Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 43

Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 43 Minning: Óskar Nielsson frá Svefneyjum Á fertugsaldri fór Valberg að kenna lasleika og treysti sér ekki til að vinna erfiðisvinnu. Fór hann þá að hafa kindur og gat sinnt þeim með aðstoð konu sinnar og dóttur. Um 1963 fékk hann svo að- stöðu í Viðey fyrir fé sitt og hafði æ síðan. Þá kom báturinn í góðar þarfir. Það sagði hann mér að í Viðey ætti hann margar ánægju- stundir og það væri sér ómetan- legt að fá að vera þar með féð. Oft réttu vinir og frændur honum hjálparhönd þegar á lá. Nú seinasta árið var Valberg sjúkur og í vor og sumar gekkst hann undir tvær aðgerðir en ekki varð við neitt ráðið. Hann tók ör- lögum sínum með hugrekki og óttaðist ekki dauðann, enda trúað- ur maður og þess fullviss að líf er að loknu þessu. Sár er söknuður- inn hjá fjölskyldu hans, en það má vera þeim huggun að hafa ætíð verið honum stoð og stytta í lífinu. Guð blessi minningu hans. Inga Straumland í dag, 19. september, þegar hið fagra sumar er að kveðja, og rökk- ur haustsins að færast yfir, verður til hinstu hvílu borinn minn kæri föðurbróðir, Kristinn Valberg Sig- mundsson. Þessi fátæklegu orð eiga aðeins að vera kveðja, en ekki æviágrip. Kveðja og þakkir fyrir allt það, sem hann og hans góða fjölskylda gerðu fyrir mig á erfið- um tímum. Ávallt var opið hús I Hraun- bænum, mér og manni mínum sál- aða, sem átti við mikinn sjúkleika að stríða, og þurftum við þess vegna oft að dvelja hér syðra, langtímum saman, en bjuggum úti á landi. Já, þar var bæði húsrými og hjartarúm. Valli frændi var mér alltaf ákaf- lega kær, við vorum bæði af sama jarðvegi komin, fædd og uppalin fyrir vestan, áttum sama æsku- heimilið að Fossá, og þangað leit- aði hugurinn oft, er við ræddum saman. Er ég heimsótti hann á sjúkrahúsið þar sem hann háði sína síðustu baráttu, var það oft það síðasta sem hann sagði, „ég bið að heilsa, ef þú heyrir í þeim fyrir vestan". Hann var dulur maður, og flík- aði ekki sínum tilfinningum, en traustur var hann og tilfinninga- ríkur, og brosið hans náði til augn- anna, þegar hann brá á sína góð- látlegu glettni. Minnist ég þess hve oft hann gat hrifið manninn minn sálaða upp úr sínum erfiðu hugsunum, um sína fötlun og aðra erfiðleika, einmitt með þessari góðlátlegu glettni í rólegheitum. Settust þeir þá gjarn- Þann 8. september 1985 lést í Landspítalanum minn góði vinur Þórður Hermannsson skipstjóri. Já, menn koma og fara, nú hefur hann lagt upp í sína hinstu ferð yfir móðuna miklu og kvatt þenn- an synduga heim. Nú er hann kominn til Guðs sem gaf hann og þar veit ég að hann hefur átt góða heimkomu. Ég undirritaður var svo gæfusamur að kynnast þessum góða dreng fyrir 20 árum og er ég bæði glaður og þakklátur fyrir að hafa notið þess. Þórður var einn af þeim mönn- um sem ég mat mikils, hann bar af þeim mönnum sem stóðu að einstaklingsframtakinu og sýndi það með dugnaði sínum og bjart- sýni strax á unga aldri enda af sterkum stofni kominn. Ég ætla mér ekki að rekja æviferil hans, það hafa aðrir gert en hins vegar vil ég kveðja þennan vin minn með nokkrum orðum. Þórður var stál- velgefinn maður eins og hann sýndi svo ekki varð um villst á sinni stuttu ævi, hann var bæði skipstjóri og útgerðarmaður og einn af eigendum togaranna Ögra og Vigra. Þórður var mikill heimil- isfaðir og átti sér indæla konu, Vigdísi Birgisdóttur, sem stóð eins og klettur við hlið mannsins síns og ekki síst í veikindum hans. Þau an niður og ræddu um kindurnar í Viðey, Úða, bátinn hans Valla, og annað sem báðum var hugleikið. Ekki fór frændi minn varhluta af erfiðleikum lífsins. Er hann var aðeins 36 ára að aldri átti hann við mikil veikindi að etja, og má segja að þótt hann næði allgóðri heilsu aftur á löngum tíma, hafi hann aldrei gengið heill til skógar eftir það. Ef til vill hafa margir ekki gert sér grein fyrir þeim erfið- leikum eins og þeir voru, því ekki var hann orðmargur um líðan sína, dró sig þá frekar í hlé. En við hlið hans stóðu ávallt hans góða kona og dóttir, allt til hinstu stundar. Það var hans hamingja. Ekki má gleyma tengdasynin- um, sem alltaf reyndist honum mjög vel, ekki síst í vor og sumar þegar mest á reyndi, létti hann af honum öllum þeim áhyggjum sem hann gat. Dóttursynirnir á Kópavogs- brautinni voru í miklu uppáhaldi hjá afa sínum, og fylgdist hann af áhuga með þroska þeirra. Ekki voru þeir háir í loftinu, tveir þeir eldri, þegar þeir fóru að skreppa með ömmu og afa á bátnum út i Viðey. Þar áttu þau margar ánægjustundir saman, sá yngsti hafði ekki aldur til. Ég minnist þess er ég heimsótti frænda minn á heimili hans í vor. Daginn áður hafði hann komið heim af sjúkrahúsi eftir að hafa gengið í gegnum erfiða aðgerð og legu. Ég gat ekki annað en dáðst að því, hvað hann var yfirvegaður. Þó hafði hann hlotið sinn dóm, vissi að hann gekk með ólæknandi sjúkdóm. Hann ræddi lengi við mig, ég hlustaði, en gat lítið sagt. Hvað getur maður sagt? Við deil- um ekki við dómarann mikla. Eitt af því sem hann sagði var: „Maja mín, ég kvíði ekki fyrir því að deyja, en ég kvíði fyrir því stríði sem ég þarf að ganga í gegnum áður, ég er búinn að sjá svo margt." Þess vegna þakka ég nú góðum guði fyrir að hann þurfti ekki að stríða lengur, hann andaðist í Landspitalanum þann 11. septem- ber eftir mánaðar legu. Þar fékk hann frábæra hjúkrun, og allt var fyrir hann gert sem hægt var. Ég efast ekki um að frændi minn hefur hlotið góða heimkomu á það æðra svið sem hann er nú, laus við allar jarðneskar þjáningar. Guð blessi hann. Bið ég góðan guð að styrkja og blessa fjölskyldu hans. Ég enda svo þessi orð með þessúm ljóðlínum: Ég lít til þín drottinn og sé þar sól, og sælurík lönd. Ég vona að ég fái að finna þar skjól, á friðsælli strönd. María Haraldsdóttir Þórður og Vigdís áttu fjögur börn sem öll eru mannvænleg og góðir þjóðfélagsþegnar. Ég sakna vinar míns mikið, en auðvitað er söknuðurinn mestur hjá konu hans, börnum og systkin- um. Ég votta þeim öllum samúð mína og bið Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Jóhann Þórólfsson Fæddur 12. maí 1895 Dáinn 9. september 1985 Afi var orðinn gamall þegar hann dó. Síðustu árin hrörnaði hann jafnt og þétt, undir lokin var hann lagstur í kör. Ekki duldist að hverju stefndi, og var hann sjálfur sáttur við það. Engu að síður er það sárt að geta ekki lengur hugs- að til hans í rúminu á Framnes- vegi og geta ekki lengur litið til hans svolitla stund og virt hann fyrir sér og minnst hans eins og hann var. Hann leiddi mig lítinn niður að sjó, sýndi mér fjöruna, eiðið og grandann. Þegar ég var kominn til nokkurs vits og ára spjölluðum við um karla og kerl- ingar sem hann hafði þekkt og búskaparhætti í Breiðafirði fyrr á öldinni eða hann talaði rámri röddu um verðbólguna, Framsókn og stjórnmálaástandið. Einatt bar hann það saman við atburði sem lýst er í Sturlungu og Biblíunni. Þá sat hann í stólnum sínum í stofunni, með gluggann og tréð til hægri handar, tók í nefið og þurrkaði sultardropann og saug brjóstsykur svo hálsinn héldist mjúkur. Amma átti kaffi eða mjólk og hafði stundum bakað ástarpunga. Alltaf var mér tekið vel, en kom of sjaldan. Afi fæddist í Bjarnareyjum í Breiðafirði 12. maí 1895. Foreldrar hans voru Níels Gíslason bóndi þar og Ingveldur Magnúsdóttir. Níels drukknaði árið 1905. Þau fluttu í Bíldsey þegar afi var sjö ára og þar bjó hann með móður sinni til þrítugs. Einu sinni sagði hann mér að sig hefði langað í bændaskóla, en hann hefði ekki Oxsmá sýnir kvikmyndir í Regnboganum OXSMÁ-samsteypan endursýnir kvikmyndir sínar „Oxsmá plánelan" °g „Sjúgðu mig, Nína“ ■ F-sal Regn- bogans í kvöld og þrjú næstu kvöld. Hýningar hefjast öll kvöldin kl. 21.00. I fréttatilkynningu frá Oxsmá segir að myndirnar séu nú endur- sýndar vegna gífurlegrar aðsókn- ar um síðustu helgi. Eru þeir sem áhuga hafa hvattir til að tryggja sér miða í tíma, því hér sé um tækifæri að ræða til að sjá mynd- irnar, sem fjalli um undirheima Reykjavíkur í framtíð og fortíð. 65.000 lestir af loðnu ALLS eru nú komnar um 65.000 lestir af loðnu á land frá því vertíð hófst í ágúst. 25 skip eru komin á veiðarnar og hefur loðnan heldur verið að þoka sér nær landi af Jan Mayen-svæðinu. Síðastliðinn laugardag til- kynntu eftirtalin skip um afla, samtals 2.520 lestir: Örn KE, 580, ísleifur VE, 740, Júpíter RE, 750, Erling KE, 450. Á sunnudag var aflinn 1.690 lestir af eftirtöldum skipum: Rauðsey AK, 620, Keflvík- ingur KE, 530 og Magnús NK, 540 Iestir. Á mánudag var aflinn 2.260 lestir af eftirtöldum skipum: Skarðsvík SH, 630, Hrafn GK, 670, Gísli Árni RE, 600, og Sæberg SU, 300 lestir. Eftirtallin skip til- kynntu svo um afla á þriðjudag: Pétur Jónsson RE, 800, Erling KE, 450, og Grindvíkingur GK, 950 lestir. komist af því að hann þurfti að vinna við búið. Afi hóf síðan eigin búskap í Svefneyjum árið 1924. Þann 11. mars 1925 kvæntist hann Önnu Magnúsdóttur frá Svefneyj- um. Þau eignuðust tvær dætur, Önnu, sem fæddist 20. desember 1927, og Guðnýju, sem fæddist 14. desember 1929. Anna, kona afa, lést eftir fimm ára hjónaband, 6. janúar 1930. Hann kvæntist öðru sinni fimm árum síðar, 13. ágúst 1935, eftirlifandi konu sinni, Guð- ríði Sveinbjarnardóttur. Þau eign- uðust fjögur börn: Jón, fæddist 15. maí 1936, Þorkatla, fæddist 21. mars 1939, Ólafur Aðalsteinn fæddist 15. maí 1942, og Níels, fæddist 23. ágúst 1944. Ólafur lést 11 ára gamall. Afi og amma bjuggu í Svefneyjum til 1939. Þá fluttu þau til Flateyjar, höfðu búskap og afi var hreppstjóri. Til Reykjavíkur fluttu þau strax þeg- ar stríðinu lauk, vorið 1945. Þau bjuggu í Engey í nokkur ár en fluttu alkomin til Reykjavíkur ár- ið 1956. Á Framnesveginn komu þau haustið 1958. Afi vann hjá Sambandinu til 1962 að hann komst á eftirlaun. Eftir það var hann mest heima; góður við börn og barnabörn og konuna sína. Mási + Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vináttu við fráfall og útför SIGURBJARGAR JÓNSDOTTUR, fyrrum húsfreyju é Ófeigsstööum. Guö blessi ykkur öll. Svanhildur Baldursdóttir, Einar Kristjénsson, Baldvin Baldursson, Sigrún Jónsdóttir, Þorbjörg Snorradóttir, og aörir vandamenn. t Þökkum innilega hlýhug og samúö við fráfall MARGRÉTAR SVEINBJARNARDOTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10B, 4. hæö, fyrir góöa umönnun. Jóna Sveinbjarnardóttir, Ólafur Helgason, Benedikt Sveinbjarnarson, Ólöf Helgadóttir, systkinabörn og aðrir aðstandendur. + innilegustu þakkir sendum viö öllum sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns og fööur okkar, ADALSTEINS METUSALEMSSONAR, Hjaltabakka 10, Reykjavík. Jérngeröur Einarsdóttir, Sméri Aöalsteinsson, Regína Aöalsteinsdóttir, Leifur Aðalsteinsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinarhug viöandlát og útför ÞORVALDS ÁSMUNDSSONAR, Hverfisgötu 47, Hafnarfiröi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadelldar Landspítalans sem önnuöust hann í veikindum hans. Júlía Valsteinsdóttir, Henning Þorvaldsson, Steinunn Alfreösdóttir, Birna Þorvaldsdóttir, Jón R. Jónsson, Valdís Þorvaldsdóttir, Steinar Haröarson, Sigurbjartur Þorvaldsson, Sveinsína Jónsdóttir, Guömundur Þorvaldsson, Helga Þóröardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Þórður Hermanns- son — Kveðjuorð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.