Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
ntmmn
„Bg hélt þú Vóerir búinn' "
hjartaásinn.
TM Rag. U.S. Pat. Ofl,— aH ríghts reservtd
®1985 Los Anoetes Times Svndícate
Komist þú ekki bráðlega á fætur
verðurðu að kaupa uppþvottavél!
Pípa, er það ekki jólagjof pípu-
lagningameistarans?
Ógleymanlegt sumarleyfi
Kæri Velvakandi.
Við undirritaðir vorum á Lign-
ano sumarið 1985. Að okkar mati
á Fríklúbburinn þakkir skildar
fyrir starfsemi sína, þar sem
Ingibjörg Fríklúbbsstýra átti
örugglega stærstan hluta að
máli. Dvölin var meiriháttar í
alla staði. Það var margt að sjá
og gera þannig að við tímdum
varla að eyða tímanum í sólböð.
Það er víst alveg öruggt að þar-
geta allir fundið eitthvað við sitt
hæfi, ungir sem aldnir. Verst
hvað tíminn er fljótur að líða,
þegar manni líður vel, enda var
dekrað við okkur á allan hátt.
Það er ótrúlegt en satt að farar-
stjórarnir voru íslenskir, ræst-
ingastúlkurnar íslenskar og að
sjálfsögðu Frí-klúbburinn. Það
var séð fyrir öllu. Allir gerðu
sitt besta til að gera farþegunum
dvölina sem ánægjulegasta.
Tíminn flaug áfram í búðun-
um, á markaðinum, börunum,
diskótekunum, í „Aqua-Splash“
(vatnsrennibrautunum), Tívolíi,
að ógleymdum öllum skoðana-
ferðunum. Gullna ströndin
stendur alltaf fyrir sínu.
Ferðin var okkur ógleymanlegt
ævintýri og leið okkar á vonandi
eftir að liggja þangað aftur.
Meðlimir Frí-klúbbsins.
mmsmr
Víkverji skrifar
Islendingur, sem víða hefur
ferðast erlendis, hafði orð á því
við Víkverja á dögunum, að endur-
greiðsla á söluskatti, sem nú tiðk-
ast í V-Evrópu væri þáttur í ferða-
málum okkar, sem gefa þyrfti
gaum að. í flestum ríkjum V-Evr-
ópu hefur sá háttur verið tekinn
upp, að erlendur ríkisborgari, sem
kaupir vörur í verzlunum á kost á
því með lítilsháttar fyrirhöfn að
fá söluskatt eða sambærilegt gjald
endurgreitt. I flestum tilvikum
kostar þetta einhverja skrif-
finnsku, en fyrir þjóð, sem enn er
haldin kaupæði, þegar hún kemur
til útlanda, þótt margvíslegur
varningur og þá fyrst og fremst
föt séu mun ódýrari hér en þar,
þýðir þetta töluverða lækkun vöru-
verðs. Þessi viðmælandi Víkverja
var nýlega á ferð í nokkrum Evr-
ópulöndum og sagði að gjarnan
væri miðað við eitthvert lágmark
í innkaupum, í Bretlandi t.d.
70—120 pundum eftir atvikum. Ef
formsatriðin eru rétt frá gengin
getur ferðamaðurinn búizt við að
fá væna peningafúlgu senda frá
útlöndum og það í gjaldeyri.
Framkvæmd þessarar endur-
greiðslu er svolítið mismunandi
eftir löndum, t.d. hefur Víkverji
kynnzt því að í Svíþjóð er hægt
að fá peningana á flugvellinum
þegar farið er úr landi en í Frakk-
landi og fleiri löndum er sá háttur
hafður á að senda ávísun í pósti
til viðkomandi.
Tilgangur þess, sem ræddi þetta
við Víkverja, var bæði að vekja
athygli íslenzkra ferðamanna er-
lendis á þessu en ekki síður að
vekja máls á því, að við ættum að
taka sama fyrirkomulag upp við
erlenda ferðamenn, sem hingað
koma. Nú er söluskattur orðinn
afar hár hér á íslandi en engu að
síður koma Bandaríkjamenn í
stórum hópum hingað þessar vik-
urnar í innkaupaferð. Það mundi
áreiðanlega stuðla að auknum
ferðum hingað til innkaupa, ef
erlendir ferðamenn fengju sölu-
skattinn endurgreiddan, eins og
tíðkast í Evrópu. Sá tekjuauki, sem
af því yrði, mundi áreiðanlega
bæta ríkissjóði upp þann tekju-
missi, sem hann yrði fyrir vegna
endurgreiðslu á söluskatti til er-
lendra ferðamanna.
XXX
Okkur þykir nóg ujn verðlag
hér, en engu að síður er það
staðreynd, að verð á fjölmörgum
vörutegundum o’g þá sérstaklega
fatnaði er mun lægra hér en í
löndum beggja vegna Atlants-
hafsins. Þetta á bæði við um kven-
fatnað og karlmannaföt. Að vísu
er úrvaiið ekki eins mikið og er-
lendis en þó er vöruframboð orðið
ótrúlega fjölbreytt hér. Ástæðan
fyrir því, að verðlag er lægra hér
en í þessum löndum er sú, að þar
þykir sjálfsagt að álagning verzl-
ana sé margföld á við það, sem hér
tíðkast. Niðurstaðan er sú, að fatn-
aður í sama gæðaflokki getur verið
helmingi ódýrari hér en erlendis
a.m.k. í Evrópu og Bandaríkjunum.
Það er því litið vit í því fyrir Is-
lendinga að kaupa föt í smásölu-
verzlunum erlendis. Sjálfsagt er
þetta ekki ástæðan fyrir því, að
bandarískar húsmæður koma
hingað þúsundum saman í inn-
kaupaferðir. Ekki er við því að
búast að þær hafi uppgötvað þenn-
an verðmun úr því að íslendingar
sjálfir hafa tæplega gert það. En
hitt er víst, að innflytjendur á
íslenzkum ullarvörum í Bandaríkj-
unum hafa gert sér grein fyrir
því, að smásöluverð í verzlunum
hér er svipað og útflutningsverð
til þeirra. Víkverji hlustaði fyrir
nokkrum mánuðum á fulltrúa ís-
lenzkra útflutningssamtaka gera
tilraun til þess að skýra þetta
fyrirbæri fyrir bandarískum kaup-
anda, en að vonum tókst það
misjafnlega.
XXX
En úr því að við erum að ræða
um ýmislegt, sem varðar
ferðalög fólks, er ekki úr vegi að
minna ferðamenn vestan hafs enn
einu sinni á þá möguleika, sem þar
gefast á ódýrum flugferðum milli
landshluta. íslenzk stúlka þurfti
nýlega að komast frá New York
til Los Angeles. Hún fór inn á litla
ferðaskrifstofu og bað afgreiðslu-
stúlku að kanna fyrir sig, hvernig
hún kæmist ódýrast þangað. Nið-
urstaðan varð sú, að með því að
fljúga með People Express í næt-
urflugi frá Newark-flugvelli komst
hún þessa leið fyrir 145 dali og 3
dali fyrir hverja tösku, sem hún
hafði meðferðis. Veitingar um
borð varð hún að sjálfsögðu að
kaupa. Þegar þessi sama stúlka
flaug til baka kannaði hún enn
hvert væri ódýrasta flugið frá Los
Angeles og kom þá í ljós, að það
var með Pan American og kostaði
í næturflugi 139 dali og enginn
aukakostnaður vegna ferðatösku
og innifaldar voru einhverjar veit-
ingar.
XXX
Kjarvalssýningarnar, sem
staðið hafa yfir að undan-
förnu, eru slíkar, að fólk ætti ekki
að láta þær fram hjá sér fara.
Senniiega verður langt þangað til
slíkar sýningar á verkum Kjarvals
verða settar upp á nýjan leik
a.m.k. á sama tíma. Hins vegar
hefur Víkverji furðað sig á þvi,
hvað sýningarskrár hafa verið
dýrar á Kjarvalsstöðum og í Lista-
safni íslands. í fyrra tilvikinu
kostar sýningarskrá 300 krónur en
í því síðara 500 krónur. Að vísu
er m ikið í báðar lagt og þá alveg
sérstaklega í þá bók, sem Lista-
safnið hefur gefið út. Forráða-
menn þessara safna hafa líklega
ekki áttað sig á því, að margt fólk
er ekki tilbúið til að kaupa svo
dýrar sýningarskrár og hefði verið
eðlilegt að vera með ódýrari út-
gáfur á báðum stöðum. Það segir
kannski svolitla sögu, að á þeirri
sýningu, sem Þorvaldur Guð-
mundsson setti upp í sýningarsal
sínum á verkum í eigu hans sjálfs,
kostaði sýningarskráin ekki neitt.