Morgunblaðið - 26.11.1985, Síða 5

Morgunblaðið - 26.11.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985 5 Rannsóknastofnun landbúnaðarins: Þorsteinn Tóm- asson skip- aður forstjóri Landbúnaðarrádherra hefur skip- að Þorstein Tómasson plöntuerfða- fræðing í stöðu forstjóra Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins (RALA) frá 1. desember næstkomandi. Þorsteinn er 40 ára að aldri, fæddur 17. júlí 1945 í Svíþjóð. Foreldrar hans eru Tómas heitinn Tryggvason jarðfræðingur og Kerstin Tryggvason bankafulltrúi. Árið 1970 lauk hann prófi í plöntu- erfðafræði frá háskólanum I Aberdeen í Skotlandi og hefur síðan starfað sem sérfræðingur í jurtakynbótum hjá RALA. Hann var settur forstjóri stofnunarinnar í mars síðastliðnum eftir lát Gunn- ars ólafssonar, setts forstjóra RALA, en var áður aðstoðarfor- stjóri í rúmt ár. Þorsteinn er kvæntur Sophie Kofoed-Hansen kennara og eiga þau tvö börn. Sex menn sóttu um stöðuna, þeir voru auk Þorsteins: Bjarni Helgason deildarstjóri hjá RÁLA, Bjartmar Sveinbjörnsson prófess- or við Alaska-háskóla, Björn Stef- ánsson landbúnaðarhagfræðingur, ólafur Guðmundsson settur deild- arstjóri hjá RALA og Sturla Frið- riksson deildarstjóri hjá RALA. Nú býðst eigendum Wang PC og Wang Micro VP tölva stóraukið úrval af haldgóðum hugbúnaði. Hæfni og afkastamöguleikar tölva ráðast af þeim hugbúnaði sem þær geta notað. Á þessu sviði hafa Wang-tölvur sterka stöðu. Á þær er hægt að vinna með fjölmörgum þrautreyndum forritum. Við bjóðum m.a. eftirfarandi hugbúnað frá Softveri sf.,sem bæði Wang Micro VP og Wang PC tölvur geta notað: HTTir • Fjárhagsbókhald / Aætlanagerð • Viðskiptabókhald / Lánadrottnar • Birgðabókhald • Sölunótukerfi • Pantanakerfi • Launabókhald Og nýtt Verkbókhald sem byggt er á SMS- staðlinum. s =f <a > Allar nánari upplýsingar veita söluaðilar. Heimilistæki hf TOLVUDEILD SÆTUNI8-SÍMI27500 SOFTVERsf FORRITUNARÞJÓNUSTA Skeifunni 3 f Sími 68 71 45 777 hagsmunaaðila í Gamla míðbænum / þessari viku munuð þið verða heimsótt og ykkur boðin þátttaka í félagi um Gamla miðbœinn Sameiginleg verkefni eru margvísleg nú fyrir jólin. Ef þiö fáiö ekki heimsókn einhverra hluta vegna en hafiö áhuga vinsamlega hafiö samband viö skrifstofuna ísíma 18777. * Sýmim samstöðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.