla- bekk við Alþýðuskólann á Hvítár- bakka haustið 1927, þar sem hann var við nám í tvo vetur, var eftir það lítið í sínum heimahögum, utan að líkindum eitt ár með frænku sinni og fjölskyldu hennar að Kirkjubóli. Eftir dvöl sína á Hvítárbakka var hann við störf hér um Borgarfjörð og hér kynnt- ist hann konu sinni, Sigríði Þór- mundsdóttur frá Bæ. Sú samfylgd er orðin 55 ára löng nú er Sigríður sér á bak maka sínum. Það er eft- irtektar- og eftirbreytnivert, hvernig hjónaband þeirra ein- kenndist af friðsemi, ástúð og virðingu hvors fyrir öðru og sam- heldni í því að láta góðan anda rikja og leika um umhverfi sitt og breytti þar engu þótt segja megi með sanni, að lífið léki ekki alltaf við þau, því langdvölum voru þau sjúklingar, annað eða bæði. Það sem landsmenn nefndu „hinn hvíta dauða", berklarnir, barði á dyr þessara ungu hjóna og mark- aði líf þeirra og einmitt þau árin sem margur telur bezt úr ævi sinni. Slíkt skilur stundum eftir djúp sár sem fólki gengur mis- jafnlega að græða. Aldrei varð það fundið á þeim hjónum, erfiðleik- arnir hertu þau, styrktu og þrosk- uðu til betri vegar, til að hlúa að því sem veikt var og láta gott af scr leiða. Eiríkur naut þess og gladdist yfir að sjá og taka þátt í því að sjá þennan vágest lúta í lægra haldi fyrir samtökum sjúkl- inganna sjálfra, sem tóku berkla- varnir og lækningar meira og minna í sínar eigin hendur. Afrek sem er einstætt, a.m.k. hér um norðurálfu. Árið 1939 komu þau sér upp smáhýsi í landi Reykjahvols og nefndu Hverabakka. Á þeim árum stunduðu þau vinnu á Álafossi en 1947 byggðu þau nýbýlið Meltún í Mosfellssveit og hafa búið þar æ síðan, bæði með kýr, fé og hænsni. Umhyggjusemi Eiríks var jöfn fyrir mönnum sem málleysingj- um. Hún náði lengra en til þeirra sem bágt áttu og minna máttu sín, hann var svo elskur að öllum bú- peningi og húsdýrum, að það var sem þau hændust að honum. Hirti hann raunar svo vel um búpening sinn að til sóma var. Hafði hann fyrir bragðið ávallt góðan arð af honum, þótt búskapurinn væri ekki stór í sniðum. Lifandi áhugi hans fyrir búskap yfirgaf hann ekki fram til síðasta dags og eðlið leyndi sér ekki, hann var íslenzkur bóndi eins og þeir beztir gerast. í þessu umhverfi kom Eiríkur sér afar vel og naut trausts og trúnað- ar þar sem og annars staðar og var vinsæll maður. Einstök ljúf- mennska hans og notalegheit i framgöngu, þroskað skopskyn, góðsemi og gestrisni drógu fólk ósjálfrátt að honum. Auk þess var hann greindur vel, naut þess að lesa góðar bækur, um marga hluti vel að sér, sagði vel frá og heiðarlega. Eiríkur hafði augljóslega þegið margar góðar gáfur að gjöf og lét þær ekki liggja í vanhirðu en ræktaði þær sjálfum sér og öðrum til gagns og gæfu og mun mörgum hafa þótt notalegt að koma að Meltúni og eiga þaðan góðar minningar. óhætt er að segja, að hér í Bæ er Eiríks sakn- að, hér voru þau hjón bæði au- fúsugestir. Raunar heyrðist oft í Meltúni, „við biðjum að heilsa heim“ eða „hvað er að frétta heiman frá Bæ“, átthaga- og vin- áttutaugin var aldrei slitin og mun ekki slitna. Eiríkur og Sigríð- ur komu hér síðast seinni hluta júlímánaðar, það var síðasta för Eiríks og hann reiknaði ekki með því, vegna heilsu sinnar, að honum auðnaðist að koma aftur. Dauðan- um bjóst hann við og það fyrr en seinna og var sáttur við. Þann gest hafði hann oft áður horfst í augu við af karlmennsku og sigrað en nú var aldur Eiríks farinn að vinna með gestinum þeim og það lagði hann. Þau örlög eru búin öllu holdi, hvenær kallið kemur vitum við hins vegar aldrei. Eiríkur hafði lengi barizt og aldrei bugazt og haft betur og segir það býsna vel, hverja persónu hann bar. Þótt okkur finnist skarð fyrir skildi í Meltúni, minnumst við Sigríðar og afkomenda þeirra og Ijúkum þessu með því að segja: Megi nú Guð leggja líkn með þraut, blessa þau og minningu drengskaparmanns. Kveðja frá Bæjarfólki + Konan mín og móöir okkar, ÞÓRHEIÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Lönguhlíö 21, Reykjavík, lést aö morgni föstudagsins 30. ágúst. Ágúst Eyjólfsson, Hanna Þ. Ágústsdóttir, Ólöf Lára Ágústsdóttir. + HJÖRTUR LÍNDAL GUNNARSSON lést þann 13. ágúst sl. Jaröarförin hefur fariö fram. Þökkum auðsýnda samúö. Gunnar Baldur Guönason, Hreindís Elva Siguröardóttir og systkini hins látna. + Sambýliskona mín og móðir okkar, GUORÚN ANTONSDÓTTIR, Ásvallagötu 16, lést í Landakotsspítala 29 þ.m. Jaröarförin ákveöin síöar. Guöni Guönason, Sigríður Gestsdóttir, Guðmundur Gestsson, Gestrún Gestsdóttir, Erla Gestsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir, fósturfaðir, tengdafaöir og afi, EIRÍKUR E.F. GUOMUNDSSON, bóndi, Meltúni, Mosfellssveit, veröur jarösunginn frá Lágafellskirkju mánudaginn 2. september kl. 14.00. Sigriöur Þórmundsdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir, Svavar Sigurjónsson, Sigmar Pétursson, Þrúóur J. Kristjánsdóttir, Guóný J. Hallgrímsdóttir, Björn Haraldsson og barnabörn. + Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, LOVÍSA HELGADÓTTIR, Drekavogi 6, Reykjavfk, sem lést 22. ágúst sl. veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöju- daginn 3. september kl. 13.30. Magnús Pálsson, Helgi Þór Magnússon, Kristin Guömundsdóttir, Elin Magnúsdóttir, Siguröur Ingimarsson. Þuriöur Magnúsdóttir. Barnabörn. 67 + Utför mannsins míns, fööur, tengdafööur og afa, ÞORVALDS ÁSMUNDSSONAR, Hverfisgötu 47, Hafnarfirói, fer fram frá Hafnarf jaröarkirkju þriöjudaginn 3. september kl. 13.30. Júlía Valsteinsdóttir, Henning Þorvaldsson, Steinunn Alfreösdóttir, Birna Þorvaldsdóttir, Jón Ragnar Jónsson, Valdis Þorvaldsdóttir, Steinar Haröarson, Sigurbjartur Þorvaldsson, Sveinsína Jónsdóttir Guómundur Þorvaldsson, Helga Þóröardóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaöur minn + faöir okkar, tengdafaöir og afi ÓSKAR J. SANDHOLT sem andaöist þann 22. ágúst sl. veröur jarösunginn frá Langholts- kirkju mánudaginn 2. sept. nk. kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeir sem vildu minnast hans vin- samlegast látiö Krabbameinsfélagið njóta þess. Þórdís J. Sandholt, Þórunn Sandholt, Magnús Hilmarsson, Geröur Sandholt, ivar Þ. Björnsson, Guöbjörg Sandholt, Jón R. Sígmundsson, Jens Sandholt, Elín Lára Edwards, jón G. Sandholt, Katrín H. Reynisdóttir, Óskar J. Sandholt og barnabörn. <> + Ástkær móðir okkar, tengdamóöir og amma, DAGMAR GUOMUNDSDÓTTIR, Skúlagötu 53, Reykjavík, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 3. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Blindrafélagiö. Auöur Gísladóttir, Áslaug Gísladóttir, Jóhannes H. Jóhannesson, Guömundur Æ. Jóhannsson og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför ÞORBJARGAR STEFANÍU GUÐJÓNSDÓTTUR, Króki, Garóahverfi. Ragnheiður Vilmundardóttir, Gísli Vilmundarson, Sigríöur Stefánsdóttir, Elín Vilmundardóttir, Stefán Ólafur Jónsson, Vilborg Vilmundardóttir, Þorsteinn Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegustu kveöjur og þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, HERVARS S. ÞÓRÐARSONAR frá Súðavík, Suöurgötu 122, Akranesi. Guömunda Eiríksdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samuö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, LILJU Þ. JÓSEFSDÓTTUR, Birkiteig 4. Keflavik, áður til heimilis aö Norðurgötu 25, Sandgeröi. Ingibjörg Óskarsdóttir, Daniel Arason, Vilborg Guóný Óskarsdóttir, Reynir Martensen, Margrét Jónsdóttir og barnabörn. t Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur, fósturfööur, tengdafööur, afa og langafa. ÞÓRÐAR HJÁLMSSONAR framkvasmdastjóra, Skólabraut 22, Akranesi. Guö blessi ykkur öll. Quövaröardóttir Birgir Þóróarsson, Þóróur Magnússon, Sigríður Svavarsdóttir, Halldóra Böövarsdóttir, Jónína Birgisdóttir, Svava H. Þóröardóttir, Anna S. Jóhannesdóttir, Jón Þór Þóröarson, Berglind Þóróardóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.