Morgunblaðið - 26.11.1985, Page 7

Morgunblaðið - 26.11.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 26. NÖVEMBER1985 7 Loðnuverð hækkað um 8,5 % — hækknnin í samræmi við hækkun afurðaverðs VERÐ á loðnu upp úr sjó var hækkaö í gær um 8,5% meö samkomulagi í Verölagsráöi sjávarútvegsins. Verö- hækkunin er í samræmi viö hækkun afurðaverðs. Verð á hverri lest loðnu til skipta er nú 1.400 krónur en var 1.290. Ofan á þetta verö er kaupend- um gert að greiða 39%, sem ekki koma til skipta, og er verðið þá 1.946. Endanlegt verð með uppbótum og endurgreiddum söluskatti verður 2.142 krónur fyrir hverja lest. Verðið gildir frá 25. nóvember til áramóta og miðast við 16% fituinnihald og 15% innihald fitufrís þurrefnis. Það breytist um 88 krónur til hækkunar eða lækk- unar fyrir hvert 1%, sem fituinni- hald breytist frá viðmiðun og um 94 krónur fyrir hvert 1%, sem innihald þurrefnis breytist. Kaup- endum er gert að greiða 2,50 krón- ur af hverri lest til rekstrar loðnu- nefndar. Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að verð á lýsi og mjöli hefði heídur þokazt upp á við að undanförnu. Lýsislestin færi nú á lágmark 13.600 krónur, 330 dali, og hver lest mjöls að meðaltali á rúmar 15.500 krónur, 378 dali. Nú hafa veiðzt um 470.000 lestir og taldi Jón Reynir, að líklega væri búið að vinna úr rúmlega 400.000 lestum, sem gæfu um 64.000 lestir, bæði af lýsi og mjöli. Hann sagði að mjög lítið af þessum afurðum væri nú óselt í landinu og líklega væri búið að selja fyrirfram nán- ast allt lýsi, sem framleitt yrði. Mikil fyrirframsala íslendinga hefði meðal annars átt sinn þátt í því að toga verðið upp, þar sem vissa kaupenda um miklar óseldar birgðir leiddi yfirleitt til lægra verðs en ella. Mikil loðnu- veiði við Kol- beinseyna — 470.000 lestir veiddar frá upphafi vertíðar LOÐNUVEIÐAR gengu vel um helgina og hafa nú veiðst um 470.000 lestir. Á laugardag varð aflinn 21.800 lestir af 27 skipum, á sunnudag 9.590 af 13 skipum og síðdegis á mánudag var aflinn orðinn 12.430 lestir af 19 skipum og voru flest með fullfermi. Þróar- rými er því víðast á þrotum um þessar mundir og á mánudag var hvergi laust pláss nema við Faxa- flóa og í Vestmannaeyjum. Auk þeirra skipa, sem áður hefur verið getið í Morgunblaðinu, tilkynnti Júpíter RE um 1.300 lesta afla á laugardag. Á sunnudag voru eftirtalin skip með afla: Þórs- hamar GK, 600, Keflvíkingur KE, 540, Guðrún Þorkelsdóttir SU, 700, Örn KE, 580, Hilmir SU, 1.350, Huginn VE, 600, Gullberg VE, 620, Beitir NK, 1.350, Harpa RE, 630, Sjávarborg GK, 800, Fífill GK, 650, Skarðsvík SH, 640 og Helga II RE 530 lestir. Síðdegis á mánu- dag höfðu eftirtalin skip tilkynnt um afla: Heimaey VE, 530, Þórður Jónasson EA, 500, Víkurberg GK, 570, Magnús NK, 540, Gígja RE, 750, Jöfur KE, 450, Jón Kjartans- son SU, 1.120, Gísli Árni RE, 650, Dagfari ÞH, 530, Erling KE, 440, Hilmir II SU, 560, Albert GK, 600, Svanur RE, 730, Rauðsey AK, 600, Húnaröst ÁR, 620, Guðmundur Ólafur ÓF, 600, Börkur NK, 1.240, Höfrungur AK, 880 og Bergur VE 520 lestir. tormerki Svigskíði og gönguskíði við hæfi hvers og eins. gönguskíðastafir úr fíber. Svigskíðaáburður og gönguskíðaáburður handa þeim kröfuhörði ásamt ýmiss konar tækj um handa byrjendum jafnt sem keppendum. TYROLIA Total diagonal bindingar - meira öryggi en áður þekktist. Svig- stafir fyrir byrjendur og keppendur. Gott tösku- úrval. adidas ^ gönguskíðaskór sem hinn kröfuharði göngumaður biður um. DACHSTEIN Skíðaskór sem koma til móts við þínar þarfir. Bindingar settar á meðan beðið er. TOPPmerkin í jkíóavörum öfUS d CtxuxtiVzdöaum ÞEKKING - REYNSLA - ÞJONUSTA FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670 Adrir útsölustaðir: Pipulagningarþjónustan Kaupf. Borgfirðinga Ægisbraut 27 310 Borgarnes 300 Akranes versl. Vélsmiðjan Þór Einars Guðfinnssonar h/f 400 fsafjörður 415 Bolungarvík Versl. Húsið Bókaversl. Kaupf. Fram Jón Halldórsson 340 Stykkishólmur Þórarins Stefánssonar 740 Neskaupstað Drafnarbraut 8 Versl. Lín 640 Húsavík Skíðaþjónustan 620 Dalvík 625 Ólafsfirði Gestur Fanndal Fjölnisgötu 4. Versl. Skógar 580 Siglufjörður 600 Akureyri 70Q Egilsstaðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.