Morgunblaðið - 06.09.1985, Síða 21

Morgunblaðið - 06.09.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985 21 Hosni Mubarak, forseti Egyptalands (til vinstri á myndinni), rædir við dr. Alan Lutfy í gær. Mynd þessi var tekin aðeins skömmu áður en sá síðarnefndi var skipaður forsætisráðherra í stað Kamal Hassans, sem sagði af sér ásamt öllum ráðherrum sínum. Ný stjórn tekur væntanlega við völdum á laugardag. Nýr forsætisráðherra skipaður í Egyptalandi Kairó, 5. september. AP. HOSNI MUBARAK Egyptalands- forseti skipaði í dag fyrrum fjármálaráðherra í stöðu forsætis- ráðherra landsins í kjölfar óvæntr- ar afsagnar allrar stjórnar lands- ins, en í henni voru 32 ráðherrar. Var dr. Aly Lutfy skipaður forsætis- ráðherra í stað Kamal Hassans. Lutfy er einn af helztu efnahags- sérfræðingum Egyptalands. Talið er, að með skipun Lutfys verði lögð meiri áherzla en áður r að leysa hinn mikla efnahags- vanda Egyptalands, en erlendar skuldir landsins eru mjög mikl- ar. Ekki hefur verið kunngert, hve miklar þær eru, en talið er, að þær nemi ekki minna en 25 milljörðum dollara. Mikill gjald- eyrisskortur er í landinu og ör verðbólga. Lutfy var fjármálaráðherra Egyptalands fyrir nokkrum ár- um. Hann er 49 ára að aldri. Hann sver embættiseið sinn ásamt hinni nýju stjórn á laug- ardag. Talið er, að ekki fleiri en 10 nýir ráðherra taki sæti í nýju stjórninni, en að öðru leyti verði hún skipuð sömu mönnum og áð- ur. Sænsk kona fær unnusta sinn lausan með hungurverkfalli Stokkhólmi, 5. aeptember. AP. MARIE-ANNE Farrow, sænsk kona sem fór í hungurverkfall til að undir- strika kröfu sína um að sovéskur unnusti hennar yrði látinn laus, sagði á miðvikudag að hann myndi koma til Stokkhólms í þessari viku. Rarrow sagði fréttamönnum að meðan á hungurverkfalli hennar stóð hefði unnusti hennar, Valent- in Jurov, verið settur á geðveikra- hæli í Moskvu gegn vilja sínum, aðeins viku áður en þau ætluðu að ganga í hjónaband. „Ég talaði við hann í síma í gær og hann sagði mér þær góðu fréttir að honum væri nú frjálst að fara úr landi, sænska utanríkisráðuneytið hefur staðfest þetta og hann hefur feng- ið landvistarleyfi í Svíþjóð í eitt ár,“ sagði hún. Hin 30 ára gamla sænska lista- kona og sovéski blaðamaðurinn hittust fyrst er ungfrú Farrow var á ferðalagi í Moskvu. Þau höfðu fengið leyfi til að giftast en snemma í júní var Jurov settur í varðhald af einhverjum ástæðum sem Farrow segist ekki vita hverj- ar hafi verið. Um miðjan ágúst settist hún að í tjaldi fyrir utan sovéska sendiráðið í Stokkhólmi og hóf hungurverkfall. Viku síðar barst tilkynning um að Jurov hefði verið látinn laus af geð- veikrahælinu, en ungfrú Farrow hélt áfram baráttu sinni, þar til hún frétti að Jurov fengi að yfir- gefa Sovétríkin. Veður víða um heim L»g.t Hmt Akunyri 3 alakýjaó Am.t.rd.m 12 17 rignlng Aþmw 20 33 h.ló*kfrt D.rc.lon. 28 mi.tur Berlin 12 15 rigning BrðtMt 5 18 rigning Chkwgo 22 27 akýjaó Dubtin 9 15 h«ió.kírt Fmruyiw 24 lóttakýjað Frwikffurt 12 20 rlgnlng Gmtf 11 21 haióakfrt rr-l-l-l.l nmsmKi 13 17 •kýjaé Hong Kong 2« 28 rigning JmÚMlmn 17 27 haiðakfrt Kaupm.nnah. 10 16 akýjaó Lm Palm.i 32 hólftkýjaó LtaMbon 17 32 halð.kirl London 14 18 h.iðakfrt Lo» Ang.1.. 1« 21 haiðtkirt Lú>mnborg 14 aúld IMig, 27 mi.tur MMtorc. 29 •kýlað Mimni 21 31 •ký|að Montnml 14 23 akýjaó Mo.lt va 11 23 •kýlað Mow Vork 23 33 *ký|»ó OMó • 16 •kýioö Pará 13 20 •kýj»ó Poking 1S 27 haiðaklrt Roykjavfk 6 •kýiaö Rró do Janoiro 14 27 •kýjað Rómaborg 15 29 haióakirt Stokkhóimur 13 16 •ký|«ó Sidnoy 9 18 Iwióakfrt Tókýó 26 32 haiðaklrt Vínmtiorg 15 21 haiðtklrt bóMhótn 8 •kýjað Kambódía: Yfir 2500 ar felldir Bangkok, 5. september. AP. SKÆRULIÐAR úr hópi Rauðu kmeranna í Kambódíu héldu því fram í dag, að þeir hefðu fellt 2.583 víetnamska hermenn í 14 miklum orrustum, sem átt hefðu sér stað í Kambódíu í ágúst. Hefðu bardagar m.a. orðið í höfuðborginni sjálfri, Phnom Penh, þar sem 11 Víetnam- ar voru drepnir. Los Anjjeles, 5. september. AP. Geimferjan Discovery kom úr vikulangri for sinni í betra ástandi en nokkru sinni áður, en í förinni gerði áhöfn ferjunnar við gervihnött og þrem var komið á braut. Bráða- birgðarannsókn á geimferjunni sýndi engar skemmdir á bremsum en hluti af hitaeinangrunarhlíf við einn stýrihreyfil hafði undist. Aðeins fimm af plötum þeim sem verja yfir- borð geimferjunnar ofhitun urðu fyrír skemmdum f lendingunni og „samanborið við 29 skemmdar plöt- ur í fyrri ferðum hlýtur það að teljast mikil framför — þetta verður hugs- anlega best hcppnaða fór sem geim- ferjan fer nokkru sinni“. sagði tieorge Driller talsmaður Banda- rísku geimferðastofnunarinnar. Víetnam- í ágúst í einni orrustu hefðu 127 víet- namskir hermenn verið drepnir og 220 til viðbótar hefðu særzt. Átti sú orrusta sér stað 31. ágúst, er skæruliðar réðust á tvær her- deildir Víetnama í héraðinu Battabang í vesturhluta lands- ins. Báðum þessum herdeildum var tvístrað gersamlega. Nú er verið að búa geimferjuna til flutnings með Boeing 747 til Florida. Þar verður geimferjan undirbúin fyrir geimferð sem stefnt er að í mars á næsta ári. Þá mun Discovery koma tilrauna- gervihnettinum Teal Ruby á braut fyrir bandaríska flugherinn. Teal Ruby verður búin innrauðum raf- eindasjónauka og mun geta fylgst með ferðum flugvéla utanúr him- ingeimnum. Geimferjan Columbia mun væntanlega fara í geimferð í byrj- un október á vegum Atlantis- áætlunar Bandaríkjahers. Farmur geimferjunnar og tilgangur farar- innar er því hernaðarleyndarmál. Minni skemmdir á Discovery en í nokkurri fyrri geimferða Yfirlýsing Sovétmanna um geimferðaáætlun: Áskilja sér rétt til geimvopnatilrauna Moskvu, 5. sepiember. AP. Sovétríkin tilkynntu á miðvikudag að þau teldu sér frjálst að hanna og setja upp hvers kyns vopn gegn gervihnöttum úti í geimnum, haldi Banda- ríkjamenn áfram tilraunum með vopn gegn gervihnöttum. Tass-fréttastofan gaf út tilkynningu sem álitið er, að komin sé beint frá leiðtogunum í Kreml þar sem segir að stjórnvöld telji sér frjálst að aflétta stöðvun á tilraunum með slík vopn haldi Bandaríkjamenn áfram tilraunum sínum. Bandarísk stjórnvöld gerðu lítið úr þessari tilkynningu og sögðu hana „fremur innihaldslitla". Rík- isstjórn Ronalds Reagan tekur í sama streng og í tilkynningu sem gefin var út af Hvíta húsinu var sovéska tilkynningin kölluð „hót- un“. Þar var ítrekað að Banda- ríkjamenn myndu halda áfram að vinna að Geimvarnaáætluninni, sem þekkt er undir skammstöfun- inni ASAT. í tilkynningunni segir að Sov- étmenn hafi í raun unnið að svip- aðri geimvarnaáætlun og í sér- stakri tilkynningu frá varnar- málaráðuneytinu segir að Sovét- menn hafi oftar en einu sinni tor- tímt gervihnöttum í geimnum með geimvarnakerfi sínu. Háttsettur maður í Pentagon, sem kaus að halda nafni sínu leyndu, bætti því við að varnar- málaráðuneytið væri á báðum átt- um um hvernig skilja bæri hótun Sovétmanna um að hefja gerð vopna til nota úti í geimnum. „Það er mikili tvískinnungur í þessari yfirlýsingu Sovétmanna," sagði hann, „og ekki ljóst hvað þeir eiga við er þeir tala um geimvopn. Þeir gætu átt við það kerfi sem þeir hafa þegar komið upp, þó það sé ekki staðsett úti í geimnum. Eða að þeir séu að gefa í skyn að þeir ætli sér að koma upp nýju kerfi. En hvað sem því líður, þá eiga þeir eina starfhæfa geimvarnarkerfið í heiminum, en við höfum ekkert slíkt kerfi.“ ERLENT LYFTARAR Eigum til afgreiöslu nú þegar mikið úrval notaöra rafmagns- og diesel- lyftara, ennfremur snúninga- og hliöarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgeröan, leigjum lyftara, flytjum lyftara. Varahluta- og viögeröaþjónusta. Líttu inn — viö gerum þér tilboö. Tökum lyftara í umboössölu. LYFTARASALAN HF. Vitastíg 3, símar 26455 og 12452. M LANDSNEFND ALÞJÓÐA VERZLUNARRAÐSINS Iceland National Committee o! the ICC Námskeið um bankaábyrgðir (DOCUMENTARY CREDITS) Landsnefnd Alþjóöa verzlunarráðsins heldur námskeiö um bankaábyrgöir þriðjudaginn 10. september kl. 9.30— 17.00 á 2. hæö Hótel Sögu. Tilgangur: — gera reglum um bankaábyrgöir ýtarleg skil — gefa þátttakendum kost á aö fá svör viö þeim spurn- ingum sem upp hafa komiö í starfi þeirra meö banka- ábyrgðir. Þátttakendur: Námskeiöið er ætlaö þeim sem starfa í tengslum við bankaábyrgöir og hafa áhuga á aö auka skiining sinn á þeim. Leiöbeinandi: Bemard S. Wheble, einn aöalhvatamaöur aö gerö alþjóölegra reglna um bankaábyrgðir. Hann var formaður bankanefndar Alþjóöa verzlunarráösins þegar reglurnar voru end- urskoðaðarásl.ári. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 83088.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.