Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 14

Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER-1985 Morgunblaöið/Gunnlaugur Kögnvaidsson. Bjarmi Sigurgarðarsson og Þórhallur Kristjánsson standa hér viö Talbot Bjarma, sem verið var að lagfæra fyrir Ljómarallið. Þeir eru báðir ofarlega í íslandsmeistarakeppni ökumanna, sem setja mun svip á keppnina. Hörkukeppni verður um íslandsmeistaratitilinn ÍSLENDINGAR munu eiga við ramman reip að draga í Ljómarallinu sem hefst við Glæsibæ kl. 17.00 í dag. Meðal 28 keppnisbíla eru kraftmiklir bflar undir stjóm erlendra ökumanna. íslensku ökumennirnir munu ekki ef að líkum lætur gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Það mun örugglega setja svip á keppnina að staðan í Islandsmeistarakeppninni er mjog tvísýn. „Ég mun reyna að halda í við útlendingana, sem eru þó á yfir- burðabílum. Við höfum litla reynslu miðað við þá Geitel, Lord og Vierimaa, en kunnátta í ís- lensku gæti vegið upp á móti því,“ sagði Bjarmi Sigurgarðarsson í samtali við Morgunblaðið. Hann er einn þeirra sem líklegur er til að standa uppi í hárinu á útlend- ingunum. Það eru margir sem ætla sér slíkt eins og sést á ummælum ökumanna hér á síðunni. Stiga- keppnin um fslandsmeistaratitil- inn er jöfn. Ásgeir Sigurðsson og Pétur Júlíusson hafa forystu með 44 stig, Þórhallur Kristjánsson og Sigurður Jensson 37, síðan Bjarmi með 26. Með 20 stig eru fjölmargir ökumenn og aðstoðarökumenn, en keppnin er tvískipt. „Ég ætla að svekkja hina strákana í stigasöfn- uninni og keppa á lítt breyttum Escort," sagði Asgeir. A tímabUi leit út fyrir að hann myndi ekki keppa í Ljómarallinu, sem hefði gert öðrum auðveldara að ná for- ystunni. „Við munum standa vel að vígi ef við náum 5.-8. sæti,“ sagðiÁsgeir. Ljómarallið er fjögurra daga keppni. Eru eknir um 1.500 km, þar af 656 á sérleiðum. Rásmark og endamark verða við Uxann í Glæsibæ, en þar koma keppendur einnig í næturhlé á hverju kvöldi. í kvöld koma þeir í mark kl. 20.30 eftir akstur um Reykjanes. Staðan í íslandsmeistarakeppninni í rallakstri: Ökumenn Stig Ásgeir Sigurðsson ........... 44 Þórhallur Kristjánsson ...... 37 Ómar Ragnarsson (1) ......... 35 Birgir Bragason (1) ....... 30 Rallökumenn telja Geitel líklegastan MORGUNBLAÐIÐ fékk nokkra getspaka rallökumenn til að spá fyrir um úrslit í Ljómarallinu. Enginn þeirra er með í keppninni en þeir hafa verið i fremstu röð á undanförnum árum. Spáðu þeir í fímm efstu sætin. Var áberandi hve raikla trú kapparnir höfðu á Finnunum Peter Geitel og Errki Vanhanen á Nissan 240RS sem sigurvegurum. Flestir töidu líklegt að Audi Quattro Bretans Chris Lord og Birgis Viðars Halldórssonar myndi lenda í vandræðum vegna bilana. Spáðu allir í fímm efstu sætin. Ómar Ragnarsson, íslandsmeistari ökumanna ’84. 1. Geitel, Nissan. 2. Lord, Quattro. 3. Bjarmi, Talbot. 4. Viierima, Opel. 5. Jón R., Escort. Halldór Úlfarsson, íslandsmeistari ökumanna '83. 1. Bjarmi, Talbot. 2. Jón R., Escort. 3. Geitel, Nissan. 4. Eiríkur, Es- cort. 5. Ríkharður, Toyota. Birgir Bragason, hefur tvívegis náð öðru sæti í keppni ’85. 1. Geitel, Nissan. 2. Ríkharður, Toyota. 3. Jón R., Escort. 4. Bjarmi, Talbot. 5. Lord, Quattro. Steingrímur Ingason, keppnisstjóri Ljómarallsins. 1. Geitel, Nissan. 2. Bjarmi, Talbot. 3. Viierima, Opel. 4. Ríkharður, Talbot. 5. Þorsteinn, Toyota. Óskar Ólafsson, var framarlega í íslandsmeistarakeppninni ’82. 1. Lord, Quattro. 2. Geitel, Nissan. 3. Bjarmi, Talbot. 4. Þórhallur, Talbot. 5. Jón R., Escort. Eggert Sveinbjörnsson, var framar- lega í flokki ’80—’81. 1. Geitel, Nissan. 2. Bjarmi, Talbot. 3. Lord, Quattro. 4. Þórhallur, Talbot. 5. Viierima, Opel. Hálfur sólarhringur til stefnu og allt óklárt. Dæmigert ástand hjá rallöku- mönnum daginn fyrir keppni! Þau Ásta Dís t.v. Sigmar og Alli voru þó hvergi banginn. Það á bara eftir að setja, vél, gírkassa, hásingu, sæti og svona ýmislegt annað í bílinn...“ A síöasta snúningi HÁLFUR solarhringur til stefnu. í bílinn vantar, vél, gírkassa drifskaft, vatnskassa, hásingu, sæti og fl. og fl. Ósköp venjulegt ástand hjá rall- ökumönnum sem oftast eru tilbúnir í keppni nokkrum mínútum áður en ræst er af stað. Svona var a.m.k. ástandið hjá þeim Sigmari Gunnars- syni, Ástu Dísu Ingibergsdóttur og Aðalsteini Símonarsyni fyrsta kvöld- ið. Þau fyrmefndu keppa á Lancer í Ljómarallinu. Morgunblaðið leit inn í bílskúr hjá þeim kvöldið áður en þau áttu að skila bílnum í skoðun. „Þetta er ekkert mál við náum þessu alveg,“ sögðu þau eldhress, öll útmökuð í olíu og öðrum óhreinind- um. Hlutar úr bílnum voru á víð og dreif í skúrnum. „Við verðum hérna þar til bíllinn er tilbúinn í skoðun, í alla nótt og fram á dag ef með þarf. Á sunnudaginn sauð ég saman bíl úr tveimur, það varð einskonar samr- uni. Upphaflegi keppnisbíllinn hafði skemmst það mikið hjá mér um daginn. Það er búið að ganga á ýmsu, við vorum langt fram á nótt í fyrra- kvöld. Ég fékk flís í augað í dag, þegar ég var að slípa bretti. Á slysa- varðstofunni var mér sagt að fara sofa, en það kemur ekki til mála núna,“ sagði Sigmar. „Annaðhvort er að vera í ralli eða sleppa þessu. Við klárum þetta og mætum í keppn- ina.“ „Keyrum eins og druslan kemsta segja keppendur Keppendum er raóað í rásröð 1. Peter Geitel/Errki Vanhanen, Nissan 240RS, 268 hö. „Ökum á fullu, en skynsamlega. Ætlum að ná árangri." 2. Asgeir Sigurðsson/Pétur Júlíus son, Ford Escort, 109 hö. „Spilum þetta skynsamlega. Aldrei að vita hvenær við sleppum okkur lausum." 3. Sakari Vierimaa/Tapio Eirtov- aara, Opel Manta 1200, 220 hö. „Málið að ljúka keppni, sem er erf- ið. Keyrum þó hratt." 4. Chris Lord/Birgir V. Halldórsson, Audi Quattro, 360 hö. „Keyra hratt, en örugglega. Stefn- um að sjálfsögðu að sigri.“ 5. Eiríkur Friðriksson/Þráinn Sverr- isson, Ford Escort, 150 hö. „Reynum að „kyssa" afturendann á Quattro-bílnum, „teikann“ eitt- hvað.“ 6. Kíkharður Kristinsson/Atli Vil- hjálmsson, Toyota Corolla, 150 hö. „Auka hraðann á seinni hlutanum. Vinna flokkinn og ná einu af fimm efstu sætunum." 7. Bjarmi Sigurgarðarsson/Úlfar Eysteinsson, Talbot Sunbeam, 260 hö. „Klára keppnina, taka hverja leið fyrir sig. Halda í við kraftmikla bíla útlendinganna." 8. Þorsteinn Ingason/Sighvatur Sig- urðsson, Toyota Corolla, 124 hö. „Taka allt útúr bílnum, sem hann á. Þetta er sterkur en kraftlítill bíll. 9. l>órhallur Kristjánsson/Sigurður Jcnsson, Talbot Sunbeam, 200 hö. „Ánægður ef við náum þriðja sæti, mjög ánægður." 10. Hættir 11. Birgir Vagnsson/Gunnar Vagns- son, Ford Cortina, 163,8 hö. „Aldrei stefnt á minna en fyrsta sæti. Cortinan aldrei betri.“ 12. Guðmundur Jónsson/Sæmundur Jónsson, Subaru Justy, 60 hö. „Reyna að láta ekki keyra yfir okkur. Þriðji dagur okkar dagur.“ 13. Marjo Salonen/Tuula Karkkula- inen, Toyota Corolla, 150 hö. „Erum mjög spenntar. Ætlum að ljúka keppni og keyrum á okkar eig- in tempói, ekki annarra." 14. Örn Ingólfsson/Halldór Arnars- son, Trabant 601, 42 hö. „Ánægður með 5—7 sæti af þeim 9 sem klára. Nýtum hestöflin." 15. Júlíus Ólafsson/Franz Jezorskí, Lada, 100 hö. „Koma bílnum í gegn. Bílaflotinn rosalegur erfiðir andstæðingar." 16. Ólafur I. Sigurjónsson/Halldór Sigurjónsson, Ford Escort, 150 hö. „Keyrum skynsamlega, stíft en án hættu. Reynum að halda jöfnum hraða.“ 17. Charlie Nichols/Hilmar Karlsson, Talbot Sunbeam, 115 hö. „Dóla í gegn og hafa gaman af.“ 18. Bjarni Haraldsson/Þórður Þór- mundsson, Lancer, 110 hö. „Heilan bíl í mark. Gerum engar stórrósir." 19. Helga Jóhannsdóttir/Þorfínnur Ómarsson, Toyota Tercel 4WD, 85. „Lofa að velta ekki eins og í fyrra. Kvíði dálítið fyrir núna.“ 20. Jón R. Ragnarsson/Kúnar Jóns- son, Ford Escort, 250 hö. „Númer 1,2 og 3 að ljúka keppni. Ekki neðar en fimmta sæti þó.“ 21. Þorvaldur Jensson/Pétur Sigurðs- son, Lada Sport, 85 hö. „Vinna standardflokkinn. Halda jöfnum hraða til endamarks." ÞAÐ verða örugglega skemmtileg tilþrif sem ökumenn Ljómarallsins munu sýna á sérleiðum. Aka kepp- endur þar í kapp við klukkuna á leiðum, sem hafa verið lokaðar almenningi. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á sérleið á Fífu- hvammsvegi í svokölluðum Kópa- vogsgryfjum. Þar aka bllarnir kl. 17.16 í dag og kl. 19.20 á laugar- daginn. Ættu hraðinn og sveiflurn- ar á bílunum í beygjum að kæta áhorfendur. í dag verður einnig ekið á Reykjanesi, en stutt frá höf- 22. Halldór Gíslason/Karl ísleifsson, Vauxhall Chevette, 120 hö. „Enginn sýningaratriði hjá okkur. Erum kolryðgaðir í akstri núna eft- ir hvíld." 23. Daníel Gunnarsson/Valsteinn Stefánsson, Opel Kadett, 90 hö. „180 hestafla vélin fór í mask í vik- unni. Ljúka keppni því aðalmálið." 24. Hermann Hermannsson/Ragnar Bárðarson, Ford Escort 130 hö. „Reynum að ljúka keppni." 25. Brynjólfur V. Júlíusson/Ólafur Olafsson, Ford Escort, 150 hö. „Farið til skemmtunar. Sættum okkur við það sem við náum.“ 26. Sigmar H. Gunnarsson/Inga Dísa Ingibjörg, Lancer, 85 hö. „Keyra eins og druslan kemst — Nýta kraftinn." 27. Michael Keynis/Konráð G. Vals- son, Subaru, 85 hö. „Klára keppnina og reyna að vinna standardflokkinn. Fara varlega" 28. Arnar Theódórsson/Gunnar Gunnarsson, Lada, 86 hö. „Klára fyrstu leið, ef það tekst þá ljúka keppni.“ 29. Pétur Ástvaldsson/Guðmundur Stefánsson, Ford Pinto, 100 hö. „Skila bílnum í endamark aðalmál- ið.“ uðborginni er sérleið rétt austan við Álverið í Straumsvík. Þar verður ekið kl. 20.00. Leiðarlýsing, fímmtudagur: Fífu- hvammsvegur kl. 17.16, Isólfsskáli kl. 18.12, Reykjanes kl. 18.43, Stapa- fell kl. 19.35, Hvassahraun I kl. 20.00. Föstudagur: Lyngdalsheiði kl. 8.01, Kjölur kl. 09.00, Kjölur frá Hvera- völlum kl. 13.00, Lyngdalsheiði kl. 15.35, Esjuleið kl. 16.29, Reykjanes- leið kl. 18.33, Isólfsskálavegur kl. 19.00. Áhorfendaleið í Kópav ogsgry fjum Bjarmi Sigurgarðarsson ..... 26 óskar Ólafsson (1) ......... 20 Jón Ragnarsson ............. 20 Þorsteinn Ingason .......... 20 Aðstoðarökumenn Pétur Júlíusson ............ 44 Sigurður Jensson ........... 37 Jón Ragnarsson (2) ......... 35 GesturFriðjónsson(l) ....... 30 Árni ó. Friðriksson (1) .... 20 Birgir Viðar Halldórsson ... 20 RúnarJonsson ............... 20 Sighvatur Sigurðsson ....... 20 (1) keppa ekki í Ljómarallinu (2) keppir nú sem ökumaður Stigagjöf er þannig: Fyrir fyrsta sæti fást 20 stig, annað 15 stig, þriðja 12, fjórða 10, fimmta 8, sjötta 6 og síðan færri fyrir næstu á eftir. Árangur útlendinga hefur ekki áhrif á stigagjöfina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.