Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
21
áskynja að norsku hjúkrunarfræð-
ingarnir sýni meiri viðleitni til
ábyrgðar í starfi en íslenskir „koll-
egar“ þeirra. Það skal þó tekið
sérstaklega fram að þar sem mér
er kunnugt um hafa norsku hjúkr-
unarfræðingarnir reynst bæði
duglegir, afar samviskusamir og
virðast færir í sinni grein.
íslenskar starfssystur þeirra og
bræður eiga sannarlega opinbert
lof skilið fyrir „þolinmæði og
umburðarlyndi" eins og þær
norsku orða það í grein sinni.
Það eykur umtalsvert álagið á
íslenskum hjúkrunarfræðingum
og þá jafnframt ábyrgðina að
þurfa að ganga vaktir, leiðbeina
og uppfræða, allt í senn nýja, er-
lenda hjúkrunarfræðinga á meðan
þeir erlendu eru að átta sig á
málinu, og komast inn í störf deild-
anna. Iðulega gegna þeir hlutverki
túlks líka. Þeir fá hvorugt, kaup-
hækkun né aukalega þóknun fyrir
það.
Annars er innflutningur á er-
lendum hjúkrunarfræðingum til
lausnar á hjúkrunarfræðinga-
skorti hér líkastur því að verið sé
að moka vandamálinu upp með
teskeið þar sem frekar ætti að
nota skóflu. Hjúkrunarfræðinga-
skortur hér á íslandi verður aldrei
leystur nema með því að fá ís-
lenska hjúkrunarfræðinga í stór-
auknum mæli til starfa, og til þess
að svo geti orðið þarf að 1) bæta
kjörin verulega 2) fjölga barna-
heimilisplássum fyrir hjúkrunar-
fræðinga 3) minnka vinnuálagið.
Verði ekkert að gert fæ ég ekki
séð annað en eitthvert hinna
þriggja sjúkrahúsa á höfuðborgar-
svæðinu verði búið að loka að ári
liðnu.
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hannesar Pálmasonar í Mbl. 27.
nóvember sl. var lyfjakostnaður
Borgarspitalans um 4% af heildar-
rekstrarkostnaði árið 1984 og
hjúkrunargögn rúm 5%.
í meðfylgjandi yfirliti frá dag-
gjaldanefnd sjúkrahúsa má sjá
hlutfallslega skiptingu kostnaðar-
liða þeirra sjúkrahúsa sem rekin
eru á daggjöldum. Þar má glögg-
lega sjá hversu lítið vægi lyf og
hjúkrunargögn hafa í heildar-
rekstrarkostnaði sjúkrahússins.
Mér sýnist því á öllu þessi
ummæli norsku hjúkrunarfræð-
inganna vera í líkingu við deilu
um keisarans skegg.
Höfundur er hjúkrunardeildar-
stjóri á skurðlækningadeild Borg-
arspílalans.
Tafla I
Vísitala sjúkrahússkostnaðar
1. janúar 1983 = 100,0
kostnadarliðir vægi
1. íaun, há 15,0
2. launhj.frœð. 18,0
3. BSRB-laun 21,0
4. ASÍ-laun 16,0
5. matvörur 5,8
6. hreinl.vörur 63
7. hiti/olía 1.0
8. raforka 1,0
9. póstur/sími 03
10. vidhald/tæki 4,7
11. lyfjavörur 53
12. annaö 5,0
samtals 100,0
Vísitölur
timabil tfmabil hækkun nýtt
des.'84 jan. '85 % vægi stig
163,6 160,6 -1,8 14.7 -03
166,7 166,7 0,0 18,0 0,0
166,7 166,7 0.0 21,0 0,0
169,2 173,9 2,8 16,4 0,4
232,2 244,2 53 6.1 03
184,3 196,3 6,5 6,9 0,4
226,5 235,0 3.8 1.0 0,0
190,6 214,2 12,4 / U 0,1
168,2 168,2 0,0 0,8 0,0
193,4 210,0 8,6 5.1 0.4
213,7 213,7 0,0 53 0,0
188,6 195,4 3,6 53 03
2.263,7 2.346,3 — 1013 13
Fjórða bindi ís-
lenskra sjávarhátta
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út fjórða bindi ritsins
fslenskir sjávarhættír eftir dr.
Lúðvík Kristjánsson, en fyrri
bindin komu út 1980, 1982 og
1983. Þetta nýja bindi er 546 bls.
að stærð og prýtt 469 myndum.
Sökum þess hve margar myndir
og teikningar verða i ritinu öllu,
eða hátt í tvö þúsund, reyndist
eigi unnt að Ijúka því með þessu
bindi eins og gert hafði verið ráð
fyrir og ef ekkert fer úrskeiðis
kemur lokabindið út á næsta ári
segir í fréttatilkynningu Menning-
arsjóðs.
Meginkaflar þessa fjórða bind-
is af lslenskum sjávarháttum bera
eftirtaldar fyrirsagnir: Beita og
beiting, Veiðar með handfæri,
Veiðar með lóð og þorskanetum,
Lending — uppsetning — fjöru-
burður, Skiptivöllur — aflaskipti,
Landlegur, Vergögn, Hagnýting
fiskifangs, Þorskhausar og Skreið-
arferðir og fiskifangaverslun.
Ennfremur hefur bókin að
geyma myndaskrá, heimilda-
skrá, atriðisorðaskrá, eftirmála
og efnisútdrátt á ensku þýddan
af Jeffrey Cosser. Teikningar
hefur Bjarni Jónsson listmálari
gert nær allar, en nokkrar eru
eftir Hörð Kristjánsson, Guð-
mund P. ólafsson og Karl Gunn-
arsson. Kort hefur Guðmundur
Ingvarsson gert. Langflestar
ljósmyndanna hefur Björn Rúr-
iksson tekið.
Prentsmiðjan Oddi annaðist
setningu, litgreiningu, filmu-
vinnu, prentun og bókband ís-
lenskra sjávarhátta IV, Guð-
mundur P. ólafsson hönnun
Dr. Lúðvík Kristjánsson
kápu, saurblaða og bókbands, en
Guðni Kolbeinsson og Sigurgeir
Steingrímsson umbrot og útlit
hið innra, ritstjórn, prófarka-
lestur og samningu atriðisorða-
skrár ásamt konum sínum, Lilju
Bergsteinsdóttur og Helgu
Gunnarsdóttur. Vésteinn Lúð-
víksson rithöfundur las fyrstu
próförk og samanburð við hand-
rit með höfundi.
Svörin við þessum spurningum og 5.994
til fáiö þið í spurningaleiknum
TRIVIAL PURSUIT
Útsölustaðir:
Reykjavík:
Hjá Magna, Laugavegi 15.
Ástund, Austurveri, Háaleitisbraut 86,
Bókabúö Breiöholts, Arnarbakka 2.
Bókabúö Fossvogs, Grimsbæ.
Bókabúö Jónasar, Rofabæ 7.
Bókabúö Safamýrar, Háal.br 58-60.
Bókabúö Æskunnar, Laugavegi 56.
Bókabúöirt Álfheimum 6.
Bókaversl. isafoldar, Austurstræti 10.
Frimerkjamiöst., Skótavöröustig 21a.
Griffill, Síöumúla 35.
Hólasport, Hólagaröi, Lóuhólum 2-6.
Leikfangahúsiö, Skólavörðustíg 10.
Leikf.versl. Smáfólk, Austurstræti 17.
Liverpool, Laugavegi 18a.
Penninn, Hafnarstræti 8.
Penninn, Hallarmúla 2.
Skákhúsió, Laugavegi 46.
Tómstundahúsiö, Laugavegi 164.
Völuskrín, Klapparstíg 26.
Akureyrl:
Amaró.
Bókabúö Jónasar.
Akranes:
Bokaverslun Andrésar Níelssonar hf.
Borgarnes:
Bókabúö Grönfeldts.
Dalvík:
Bókaverslunin Sogn.
Grindavík:
Bókabúö Grindavikur:
Garöabær:
Bókaverslunin Gríma.
Hafnarfjöröur:
Bóka. Olivers Steins. Strandg. 31.
Búsáhöld og leikföng, Strandg. 11-
13.
Leikbær, Reykjavíkurvegi 50.
Hella:
Kaupfélagið Þór.
Húsavík:
Bókaverslun Þórarins Stefánssonar
Hverageröi:
Blómaborg.
ísafjörður.
Bókaverslun Jónasar.
Keflavík:
Bókaverslun Keflavíkur.
Nesbók.
Kópavogur:
Veda, Hamraborg 5.
Neskaupstaöur:
Bókaverslun Brynjars Júliussonar.
Sandgeröi:
Aldan
Sauóárkrókur:
Bókafbúð Brynjars.
Selfoss:
Höfnhf.
Seyöisfjörður:
Bókaverslun A. Bogasonar og
E. Sigurössonar.
Siglufjörður:
Gestur Fanndal.
Stykkishólmur:
Kaupfélag Stykkishólms.
Vestmannaeyjar:
Bókabúóin, Heiöarvegi 9.
Þorlákshöfn:
Bóka- og gjafabúöin.
„Trivial Purauit“ er akrásett vörumerki. Dreifing á íslandi
Eakifell hf., s. 36228.
Leikur frá Hom Abbot. Gefinn út með leyfi Hom Abbot Intl. Itd.
I inm, Tobbi og Kolbeinn vita vel að safnast
þegar saman kemur. Tinnasparibaukurinn fæst aðeins
hjá okkur.
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna