Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
ISLENSKIR ATVINNUMENN I KNATTSPYRNU
Líður mjög
vel hér
— segir Siguröur Grétarsson í Sviss
„OKKUR hefur gengiö mjög vel
þaö sem af er og raunar framar
öllum vonum. Viö erum í ööru
sæti í deildinni núna eftir fimm
umferöir og þaö er mun betra en
búist var við,“ sagði Siguröur
Grétarsson, sem leikur meö Luz-
ern í Sviss.
„Ég hef leikiö alla leikina og mér
hefur gengiö nokkuö vel, er búinn
aö skora tvö mörk. Knattspyrnan
hérna er alveg þokkaleg. Ég haföi
alltaf heyrt aö hérna væri knatt-
spyrnan annars flokks, en mér sýn-
ist aö þaö sé hægt aö bera hana
saman viö Belgíu, en þaö er tómt
mál aö tala um hana i sama oröinu
og Þýskaland. Knattspyrnan a.m.k.
á mikilli uppleiö hérna í Sviss. “
- Er leikið allt ériö hjá ykkur?
„Nei, þaö er þriggja mánaöa frí
um áramótin, fram í lok febrúar. Viö
fáum þriggja vikna frí þá og ég
reikna meö aö ég komi heim, en
síöan er fariö í sólina og veriö í
æfingabúöum þar til mótiö hefst
aftur. Þaö er atvinnumenska hér
hjá Luzern, en ekki hjá öllum liöun-
um. Þaö er nýr þjálfari hjá okkur
sem er aö gera liðiö aö atvinnu-
mannaliöi.
Það er mjög fallegt hérna í Luz-
ern og mér líöur mjög vel hérna og
ekki dregur þaö úr ánægjunni aö
þaö gengur vel í knattspyrnunni.
Vetrarfríiö er vegna þess aö þá á
allt aö vera á kafi í snjó og þaö eru
talsverö viöbrigði fyrir mig, því ég
lék á Grikklandi í fyrra og þar var
mjög heitt, sáum aöeins einu sinni
nokkur snjókorn þrátt fyrir mjög
harðan vetur í Evrópu. Þaö er samt
ekki orðið kalt hérna núna, þó svo
þaö sé ekki eins heitt og var í Grikk-
landi, þá er þetta mjög hæfilegur
hiti, og þaö er mjög gott aö leika
knattspyrnu hérna, því þaö er mjög
veöursælt,“ sagöi Siguröur Grét-
arsson, sem leikur í 1. deildinni í
Sviss meö Luzern, en þeir sem til
þekkja þar vita hve fallegt er í ná-
grenni Luzern=vatns og í þorpinu
sjálfu.
Hálfgert
neyðarástand
— segir Guðbjörn Tryggvason
um ástandið hjá Start
„ÞETTA gengur allt saman mjög
illa. Ég hef ekki fengiö tækifæri
til að leika með liöinu og liöiö er
nú ( neösta aæti deildarinnar. Ég
hef ekki einu sinni komist á vara-
mannabekkinn í síöustu þremur
leikjum,“ sagöi Guöbjörn
Tryggvason, knattspyrnumaöur
frá Akranesi, sem leikur meö
Start í 1. deildinni í Noregi.
„Þaö er hálfgert neyöarástand
hjá liöinu, viö töpum og töpum og
þaö er alltaf veriö aö prófa ein-
hverja nýja leikmenn eöa þá leik-
menn eru látnir skipta um stööur til
þess aö reyna aö knýja fram sigur,
en ekkert gengur. Ég veit ekki hvers
vegna ég fæ ekki tækif æri. “
Guöbjörn sagðist ekki vera van-
ur því aö vera svona neöarlega í
baráttunni og hann sagöi jafnframt
aö ein af ástæöum fyrir því aö illa
gengi væri sú aö leikmenn þekktust
varla. „Þaö er ekkert féiagslegt hjá
þessu liöi. Menn hittast á æfingum
og í leikjum en aldrei utan þess og
því má segja aö leikmenn séu ekki
kunnugir hverjir öörum. Félags-
andinn er alveg í núlli, þaö er mikið
rifist og nöldraö og allt gengur á
afturfótunum.“
Keppni hér lýkur um miöjan okt-
óber og ég reikna fastlega meö aö
eftir þaö komi ég heim. Ég kann
mjög vel viö mig hér, þaö er gott
aö búa hérna í Noregi en þaö hefur
ekki gengiö nógu vel hjá mér þann-
ig að ég reikna meö aö koma heim,“
sagöi Guöbjörn aö lokum.
• Pétur Péturason leikur sinn fyrsts Mk (1. dsUd á 8péni (dag
• Guöbjðrn Tryggvason Mkur f
Noregi.
• Siguröur Grétarsson kann val viö sig í Sviss an þar Mkur hann maö Luzera. Atli Eövaldsson sam leikur
meö Uerdingen liggur á jöröinni en myndin af þeim er tekin (landsMk gegn Spáni.
Knattspyman er öðruvísi
— segir Pétur Pétursson sem leikur sinn fyrsta leik í dag
„Deildarkeppnin byrjar í dag,
sunnudag, og viö eigum fyrsta
leik viö Saragossa á útivelli, síöan
eigum viö leik viö Atletiko Madrid
á miövikudaginn,“ sagöi Pétur
Pétursson, knattspyrnumaöur,
sem nú leikur á Spáni.
„Ég er laus allra mála hjá And-
erlecht, í bili aö minnsta kosti. Ég
geröi eins árs samning viö Herkules
og ætla síöan aö sjá til hvort ég
framlengi þeim samningi um tvö ár,
þaö fer allt eftir því hvernig mór líkar
hórna."
Pétur sagöist kunna vel viö sig
svona viö fyrstu sýn, en honum
fannst ansi heitt þar ytra. „Þaö er
alveg rosalegur hiti hérna og þaö
háir mór enn þar sem óg er ekki
kominn í nógu góöa æfingu. Ég er
i byrjunarliðinu á sunnudaginn og
þaö eina sem gæti komiö í veg fyrir
aö ég leiki er aö þaö vantar ennþá
einhverja pappíra frá sambandinu
hérna á Spáni, en þeir eiga víst aö
vera komnir fyrir leikinn."
„Knattspyrnan er talsvert ööru-
vísi hérna en til dæmis í Hollandi
og Belgíu. Menn hanga meira á
knettinum hérna og ég reikna meö
aö þaö eigi eftir aö veröa erfitt í
framtíöinni, því þegar þeir gefa
loksins knöttinn þá eru allir komnir
í vörnina. Mér finnst þeir óþarflega
seinir aö losa sig viö knöttinn, leik-
urinn er allur mun rólegri en þar
sem óg þekki til. Annaö sem er líka
áberandi hérna er hvaö heimavöllur
og útivöllur hafa geysilega mikil
áhrif,“sagði Pótur.
3* •