Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 16
16 upphafi varð aíít tiC Guð skapaBi heiminn okkar BamaBibíían er bók sem stendur undir nafni. Hún endursegir bókina heígu á einfaldan og eixdceqan fiátt. Hver síða er ríku- Cega myndskreytt. Þetta er bók tií að íeas upp fiátt, en fientar ekki síður þeim börnum sem búin eru að ícera stafina. Séra KarC Sigurbjömsson þýddi bókina. BamabiSUan - góð jóCagjöf \ ________MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985_ Andlit borgarinnar Bókmenntir Erlendur Jónsson Hafliði Vilhelmsson. BEYGUR. 191 bs. Hlöðugil, 1985. Fyrsta skáldsaga Hafliða Vil- helmssonar, Leið 12 — Hlemmur- Fell, var bæði raunsæ og hressileg. Helgalok var síðri, vantaði fastan punkt. Með Beyg tekur Hafliði annan pól á hæðina. Hér kemur hann fram endurnýjaður. Beygur er ekki unnin upp af samfelldum söguþræði eins og Leið 12 — Hlemmur-Fell. Miklu fremur er þetta atriðasafn sem með ýmsu móti er fellt saman og gert að heild. Með hliðsjón af byggingu getur þetta minnt á Guðberg og Thor. Þetta er ekki saga sem dreg- ur slóða að einni niðurstöðu. Held- ur lifir hvert atriði af sjálfu sér. Eins og títt er í skáldsögum af þessu tagi er mikið lagt i stílinn Neyðarlegar athugasemdir og hvassbrýndar samlíkingar marka andstæðurnar í hverri svipmynd fyrir sig. Þessi mörgu og oft óvæntu líkingatengsl gera lestur- inn dálítið erfiðan í byrjun, rugla mann í ríminu nema maður fylgist því betur með almanaki frásagnar- innar. Þegar á líður koma endarnir saman. Maður kemst á sporið og fer að rekja sig eftir dálítið hlykkj- óttum söguþræði. Galli sögunnar er dreifing efnis- ins og óljós stefnumið framan af. En Hafliði er hugkvæmur höfund- ur og raunsærri en svo að hann fari með allt sitt verk út í mýri. Skot hans hitta betur og betur I mark. Hika ég þó ekki við að segja að samfelldari söguþráður hefði ekki dregið safann úr þessari sögu; þvert á móti styrkt í henni bak- fiskinn. Hafliði jtr prýðilega fundvís á Hafliði Vilhelmsson hið kómíska í daglega lífinu. Per- sónurnar í þessari sögu eru venju- legt reykvískt hversdagsfólk, vinnusamt — og misjafnlega reglusamt eins og gerist og gengur. Og sumir geta ekki komið fram eðlilega vegna þess að þeir telja sig hafa eitthvað að fela. Kynslóðabilið, sem alltaf hefur verið, er og verður (þó kynslóð ’68 teldi sig hafa fundið það upp), blasir hér við. Börnin vona að þau verði ekki eldri en fjórtán. Því eftir það sýnist lífið vera gagnslaust og gleðisnautt — af framkomu full- orðinna að dæma. Á skólaaldri er leitað að hinni einu og sönnu ást sem á að vara lífið á enda. Hins vegar verða foreldrar ekkert yfir sig hrifnir þegar ungur stúdent kemur arkandi inn í stofu með kærustu. Hvað á þá að verða með námið? En lengur lifir í glóðum tilfinn- inganna en unglingana órar fyrir. Eldri herra getur tekið upp á því að gera hosur sínar grænar fyrir eldri dömu. Þá klæðist hann fínu fötunum, kemur með blóm — kött- inn sem hann hefur verið svo heppinn að finna. — Allt er þetta fært í stílinn og skemmtilega skrítið hjá Hafliða. Lífið hvarflar þetta milli raunveruleika og fárán- leika, stundum á ystu nöf hins fyrrnefnda. Lilli er prýðileg táknmynd fyrir ráðvillta karlmenn í nútímanum sem misst hafa fótfestuna and- spænis kvenkyninu og vita ekki lengur hvar þeir standa. Gulla er á hinn bóginn kvenímyndin nýja, drykkjusvoli og hvergi feimin við að hafa frumkvæði að því sem henni dettur í hug að taka sér fyrir hendur. Brynki er karlmaður af gamla skólanum. Reglusemin er kjölfesta hans í lífinu. Hólmfríður er hin dæmigerða sígilda hús- freyja, örlítið draumlynd í hug- skotinu en hagsýn þegar til kast- anna kemur. Mannlífsmyndasafnið er hér fjölskrúðugt. Fundvísi Hafliða á myndir og líkingar stefnir þó ekki alfarið að þvi að skerpa drættina í svipmóti persónanna. öllu frem- ur er stíllinn rammi utan um heild- ina. Þetta er borgarlífssaga. Borg- in hefur sitt andlit og sína kæki. Að mínum dómi er Hafliði með þeim hressilegri í hópi ungra skáldsagnahöfunda. Með jafnöld- rum á hann það sameiginlegt að hann hallar sér að endurminninga- sviðinu. Bernsku- og æskuár í höfuðstaðnum er kjörnefni hans eins og fleiri slíkra. En Hafliði hefur mikið að segja; meira en margur sem sendir frá sér skáldverk þessi árin. Hann er kraftmikill. Og hann er tiltölulega óháður. Hann er hugmyndaríkur í besta lagi. Stfll hans ber líka vott um ágæta fagkunnáttu. Vonandi týnir hann ekki þessum góðu eiginleikum þó aldurinn eigi eftir að temja hann til meiri ögun- ar, þroska og jafnvægis. Dagur Sigurðarson Það er eng- inn vandi að yrkja Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Dagur: FYRIR LAUGAVEGSGOS Þursaútgáfan 1985 Dagur Sigurðarson hefur sent frá sér dálítið handskrifað kver sem hann kallar Fyrir Laugavegs- gos. Kverið hefur Dagur látið fjöl- rita. Skrift Dags hefur alltaf verið læsileg svo að það kemur ekki að sök þótt ljóð hans séu ekki í við- hafnarútgáfu. Eftir Dag liggja margar bækur, en að undanförnu hefur hann eink- um látið að sér kveða sem list- málari og vitanlega sem ólæknandi kaffihúsamaður. Það er staðreynd að skáldskapur Dags hefur haft gildi fyrir önnur skáld, hið op- inskáa og einlæga tungutak hans höfðar til þeirra sem eru ungir, líka þeirra sem eru síungir. Atburðir, hugmyndir og saga Bókmenntir Guömundur H. Frímannsson Hugmyndasaga eftir Ólaf Jens Pétursson. Mál og menning, 1985, 252 bls. Hugmyndasaga er ný grein sagnfræði. Það þýðir ekki að sagnfræðingar hafi ekki greint og rakið hugmyndir manna um hvað sem vera skal á ólíkum timum, fyrr en tiltölulega nýlega. Það gerðu þeir skilmerkilega. Það, sem hefur gerst, er að sagn- fræðingar og aðrir áhugamenn um efnið hafa einbeitt sér að hugmyndunum og samhengi þeirra. En hvað eru þá hugmyndir? Um hvað fjallar þessi tegund af sögu? Hugmyndir geta verið um hvað sem vera skal. í vissum skilningi er öll saga hugmynda- saga, því það er óhjákvæmilegt að segja frá hugmyndum manna um sjálfa sig og heiminn, þegar sögð er saga atburða í stjórn- málum, efnahagslífi, eða af öðrum sviðum þjóðlífsins. En hug- myndasaga, sem sérstök grein sagnfræði, leitast við að greina frá þróun hugmynda, útbreiðslu, uppruna, grafast fyrir um orsakir breytinga á hugmyndum manna og þjóða. Þetta er ekki einfalt verk og fyrsti vandinn, sem fyrir verður á þessu sviði, er skilgrein- ingarvandi. Áður en byrjað er verður að átta sig með sæmilega skilmerkilegum hætti á því, hvað greinin fæst við. Mér hefur virst, að höfundar svari þessari spurningu þannig í verkum sínum, sem er náttúru- lega það svar, sem taka ber mest mark á, að hugmyndasaga sé sambland að heimspekisögu, trú- arbragðasögu, vísindasögu, bók- menntasögu og almennri sam- félagssögu. Hver höfundur velur sér svið eftir sínu höfði. Þótt svo sé, þá er yfirleitt reynt að finna þann kjarna hugmynda, sem sköpum skiptir fyrir hvern tíma. Þá verður að grípa til hugmynda úr ólíkum greinum. Þá nægir ekki að binda sig við eina fræðigrein heldur verður að átta sig á heild- armyndinni. Þá kemur oft í ljós, að hugmyndir lifa sjálfstæðu lífi. Þær eru ekki endurspeglun efna- hagsástands, samfélagsgerðar- innar eða einhvers enn annars. Um leið og þetta er sagt, verður að taka vara fyrir því, að hug- myndasaga byggist á eða ýti undir hughyggju í þeim skilningi að heimsandinn eða mannssálin sé undirstaöa alls annars eða innsta eðli veruleikans. Það, sem hér er einungis verið að segja, er að hugmyndir gegna eða geta gegnt sjálfstæðu hlutverki í sögulegri þróun og það er verðugt viðfangs- efni að átta sig á þvl hvert það er. Nú er nýkomin út Hugmynda- saga eftir ólaf Jens Pétursson, sem nær yfir tímabilið frá því rétt fyrir daga Forn-Grikklands og fram á okkar daga. í ekki stærri bók er farið yfir mikið efni og ekki mikið svigrúm til að gera hverju efni góð og mikil skil. Slíkt er náttúrulega ævinlega ákvörð- unarefni höfundar hverju sinni. Einnig ber að taka tillit til þess að bókin er ekki enn fullsamin og ætlunin mun vera sú, að hún komi út næsta haust í lokagerð. Þessa sér nokkurn stað í bókinni, þar sem fyrri hlutinn er mun betur unninn en seinni hlutinn, ítarlegri og skipulegri. Aftast í þessari bók er skrá yfir íslensk rit, sem fjalla um það efni, sem rakið er í bókinni. Mikill fengur er að henni. Mér virðast vera í meginatrið- um tvær aðferðir notaðar við samningu bóka af þessu tæi, sem eru fyrst og fremst hugsaðar sem kennslubækur. í fyrsta lagi er sagan rakin í nokkurn veginn réttri tímaröð, gerð grein fyrir helstu nöfnum, straumum og stefnum. í öðru lagi er sagan rakin eftir efni, athyglinni beint að einu eða fáum atriðum og hvernig reynt hefur verið að leysa þau í tímans rás. Dæmi um slík efni væru samband sálar og lík- ama, samband Guðs og manns, þekking. Þessi efni hafa hinir mætustu menn glímt við og veitt ólík svör við þeim. Á íslensku er til ein klassísk hugmyndasaga. Það er Saga mannsandans eftir Ágúst H. Bjarnason. Hún er skrifuð með fyrri aðferðinni og hefur heppn- ast mjög vel. Hún er enn prýðileg aflestrar, þótt ekki sé hægt að taka allt gott og gilt, sem í henni stendur. Á íslensku er ekki til nein bók af seinna tæinu. Bók Ólafs Jens Péturssonar er skrifuð með sömu aðferð og bók Ágústs. Hún er ekki eins vel heppnuð enn að minnsta kosti og miklu minni umfangs. Hér verður ekki reynt að i neinn endanlegan dóm um bók ólafs. Hún er á köflum ágæt af- lestrar, sérstaklega framan af en verður slitróttari, þegar fornöld- inni lýkur. Það er sjálfsagt að bíða þess að bókin sé fullfrágeng- in, áður en kveðið er upp úr með kosti hennar eða lesti. Þó er sjálf- sagt að benda á fáein atriði af handahófi, sem verður að laga fyrir endanlega útgáfu. Á bls. 144 er sagt að Marteinn Lúther hafi aðhyllst fyrirhugunarkenningu Ágústínusar. Þessi kenning hefur verið nefnd á íslensku náðarút- valningin. Á bls. 224 er kenning Karls Marx nefnd efnaleg sögu- skoðun. Hún hefur venjulega verið nefnd söguleg efnishyggja. Á næstu síðu er talað um verð- mætisauka, sem verkalýður skapi með vinnu sinni. Þetta hefur verið nefnt gildisauki, að minnsta kosti í Úrvalsritum Marx og Engels. Eitt atriði enn vildi ég nefna. Á bls. 61 er sagt frá rökfræði Arist- ótelsear. „Rökfræði Aristótelesar var fornrökfræði í raun. Oftrú á henni gat leitt til þess að menn létu sér nægja að hugsa rökrétt miðað við gefnar forsendur, þótt niðurstaðan þyrfti ekki að vera raunrétt og nægir að minna á þverstæður eleatans Zenóns." Það, sem hér er verið að tala um, er að skynsemin geti komist að öðrum niðurstöðum en skynjunirt, og ég er ekki viss um að orðaparið „raunrétt og rökrétt" sé heppilegt. En það, sem er verulega um- hugsunarvert við þessar setning- ar, er, að það er of einfalt að afgreiða þverstæður Zenóns með þessum hætti. Það er nefnilega alls ekki augljóst við fyrstu sýn, hvernig á að leysa þær. Og vafðist raunar lengi fyrir hinum mæt- ustu mönnum. Ég held því, að þetta efni hefði verðskuldað ögn ítarlegri frásögn en ólafur hefur látið frá sér fara á þessari bók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.