Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985 ' 1 speki Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson Við fjöllum hér um hinn dæmigerða Bogmann. Öll erum við hins vegar samsett úr nokkrum merkjum og því koma fleiri þættir til greina. Köflótt ár Síðastliðið ár hefur verið misjafnt hjá Bogmanninum. Um töluverðar umbyltingar hefur verið að ræða, sérstak- lega hjá þeim sem fæddir eru snemma í merkinu. Skiptist í tvö horn. Vinna Þeir sem fæddir eru frá 22. nóvember til 7. desember þurfa að takast á við Satúrn- us. Það táknar að um viss þyngsl verður að ræða, þeir verða að takast á við ábyrgð, töluverða vinnu og átök. Þetta er raunsæistími. Hætt er við að lítið verði um það frelsi sem Bogmaðurinn þráir svo oft. Það jákvæða við þennan tíma er að Bogmaðurinn get- ur öðlast aukna sjálfsþekk- ingu og lært að treysta meir á sjálfan sig en áður. Til að vel gangi þarf að gæta reglu- semi og sjálfsaga. Þó þetta sé kannski ekki fjörugur og litskrúðugur tími er hann ekki slæmur. Vinna, þolin- mæði og markviss uppbygg- ing þarf ekki að vera meðal verri dyggða. Umbreytingar Þéir sem fæddir eru frá 8. til 15. desember þurfa að takast á við Úranus. Það er ólíkt því sem Bogmenn fæddir fyrr í merkinu þurfa að eiga við. Næsta ár fyrir þetta fólk verur byltingaár. Kröfur verða gerðar til breyttra lífs- hátta. Frelsi, breytingar og nýir straumar verða einkenn- andi. Einnig eirðarleysi og þörf til að brjóta sig útúr stöðnuðu vanamunstri. Sjálfsvitundin mun taka stakkaskiptum. Rólegt ár Þeir sem fæddir eru frá 15.— 21. desember eiga líkast til rólegt og venjulegt ár fyrir höndum. Kraftur í febrúar og mars 1986 er Mars í Bogmannsmerkinu og þá er að öllu jöfnu góður framkvæmdatími. Orka um- hverfisins er í jafnvægi við orku Bogmannsins. Þensla Frá 19. febrúar og út árið 1986 er Júpíter í Fiskamerk- inu og myndar spennuafstöðu við Bogmanninn. Það táknar, auk þess sem áður var getið, að um töluverða þenslu verð- ur að ræða. Fyrir þá sem fæddir eru snemma í merkinu er þessi þensla um vorið og fram á sumar. Það táknar að um töluverð átök og kraft verður að ræða. Fyrir þá sem síðar eru fæddir verður þessi þensla um haustið og vetur- inn. Júpíter fylgir alltaf stór- hugur, hreyfing, ferðalög og bjartsýni. Sviptingasamt í heild er árið framundan hjá Bogmanninum marg- slungið. Við skulum þó at- huga að hér er ekki verið að spá, heldur fjalla um þá orku sem er sterkust í lífi Bog- mannsins á næsta ári. Hvað úr verður fer endanlega eftir því hvernig á málum er hald- ið. X-9 ••• <4s, \///wfí t/Wfí /Tex* £/A/*fV£fí _________ &4fítí/A/<f7/1//e/M / DÝRAGLENS LJÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK Pear Sweetheart, I m\55 you morninq.noon and night. Kæra unnusta, ég sakna þín að morgni, á hádegi og á kvöldin. Þetta er legt... ekki nogu greini- UWEN YOU UIRITE TO A €IRL, YOU HAVE TO BE MORE 5PECIFIC.. Þegar þú ætlar að skrifa stúlku verður þú að vera ná- kvæmari... Ég sakna þín kl. 8.15, 11.45 og 9.36 ... Umsjón: Guöm. Páll Arnarson Úrslitaleikur Bandaríkja- manna og Austurríkismanna á HM var spennulaus; Banda- ríkjamenn höfðu yfirhöndina allan tímann og sigruðu að lokum með 75 keppnisstiga mun. Það má því segja að mesta spenna mótsins hafi verið í fjögurra sveita undan- úrslitunum, einkum i leik Bandaríkjanna og Brasilíu, þar sem úrslitin réðust í síðasta spili. En lítum á spil frá úr- slitaleiknum, þar sem banda- ríska liðið græddi 13 stig fyrir að vinna geim doblað með yfir- slag á meðan Austurríkis- mennirnir á hinu borðinu létu sér nægja að spila bút: Norður ♦ Á85 ♦ Á764 ♦ DG43 ♦ 43 Vestur *G1° llllll ♦ G108532 ♦ 7 ♦ ÁKD2 Suður Austur ♦ D6 ♦ KD ♦ K986 ♦ G8765 ♦ K97432 ♦ 9 ♦ Á1052 ♦ 109 Vestur Noröur Austur Suöur — — Pass Pass lhjarta Pass 1 trrand 2spaðar 3 hjörtu 3 spaðar 4 hjórtu 4 spaöar Dobl Pass Pass Pass f N/S voru Bandaríkja- mennirnir Martel og Stansby. Martel taldi spaðann ekki nógu góðan til að vekja á veikum tveimur, en notaði fyrsta tæki- færið sem gafst til að koma inn. Og þegar makker hans gat tekið undir spaðann hikaði hann ekki við að fara í geimið. Vestur byrjaði á því að taka tvo efstu í laufi og skipti svo yfir í tíguleinspilið. Martel setti líðið úr blindum og austur fór upp með kóng í þeirri veiku von að vestur væri að spila undan tígulásnum. Þar með var tígulslagur varnarinnar úr sögunni og Martel vann samn- inginn með yfirslag, 990 í N/S. Á hinu borðinu vakti suður á tveimur spöðum og þar dóu sagnir út. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Þessi skemmtilega skák var tefld á milli tveggja meistara á móti sovézka skákfélagsins Dynamo í sumar: Hvítt: Mov- sesjan. Svart: A. Kuzmin, Drottningarbragð, 1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Be7, 4. Rf3 - Rf6, 5.Bg5— 0-0, 6. e3 - h6, 7. Bh4 - b6, 8. Db3 - Bb7, 9. Bxf6 — Bxf6, 10. cxd5 — exd5, 11. Hdl — He8, 12. Bd3 - Rc6,13. Bbl - Ra5,14. Dc2 — g6, 15. h4 — h5, og nú lagði hvítur til atlögu: 16. g4! — hxg4, 17. h5! — gxf3, 18. hxg6 — He7 (Tapar strax, en 18. — fxg6, 19. Dxg6+ — Kf8, 20. Hh7 var jafn vonlaust) 19. g7! — Bxg7, 20. Hh8+! og svartur gafst upp, því hann er óverjandi mát í tveimur leikj- um hið mesta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.