Morgunblaðið - 19.09.1985, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
ást er...
að
heppnina
sér.
TM Refl. U.S. Pat. Otf.—all rights reserved
Los Angeles Times Syndicate
»19
Með
morgunkaffinu
l>ad er eitthvað að rafmagn-
inu hér. Hreint með ólík-
indum hve oft öryggin
springa hér á þessu heimili.
HÖGNI HREKKVlSI
©
- -
þú etZT AP
K.OMA TIU.'
Með því að segja að Megas og
Bubbi afvegaleiði æskuna er ver-
ið að hengja bakara fyrir smið
Ljóðaunnandi skrifar:
í Velvakanda um daginn birtist
stórt og mikið bréf um að Bubbi
og Megas væru að afvegaleiða
æskuna með ömurlegum söngtext-
um. Þessu vil ég mótmæla harð-
lega.
Að vísu hefur Bubbi lengst af
samið texta sína á einhverskonar
götumáli, en það getur tæplega
skaðað málvitund æskunnar þegar
talað er til hennar á sama máli
oghúnsjálf talar.
Á þeim fimm árum sem Bubbi
hefur verið á toppnum hefur texta-
gerð hans hins vegar fágast mjög
mikið, og á hans síðustu plötu er
t.d. að finna eftirfarandi lýsingu á
fíkniefnaneytendunum Rómeó og
Julíu:
„Uppi í risinu lágu og ófu sinn vef,
óttann þræddu upp á þráð.
Ekkert gat skeð því það var ekkert ef
— efvel varaðgáð.”
Þetta er slungin lýsing á hugar-
heimi eiturlyfjaneytandans. Orða-
leikur í fáum en hnitmiðuðum
orðum.
Þessi texti og aðrir á síðustu
hljómplötu Bubba eru fullboðlegir
hverjum sem er. Þeir standa fram-
ar flestum öðrum dæguriagatext-
um.
Jafnframt er rétt að benda á að
Bubbi hefur verið duglegur við að
kynna yngri skáld þessa lands, eins
og til dæmis Þórarinn Eldjárn og
Magnús Ásgeirsson, ásamt fleiri
skáldum.
Um Megas er það hins vegar að
segja að textar hans eru mjög ólík-
ir textum Bubba. Þarf sérstaka
kímnigáfu til að átta sig á hvað
hann á við í textum sínum.
Á plötunni „The Boys from
Chicago" sem bróðir Bubba, Tolli,
á mestan heiður af, syngur Megas:
„Vinirnir mínir og vinurnar smá
með vatnsbláu ýsuaugun sín
úr þáinu, núinu, nándinni firðinni
sem neysluvarningur er ég lögvernduð
einkaeign min
& ég þekki ykkur ekki.“
Með því að kenna Megasi og
Bubba um að afvegaleiða æskuna
er verið að hengja bakara fyrir
smið. Sökudólgana er að finna hjá
annarri og eldri kynslóð.
Eþíópíuplatan
framlag skrópara
og skallapoppara
Rokkunnandi skrifar:
Mig langar að koma á framfæri
hneykslun minni á hinni svoköll-
uðu Eþíópíuplötu. Þar eru að verki
gamlir skallapopparar sem skróp-
uðu í fyrrasumar á tónleikum sem
Æskulýðsráð hélt í Laugardals-
höllinni til styrktar svöngum í
Afríku.
Samt höfðu þessir skallapoppar-
ar látið auglýsa sig fyrir hundruð
þúsundir króna en mættu síðan
ekki, enda höfðu Band Aid-hljóm-
leikarnir og „USA for Africa" ekki
slegið í gegn. Og það að halda að
tveggja laga plata á íslandi skili
gróóa er alveg út í hött.
Það hefur líka komið á daginn
að allir popparar með metnað, eins
og Stuðmenn, Ragnhildur Gísla-
dóttir, Megas, Kukl, Grafík, Bubbi
Morthens og Björk Guðmunds-
dóttir ætla að hunsa þennan fíg-
úrugang, sem íslenska Eþíópíu-
platan kemur til með að verða.
Þessir hringdu . . .
Hermenn í
Hollywood
Fastagestur í Hollywood hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Hvað er eiginlega að gerast í
Hollywood? Eg lagði leið mína
þangað um síðustu helgi, eins og
mín var von og vísa, en hvað var
á seiði? Allt fullt af hermönnum
ofan af Keflavíkurflugvelli, a.m.k.
50 talsins. Það er svo sem engin
nýlunda að sjá útlendinga í
Hollywood því þeir eru meðal
fastagesta staðarins, að því er
virðist, ásamt unglingum á aldrin-
um 16—18 ára.
Að koma inn í Hollywood þetta
föstudagskvöld var eins og að
koma inn í aumustu hermanna-
búllu því þessir hermenn voru bók-
staflega út um allt, slefandi og
snuðrandi.
Vonandi verður gerð bragarbót
á þessum stað áður en allt um
þrýtur. Er til dæmis ekki hægt að
hafa eitt kvöld í viku fyrir fólk um
tvítugt eins og mér skilst að hafi
verið hér einu sinni, eða reyna á
annan hátt að laða fslendinga að
þessum stað.
Illfærasti vega-
spotti landsins
er fyrir ofan
Fossvogskapellu
Halla Guðmundsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Athygli skal vakin á að einn
illfærasta vegarspotta landsins er
að finna á afar fjölfarinni leið, rétt
ofan við Fossvogskapellu.
Vegna einhverra framkvæmda á
nýja Bústaðaveginum er umferð úr
bænum beint um gamla Hafnar-
fjarðarveginn og út í móa á kafla.
Sá kafli er orðinn nærri ófær.
Mér er spurn: Hver á að laga
þetta, borgin eða verktakinn?