Morgunblaðið - 04.12.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR4. DESEMBER1985
Trollið virkaði
eins og rekakkeri
— segir Pétur Bjarnason skipstjóri
á Siglfirðingi SI 150
MorKunbladiö/Friðþjófur
Umræða um reykingar í undirbúningi. Hér er verið að kveikja í hjá einum, sem aðeins reykir eina sígarettu
ádag!
Áramótaskaupið að fæðast
UPPTÖKUR eru nú hafnar á ára-
mótaskaupi sjónvarpsins. I skaup-
inu að þessu sinni koma fram
margir af fyndnustu mönnum
þjóðarinnar að vanda — og raiðað
við þau sýnishorn sem blaðamað-
ur og Ijósmyndari Morgunblaðsins
sáu er þeir litu við í sjónvarpssal
Kttu landsmenn ekki að þurfa að
kvíða gamlárskvöldinu.
Leikstjóri skaupsins að þessu
sinni er Sigurður Sigurjónsson
og meðal leikara, auk hans, eru
Laddi, Örn Arnarson, Karl Ágúst
Úlfsson, Randver Þorláksson,
Edda Heiðrún Backman ogTinna
Gunnlaugsdóttir. Að sjálfsögðu
verður óspart gert grín að mönn-
um og málefnum að vanda. Þeir
sem laumast á upptöku á efni
eins og áramótaskaupinu mega
náttúrulega ekki segja orð frá
því sem þar er að gerast — blaða-
maður biður landsmenn því að
sýna biðlund fram á gamlárs-
kvöld og verður að setja punkt
hér.
Sigurður Sigurjónsson í hlutverki
reykingamanns, sem gripið hefur
til örþrifaráða.
Leyfi fyrir gjaldeyrisyfir-
færslu hefur ekki fengist
Spánarhúsin eigi að síður auglýst til sölu
EKKI hefur enn fengist leyfi fyrir gjaldeyrisyfirfRrslu til kaupa á húsum á
Spáni, sem mikið eru auglýst þessa dagana. Umboðsaðili fasteignasölunnar
Suomi Sun Spain hér á landi bauð samtökunum Sólarsetur tilboð um að
hafa milligöngu um sölu á 29 raðhúsum á meginlandi Spánar, samtals á
16 milljónir króna og mun eitt hús fylgja með í kaupbæti ef af sölunni
verður.
„VIÐ VORUM að toga á Slétta-
grunninu þegar við urðum varir við
að skipið lét ekki að stjórn. Þá
ákváðum við að hífa og reyna að
koma okkur í land,“ sagði Pétur
Bjarnason skipstjóri á Siglfirðingi
Bankar og
sparisjóðir:
Tölvubankar
teknir í
notkun um
áramótin
STEFNT er að því að taka í notkun
um áramótin saraeiginlegt sjálfsaf-
greiðslukerfi, eða tölvubanka, allra
banka og sparisjóða á íslandi nema
Iðnaðarbankans. Iðnaðarbankinn
hefur veitt viðskiptavinum sínum
þessa þjónustu um nokkurt skeið.
Unnið er að uppsetningu „sjálfsaf-
greiðslubankanna“, og er það verk
langt komið. Tölvubankar verða
settir upp á níu stöðum til að byrja
með, á átta stöðum á höfuðborgar-
svæðinu, og í einum banka á Akur-
eyri. Ákveðið hefur verið að stað-
setja tölvubanka í Borgar- og
Landspítalanum.
Til stóð að hefja þessa þjónustu
fyrr, en að sögn Stefáns Pálssonar,
bankastjóra í Búnaðarbankanum,
hefur staðið á afgreiðslukortunum
og verða þau ekki tilbúin fyrr en
undir jól. Var því ákveðið að bíða
til áramóta. Þegar kerfið verður
komiö í gagnið geta viðskiptavinir
hvaða banka eða sparisjóðs sem
er tekið út og lagt inn í tölvubanka,
óháð því hvar hann er, að sögn
Stefáns Pálssonar.
Fimm sækja um
embætti hæsta-
réttardómara
FIMM sækja um embætti hæsta-
réttardómara, sem veitt verður
frá 1. janúar næstkomandi er
Björn Sveinbjörnsson lætur af
störfum. Umsækjendur eru Bene-
dikt Blöndal, hrl., Bjarni K.
Bjarnason, borgardómari, Guðrún
Erlendsdóttir, dósent við Háskóla
íslands, Haraldur Henrysson,
sakadómari, og Sveinn Snorrason,
hrl.
SI 150. Siglfirðingur missti stýrið er
skipið var að veiðum á Sléttagrunni
austur af Kolbeinsey um klukkan
01.00 aðfaranótt mánudagsins.
Þetta var fyrsta ferð Péturs Bjarna-
sonar á Siglfirðingi, en áður hefur
hann verið skipstjóri á rækjubátum.
„Fyrst reyndum við að stýra með
toghlerunum en það gekk ekki
nógu vel. Þá ákváðum við í samein-
ingu, útgerðarmaðurinn, stýri-
maðurinn og ég, að vera með troll-
ið aftan í og nota það líka til að
stýra skipinu. Við fengum leyfi til
þess hjá gæslunni. Trollið virkaði
eins og rekakkeri og skipið lét vel
að stjórn. Ef við þurftum að beygja
hífðum við vírana til skiptis. Sigl-
ingin gekk ágætlega, en okkur
miðaði hægt áfram. Venjulega
tekur það um sjö klukkustundir
að sigla þessa leið til Siglufjarðar,
en það tók okkur um tuttugu tíma
að komast að fjarðarkjaftinum.
Þegar við komum þangað kom
bátur á móti okkur og hjálpaði
okkur inn fjörðinn. Það var mjög
slæmt veður og því erfitt að eiga
við þetta. Við hefðum sennilega
komist hjálparlaust alveg inn
fjörðinn ef veðrið hefði verið betra.
Það tók óratíma að komast að
bryggjunni vegna þess hve hvasst
var inni á firðinum og komumst
við ekki í land fyrr en um klukkan
04.00 aðfaranótt þriðjudagsins.
Annars gekk þetta allt mjög vel
og ég held að við höfum aldrei
verið í hættu," sagði Pétur Bjarna-
son að lokum.
Stjórnarmenn Sólarseturs hafa
farið fram á það við Matthías
Bjamason viðskiptaráðherra að
hann hlutist til um að gjaldeyris-
yfirfærsla verði veitt til kaupa á
húsunum og er það nú í athugun
hjá gjaldeyrisdeild bankanna.
Matthías sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að það væri ekki
auðvelt að veita einum aðila leyfi
en öðrum ekki, en það væri verið
að athuga hvað hægt væri að gera.
Á meðan auglýsir umboðsaðilinn,
Páll Jónsson, húsin til sölu á 550
úsund íslenskar krónur hvert hús.
auglýsingunni er jafnframt vak-
in athygli á reglugerð Seðlabanka
íslands varðandi gjaldeyrisyfir-
færslu, en samkvæmt henni er
óheimilt að kaupa fasteign erlend-
. is nema með leyfi gjaldeyrisyfir-
valda.
Húsin, sem eru til sölu eru í
bænum Torreviéja á Costa Blanca,
sem er um 30 km fyrir sunnan
Alicante. Áhugamönnum stendur
til boða að fara í kynnisferð til
Torreviéja til að skoða húsin þann
8. desember, og segja stjórnar-
menn Sólarseturs að margir fé-
lagsmenn hafi hugsað sér að fara
í þá ferð. Gestur ólafsson, formað-
ur stjórnar Sólarseturs, og Jóhann
Einvarðsson, varaformaður,
hyggjast fara sjálfir á undan til
að kynna sér aðstæður og húsa-
kostinn. „Ef húsin líta vel út og
staðurinn hentar er ekki hægt að
segja annað en að verðinu sé mjög
í hóf stillt. Hingað til hafa menn
haldið að það væri spurning um
1—2 milljónir að kaupa hús á
Spáni," sagði Jóhann.
Samtökin Sólarsetur voru stofn-
uð í sumar af nokkrum áhuga-
mönnum í því skyni að koma á fót
dvalaraðstöðu fyrir fullorðna Is-
lendinga á félagslegum grundvelli
í sólarlöndum. „Við vildum gera
tilraun til að koma á fót nokkurs
konar fslendinganýlendu á Spáni,
þar sem einstaklingum gæfist
kostur á að dvelja sér til heilsubót-
ar og ánægju í öruggu umhverfi,"
sagði Gestur.
Sveinn
Egilsson
hf. með FIAT
SVEINN Egilsson hf. hefur tekið að
sér FIAT-umboðið hér á landi. Sam-
komulag þar að lútandi hefur tekist
milli FIAT-verksmiðjanna á ftalíu
annars vegar og Sveins Egilssonar hf.
og Davíðs Sigurðssonar hf. hins veg-
ar.
Greiðslustöðvun til handa fyrir-
tækinu rann út 2. desember.
„Við stöndum í samningum vegna
skulda fyrirtækjanna," sagði Svein-
björn Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Davíðs Sigurðssonar hf. og
Egils Vilhjálmssonar, í samtali við
Morgunblaðið.
Fjármáiaráðherra um skuldbreytingu skammtímalána og afnám lánskjaravísitölu:
Bjartsýnn á samstarf
við viðskiptabankana
ÞORSTEINN Pálsson fjármálaráðherra og Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi í gær tillögur sínar um
afnám lánskjaravísitölu af skammtímalánum og skuldbreytingu skamm-
tímalána til lengri tíma, sem Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku.
Ákveðið var að afgreiða málið ekki fyrr en fjármálaráðherra og forsætis-
ráðberra hafa rætt nánar við fulltrúa viðskiptabankanna, en það verður
í dag. Mun ríkisstjórnin væntanlega afgreiða málið á fundi sínum í
fyrramálið.
„Við ákváðum að kalla banka-
menn til fundar við okkur á
morgun og tökum málið á ný til
umræðu og afgreiðslu á ríkis-
stjórnarfundi á fimmtudag,"
sagði Þorsteinn Pálsson í gær.
Viðskiptabankarnir hafa ekki
tekið þessum hugmyndum ráð-
herranna ýkja vel. Fjármálaráð-
herra var spurður hvernig hann
hygðist bregðast við neikvæðum
undirtektum viðskiptabankanna,
að því er varðar skuldbreytingu
skammtímalána: „Ég hef svo sem
ekkert um það að segja á þessu
stigi málsins," sagði fjármála-
ráðherra. Hann sagðist vilja tala
við bankamenn augliti til auglit-
is, en ekki í gegnum blaðayfirlýs-
ingar, a.m.k. til að byrja með.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort hann væri bjartsýnn á að
bankarnir féllust á skuldbreyt-
ingu skammtímalána: „Ég hef
ekki trú á að þeir bregðist illa
við því. Bankarnir hafa áður
tekið þátt í samstarfi af þessu
tagi með góðum árangri. Það
líkaði öllum vel það sem gert var
fyrr á þessu ári, af hálfu bank-
anna, og ég hef enga ástæðu til
þess að ætla að þeir séu ekki
Þorsteinn Pálsson fjármálaráó-
herra.
tilbúnir til samstarfs um þetta
brýna úrlausnarefni,“ sagði fjár-
málaráðherra.