Morgunblaðið - 04.12.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
29
Vestfirskir trillukarlar mótmæla:
Kvótakerfið heftir eðlilegt
athafnafrelsi sjómanna
TRILLUKARLAR á sunnanverftum
Vestfjörftum telja kvótakerfift hefta
eðlilegt athafnafrelsi sjómanna.
Þetta kemur fram í ályktun, sera
samþykkt var í stofnfundi svæftis-
deildar Landssambands smábáta-
eigenda í V-Barftastrandarsýslu á
Patreksfirfti 24. nóvember.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Mótmælt er þeirri aðferð við
leyfisveitingar er kallast kvóta-
kerfi. Það er álit sjómanna á
Vestfjörðum, að af fenginni
reynslu leiði kvótakerfið einungis
til meiri miðstýringar er jafn-
framt hefti mjög eðlilegt athafna-
frelsi sjómanna. Sem dæmi um
afleiðingar þessa kerfis má nefna
að það skuli viðgangast að óveidd-
ur fiskur skuli ganga kaupum og
sölum milli manna. Jafnframt skal
á það bent, að með mjög bættum
lífsskilyrðum í sjónum hefur orðið
vart við fisk innfjarða í auknum
mæli. Mótmælt er þeirri ráðstöfun
stjórnvalda að leyfa úthafsveiði-
skipum veiðar í dragnót inná fló-
um og fjörðum Vestfjarða.“
Formaður svæðisdeildarinnar er
Gísli Þór Þorgeirsson á Patreks-
firði en aðrir stjórnarmenn eru:
Hlynur Björnsson Bíldudal, Viðar
Stefánsson Tálknafirði, Marteinn
Gíslason Tálknafirði og Aðal-
steinn Gíslason Patreksfirði.
Morffunblaðiö/Sigurgeir
Björgunartækin sýnd.
Vestmanneyjar:
Skátar sýndu útgeröarmönnum
og sjómönnum björgunarbúnað
Vestmannaeyjum, 28. nóvember.
UM síðustu helgi boðaði Hjálpar-
sveit skáta í Vestmannaeyjum út-
gerðarmenn og sjómenn á sinn fund
Norðmenn
sólgnir í
íslenzkan
í nýja skátaheimilift vift Faxastíg.
Þar kynntu skátarnir margvíslegan
neyftar- og björgunarbúnað sem þeir
hafa á boðstólum. Skátarnir sýndu
m.a. blys og rakettur, einnota línu-
byssur, Ijósabaujur fyrir gúmmí-
björgunarbáta og ýmiskonar sjúkra-
gögn, súrefnistæki og álbúninga.
Eftir sýninguna í skátaheimil-
inu var haldið út á Skans þar sem
skátarnir sýndu notkun búnaðar-
ins. Fjölmargir útgerðarmenn og
sjómenn sóttu þessa sýningu og
lefu vel yfir þessu góða framtaki
Hjálparsveitarskáta. —hkj.
harðfisk
BÓAS Emilsson á Selfossi hefur á
undanförnum misserum flutt út á
aðra lest af bitafiski til Noregs. Fær
hann þar um 900 krónur fyrir hvert
kfló, en um 1.100 hér heima. Harð-
fiskurinn er seldur ytra á 86 krónur
hver 45 gramma pakki, en sambæri-
leg pakkning hér kostar 65 til 70
krónur. Auk þess selur hann lítils
háttar af harðfiski til Færeyja.
Bóas sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að það væri ánægjulegt að
hafa náð þeim árangri að selja
Norðmönnum harðfisk, en þeir
hertu einnig fisk sjálfir. Hann
væri nú búinn að gera samning
um sölu á 150 kílóum mánaðarlega
til Noregs og taldi líklegt að það
ykist upp í 400 kíló upp úr áramót-
um. Hins vegar fyndist sér súrt í
broti, að opinberar lánastofnanir
sæju enga ástæðu til að lána fé til
að vinna markaði sem þessa, en
slíkt fyrirtæki væri bæði dýrt og
tímafrekt. Þá fyndist sér einnig
hart að þurfa að greiða útflutn-
ingsgjöld, 5,5%, af þessari vöru.
Það samsvaraði því, að hann þyrfti
að greiða 50 krónur fyrir hvert
kíló, sem hann flytti utan, en þeir,
sem flyttu fisk utan í gámum
þyrftu aðeins að borga 1 til 2 krón-
ur á hvert kíló.
„Ég hef fengið fyrirspurnir um
bitafiskinn frá Kanada, Banda-
ríkjunum og Egyptalandi svo
nokkur lönd séu nefnd. Ennfremur
hafa Norðmenn beðið mig að
kenna sér þessa verkunaraðferð,
en ég held ég þrauki heldur hér
heima, þrátt fyrir skilningsleysi á
möguleikunum, sem í þessu felast,"
sagði Bóas Emilsson.
Vestmannaeyjar:
Fjölmenni á orkunýtingarsýningu
VeHtmannaeyjum, 28. nóvember.
GÓÐ aðsókn var að orkunýtingar-
sýningu sem iðnaðar- og félags-
málaráðuneytin stóðu sameigin-
lega að í húsnæði framhaldsskól-
ans um síðustu helgi. Sýning þessi
hefur farið vítt og breitt um landið
að undanlornu en á heni sýna og
kynna mörg fyrirtæki ýmiskonar
búnað og tæki til orkusparnaðar í
íbúðarhúsum. Auk fyrirtækja ofan
af landi voru nokkur fyrirtæki úr
Eyjum með sýningarbása, Ld.
Fjarhitun og Rafveita Vestmanna-
eyja.
Orkusparnaðarátak ráðuneyt-
anna beinist að upplýsingastarfi,
efldri tækniþjónustu og lánafyr-
irgreiðslu við eigendur íbúðar-
húsa á dýrum orkusvæðum.
Starfsemin nær til þeirra þátta
sem snerta hagkvæma nýtingu
og orkusparnað í íbúðarhúsnæði
eins og t.d. einangrun, fjölföldun
glers og breytinga á hitakerfum.
A sýningunni var dreift margvís-
legum bæklingum um alla þessa
þætti og boðið var uppá ráðgjöf.
Þá voru og kynntir þeir mögu-
leikar sem bjóðast á lánum vegna
orkusparandi framkvæmda og
endurbóta. Sýningin var opin í
tvo daga og sem fyrr er sagt var
góð aðsókn að henni, greinilegt
að Eyjabúar höfðu áhuga á þess-
um málum.
—hkj.
Gestir á orkunýtingarsýningunni í Vestmannaeyjum.
Morgunbladið/Sigurgeir
"STRÍÐ OG SÖNGU R
Matthías Viöar Sœmundsson
—Hispurslaus frásögn
litríkra listamanna
Sex íslensk skáld lýsa viðhorfum
sínum til lifs og dauða, trúar, ástar og
listarog rekja leið sína til skáldskapar.
Skáldin rekja þá reynslu sem þeim er
minnisstæðust og haft hefur dýpst
áhrif á þroska þeirra og lifsviðhorf.
Þau eru öll fædd milli stríða og tóku
út þroska sinn á miklum umbrota-
tímum í sögu þjóðarinnar. Hér er
margt látið fjúka sem fæstum er áður
kunnugt.
Guðrún Helgadóttir Álfrún Gunnlaugsdóttir
Thor Vilhjálmsson Indriði G. Þorsteinsson
Þorsteinn frá Hamri Matthías Johannessen
Verð kr. 1.280.00.
FORLAGIÐ
FRAKKASTÍG 6A. SÍMI9I-25I88
4>