Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
53
á Hreimsstöðum, en Þorsteinn og
Sigurrós eru bæði látin.
Olafur, kona hans Hjörtfríður
Kristjánsdóttir. Bjuggu á Hvassa-
felli í félagi við Klemens föður
Ólafs. En lengst af í Borgarnesi.
Var hann þar verkamaður og
bóndi. Þau eignuðust 4 börn. ólaf-
ur og Hjörtfríður eru bæði látin.
Kjartan, kona 1: Sesselja Gunn-
laugsdóttir. Þau eignuðust 3 börn,
sem fyrr segir. Kona 2: Ólafía
Sigurðardóttir, lifir Kjartan. Þau
eignuðust eina dóttur.
4 systur: Arndís, maður hennar
Brynjólfur Bjarnason frá Skarðs-
hömrum. Bjuggu í Króki. Eignuð-
ust 5 börn. Arndís var mikil ágæt-
iskona. Arndís og Brynjólfur eru
bæði látin.
Sæunn, maður hennar Jón Jó-
hannesson. Bjuggu lengst af í
Klettstíu og kennd við þann bæ.
Eiga 4 syni. Síðustu árin voru þau
í Borgarnesi. Sæunn var mikilhæf
og dugleg kona og vel látin af öll-
um. Þau eru bæði látin.
Kristín, ljósmóðir, dó ung. Guð-
ríður, dó ung.
Seinni kona Klemensar Bald-
vinssonar var Kristfn Jónsdóttir
frá Bugðustöðum í Hörðudal. Voru
þær systur Sigurrós kona Þor-
steins á Hreimsstöðum og Kristín.
Þau fluttu að Hvassafelli frá
Hundadal. Þau eignuðust þrjár
dætur:
Guðlaugu. Maður hennar er
Hermann Guðmundsson. Þau
bjuggu lengi í Litla-Skarði i Staf-
holtstungum, en urðu að hætta
vegna heilsubrests, eru nú búsett
í Reykjavík. Eignuðust 5 börn. Er
þau fluttu til Reykjavíkur veitti
Kjartan þeim ómælda hjálp f
þeirra erfiðleikum. Þau eru stór-
myndarleg hjón.
Sveinbjörgu. Maður hennar var
Guðmundur Magnússon. Var hann
ættaður úr Borgarfirði, bróðir
Torfa í Hvammi, sem þekktur var
hér í héraði. Sveinbjörg og Guð-
mundur ráku prjónastofuna Hlín
f Reykjavík af miklum dugnaði.
Sveinbjörg ber mikla tryggð til
sinnar gömlu sveitar, Norðurár-
dalsins. Hefur beitt sér fyrir gjöf-
um til sóknarkirkjunnar í
Hvammi. Sveinbjörg og Guðmund-
ur voru atgervishjón, en Guð-
mundur er látinn fyrir allmörgum
árum. Þau urðu fyrir þeirri þung-
bæru raun að eignast son, Hilmar,
sem ekki hefur getað gengið heill
til skógar um dagana. Auk þess
áttu þau fósturson. Sveinbjörg er
nú á Dvalarheimilinu Grund f
Reykjavík.
Dómhildi. Maður Bernódus
Halldórsson. Er yngst systranna
þriggja. Búsett f Bolungarvík. Eiga
þau 5 börn. Hún var ung og hress
á árum Umf. Baulu 1927—1929 í
Norðurárdalnum. Minnist ég
hennar sfðan.
Kristín og Klemens hættu bú-
skap á Hvassafelli 1929 og seldu
Þorsteini Snorrasyni frá Laxfossi
og Sigurlaugu Gfsladóttir frá
Hvammi jörðina.
Kristín og Klemens fluttu til
Reykjavíkur og fór hann þar í
verkamannavinnu. Hljóta það að
hafa verið erfið umskipti fyrir
hann. Klemens fæddist 23. ágúst
1863. Hann fórst í bilslysi í Reykja-
vík 11. júní 1930.
Kjartan var meðalmaður á hæð,
fremur grannholda. Nokkuð rauð-
birkinn og rauðhærður. Varð ung-
ur sköllóttur. Kvikur í hreyfingum
og honum fylgdi mikil atorka.
Þrátt fyrir það að hann næði svo
háum aldri hélt hann sér vel til
hinstu stundar.
Víkjum aftur til Sveinatungu.
Um hlaðið f Sveinatungu og f
gegnum túnið þar lá þjóðleiðin
milli Suður- og Norðurlands um
aldir. Það lá tröð í gegnum túnið
girt með grjótgörðum beggja
vegna. Það var nauðsynlegt vegna
þess að oftlega fóru stórir hópar
ferðafólks með marga hesta um
veginn. Einnig var ekið þar um
hlað og gegnum túnið á fyrstu
árum bilaaldar, þar til að vegurinn
var lagður fyrir neðan túnið.
Gestakoma mun því oft hafa
verið mikil í Sveinatungu. Fóru
Kjartan og Sesselja ekki varhluta
af því á fyrstu árum þeirra. Kjart-
an var mikill greiðamaður og frá-
bær nágranni, hjálpsamur og
duglegur með afbrigðum. Þá var
hann sérlega ráðagóður ef vanda
bar að höndum.
Ferðamenn misstu eitt sinn bíl
niður um íshrafl á Litluá um há-
vetur 1934. Brúin hafði farið af
ánni í stórflóði um haustið áður.
Bíllinn sat blýfastur og ekki til
bílar á bæjum eða dráttarvélar til
aðstoðar við að ná bílnum uppúr
ánni, eins og nú er orðið. Kjartan
hafði alltaf tiltæka ágæta notkun-
arhesta bæði til dráttar og reiðar.
Hann hafði á húsi járnaða dráttar-
hesta, sem hann lagði nú aktygin
á og fór með þá ásamt dráttartaug-
um og dró bílinn uppúr Litluá um
nóttina. Þannig var hann ávallt,
ef vanda bar að höndum var leitað
til Kjartans, af okkur í Hvammi
að minnsta kosti.
Kjartan átti sæti í sveitarstjórn
um árabil.
I Hvammi á heimili foreldra
minna, Sigurlaugar Guðmunds-
dóttur og Sverris Gislasonar, var
þingstaður og fundarstaður Norð-
dælinga til ársins 1931 að fundar-
húsið í Dalsmynni var byggt.
Þetta leiddi til þess þegar ég var
á barnsaldri að ég kynntist öllum
bændum í hreppnum. Einn af
þessum mönnum var Kjartan í
Sveinatungu.
Þessir bæpdur sem hófu búskap
í Norðurárdal fyrir og um 1920,
eru nú að hverfa af sjónarsviðinu,
er Kjartan síðastur þeirra.
Oft verður mér hugsað til þess
hvað þessir ágætu menn, bænd-
urnir í Noröurárdal, sem komu til
funda í Hvammi voru hressir í
anda og reisn yfir þeim. Nú voru
þetta samt blásnauðir og fátækir
menn, margir hverjir að minnsta
kosti, miðað við þær kröfur sem
nú eru gerðar.
Kynni mín af þessum mönnum
hafa nú við fráfall Kjartans leitað
á huga minn að minnast hans með
nokkrum hætti.
Minningin um Kjartan verður
mér ávallt kær.
Helgugötu 11 í Borgarnesi,
Guðmundur Sverrisson.
Ellefta bók Mary Stewart
FÓRNARELDUR nefnist ellefU bókin
sem út kemur á íslensku eftir Mary
Stewart. Iðunn gefur bókina út í þýð-
ingu EIIsu Bjargar Þorsteinsdóttur.
Kápa er hönnuð á auglýsingastofunni
Ocavo. Oddi prenUöi.
Á kápubaki bókarinnar segir m.a.:
„Gianetta, fyrrverandi ljósmynda-
fyrirsæta, kýs að eyða sumarleyfi
sínu á friðsælum stað, Þokueyjunni.
En á fjallahótelinu, Gamasunay,
hittir hún fyrrverandi eiginmann
sinn, rithöfundinn Nicholas Drury.
Er það tilviljun eða hefur hann fylgst
með henni og ætlar að ná ástum
hennar á nýjan leik? Magnað and-
rúmsloft eyjarinnar hefur djúp áhrif
á þau bæði en Gianetta er ekki viss
um tilfinningar sinar. En það loga
eldar í hlíðum Bláa fjallsins, teygja
sig upp í náttmyrkrið og kalla ógn
yfir Þokueyjuna er lík ungrar stúlku
finnst við bálköstinn og skartgripum
raðað í kring. Likt og eldur læsir
skelfing sig um friðsæla fjallabyggð- Kápusíða bókarinnar.
ina.“
ðlStl Tk. ..
Nýir eigendur Skóbúðar Selfoss; f.
Jónsson.
,v. Þórdís Kristjánsdóttir, Elín Tómasdóttir, Þóroddur Kristjánsson og Ingvar
Nýir eigendur að
Selfossi 21. nóvember.
ÞANN 1. nóvember sl. urðu eigendaskipti á Skóbúð
Selfoss. Þann dag tóku nýir eigendur við rekstrinum
af Ástriði Sigurðardóttur og Margréti Lúðvfksdóttur.
Skóbúðin hefur starfað í rúm 20 ár. Hún var stofn-
sett af Lúðvík Guðnasyni verslunarmanni, að Austur-
Skóbúð Selfoss
vegi 34, þar sem hún er til húsa. Hinir nýju eigendur
skóbúðarinnar eru Þórdís Kristjánsdóttir, Ingvar
Jónsson, Elín Tómasdóttir, Þóroddur Kristjánsson
og Tómas Þóroddsson.
Sig. Jóns.
JOLAPEY5UR
á frábæru verði!
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið
þessar gullfallegu frönsHu peysur í þremur stærðum
á einstaHlega hagstæðu werði. Þær eru níðsterHar
og þola þvott í wenjulegum þwottawélum.
V/erð aðeins kr. 1.985.-
Stærðir: Small — Medium — Large.
5ERWOMU5TA VIÐ
LAMD5BYGGÐIMA:
Vlð höfum símaþjónustu opna
tll W. 21.00 á hvöldin þessa vlk u
fýrlr þá sem vilja panta í póstkröfu.
Síminn er 91-11506.
...ogsíóan
falleg föt frá
cllc
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42