Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og Davíð Oddsson, borgarstjóri, ásamt fleiri gestum við opnum Kjar-
valssýningarinnar.
Kjarvalsstaðir:
21.000 manns hafa séð
Kjarvalssýninguna
ALLS hafa tuttugu og eitt þúsund
manns séð sýninguna á Kjarvals-
stöðum sem sett var upp í tilefni
aldarafmælis Jóhannesar S. Kjar-
vals. Fjöldi skólabarna hefur
komið í fylgd kennara og hefur
verið stöðugur straumur gesta frá
kl. 9 á morgnana til kl. 22.00.
Á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um eru um 200 málverk og teikn-
ingar sem spanna yfir 70 ára
feril Kjarvals. Flest verkin eru
fengin að láni frá einkaaðilum. Á
sýningunni eru einnig ýmsir
munir úr fórum listamannsins
svo sem bréf, bækur, málaradót
o.fl.
í fundarsal er sýndur mynd-
bandsþáttur um Kjarval.
Sýningin er opin frá kl.
14.00-22.00. Henni lýkur 15.
desember.
(Fréttatilkynning)
Innganga Spánar og Portúgal
í Eyrópubandalagið:
Akvörðun um tolla á
saltfiski enn ekki tekin
BRUSSEL, 2. desember. Frá Önnu Bjarnadóttur. fréttaritara Morgunblaðsins.
Evrópubandalagið hefur enn ekki
tekið endanlega ákvörðun um inn-
flutningstolla á saltfiski eftir að
Spánn og Portúgal ganga í banda-
lagið um áramótin. Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneytinu, sat samninga-
fund um viðbótarsamning við Ev-
rópubandalagið um fríverzlunarmál
í dag. Hann sagði að fulltrúar
bandalagsins hefðu ekki getað svar-
að spurningum um saltfisktollamál-
in af því þeir vissu hreinlega ekki
hvað yrði ofan á í þeim efnum.
Það var ákveðið á fundinum að
óbreytt ástand myndi gilda fyrstu
tvo mánuði ársins á meðan Ev-
rópubandalagið gerir viðbótar-
samninga við hvert land vegna
inngöngu landanna tveggja. Stað-
fest var að sömu reglur munu gilda
um innflutning á flestum sjávaraf-
urðum til landanna og til annarra
Evrópubandalagslanda eftir inn-
göngu þeirra. Þessar reglur ná
ekki til saltfisks og Þórhallur
sagði, að það væri íslendingum og
öðrum saltfiskútflytjendum mikið
áhyggjuefni ef 25.000 tonna kvóti
tekur gildi og allt að 13% inn-
flutningstollur verður settur á
saltfisk og 20% á saltfiskflök, sem
flutt eru til Spánar og Portúgal.
SVFI gefur út upp-
lýsingar með korti af
fiskveiðilandhelginni
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra afhenti Slysavarnafé-
lagi íslands kort af fiskveiðiland-
helgi íslands með margvíslegum
upplýsingum um hafið umhverfis
landið og lífríki þess.
Slysavarnafélagið selur kortið á
kr. 750,- til ágóða fyrir starfsemi
sína. Einnig voru gefin út 200 tölu-
sett innrömmuð kort, árituð af
sjávarútvegsráðherra. Enn eru til
nokkru slík kort og kosta þau
10.000 krónur.
f fréttatilkynningu frá Slysa-
varnafélaginu segir að talsvert
hafi verið um að menn hafi sent
vinum og viðskiptavinum erlendis
kortið að gjöf. Þess vegna hefur
félagið látið gera fjórblöðung með
lýsingu á kortinu á dönsku, ensku
og þýsku auk íslensku. Þar er
einnig stutt samantekt um starf-
semi SVFÍ.
SVFÍ lætur einnig í té sérstaka
hólka í gjafapappír utan um kort-
in.
Ráðstefnan um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum:
Ekkert ákveðið um frekara
samstarf norrænna þingmanna
— segir Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis
ENGAR ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um frekara samstarf þeirra aðila,
sem stóðu að ráðstefnunnni í Kaup-
mannahöfn um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum.
Ráðstefnan var haldin á föstu-
dag og laugardag í fyrri viku og
■sóttu hana þingmenn frá öllum
Norðurlöndunum, þ.á m. átta al-
þingismenn. Að sögn Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar, formanns utan-
ríkismálanefndar alþingis, var
fyrirfram gengið frá því, að þar
yrðu engar samþykktir gerðar um
málið, heldur væri ráðstefnan
aðeins vettvangur umræðna.
Eyjólfur Konráð sagði, að í ræðu
sinni á ráðstefnunni hefði hann
gert grein fyrir samþykkt alþingis
sl vor um stefnu íslendinga í af-
vopnunarmálum. Þar er hvatt til
þess að könnuð verði samstaða um
og grundvöllur fyrir samningum
um kjarnorkuvopnalaust svæði í
Norður-Evrópu. Hann kvaðst hafa
Eyjólfur Konráð Jónsson
lagt á það áherslu, að samningar
um kjarnorkuvopnalaust svæði
gætu ekki einskorðast við Norðurl-
öndin, heldur yrðu þeir einnig að
Fjármálaráðuneytið:
Óskar eftir frestun á nauðungar-
uppboði í Þörungavinnslunni
Fjármálaráðuneytið hefur óskað
eftir að nauðungaruppboði, sem
fram átti að fara á Þörungavinnsl-
unni á Reykhólum í byrjun desemb-
er, verði frestað um tvo mánuði.
AÐ sögn Höskuldar Jónssonar,
ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu-
•0
INNLENT
neytinu, byggist ósk ráðuneytisins
á því að ríkisábyrgð er á atelkröf-
unum á hendur fyrirtækiau og því
hagsmunir rikissjóðs að forða
fyrirtækinu frá meira tjóni en
ástæða sé til. Viðræður hafi ataðið
yfir við félag manna úr Austur-
Barðastrandarsýslu auk þess sem
sænskir aðilar hafi sýnt áhuga á
rekstri verksmiðjunnar. Ekki hafi
enn verið kannað til hlítar hvað
fælist í tilboði hinna sænsku aðila
eða hvort hægt verði að mynda
félag þessara beggja aðila. Því
hafi ráðuneytið óskað eftir því að
ekkert verði aðhafst í uppboðsmál-
um fyrr en í byrjun febrúar næst-
komandi.
taka til hluta af Austur-Evrópu
og Sovétríkjanna. Hann sagði, að
ýmsir norrænir þingmenn hefðu
verið þessu sjónarmiði fylgjandi
og sænskir þingmenn t.a.m. lagt
áherslu á að hugsanleg friðlýsing
næði til Eystrasalts.
„Efst í huga þakk-
læti til leitarmanna“
— segir Viggó Már Eiríksson, 20 ára, sem lenti
í hrakningum á Hellisheiði eystri um helgina
„MÉR ER EFST í huga þakklæti til allra leitarmanna“, sagði Viggó
Már Eiríksson, 20 ára frá Hólmatungu í Jökulsárhlíð í samtali við
Morgunblaðið. Viggó lenti í hrakningum á Hellisheiði eystri sl. laugar-
dag er hann var þar einn á ferð á vélsleða. Villtist hann af leið þegar
skyndilega gerði vonskuveður og tók þá til bragðs að grafa sig í fönn.
Lét hann þar fyrirberast uns leitarmenn úr nærliggjandi sveitum fundu
hann heilan á húfí um tvöleytið á sunnudag.
Viggó sagðist svo frá: „Eg lagði ég að bíða eftir að veðrinu slotaði
af stað frá Hólmatungu um
fimmleytið á laugardag og ætlaði
yfir Hellisheiði í Vopnafjörð þar
sem félagar mínir biðu mín í bíl
norðan við heiðina. Ég reiknaði
með að verða tvo til þrjá tíma á
leiðinni enda hef ég oft farið
þessa leið á vélsleða. Heiðin
reyndist hins vegar vera illfær
og ákvað ég að skilja snjósleðann
eftir neðarlega í heiðinni og fara
fótgangandi. Fljótlega eftir að ég
var kominn upp á heiði gerði
vitlaust veður. Eg sá ekki handa
minna skil, tapaði alveg áttum
og lenti út af leiðinni sem ég er
vanur að fara.
Klukkan var farin að ganga tvö
um nóttina og sá ég mér þann
kost vænstan að grafa mig í fönn
efst í Jökuldalnum, sem er dal-
verpi út úr Fagradal. Þar ætlaði
og snúa svo til baka sömu leið
og ég kom. Vinir mínir biðu til
miðnættist í bílnum norðan heið-
arinnar en þóttust þá vissir um
að ekki væri allt með felldu og
gerðu lögreglunni viðvart. Ég var
ekkert illa haldinn þarna í snjón-
um, var vel búinn og fann lítið
fyrir kulda. Hins vegar fannst
mér tíminn lengi að líða og var
að vonum feginn þegar ég heyrði
í leitarmönnunum. Mig langar til
að nota tækifærið og þakka öll-
um þeim sem tóku þátt í leit-
inni“, sagði Viggó Már Eiríksson.
Þorvaldur Jóhannesson, sýslu-
fulltrúi á Seyðisfirði var meðal
þeirra sem stjórnuðu leitinni og
sagði hann að leitarmenn hefðu
verið alls um 70 talsins. „Laust
upp úr miðnætti á laugardag var
farið að undrast um piltinn og
lögðu menn frá Jökulsárhlíð af
stað til að svipast um eftir hon-
um“, sagði Þorvaldur. „Fundu
þeir brátt vélsleðann og slóð frá
honum sem hvarf fljótlega. Voru
þá kallaðar út björgunarsveitir
frá Vopnafirði, Jökuldal, Egils-
stöðum, Neskaupsstað og Seyðis-
firði. Leitað var fram eftir nóttu
en vonskuveður gerði leitina
mjög erfiða og var gert nokkurt
hlé á henni yfir hánóttina.
í morgunsárið voru skipulagð-
ar frekari aðgerðir og talið ráð-
legt að fá senda leitarhunda frá
Björgunarsveitinni Ingólfi og
Hjálparsveit skáta fyrir sunnan.
Flugmálastjórn brást vel við
beiðni okkar og var flugvél með
leitarliðið innanborðs farin í
loftið þegar pilturinn fannst í
Jökuldal um tvöleytið. Hafði
hann stungið vasaljósi efst í
snjóskaflinn til að vekja á sér
athygli. Var hann nokkuð blaut-
ur en hresstist fljótlega eftir að
hann var komin í þurrt", sagði
Þorvaldur Jóhannesson að end-
ingu.