Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
23
sjómannskonurnar alltaf verið fé-
lagslyndar þótt ýmsar okkar hafi
kannski ekki rekist vel í flokkum.
Eitt höfum við séð eins og aðrir
að það sem öllum kvenfélögum er
sameiginlegt er peningaleysi.
Þessvegna eru konur núna yfirleitt
farnar að verða býsna áhugasamar
í stjórnmálunum, ýmist í hinum
ýmsu flokkum eða þá einar á báti
ef þeim finnst róðurinn sækjast
betur á þann veg.
Konur nútímans eru orðnar leið-
ar á bónbjörgum fyrri tíma. Þær
vita að þær verða að eiga sín sæti
á Alþingi til þess að tekið sé veru-
lega mark á áhugamálum þeirra.
Piltar góðir; þið sem þykist
orðnir leiðir á öllu þessu kvenna-
tali, verið ekki eins og Hákon jarl.
Hákoni varð helst að falli
að hlýddi hann ekki tímans kalli.
Höfundur er fyrrrerandi kennari í
Hafnarfirði.
Jóhann S.
Sigurðsson
látinn
Fyrrverandi forseti Þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi, Jó-
hann Straumfjörð Sigurdson, bóndi
í Lundar í Manitoba, lést að morgni
3. nóvember sl. Hann fæddist í Otto
í Manitoba 22. maí 1913, sonur
hjónanna Ingimundar Sigurðssonar
frá Ánabrekku í Mýrasýslu og Astu
Jóhannesdóttur Straumfjörð frá Ár-
mótum á Snæfellsnesi.
Jóhann stundaði loðdýrarækt öll
sín búskaparár í Lundar og var
einn af helstu frammámönnum
þess byggðarlags.
Við félagsmál Vestur-Í slendinga
vann hann ötullega á mörgum
sviðum og var m.a. forseti Þjóð-
ræknifélags íslendinga í Vestur-
heimi um árabil, en lét af því
starfi í apríl 1984.
Sigtúni 9, sími 687701. ~
FURURUM
120x200 sm. Verð með dýnu kr. 14.400,--
150x200 sm. Verð með dýnu kr. 18.650,-.
Gauksi