Morgunblaðið - 04.12.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR4. DESEMBER1985
3
Þetta er dulbúin baun. Vlð köllum
hana JARÐHNETU af því að hún vex
ofan I jörðinni. Carter gamli ræktaði
heilmikið af þessum indælu hnetum.
Sennilega vegna þess að þær eru
fullar af eggjahvitu, steinefhum og
vítamínum. Úr jarðhnetum er hnetu-
smjörið unnið. Þetta er því hin gagn-
legasta baun!
VALHNETAN er upphaflega ættuð úr
Persíu og svæðum við Kaspíahaflð.
Hún er auðug af hollri oliu og ýmsum
steinefnum. Á dimmum, löngum
vetrarkvöldum er þjóðráð að draga
fram hnotubrjótinn og spá í skamm-
degið og skurnina...
HESLIHNETAN vex um alla Evrópu.
„Súkkulaði með hnetum" er búlð til
úr heslihnetum. Það er líka búið áður
en þú veist af. En heslihnetan er
næringarrik með endemum, auðug
af steineöium, kalki, jámi og E víta-
míni.
PEGAN-HNE'njRNAIt vaxa á háu tré
víðsvegar í Norður-Ameríku. Kjarni
þeirra líkist valhnetukj arna en
bragðið er allt öðruvísi. Nafnið er
komið úr indíánamáJi og þýðir „hörð
skel“. Núna hefur tekist að rækta
pecan-hnetur með mjúkri skel. Þú
ættir því að komast auðveldlega að
kjarnanum. Hann inniheldur A, B og
C vítamín og mörg steinefni.
RISTAÐAR PISTASÍUR eru mesta
hnossgæti. Þær eru pínulitlar, dýrar
en stútfullar af næringarefnum. Mið-
austurlensk matargerðarlist byggir
mikið á pistasíum. Þær eru líka
ómissandi i paté. Pistasíurnar eru
ræktaðar á Miðjarðarhafssvæðinu og
vinsælar um allan heim.
KASTANÍÖTRÉÐ er ein stærsta trjá-
tegund sem vex í Evrópu. Nafn sitt
dregur það af spænsku borginni Cast-
anis. Kastaníurnar eru gjarnan borð-
aðar ristaðar, einnig malaðar og jafn-
vel sykurhúðaðar að frönskum sið
„marron glacés“. í öllum góðum ev-
rópskum borgum má að vetrarlagi
sjá skemmtilega karla sem selja rist-
aðar kastaníur úr stórri kolapönnu.
SÓLBLÓMIÐ getur náð um 4 metra
hæð. Það er því ekki mjög hentugt I
blómvendi. Sólblómafræin eru hins
vegar einkar hentug I munni og
maga. Þau eru mjög næringarrík og
sólbómaolían er ein sú hollasta og
besta til matargerðar.
PAPAHNETAN vex villt. En ef þú vilt
parahnetu þýðir lítið að fara út í
skóg að tína. Parahneturnar vaxa
nefhilega 12—15 saman inni í ann-
arri hnetu sem líkist mjög kókos-
hnetu. Það er ekki fyrr en hneturnar
eru þroskaðar sem hnetan sú arna
fellur til jarðar. Ef þér flnnst þetta
ruglingslegt getur þú komið í Heilsu-
húsið, þvi við erum biiin að brjóta
málið ... til mergjar.
MÖNDLURNAR eru ættaðar úr litlu
Asíu. Núna vaxa þær í kringum Mið-
jarðarhaflð og vestur í Kaliforniu. í
þessum heimshlutum miða menn
vorkomuna ekki við lóima, heldur
bleik blóm möndlutrjánna. Olíablóm-
anna og mandlanna sjálfra er mikið
notuð í andlitskrem og sápur. Marsi-
panið gómsæta er líka búið til úr
möndlum.
CASHEW-HNETAN er af sígrænu tré
sem vex í Suður-Ameríku, Indlandi
og Afríku. Hún er eins og nýra í
laginu og mjög bragðmild. Þar sem
hnetan er fágæt og dýr, er oft ódýrara
að kaupa hnetubrot. Cashew-hnetan
er auðug af eggjahvítu, kalki og járni,
einnig A-vítamíni.
FURUHNETUR eru fengnar úr köngl-
um vissra furutegunda. Þær þarf að
geyma í nokkurn tíma til að losna
við terpentínubragðið. Sterkt furu-
bragð er þeirra sérkenni. Furuhnet-
urnar eru vinsælar í alls konar mat,
t.d. í bragðmikla hrísgrjónarétti. í
þeim er mikið af eggjahvítu, olíu og
steinefhum.
GRASKERSFRÆ hafa töluvert verið
Nú er Heilsuhúsið fúllt afhnetum.
Afgreiðslufólkið er í hátíðarskapi
og viðskiptavinirnir falla kylliflatir
Úrrir hverri freistingunnl af
annarri. 8umir kaupa kryddið i
Jólábáksturinn, aðrir ósvikna
kryddblöndu í glöggið. Margir
gera vettvangsrannsókn oghafa á
brott með sér jógúrt-húðaðar
rúsínur, kandís með þræði
og þurrkaða ávexti til hliðsjónar.
notuð til náttúrulækninga Þau eiga
rætur að rekja til Asíu og Ameríku.
í þeim er karótín, B-vltamín og mikið
af járni og sinki.
Er það nokkur hæfa að slíkt magn af
góðgæti fáist á elnum stað? Og það í
miðborg Reykjavíkur? Varla, en jólin eru
nú bara elnu sinni á ári. Þá er um að gera
að njóta lífsins eftir bestu getu,
gera vel við sjálfan sig og aðra.
Betri og hollari kveðju en
jólakörfu með góðgæti frá
Hellsuhúsinu getum við ekkl
hugsað okkur.
eilsuhúsið
Skólavörðustig 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.
ÖSA/SlA