Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
Fjölbreytt
námskeiö
og snyrtivörur
fyrir ungar og djarfar
konur á öllum aldri
Einkaumboð fyrir No
Name snyrtivörur, Bal
A Versalles ilmvötn,
Escapade húð- og
hárkrem með blóma-
fræflum
Laugavegi 27 ■ Sími 19660
Getum nú aftur innritaö nýja
nemendur á hin vinsælu
námskeið okkar í dag- og
kvöldmálun.
Viö bjóöum glæsilegt úrval
af nýjum og fjölbreyttum
snyrtivörum og þjónustu
fyrir ungar og djarfar konur
áöllumaldri.
BJÓÐUM EINNIG UPP
Á LJÓSABEKKI.
Dansskólarnir eru margir en aðeins einn
Um viðhald
á iaxastofni
Miðfjarðarár
Bréf til Böðvars Sigvaldasonar, Barði
— eftir Hauk
Sveinbjarnarson
Hafnarfírði 9.9.1985.
Kæri samherji!
Með aðdáun hefi ég fylgst með
verkum þínum, framkvæmdum og
tilraunum sem þú hefur og ert að
gera til viðhalds laxastofninum í
Miðfjarðará.
Hins vegar þykir mér það leitt
að þú skulir ekki hafa ráðist beint
að vandanum, sem er að koma í
veg fyrir þær miklu sveiflur niður
á við sem verða munu öðru hverju
um ókomna tíð.
Þú munt komast að sömu niður-
stöðu og ég að í slæmu árferði
drepast sleppiseiði (og lögð hrogn)
ekki síður en þau náttúrulegu. Þú
munt einnig komast að því að í
góðu árferði gerir þú betri heimtur
og ef að heppnin er með þér geta
heimturnar orðið mjög góðar og
þá við þau skilyrði þegar náttúru-
klak bregst og önnur ytri skilyrði
fara batnandi.
Það sem á væntanlega eftir að
hryggja þig( ekki síður en mig,
forðum, er að þú hefur engan
möguleika á að mæla það hugsan-
lega tjón sem þú veldur með seiða-
sieppingum eins og þær eru fram-
kvæmdar. Allar mælingar eru þér
í hag og hver endurheimta á
merktu seiði er talin jákvæð, þar
til að í slæmu árferði verða endur-
heimturnar engar.
Þú munt komast að því að þú
átt engin svör við sívinnandi og
síbreytilegum náttúruöflunum en
það sem ég kalla „Staðareldi"; sem
er: seiði fóðruð og þrekþjálfuð í vatni
árinnar. Ég vitna til greinar
minnar um „Staðareldi", sem þú
hefur lesið en þar getur þú undir-
strikað það sem skiptir máli, fóðr-
un, þrek, ratvísi, en greinin er löng
og ætluð mun stærri lesendahóp
en þeim sem hafa sökkt sér ofan
í þessi mál/fræði.
Hvaða gagn er af seiðabanka?
Getur hann verið tiltækur? Hvað
er seiðamagnið í ánni fyrir slepp-
ingu? Eru ætisskilyrðin nógu góð
og verða þau það?
Fóðrun, þrek, ratvísi
Máli mínu til stuðnings á þessum
þrem þáttum vil ég benda þér á
tvær hafbeitarstöðvar, (Vogalax)
Laxeldisstöðin í Vogum á vegum
Fjárfestingafélagsins og Pólarlax
í Straumsvík. t fyrrnefndu stöð-
inni hafa seiði verið aðkeypt, fóðr-
uð og þrekuð í kerjum við Voginn
í sleppistærð. Vatnið er blanda,
hitaveituvatn og kalt staðarvatn.
Frá kerjunum rennur vatnið í
tjörn og úr tjörninni rennur vatnið
í laxastiga niður í Voginn. Sjó er
dælt upp í tjörnina til að auka
rennsli í stiganum. Ætlunin var
að laxinn gengi upp stigann í tjörn-
ina sem hann gerði ekki. Ástæður
geta verið margar, t.d. þar sem lax
gengur upp stiga, í jafnvel minna
vatni, þá er hann þegar kominn í
ferskt vatn og snýr ekki til baka.
Það þyrfti því að vera ferskvatns-
lón fyrir neðan stigann og fersk-
vatnsrennslið þyrfti að auka að
mun. Öll mannvirki, laxastigar
o.fl. nýhönnuð forðast laxinn í
lengstu lög, þar til vatnið hefur
eytt öllum efnum og annarlegri
lykt. Laxinn á því sennilega eftir
að ganga upp stigann við breyttar
aðstæður. En laxinn gengur í
Voginn og alla leið upp að stiga. í
fyrstu náðist hann ekki og hvarf
á haf út og heimtur voru litlar en
til þess að ná laxinum varð að
króa hann af á flóði og láta fjara
undan honum og endurheimtur eru
nú með því besta.
í síðarnefndu stöðinni, Pólarlax,
er dæmið enn áþreifanlegra. End-
urheimtur voru nánast engar.
Rennsli var frá stöðinni til sjávar
sem enginn lax gekk upp í. Síðar
var búið til lón og steypt renna sem
laxinn gekk heldur ekki upp í. Að
lokum var búin til ný renna inní
lónið, meðfram þeirri steyptu, með
jarðýtu og er óhætt að segja að
ýtan hafi varla verið farin úr för-
um sínum þegar laxinn fór að
ganga í lónið. Litlu síðar fór laxinn
einnig að ganga í steyptu rennuna
sem bendir til þess að annarleg
efni hafi runnið úr steypunni enda
var gróður byrjaður að setjast í
rennuna.
Sjórinn fyrir utan Pólarlax
kraumar stundum af laxi og
mergðin getur orðið svo mikil að
sjórinn er ekki lengur blár af laxi
heldur svartur og alls staðar þar
sem vatn rennur frá berginu reyn-
ir laxinn að troða sér. Enginn veit
hvað hefur orðið af þessum laxi
undanfarin ár og væri það verðugt
rannsóknarefni.
Á ratvísi laxins er hægt að
treysta og það eru engar öfgar að
sé nægt vatn, ómengað uppeldis-
vatn, til staðar, gengur laxinn alla
leið, í kerið sitt, sláturhúsið eða
flutningagáminn.
„Fjallafundur“ á íslandi
FJALLAFUNDUR norrænu ferðafé- fundur" er haldinn á fslandi, en þeir
laganna var haldinn hér í Reykjavík eru haldnir annað hvert ár. Ferðafé-
dagana 29. ágúst til 1. sept. sl. Þetta lag íslands hefur verið með í þessu
er í fyrsta sinn sem slíkur „fjalla- samstarfí sl. 10 ár.