Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985 Ragnar Kjartansson, stjómarformaður Hafskips: Hvetur viðskiptavini Hafskips að beina við- skiptum til Eimskips RAGNAR KjartansMon stjórnarfor- maður Hafskips hefði viljað sjá hærri tölur í tilboði Eimskipafélagsins í eigur íslenska skipafélagsins, en beinir þeirri hvatningu til viðskipta- vina Hafskips að þeir beini viðskipt- um sínum til Eimskips. Þetta kom fram f samtali Morgunblaðsins við Ragnar í gærkveldi, er hann var spurður álits á um 400 milljón króna tilboði Eimskips í eignir íslenska skipafélagsins. „Allt frá því snemma í júlí að ljóst var að Hafskip stcð frammi fyrir vanda, og í kjölfar viðræðna við (Jtvegsbanka fslands, var það sett sem meginmarkmiö að leitast við að spila þannig úr málum að hags- munum Útvegsbanka fslands yrði borgið. Það var engin tilviljun að viðræður voru hafnar við Eimskipa- félagið en ekki önnur skipafélög," sagði Ragnar. Hann sagði jafnframt: „Þar er fyrir hendi traust fyrirtæki sem með auknu umfangi ætti að geta tryggt meiri hagkvæmni í sjó- flutningum en nú er. Aukin stærð gerir nú enn meiri kröfur til Eim- skipafélagsins en ella. Félagið verð- ur að leggja sig fram af alúð við að sinna viðskiptafyrirtækjunum og leita hagkvæmustu lausna." Ragnar sagöi að einokunaryfir- bragð fyrri ára gleymdist ekki, nema með nákvæmu starfi þeirra Eim- skipafélagsmanna. „Þar starfar margt ágætis manna sem ég ber gott traust til, bæði forstjóra og margra samstarfsmanna hans," sagði Ragnar. „Á þessum tíma er það mín persónulega hvatning til viðskiptamanna Hafskips hf. að beina viðskiptum sínum til Eim- skipafélagsins, en hika jafnframt ekki við aö sýna félaginu eðlilegt aðhald og gera kröfur til málefna- legrar þjónustu. Þeir vita sem er, félagar okkar hjá Eimskip, að án þjónustunnar má búast við nýju Hafskipi og vafamál er að þeir viíji ganga i gegnum nýtt 27 ára tímabil af því tagi.“ Anna Guðmunds- dóttir leikkona látin ANNA Guðríður Guðmundsdóttir leikkona lést á Landspítalanum sl. laugardag, 30. nóv., 83ja ára aó aldri. Anna var atkvæðamikil í ís- lensku leikhúslífí, hóf leikferil sinn árið 1923 hjá Leikfélagi templara og lauk honum í Þjóðleikhúsinu þar sem hún lék síðast í íslandsklukk- unni nú í haust. Anna fæddist 19. apríl 1902 að Skálanesi í Vopnafirði. Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson og Stefanía Benjaminsdóttir. Anna fluttist með foreldrum sín- um til Reykjavíkur 1917 og bjó þar alla tíð síðan. Hún lærði Ijósmynd- un hjá-Ólafi Magnússyni konung- legum hirðljósmyndara og stund- aði það starf í 16 ár. Hún hóf leik- feril sinn árið 1923, fyrst hjá Leik- félagi templara, en frá 1929—50 var hún leikkona hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hún var á B-samn- ingi hjá Þjóðleikhúsinu frá stofn- un þess 1950 til 1970, fastráðin þar frá 1970—72, en þá lét hún af störfum fyrir aldurs sakir. Anna var á sérsamningi hjá Þjóðleik- húsinu eftir að hún lét þar af föstu starfi og lék nánast fram á síðasta dag. Sumarið 1948 fór Anna f leikför með Gullna hliðið til Helsingfors og hún var einnig þátttakandi í leikför Þjóðleikhússins með sama leikrit til Kaupmannahafnar og Oslóar sumarið 1957. Hún stofnaði Morgunblaðið/ÓI. K. Mag. Útför Jóns Kjartanssonar ÚTFÖR Jóns Kjartanssonar, forstjóra Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins, var gerð frá Háteigskirkju í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Sr. Ólafur Skúlason, vigslubiskup, og sr. Tómas Sveinsson önnuðust athöfnina. Viðar Gunnarsson söng einsöng og ljóðakórinn söng. Organleikari var Guðni Þ. Guðmundsson, Björn Árnason lék á fagott og Þorvaldur Steingrímsson á fiðlu. Úr kirkju báru Þorsteinn Gíslason, stjórnarformaður SR, Ólafur Ragnarsson, bókaútgefandi, Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri, Erling Eðvald, lyfsölustjóri, Þrá- inn Valdimarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, Sigurður Jónsson, fyrrver- andi forstjóri SR og Sjóvá, Jóhann Steinsson, starfsmaður ÁTVR, og Ragnar Jónsson, settur forstjóri ÁTVR. Ollu starfsfólkí Stálvlkur sagt upp Tímabundnir erfiðleikar gera okkur erfitt fyrir, segir Jón Sveinsson forstjóri ÖLLU starfsfólki skipasmíðastöðvarinnar Stálvíkur í Garðabæ hefur verið sagt upp störfum, en uppsagnarfrcstur er allt að þremur mánuðum. Stafar þetta af tímabundum erfíðleikum fyrirtækisins að sögn Jóns Sveinssonar, forstjóra Stálvíkur. Hann segir erfíðleikana að mestu stafa af stöðvun ný- smíði skipa og því, að kaupendur að raðsmíðaskipi fyrirtækisins hafa ekki fengið lánafyrirgreiðslu til kaupanna og skipið ekki fengið aflakvóta. Verið væri að endurskipuleggja rekstur fyrirtækisins og vonaðist hann til að ekki þyrfti að koma til þess, að starfsfólkið missti vinnuna. Jón sagði, að Stálvík hefði fyrst og væri þar helzt að nefna upphaf Leikfélag templara og var formað- ur þess fyrstu árin. Anna tók ennfremur þátt í stofnun Félags íslenskra leikara 1941 og var gjald- keri þess félags 1950—55. Hún var sæmd silfurmerki Fél. ísl. leikara 1966 og gullmerki félagsins 1976. Anna giftist Páli Þorleifssyni bókhaldara hjá SÍF árið 1927. Hann lést 1961. Þau voru barnlaus. og fremst verið nýsmíðastöð og nú væru tvö og hálft ár síðan nýsmíði hefði verið stöðvuð og komið í veg fyrir sölu á raðsmíðaskipi fyrir- tækisins. Segja mætti að skipið hefði verið selt 12 sinnum, en opin- berir sjóðir hefðu ætíð neitað lána- fyrirgreiðslu og engin kvóti fengizt á skipið. Þetta eitt kostaði fyrir- tækið 30 til 40 milljónir króna, þótt skipið seldist á endanum. Þetta væri svipað og banna útgerð að veiða nytjafiska i sama tíma. Nú væri verið að undirbúa aðra hluti viðgerðar- og viðhaldsþjónustu og framleiðslu lífræns blómaáburðar. Hann mæti því stöðuna svo að næsta hálfa árið yrðu áframhald- andi erfiðleikar, en úr því færi að rætast úr stöðunni. Búið væri að byggja viðlegukant við fyrirtækið, sem auðveldaði til muna alla vinnu við viðgerðir og viðhald skipa, sem á næstunni hlyti að verða veiga- mikill þáttur í starfi skipasmíða- stöðva. Ennfremur væri fram- leiðsla á blómaáburðinum í þann veginn að hefjast og ætti hún Hollenskt fjölmiðlafyrirtæki skopast að íslandi í hollenskum blöðum Fréttir um vespu- og mauraplágu aðaluppistaða landkynningariiuiar UNDARLEG mynd hefur verið dregin upp af þjóðlífínu á íslandi í hol- lenskum blöðum undanfarna mánuði. Er helst á fréttum hollensku pressunnar að skilja að íslendingar eigi í höggi við þrjár meginplágur: vespur, maura og bjórleysi. í grindálkum blaðanna má lesa frasagnir af geðshræringu Islendinga vegna vespuhreiðra sem fundist hafa á eyj- unni og vangaveltur um það hvort ísland sé endanlega búið að stinga sér í vespuhreiður. 1 framhaldsfrétt er sagt að nú séu íslendingar búnir að finna sér nýtt áhyggjuefni, því 73 hús- maurar hafi fundist í klóakrör- um og húsgrunnum og jafnvel baðherbergjum, „þar sem vel fer um maurana". Þá er hæðst að íslendingum fyrir bjórleysi þeirra, sagt að þörf eyjaskeggja fyrir mjöðinn fari nú vaxandi, en þrátt fyrir viðleitni þorstlátra hafi ekki tekist að fá lögunum breytt. Það mun vera þarlend fjöl- miðlaskrifstofa Osterheert, sem setur fréttirnar saman í nafni Ferðamálaráðs íslands. í Ham- borg er starfandi skrifstofa á vegum Ferðamálaráðs, sem ann- ast kynningu á íslandi á megin- landi Evrópu, og réð hún viðkom- andi fjölmiðlaskrifstofu í Hol- landi til að dreifa þar fréttum frá íslandi. Forstöðumaður skrifstofunnar í Hamborg, ómar Benediktsson, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hinn hollenski blaðafulltrúi þeirra hjá Osterheert hefði með þessum fréttum gjörsamlega brugðist því trausti sem honum var sýnt og væri nú búið að segja upp við- skiptum við hann og fyrirtæki hans. „Margir eru kannski þeirrar skoðunar að illt umtal sé betra en ekkert, en þessar fréttir um vespurnar og maurana eru auð- mýkjandi og fáránlegar og bera vott um óvönduð vinnubrögð fjölmiðlaskrifstofunnar," sagði Omar. „Við sendum Osterheert fréttir og efni sem við vildum að kæmi fram í fjölmiðlum í Hollandi, en gáfum þeim jafn- framt nokkuð frelsi til að setja í blöðin að eigin frumkvæði annað jákvætt efni um ísland. Þessu trausti hefur skrifstofan gjörsamlega brugðist, og við höfum sagt upp viðskiptum okk- ar við hana frá og með næstu áramótum," sagði ómar Bene- diktsson. bæði að geta skilað góðri afkomu og gjaldeyristekjum, þar sem megnið af áburðinum yrði flutt út. Jón sagði að mjög hefði verið vegið að tilveru skipasmíðastöðva með stefnuleysi í endurnýjun fiski- skipaflotans. Miklar sveiflur í henni hefðu valdið því, að tilvera stöðvanna yrði ótraust og fólk héldist ekki í vinnu þar. Slíkt væri mjög miður, þar sem skipaiðnaður- inn væri undirstaða járnsmíða í landinu og lærlingum færi nú til dæmis verulega fækkandi. Þegar að því kæmi að stöðvanna yrði að nýju þörf skorti þær hæfan mann- afla til að takast á við nauðsynleg verkefni. Af þeim sökum væri hætta á þvl að nýsmíði og end- urnýjun færðist úr landi vegna lítillar afkastagetu heima fyrir. Að þessum þáttum yrði að gæta þegar litið væri til framtíðarinnar. Verð á íslenzkum skipum væri sambærilegt við verð á góðum skipum að utan, en ódýrari og jafnframt lakari skip væri auðvelt að fá erlendis. íslenzku skipin hefðu reynzt afburða vel og því hæpinn akkur í því, að kaupa ódýr- ari en lakari skip að utan. Ekki lengur í lífshættu SAUTJÁN ára Snæfellingur slasaóist alvarlega í umferðarslysi skammt fró Saurbæ á Hvalljarðarströnd um mið- nætti sl. föstudagskvöld. Hann liggur nú á sjúkrahúsi í Reykjavík. Pilturinn, sem er við nám á Akra- nesi í vetur, hafði verið á dansleik í félagsheimilinu Hlöðum þá um kvöldið og var á gangi meðfram þjóðveginum um miðnættið. Hann varð fyrir bíl, sem ekið var vestur Hvalfjarðarströnd og slasaðist mikið, hlaut m.a. höfuðkúpubrot. Pilturinn var fluttur á sjúkrahús á Akranesi en þaðan með þyrlu til Reykjavíkur, þar sem hann gekkst undir skurðaðgerð strax um nóttina. Hann er ekki lengur talinn vera í lífshættu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.