Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985 29 Rskjunni landað í Hafnarfirði. MorgunblaÖið/Fridþjófur Rækjutogarinn Tasiilaq í Hafnarfirði: Landaði rækju fyrir 50 millj. RÆKJUTOGARINN Tasiilaq landaði 170 lestum af rækju í Hafnarfirði síðastliðinn þriðjudag. Verðmæti farmsins var um 50 milljónir króna og náðist hann í 42 daga veiðiferð. Togarinn er næst stærstur sinnar tegundar í Vestur-Evrópu og er í eigu danskra aðilja á Bornholm og Grænlendinga, skráður í Angmagssalik á austurströnd Grænlands. Skipstjóri er Basse Mortensen. UEKONfl HflKQREIWW fTnFd starmýri 2 - J 1 V/l n Sími 31900 Býður þér alla almenna hársnyrtingu: Klippingu • Permanent • Litanir • Skol • Strípur • Djúpnæringu • Lagningu • Blástur. Ath.: 20% AFSLÁTTUR fyrir ellilífeyrisþega á þriðjudögum. OPIÐ FRÁ 9-17 ALLA VIRKA DAGA OPIÐFRÁ 10-14 Á LAUGARDÖGUM. UERONfl 50LMÖJ fjnF/l starrr,ýri2- J 1 V/l rl Sími 31900 Fullkomnustu sólbekkir sem völ er á. Nýjar og viðurkenndar perur., B-geislun í lágmarki. t\lboð kort Andlitsperur. Góð kæling. 1 Bióbom'- 800 áKr tram ti\ áramóta. OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-21. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-14. Pantiðtímanlega. Þægilegtafslappaðumhverfi. Næg bílastæði. Morgunblaðsmenn litu um borð í togarann og hittu þar meðal annars útgerðarmanninn Ole Basse Mortensen og Kell Nicolai- sen aðstoðarútgerðarmann, en við þetta tækifæri var ýmsum aðilj- um boðið að skoða togarann, þar á meðal sjávarútvegsráðherra, Halldóri Ásgrímssyni. Kell Nic- olaisen sagði, að farmur skipsins væri að verðmæti um 50 milljónir króna og veiðin hefði gengið þol- anlega á Dornbankanum. Skipið væri að hluta til fjármagnað af grænlenzku landsstjórninni til að tryggja aukna atvinnu í Ang- magssalik. Því væru 70% áhafn- arinnar Grænlendingar, þar af 15 frá Angmagssalik en alls væru 30 manns í áhöfninni. Skipið væri einnig byggt sem ísbrjótur og rannsóknarskip og 10% af tekjum um farmgjöld yrði varið til rann- sóknarstarfa og leitar nýrra rækjumiða við Grænland. Skipið væri 6 mánaða gamalt og byggt hjá Örskov AS í Frederikshavn í Danmörku. Ole Basse Mortensen ætti Vg í skipinu og legði hann meðal annars til þekkingu og reynslu, en hann ætti fyrir tvö rækjuskip. Skipið kostaði fullbúið um 400 milljónir króna og er 14,5 metrar á breidd, 70 á lengd og 1.400 brúttólestir að stærð. Hægt er að vinna um 76 lestir af rækju á sólarhring um borð, en til þessa hefur mesti afli á sólarhring verið 21 lest. Skipið er búið miklum þægindum fyrir áhöfn, meðal annars gufubaði og sal og tækjum fyrir líkamrækt. Ole Basse Mortensen sagði, að útgerðin gengi vel. Hún hefði um 1.000 lesta rækjukvóta við Græn- land. Þegar væri búið að veiða 650 lestir við Kanada og 230 við Grænland. Til að dæmið gengi upp þyrfti- að fiska fyrir um 275 milljónir króna á ári, en hann væri fullviss um að tvöfalt meira verðmæti næðist. Það væri þvi góð og mikil framtíð í rækjuveiði. Ole Basse Mortensen er einn þeirra fyrstu, sem hóf rækjuveiði á þessum slóðum árið 1971 og laxveiðar í reknet hóf hann árið 1967. Hann er allumsvifamikill útgerðarmaður og er meðal ann- ars með eigin flugvél til að flytja áhöfn milli staða, en skipt er um hana eftir hvern túr. Ole Basse Mortensen sýnir Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra o Arna Kolbeinssyni, ráðuneytisstjóra, rækjuverksmiðju skipsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.