Morgunblaðið - 19.09.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
27
Haukur Svcinbjarnarson
„Á ratvísi laxins er hægt
aö treysta og það eru
engar öfgar að sé nægt
vatn, ómengað uppeldis-
vatn, til staðar, gengur
laxinn alla leið, í kerið
sitt, sláturhúsið eða
flutningagáminn.“
Böðvar, þú ert að gera það sama
sem ég og margir aðrir hafa gert.
Munurinn er sá að þú hefur enn
betri aðstæður en nokkur sem ég
þekki til. Þú ert formaður veiðifé-
lags sem á mjög gott vatnasvæði,
rennandi við fætur þér og getur
nýtt þér meiri tækni nú en áður
svo að skráning verður mun ná-
kvæmari. Skráning sem er fróðleg
og gagnleg til þekkingar á náttúru-
lögmálunum en breytir ekki niður-
stöðum á því hvað gera þarf.
Ég ræð þér heilt, og þeim er
svipaða aðstöðu hafa, að skoða t.d.
Hafbeitarstöðina í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Fáðu þér tvö
svipuð ker og þar eru, staðsettu
þau fyrir neðan Laugarbakka,
láttu Miðfjarðarárvatnið renna
um þau og notaðu heita vatnið á
Laugabakka til að ná kjörhita. Með
aðstöðu þinni í Hólalax notar þú
seiði úr hreinum Miðfjarðarstofni
sem þú þrekelur í sleppistærð. Þú
þarft ekki að byrja stærra og spá
mín er sú að göngur og endur-
heimtur verði jafnari, viðfangsefn-
ið skemmtilegra, sem yrði að
mestu fólgið í því að grisja klaklax
að hausti. Allar aðrar mælingar
og rannsóknir, með fiskifræðing
til aðstoðar, munu veitast þér að
auki og að vild: Þú gætir aflétt
veiðitakmörkum og með því skap-
að jafnari tekjur og eignast
trausta viðskiptavini.
Með bestu óskum og kærum
kveðjum mæli ég fyrir hönd allra
stangveiðimanna.
Hiifundur er framkvæmdastjóri
Bátalóns í Hafnarfirði.
Elsta ferðafélag á Norðurlönd-
um er „Den Norske Turistforen-
ing“, stofnað árið 1868, og eru fé-
lagsmenn nú um níutíu þúsund.,
„Svenska Turistforeningen" er
stofnuð árið 1885 og eru félags-
menn þar um 290 þús., „Finlands
Turistforbund" er stofnað 1887 og
hefur um 35 þús. félagsmenn og
Ferðafélag íslands er stofnað 1927
og eru félagsmenn um 8.200.
Norska ferðafélagið er fyrirmynd
annarra ferðafélaga á Norður-
löndum, en markmið allra þessara
félaga er það sama, að kynna
ferðalög og náttúruskoðun í eigin
löndum og vekja áhuga fólks á
heilbrigðri útiveru. Rekstur sælu-
húsa er stór þáttur í starfi þessara
félaga, fyrir utan ferðir til fjalla.
Á þessum fundi var mikið rætt
um að auka ferðalög milli Norður-
landa. Leggja áherslu á kynningu
ferða í óbyggðum hvers lands og
þannig fá félaga ferðafélaganna
til þess að heimsækja hvern ann-
an í óbyggðum. (Úr rrétuiilkynninnu)
Leikfélag Reykjavíkur:
Dagskrá úr verk-
um Jakobínu
FYRSrA verkefni Leikfélags
Keykjavíkur í vetur, Dagskrá úr
verkum Jakobínu Sigurðardóttur,
verður frumflutt í Gerðubergi nk.
sunnudag kl. 20.30. Verkefni þetta
er framlag Leikfélagsins til Listahá-
tíðar kvenna.
Bríet Héðinsdóttir tók dag-
skrána saman og hefur umsjón
með henni, en flytjendur auk Brí-
etar eru Ingibjörg Marteinsdóttir,
söngkona, Jórunn Viðar, tónskáld
og leikararnir Margrét Ólafsdótt-
ir, Valgerður Dan, Hanna María
Karlsdóttir og Þorsteinn Gunn-
arsson.
Jakobína Sigurðardóttir fæddist
í Hælavík á Hornströndum árið
1918, en flutti 17 ára gömul til
Reykjavíkur þar sem hún stundaði
ýmis störf. Árið 1949 fluttist Jak-
obína að Garði í Mývatnssveit þar
sem hún býr enn. Jakobína hefur
gefið út smásagnasöfn, ljóð og
barnabók ásamt fjórum skáldsög-
um: Dægurvísu, Snöruna, Lifandi
vatnið og 1 sama klefa.
Önnur sýning Leikfélagsins
verður á Kjarvalsstöðum 27. sept-
ember og þriðja sýning í Gerðu-
bergi 20. september.
KrélUtilkyuÍBf.
Við rýmum til fyrir nýrri árgerð og bjóðum Opel Corsa, Opel
Kadett og Opel Ascona á vildarkjörum til 10. október eða á
meðan birgðir endast. 60% lán er aðeins ein leið af mörgum
sem við bjóðum nú til að auðvelda þér að eignast góðan bíl:
• Verðlækkun
Við bjóðum ríflega verðlækkun.
Pannig lækkar t.d. Opel KadettLS úr 431.500 í
398.500!"
• Gamli bíllinn tekinn upp í
Pað kemur sér e.t.v. best fyrir þig að setja gamla bílinn
upp I. Lítum á dæmi:
Nýr Kadett LS (eftir lækkun) kr. 398.500
Sá gamli kostar t.d. kr. 175.000
Þá er útborgun kr. 143.500
og afganginn greiðir þú með jöfnum
afborgunum á 6 mánuðum kr. 80.000
kr. 398.500
Allt að
• 30.000kr. staðgreiðsluafsláttur
ef bíllinn er greiddur innan 45 daga frá afhendingu.
• 60% lánað
Þú getur líka samið við okkur um lánafyrirgreiðslu.
Dæmi:
Nýr Kadett LS kr. 398.500
útborgun 40% kr. 159.400
Helming eftirstöðva lánum
við síðan í 3 mánuði kr. 119.550
og afganginn í 12 mánuði kr. 119.550
kr. 398.500
• Þínar óskir
Við erum alltaf til viðræðu um aðrar leiðir en þær sem
hér hafa verið nefndar. Þú ættir að hafa samband og
kanna málið.
BÍLVAMGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687500
1) Miðað við gengi 18. sept. '85