Morgunblaðið - 26.11.1985, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985
fclk í
fréttum
Ætlar að verða
myndhöggvari
ELIZABETH Taylor er lítið hrifin
af klæðaburði dóttur sinnar Lizu
Todd sem þykir mikið augnayndi
líkt og móðir hennar. Liza hefur
þó síður en svo í hyggju að feta í
fótspor hennar heldur er staðráðin
í að verða myndhöggvari.
Cher í fylgd
með frönskum
SÖNGKONAN og leikkonan Cher
opinberaði fyrir skömmu samband
sitt við franska fatahönnuðinn
Claude Montana. Prentist myndin
af þeim skötuhjúum vel, má sjá
nýstárlega hárgreiðslu Cher sem
þekkt er fyrir áberandi útlit.
„Ætla mér
ekki að verða
leikkona“
— segir Selma Baldursson, 11 ára,
sem fer með eitt af aðalhlutverkunum
í vestur-þýskum sjónvarpsmyndaflokki
„MÉR FINNST mjög gaman að
leika í þessum myndaflokki enda
fjórir aðrir krakkar sem fara með
aöalhlutverk", sagði Selma Bald-
ursson 11 ira, er blaðamaður sló
i þriðinn til hennar til Þýskalands
i dögunum. Selma, sem er hilf
íslensk, fer með eitt af aðalhlut-
verkunum í framhaldsmynda-
flokknum „Lindenstrasse nr. 3“
sem vestur-þýska sjónvarpið hóf
tökur i nú í haust og sýningar
verða hafnar i í Þýskalandi í des-
ember. Myndaflokkurinn er ætlað-
ur fyrir alla fjölskylduna, og meðal
aðalleikara eru sem fyrr segir fimm
krakkar. Voru mörg hundruð börn
prófuð iður en leikstjórinn, Hans
W. Geissenwörfer, taldi sig hafa
fundið þau réttu.
Nylega skýrði þýska dagblaðið
Express frá hinum nýja sjón-
varpsþætti og birti myndir af
krökkunum fimm sem eru meðal
aðalleikara. Segir dagblaðið að
þegar sé búið að ákveða að taka
upp 52 þætti af „Lindenstrasse
nr. 3“ og vel sé hugsanlegt að
þeir verði fleiri.
Selma Baldursson, sem búsett
hefur verið í Þýskalandi frá
fæðingu, er dóttir Gunnlaugs
Baldurssonar arkitekts og Liesel
Hambach Baldursson leikkonu.
Fjölskyldan er nú búsett í bæn-
um Brúhl sem liggur milli Kölnar
og Bonn. Selma tjáði blaðamanni
að hún kynni dálítið í íslensku
en kaus þó að samtalið færi fram
á þýsku.
„Leikstjóranum Hans W.
Geissenwörfer var bent á mig
þegar verið var að leita að réttum
krökkum í hlutverkin og bauð
hann mér að koma í prufu," sagði
Selma. „Ég vissi að búið var að
prófa mjög marga krakka og
bjóst satt að segja aldrei við því
að fá hlutverkið. Prufan fór
þannig fram að ég var látin læra
stuttan texta utan að og síðan
þurfti ég að flytja hann fyrir
leikstjórann. Mér fannst það
ekkert ofsalega erfitt en var dá-
lítið spennt “.
Um hvað fjallar „Linden-
strasse nr. 3“?
Selma Baldursson
Das sind (fie Kinder
EXPRESS stellt CKe Ideinen
StarstíefSuper-Serievor!
Vwv ANGEUKA 3ȣS
■ UndwwtraU* Nr. 3" - dl* gröðM
TimMliwli, oab Burvö* 15 MtHKx
•Mlto ómr WDR tör bMlang 52 Folgwv mut dt
Dm Mrvjdg* wm noch tmhHm, warw Wrvf kMn* TV-
S(æ» t*M sucMa Ham W. Ottiwowftd*
unt*r lauMmMn von BMrortxm m„Tmim-
Klndor". J«txl hat m tím amtuoOmc. EXPRESS
•talit dh ktmtnmn Stmrm dmr Supmr-Smrlm, álm w6-
ohantrtcM mb S. Omtmmbmr, vor...
SHaf -MUif*r, r.aben' oewuwteri ru mmiómiy
%n rv.ch(. Srw %r.<l \tb-1 nictií r»»r>drUCio
h«ft. nítúnlcfi, aungt , ,/cr. hMe, ytrr, «»l
•prodvpn UmtHir.swirri i ii,o Roil* ilmi Júoín
Auch w*r,r. Mortlz1 Aone Tifui* (jespióí'“
Sachi óm' jOrvgste.! %«í/' vm ‘hr Hauphn.
artn ö*ftch*r, ichmom , tmtmo*m afcor j«1 6or
woi'. or Timrnmr, ammr.t-í TAuoik .teh
worten *<nl ,.ich wtSJ anc Bíockfió-
Cah rr,.r (• Nach óm SchuW
vorMM(.“ Omt Ttltmqmi tíadwre icn Mu»*. •
stwett dmn r.iaus, m>n! A.&mim* SmUAuimmsiP
ohw.ta«wc*v*ö(M /(TTTWIWwBw m
kino nwt 2Wh«r>M
•«nt Þ>.v»f rrieii »
aoch .Arr, Kebaten
t'Auml •oenhM** ntchf
Úrklippan úr þýska dagblaðinu Express þar sem sagt er frá nýja sjónvarpsþættinum og birtar myndir
krökkunum fimm sem eru meóal aðalleikara. Selma er neóst til hægri.
„Myndaflokkurinn fjallar um
íbúa eins fjölbýlishúss. Tvær af
fjölskyldunum eiga börn og í
þáttunum er sagt frá daglegu lífi
þessa fólks og ýmsum ævintýrum
sem börnin lenda í.“
Gætirðu hugsað þér að verða
leikkona?
„ Nei, það gæti ég alls ekki.
Síðastliðin ár hef ég leikið nokk-
ur smáhlutverk í sjónvarpsþátt-
um og finnst gaman að leika við
og við, en atvinnuleikkona ætla
ég mér ekki að verða. Mamma
er leikkona og mér hefur alltaf
fundist leiðinlegt hvað hún hefur
þurft að ferðast mikið vegna
vinnunnar. Mér finnst gaman að
ferðast í sumarfríum en leiðist
að sitja lengi í bíl eða járnbraut-
arlest og það þarf maður oft að
gera þegar maður er leikkona."
Fer mikill tími I æfingar og
upptökur á „Lindenstrasse nr.
3“?
„Ekki mjög mikill, ég fer upp
í stúdíó svona tvisvar til þrisvar
í viku. Annars er nóg að gera
hjá mér fyrir utan skólann því ég
er bæði að læra ballett og á
píanó og þarf mikið að æfa mig.“
Hefurðu komið til Islands?
„Já, en ekki oft. Ég fór til ís-
lands þegar ég var lítil og svo
aftur sl. sumar með pabba. Mér
finnst ísland vera fallegt land
og gaman að vera þar, en vil
samt heldur búa í Þýskalandi,“
sagði hina unga leikkona Selma
Baldursson að endingu.
Tilbúin
í
slaginn
Þessi hópur hnefaleikamanna
varð á vegi ljósmyndara
Morgunblaðsins sl. miðvikudag.
Ekki reyndust þar vera atvinnu-
hnefaleikarar á ferð, heldur nokkr-
ir nemendur Menntaskólans við
Hamrahlíð sem voru að „dimitt-
era“. Búast má við að þessi bros-
mildu ungmenni sitji nú við lestur
námsbóka sinna enda farið að
styttast í prófin — og þá væntan-
lega einnig það að námsfólkið fái
stúdentsprófsskírteini sín í hend-
ur. Við óskum þeim góðs gengis í
prófunum.