Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
f.
|
>
*
♦
$
Unglingabók
eftir Helgu
Ágústsdóttur
KOMIN er út hjá Iöunni bók fyrir
unglinga eftir Helgu Ágústsdóttur
útvarpsmann. Nefnist hún Ekki
kjafta frá.
Bókin er kynnt á þessa leið í
fréttatilkynningu útgefanda:
„Hvernig er að vera hrifin af þeim
sem vill mann ekki eða uppgötva
leyndarmál foreldra sinna? Hvað
gerist í skólanum, frítímum og
forboðnum partíum? Af hverju
hafa flestir eitthvað að fela, eitt-
hvað sem ekki má kjafta frá?
Hvernig upplifa unglingarnir for-
eldra sína og hverjar eru leyndustu
hugsanir þeirra? Hvernig á að
bregðast við ástinni? Höfundur-
inn, Helga Ágústsdóttir, leiðir
lesandann inn í heim reykvískra
unglinga í dag. Atburðarásin er
hröð og spennandi frá upphafi til
enda. Varpað er nýju ijósi á heim
unglinganna, þeim er fylgt eftir í
sorgum og gleði þegar átökin við
lífið eru að hefjast."
Oddi hf. prentaði bókina og
auglýsingastofan Octavo hannaði
kápu.
Helga Ágústsdóttir
•jKlæðum og bólstrumj
igömul húsgögn. Gott<^
,úrval af áklæðum jjjj
BÓLSTRUN^
ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807,
}
5
I
í
i
1
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
SfluafímcDiyr
VESTURGOTU 16 — SÍMAR 14630 - 2 U80
Morgunblaðið/Emilía
Frá vinstri: Þorsteinn Jónsson forstöðumaður Listasafns ASÍ, Aðalsteinn Ingólfsson listgagnrýnandi, Jóhannes
Geir listmálari með bókina, prófessor Sigurjón Björnsson, Sverrir Kristinsson bókaútgefandi, Knútur Sig-
narsson skrifstofustjóri Prentsmiðjunnar Odda og Leifur Agnarsson framkvæmdastjóri Kassagerðar Reykja-
víkur.
Listaverkabók um Jóhannes Geir
LISTAVERKABÓK um Jóhannes Geir listmálara er komin út. Það eru
Listasafn ASÍ og Lögberg-bókaforlag sem standa að útgáfu bókarinnar,
en hún er fimmta bókin í ritröðinni fslensk myndlist. Aðrar bækur í
þessari ritröð eru um Ragnar í Smára, Eirík Smith, Jóhann Briem og
Mugg — Guðmund Thorsteinsson.
I bókinni eru tvær ritgerðir
um Jóhannes Geir. Sigurjón
Björnsson prófessor, æskufélagi
Jóhannesar Geirs og náinn vinur
hans, ritar um bernskuslóðir
þeirra á Sauðárkróki, uppruna
og æskuheimili Jóhannesar
Geirs, listfylgjuna í ætt hans,
tvísýna skólagöngu hér heima,
listnám í öðrum löndum og starf
listamannsins. Þegar bókin var
kynnt á blaðamannafundi sagði
Jóhannes Geir að þetta væri í
raun önnur bók þeirra Sigurjóns.
Á barnaskólaárunum gáfu þeir
út bókina „Rósa ráðagóða". Sig-
urjón skrifaði bókina en Jóhann-
es myndskreytti hana. Bókin
kom aðeins út í einu eintaki og
er það í eigu Sigurjóns.
Áðalsteinn Ingólfsson fjallar
um sérkenni Jóhannesar Geirs
meðal íslenskra listmálara í rit-
gerð sinni. Þar segir hann m.a.:
„Á síðastliðnum áratug má
hiklaust segja að málaralist Jó-
hannesar Geirs rísi hátt. Við-
fangsefni hans hafa ekki breyst
ýkja mikið frá þeim tíma er hann
hóf að mála. Landslag, sjávar-
þorp, hestar og bátar eru hans
ær og kýr, en þessi mótíf eru nú
stærri í sniðum, mikilfenglegri
en fyrr. í olíumálverkum sínum
byggir hann upp mótíf af festu
sem sjálfur Jón Stefánsson gæti
verið fullsæmdur af, teflir hrein-
um flötum gegn yrjóttum, vold-
ugum mössum gegn síkvikri
teikningu. Enn lætur samviskan
hann ekki í friði og bannar hon-
um að gera undirmálsverk."
Bókin er 88 bls. að stærð. í
henni eru 49 litprentaðar myndir
af verkum Jóhannesar Geirs auk
teikninga. Einnig er i bókinni
fjöldi ljósmynda. Kristján Pétur
Guðnason ljósmyndaði listaverk-
in. Torfi Jónsson sá um tilhögun
bókarinnar, litmyndir voru lit-
greindar í Kassagerð Reykjavík-
ur hf. og Prentsmiðjan Oddi hf.
annaðist prentun og bókband.
Sverrir Kristinsson bókaút-
gefandi sagði að undirbúningur
fyrir útgáfu bókarinnar hafi
staðið hátt í þrjú ár og reynt
hefði verið að vanda til útgáfunn-
ar eftir föngum. „Með útgáfu á
listaverkabókum vonumst við til
að áhugi almennings á slíkum
bókum aukist. Við höfum ákveðið
að halda áfram og næst kemur
út bók um Ásgrím Jónson" sagði
Sverrir.
Yfirlitssýning á verkum Jó-
hannesar Geirs, sem opnuð var
í listasafni ASI í tilefni af út-
komu bókarinnar, stendur tii 22.
desember.
Farþegum
úthlutað
sætum í innan-
landsflugi
FLUGLEIÐIR eru þessa dagana að
taka upp þá nýjung að úthluta far-
þegum sætum í innanlandsflugi
með sama hætti og gert er í milli-
landaflugi. Fyrst í stað verður þetta
einungis gert á leiðunum milli
Reykjavíkur og eftirfarandi staða:
Til Akureyrar, Egilsstaða, Vest-
mannaeyja, ísafjarðar og Hafnar.
Einar Helgason forstöðumaður
innanlandsdeildar Flugleiða sagði
að þetta væri tekið upp til þess
að auka þjónustu við farþega.
Hann sagði að oft hefði viljað
brenna við að þeir sem ferðuðust
saman fengju ekki sæti saman og
myndi þetta að mestu koma í veg
fyrir það. Einnig gæti þessi breyt-
ing orðið til þess að fólk mætti
frekar tímanlega út á flugvöll fyrir
brottför.
Ályktun frá Samtökum
um kjarnorkuvopnalaust
ísland
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Samtökum
um kjarnorkuvopnalaust Island
vegna þingmannafundar í Kaup-
mannahöfn í lok nóvember um
kjarnorkuvopnalaust svæði á Norð-
urlöndum:
„Samtök um kjarnorkuvopna-
laust ísland telja að kjarnorku-
vopnalaus svæði séu mikilvægt
skref í átt til friðar og afvopnunar.
Samtökin vænta þess að fulltrúar
íslands á þingmannafundinum
fylgi eftir ályktun Alþingis frá
síðastliðnu vori þess efnis að á
íslandi verði ekki staðsett kjarn-
orkuvopn og taki einarða afstöðu
með hugmyndinni um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum."
Fyrsti fræðslufund-
ur Fáks í
FRÆÐSLUNEFND Fáks heldur
sinn fyrsta fund á vetrardagskránni
í nýja félagsheimilinu á Víðivöllum
fímmtudaginn 5. desember. Fundur-
inn hefst kl. 20.30.
Til umræðu verður viðhorf til
Everópusambandsins og alþjóða-
samstarfs. Skýrt verður frá keppni
og tilhögun EM í Várgárda í Sví-
þjóð, en eins og kunnugt er urðu
vetur
þar ýmsar uppákomur. Gæðinga-
skeið var t.d. dæmt eftir öðrum
reglum en íslensku keppendurnir
hafa farið eftir hér heima.
Að loknum umræðum og fyrir-
spurnum verða sýndar ljósmyndir
og kvikmynd af Evrópumótinu.
Fræðslunefndin hvetur Fáks-
félaga og aðra áhugamenn um
hesta að fjölmenna á fundinn.
(Frétutilkjnning)
Kvenfélag Mývatns-
sveitar 80 ára
— öllum fullorðnum Mývetn-
ingum boðið í afmælishóf
Vojfum, MývatnsHveit, 2. desember.
KVENFÉLAG Mývatnssveitar bauð
öllum fullorðnum Mývetningum í 80
ára afmælishóf í Skjólbrekku í gær,
sunnudag, klukkan 14. Formaður
Félagsins, Margrét Lárusdóttir,
setti samkomuna og bauð gesti vel-
komna. Gat hún þess, að einn stofn-
andi félagsins væri enn á lífí, Sól-
veig Jónsdóttir á Grænavatni. Hún
er nú 98 ára gömul og gat því miður
ekki verið viðstödd þetta hóf.
Að loknu ávarpi formanns tók
Hólmfríður Pétursdóttir við stjórn
samkomunnar og kynnti hún síðan
öll skemmtiatriðin. Félagskonur
lásu ýmsa fróðlega þætti úr sögu
félagsins. Þá voru og lesnar tvær
greinar, sem konur, er lengi störf-
uðu í félaginu, höfðu ritað, þær
Hólmfríður Pétursdóttir á Arnar-
vatni og Védís Jónsdóttir á Litlu-
strönd. Einnig var lesið kvæði eftir
Arnfríði Sigurgeirsdóttur á Skútu-
stöðum. Sýndir voru íslenzkir
þjóðbúningar, mikil listaverk. Þá
söng kvennakór undir stjórn séra
Arnar Friðrikssonar. Elín Árna-
dóttir á Brún flutti ávarp og færði
Kvenfélagi Mývatnssveitar blóm-
vönd frá stjórn Kvenfélagasam-
bands Suður-Þingeyinga. Einnig
bárust blóm frá Kiwanisklúbbnum
Herðubreið. Þráinn Þórisson flutti
nokkur þakkarorð til Kvenfélags-
ins. Ennfremur flutti Bára Sigfús-
dóttir kveðjur frá Hringnum,
Slysavarnadeild kvenna í Mý-
vatnssveit. Öllum viðstöddum var
boðið upp á kaffi og meðlæti af
mikilli rausn og myndarskap. Að
því loknu voru sýndir dansar, það
er Vefari. Virtust margir skemmta
sér ágætlega. Síðast var stiginn
dans.
Hér með eru Kvenfélagi Mý-
vatnssveitar færðar beztu árnaða-
róskir í tilefni þessara merku
tímamóta í sögu félagsins.
Kristján
slensku keppnishestarnir á Evrópumótinu í Várgárda á bryggjunni í
Reykjavík skömmu áður en lagt var af stað.
Bladburóarfólk
óskast!
Úthverfi
Langholtsvegur 110—150
Sólheimar (stöku húsin)
Laugarásvegur 37—77
Blesugróf
Vesturbær
Tjarnargata frá 39
Suöurgata 29—41
Faxaskjól
Skerjafjörður
Gnitanes
Hörpugata og
Fossagata fyrir noröan
flugvöllinn.
JHtfgmiÞIfiMfc