Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
Afríka:
Verður þurrkur í
50 ár til viðbótar?
AFRÍKUBUAR verða að búa sig undir þurrkatíð til ársins 2040 — og
stórfelldan flóttamannastraum frá þurrkasvæðunum, sagði veðurfræð-
ingur á ráðstefnu, sem nýlega var haldin í London, en þar var aðallega
rætt um landfræðilegar ástæður þurrkanna í Afríku.
þurrkasvæðunum og gera áætlun
um að jafna flóttafólkinu niður
á löndin.
Maurice Strong, forstöðumað-
ur Afríkuhjálpar Sameinuðu
þjóðanna, sagði í Genf, að vegna
rigninganna undanfarið hefðu
horfur nú batnað i vissum hlut-
um álfunnar. Þó ríkti enn sultur
hjá a.m.k. 25 milljónum manna
og áfram væri þörf á umfangs-
mikilli neyðarhjálp.
— í ársbyrjun herjaði hung-
ursneyðin á 35 milljónir manna,
sagði hann. Löndin, sem þurfa
að njóta áframhaldandi aðstoð-
ar, eru Angola, Botswana, Græn-
höfðaeyjar, Eþíópia, Lesotho,
Mozambique og Súdan.
Samkvæmt skýrslu, sem
Strong kynnti, var von til, að
vegna umtalsverðrar úrkomu, í
fyrsta sinn í fimm ár, fengist góð
uppskera í Burkina Faso, Chad,
Mali, Mauritaníu og Nígeru.
— Það er eins gott að vera
viðbúinn hinu versta í þessu efni,
sagði sérfræðingurinn, Hubert
Lamb, prófessor við veðurfars-
rannsóknadeild East Anglia-
háskólans.
Hann spáði því, að þurrkarnir,
sem þjakað hafa tugmilljónir
íbúa í löndunum sunnan Sahara
frá því á sjöunda áratugnum,
mundu vara í a.m.k. 50 ár til
viðbótar.
Lamb sagði, að regnsvæði
staövindabeltisins við miðbaug
færðust suður á bóginn á tveggja
alda fresti, og hefði það í för
með sér, að úrkoma yrði bæði rýr
ogótrygg.
Frá árinu 1965 hefur úrkoman
þar verið minni en í meðallagi,
og hið langæja þurrkatímabil
náði hámarki á síðasta ári, sem
var hið versta í mannaminnum.
Lamb hvatti stjórnvöld í Afr-
íkulöndum til að búa sig undir
stórfelldan fólksflótta frá
Sveltandi íbúar Afríku mega bú-
ast við þurrki næstu 50 árin, að
áliti bresks veðurfræðings.
Suður-Kórea:
Lögðu undir sig
bandaríska menn-
ingarmiðstöð
Seoul, Suóur-Kóreu, 2. desember. AP.
HÓPUR suður-kóreskra stúdenta
lagði í dag undir sig skrifstofur
bandarískrar menningarmiðstöðvar
í borginni Kvangju í Suður-Kóreu,
um 320 km fyrir sunnan Seoul.
Að sögn bandarískra sendiráðs-
manna í Seoul eru stúdentarnir
níu talsins frá þremur háskólum,
og hafa þeir hótað að kveikja í
húsinu.
Lögregla kom strax á vettvang
og heldur vörð fyrir utan bygging-
una. Menningarmiðstöðin er hluti
af bandaríska sendiráðinu og mega
lögreglumennirnir því ekki fara
inn í húsið, nema stjórnvöld í
Bandaríkjunum fari fram á það.
Stúdentarnir hrópuðu slagorð á
móti Bandaríkjunum og „harðýðg-
isstjórn" Chun Doo-Hwan forseta.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa
undanfarið kvartað yfir „verndar-
stefnu" Bandaríkjastjórnar á við-
skiptasviðinu á sama tíma og farið
sé fram á greiðari aðgang að suð-
ur-kóreskum markaði.
Chagall-málverk selt
á 734 þúsund pund
Sýrland lýsir yfir
London, 3. desember. AP.
Olíumálverkið „La chambre
jaune“ (Gula herbergið) eftir hinn
þekkta málara Marc Chagall var
selt á uppboði í London á dögunum
fyrir 734 þúsund sterlingspund, sem
er hæsta verð er fengist hefur fyrir
Chagall-mynd. Chagall, sem fæddur
var í Rússlandi, málaði myndina
1911 er hann var búsettur í París.
Það var banki í Bandaríkjunum,
Citibank, sem keypti myndina. Á
uppboðinu seldust einnig málverk
af blómum eftir Henri Fantin—
Latour á 486 þúsund pund og
landslagsmálverk eftir Henri
Matisse á 453 þúsund pund.
Suður-Afríka:
stuðníngí víð Líbýu Neyðarástandi
aflétt í átta
héruðum landsins
DamjLskuN, 3. desember. AP.
ASSAD, forseti Sýrlands, hefur
lýst yfir stuðningi við Khadafy,
leiðtoga Líbýu, og fordæmt þá
sem hafa í undirbúningi innrás í
landið. Varaforseti Sýrlands
sneri aftur frá Trípólí í gær, þar
sem hann afhenti þar bréf þessa
efnis. Ekki var frá því sagt í
bréfinu hvaða land það væri sem
hyggði á innrás í Líbýu, en
Líbýjumenn ásökuðu í gær
Bandaríkin og Egyptaland fyrir
að hafa innrás í undirbúningi.
Egyptar hafa ásakað Khadafy
fyrir að hafa undirbúið ránið á
egypsku þotunni fyrir rúmri viku
síðan, þar sem yfir 59 farþegar
létu lífið, en samskipti landanna
hafa verið stirð frá því að landa-
mærastríð braust út árið 1977.
Það stóð í sex daga.
Þá hófust í dag viðræður
Egypta, ísraela og Bandaríkja-
manna um deilur um landamæri
á Sínaí-skaga, sem Egyptar segja
að séu forsenda bættra samskipta
ísraels og Egyptalands. Egyptar
höfðu frestað viðræðunum vegna
loftárásar ísraelsmanna á höfuð-
stöðvar skæruliðahreyfingar Pal-
estínuarba í Túnis 1. október síð-
astliðinn.
„Ljóðid er hryllileg
ambögusmíð“
Deilt um ljóð eignað Shakespeare
Sunford, Kaliforníu, 3. desember. AP.
SKRIFAÐI Shakespeare Ijóðið, sem
fannst á háskólabókasafninu í Ox-
ford, eður ei? Það er spurningin.
Og um hana deildu tveir fræðimenn
á mánudag, annar í Oxford, hinn í
Stanford í Bandaríkjunum.
Gary Taylor, bókmenntafræð-
ingur í Oxford, fann ljóðið og lýsti
í nóvemberlok yfir því að þar hefði
Svanurinn frá Avon verið að verki.
Ronald Rebholz, prófessor í ensku
við háskólann í Stanford er á
öndverðum meiði: „Ljóðið er
hryllileg ambögusmíð og örugg-
lega ekki eftir Shakespeare." Reb-
holz þessi hefur kennt Shakespe-
are í hartnær aldarfjórðung og
segir þau rök, sem Taylor færir
að máli sínu, hvorki sanna eitt né
neitt: „Honum hefur aðeins tekist
að sannfæra sjálfan sig og ljóðið
er hræðilegt, andstyggilegt."
En hvað hefur Taylor um málið
að segja? „Ég bið kollega mína
aðeins um að sýna biðlund þar til
þeir fá séðar sannanir þær, sem ég
GENGI
GJALDMIÐLA
Loodon, 3. desember. AP.
Bandaríkjadollar hækkaði nokk-
uð í gær er fjörkippur kom í gjald-
eyrisviðskipti eftir að hagtölur okt-
óbermánaðar höfðu verið birtar op-
inberlega í Bandaríkjunum. Gull
hækkaði í verði.
í Tókýó kostaði dollarinn 203.90
jen er gjaldeyrirsmarkaðir lokuðu
í gærkvöldi en kostaði 202.70 jen
á mánudag. í London kostaði doll-
arinn 204.60 jen. Sterlingspundið
kostaði 1.4830 dollara en kostaði
1.4855 dollara á mánudag. Gengi
annarra helstu gjaldmiðla var
þannig að fyrir dollarann fengust:
2.5300 vestur—þýsk mörk (2.5143)
2.1115 svissneskir frankar (2.0892)
7.7225 franskir frankar (7.6525)
2.8495 hollensk gyllini (2.8220)
1.725.50 ítalskar lírur (1.710.50)
1.3914 kanadískir dollarar (1.3900)
Jóhanne8arborg, 3. desember. AP.
NEYÐARÁSTANDI hefur verið af-
létt í átta af þeim 38 borgum og
bæjarfélögum, þar sem því var upp-
haflega lýst yfir og sagði P.W. Bot-
ha, forsætisráðherra, við það tæki-
færi að ókyrrð í hverfum svartra
væri óðum að minnka.
Fyrr um daginn höfðu tugir
syrgjenda safnast saman á fót-
boltavelli við útför tólf blökku-
manna, þar á meðal fjögurra mán-
aða gamals barns, sem lést í síð-
asta mánuði, er átök milli mann-
fjölda og lögreglu brutust út.
Flest hverfin þar sem neyðar-
ástandinu var aflétt eru fremur
smá. Botha aflétti í október neyð-
arástandi í sex bæjarfélögum, en
neyðarástandinu var lýst yfir 21.
júlí í sumar. Þegar það var víð-
tækast náði það yfir allt Höfða-
borgarsvæðisins og nær níu millj-
óna manna, sem er um þriðjungur
mannfjöldans í landinu.
hef máli mínu til stuðnings. Stan-
fordmaðurinn getur varla sagt að
sannanirnar séu engar, þegar hann
hefur ekki séð þær. Ég mun birta
sannanir fyrir máli mínu í New
York Times Rewiew of Books eftir
tvær vikur."
Rebholz sagði að ljóðið væri
„samansett úr klisjum" og skráð í
ljóðasafn eftir ýmsa höfunda árið
1630 af óþekktum skriffinni. „Tayl-
or segir að líkingarnar í ljóðinu
séu undanfari svipaðra líkinga
Shakespears í Rómeó og Júlíu, en
slíkar líkingar voru hverjum bögu-
bósa, sem orti á þessum tíma,
öldungis tungutamar."
„Hverjum miklum skáldjöfri er
skömm af því að svo klunnalegum
skáldskap sé bætt í ritsafn hans.
Og ljóðið er vont, það er hræði-
legt," segir Rebholz.
En við skulum minnast þess að
þegar gagnrýnendur deila gleðjast
skáldin.
Flugránið:
Gríski farþeginn var
neyddur til samstarfs
við flugræningjana
ValletU, Möltu, 3. desember. AP.
AÐ SÖGN yfirvalda á Möltu
neyddu flugræningjarnir gríska
farþegann, sem grunaður hefur
verið um aðild að flugráninu, til
að aðstoða sig og flugstjórinn
því talið hann í vitorði með
ræningjunum fyrir misskilning.
Paul Mifsud, talsmaður ríkis-
stjórnar Möltu, sagði að vitnis-
burður farþega lciddi í Ijós að
Grikkinn hefði verið neyddur til
að safna saman vegabréfum og
færa ræningjunum mat.
Flugstjórinn, Hani Galal, hafur
sagt í blaðaviðtali að flugræningj-
arnir hefðu verið fimm, en Mifsud
segir þá fullyrðingu augljóslega
byggða á þeim misskilningi að
Hani hafi talið Grikkjann í vit-
orði með ræningjunum.
Haft er eftir heimildum á Möltu
að egypska víkingasveitin hafi
notað óþarflega mikið magn
sprengiefnis við að sprengja sér
leið inn í þotuna og sé „mjög lík-
legt" að eldsvoðinn í vélinni hafi
orðið af þeim sökum.
Veður
víða um heim
Lavgst Hntl
Akureyri 0 úrkoma
Amsterdam 5 13 tkýjað
Aþens 9 19 heióskirt
Barcelona 13 þokum.
Ðerlín 5 12 skýjaó
BrUtsel 3 14 skýjeó
Chicago +11 +8 snjókoma
Oublín 7 12 tkýjað
Feneyjar Frankfurt 2 10 skýjaó
Genf +2 14 tkýjaó
Heltinki +18 +13 heiðtkírt
Hong Kong 19 23 heiótkirf
Kaupmannah. 2 5 tkýjaö
Littabon 14 23 tkýjaó
London 13 14 skýjað
Lot Angeles 12 13 tkýjað
Lúxemborg 12 skýjaó
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Miami 23 29 tkýjaö
Montreal +2 7 tkýjað
Moskva +16 +8 heióikírt
New York 0 13 tkýjaó
Otló +4 +4 skýjað
Partt 10 16 skýjað
Peking +5 6 heióskírt
Reykjavík +1 léttskýjaó
Ríó de Janeiro 18 29 skýjað
Rómaborg 2 9 heióskírt
Stokkhólmur +2 3 rignino
Sydney 16 22 heiótkirt
Tókýó 5 15 heióskírt
Vinarborg 2 12 heióskirt
Þórshðfn 5 rigning