Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.12.1985, Blaðsíða 33
Gullpeninga- slátta f Banda- ríkjunum Washington, 3. desember. AP. BANDARÍSKA þingið afgreiddi sl. mánudag lög sem heimila að gullpen- ingar verði slegnir og seldir í landinu. Verður um að ræða 50 doll- ara pening, 25 dollara, 10 og fímm og verður verðgildið ekki bundið við nafnverð, heldur mun gullverðið ráða gengi þeirra. „Bandaríkjamenn, sem vilja kaupa gullpeninga, munu nú ekki lengur þurfa að kaupa útlenda peninga," sagði Frank Annunzio, þingmaður demókrata og formaður einnar nefndarinnar, sem málið heyrði undir. Bandarísku gullpeningarnir koma ekki á almennan markað fyrr en 1. október á næsta ári og er það gert til að spilla ekki fyrir sölu Frelsisstyttupeninganna. Hagnað- urinn af þeirri sölu fer til að kosta mikla viðgerð og endurbætur á styttunni. Bandariskir gullpening- ar til almennrar dreifingar hafa ekki verið slegnir í 52 ár. Búist er við, að safnarar og fjárfestendur muni sækjast mest eftir peningun- um en hagnaðinum af sölunni á að verja til að greiða niður skuldir ríkisins. Þegar Reagan forseti bannaði sölu suður-afrískra Krugerrand- gullpeninga fór hann fram á það við fjármálaráðuneytið, að athuguð yrði útgáfa bandarískra guilpen- inga í staðinn. Jerry Lewis, fyrsti flutningsmaður tillögunnar á þingi, segir, að aðeins á árinu 1984 hafi Bandaríkjamenn keypt útlenda gullpeninga fyrir einn milljarð dollara, þar af Krugerrand-peninga fyrir 400 milljónir. Njósnamálið: Skaðar ekki samskipti við Banda- ríkin Jerúsaiem, 3. desember. AP. SHIMON Peres, forsætisráðherra ísraels, hefur sagt að mál banda- rísks sérfræðings í sjóhernaði, sem ákærður hefur verið um njósnir fyr- ir ísrael, hefði aðeins takmörkuð áhrif á samband ríkjanna. Peres sagði að njósnamálið væri einangr- að fyrirbæri sem ekki væri runnið undan rifjum ísraelsstjórnar. „Þarna er um að ræða einstök mistök en ekki pólitísk mistök," sagði Peres sem sendi Bandaríkja- stjórn afsökunarbeiðni á sunnu- dag. Leiðarar dagblaða í tsrael endurspegluðu vonir stjórnvalda um að málinu yrði lokið með afsök- unarbeiðninni og myndi ekki skaða samskipti ísraels og Bandaríkj- ~ anna. í leiðara íhaldsblaðsins Maariv sagði að tilkynningar Bandaríkja- manna og Israelsmanna virtust stuðla að því að gera sem minnst úr málinu þannig að ríkin gætu aftur tekið upp vinsamleg sam- skipti. Frjálslynt dagblað, Haar- etz, varaði hins vegar við því að jafnvel þó sæst hefði verið málið milli ríkisstjórnanna „myndi mál- ið hafa sín áhrif áfram á öðrum sviðum og gyðingar í Bandaríkjun- um „ættu eftir að súpa seyðið af því“. Peres sagðist ekki búast við því að þetta mál myndi skaða ímynd bandarísks almennings um Israel. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985 33 Nokkrar fínar ferðatíllögur fyrir þig SKTOAPARADISIN MAYRHOFEN Beint (lug til Salzburg i Austurríki. Boðið upp á 5 hótel i mismunandi verðflokkum. Mayrhofen býður upp á frábærar brekkur. ölstofur. fína veit- ingastaði og diskótek. Kins og tveggja vikna ferðir. Verd frá kr. 21.758,- (2 vikur). 0 Skemmtilegar skoðunarferóir — sleðaferð —dagsferð til Ítalíuo.fl. Far- arstjórinn vinsæli Rudi Knapp verður á staðnum. Fáðu bæklinga og nánari upplýs- ingar um ferdatilhögun hjá okkur. ARAMOTAFERÐ TIL AMSTERDAM Áramótaferð með Ferðamiðstöðinni er eitt af því sem ekki er hægt að lýsa, þú verður að upplifa það. Farið verður frá Keflavík 28. desem- ber og dvalið á hinu frábæra hóteli Pujitzer. Á gamlárskvöld verður áramóta- fagnaður á hinum einstaka skemmti- stað Lido, þar sem boðið verður upp á kalt borð, drykki, desert, dans og skemmtiatriði með heimsþekktum dönsurum og skemmtikröftum. Allir drykkir án endurgjalds, að undan- skildu kampavíni. Á nýársdag er svo „Brunch" (sam- bland af morgunverði og hádegis- verði) á hótel Pulitzer. Flogið verður heim frá Amsterdam 2. janúar. Amsterdam hefur upp á margt að bjóða, þar er gott og gaman að versla og alltaf líf og fjör — sem sagt ógleymanleg áramótaferd. Verð á mann í tvíbýli Kr. 15.645.- — aukagjald f. einbýli — 3.800,- Innifalid: Flug, gisting í 5 nætur, ferðir til og frá flugvelli ad hóteli, áramótafagndur og Brunch. fu .^urjik ARAMOTAFERÐ TIL KAUPMHAFNAR 30. DESEMBER 1985 Endurtökum nú hina frábæru ára- mótaferð til Kaupmannahafnar. Gist verður á SAS ROYAL hóteli, sem er fyrsta flokks hótel í miðbæ Kaup- mannahafnar. Innifalið í verð er flug, akstur til og frá flugvelli að hóteli, og gisting á SAS ROYAL. Á gamlárskvöld verður áramótafagn- aður á hótelinu: MATSEÐILL Eftir miðnætti verður boðið upp hlað- borð með blönduðu dönsku áleggi. Boðið verður uppá frönsk vín, kaffi og koníak með og eftir mat. Verð á mann: IKR. 2.990.- (DKK. 598) Kvintett Ernst Herdorff leikur. -Sannkölluð áramótastemmning- Fordrykkur: Forréttur: Kampavínskokteill Consommé Madrilene Kjúklingaseydi Aðalréttur Saumon fumé á chaud et epinards en branch Heimareyktur lax með spínati Eftirréttur: Grand Marnier soufflé 6NT Má-Su 4!NT Má-Fö kr. 19.250 kr. 16.395 — aukagj. v/einb. kr. 5.808 Verd á mann í tvíbyli 3.872 Verð miðað við skráð gengi þann 10/10/85. FLJUGIÐ TIL KANARÍ Þriggja vikna ferðir til KANARÍ í allan ^ ^ vetur. Beint flug eða með viðkomu í Amsterdam. fbúðir eða hótel. » / ' Verð frá kr. 29.343.- (3 vikur). SIGLING TILIÍANARI 14 DAGA FERÐ MEÐ M/S BLACK PRINCE Skipafélagið FRED OLSEN LINES býð- ur þægilega 14 daga siglingu með hinu glæsilega 300 farþega skemmti- ferðaskipi frá Rotterdam til Madeira, Las Palmas, Tenerife, Lanzarote, Madeira.Tilbury/London, Rotterdam. Verð frá kr. 71.900,- 2 í klefa, 53.000,- 3 í klefa, 48.950.- 4 í klefa. Innifalið í verðinu er flug til og frá Amsterdam, ferð með m/s PRINCE með fullu fæði. Brottför: 9. og 23. janúar — 6. og 20. febrúar — 6. og 20. mars — 3. og 17. apríl. J0L 0G ARAM0T I L0ND0N JÓLAFERÐ TIL LONDON 23. des. til 27. des. 1985. Fimm daga ferð. Njótið jólanna i London á fyrsta flokks hóteli við Oxford Circus, ST. GEORGES. Verð í tvíbýli kr. 21.040. lnnifalið í verðinu er: Flug og gisting með enskum morgunverði. Á að- fangadagskvöld verður framreiddur fimm rétta kvöldverður með for- drykk. Á jóladag fimm rétta hádegis- verður við píanóundirleik. Sannkölluð jólastemmning. ÁRAMÓTAFERD TIL LONDON 30. des. 1985 til 3. jan. ’86. Fagnið nýja ár- inu í London í góðu yfirlæti á ST. GEORGES hótelinu við Oxford Circus. Innifalið í verði er: Flug og gisting með enskum morgunverði. A gamla- árskvöld verður borðaður fimm rétta kvöldverður við kertaljós og hljómlist, síðan dansað. Á nýársdag, hádegis- verður i frábærum veitingasal St. Georges hótelsins. Sérstök áramótastemmning. Verð í tvíbýli kr. 20.350. IgjtjFERDA.. Elll mkjstodin AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 <r$S* AUGLST. BJARNA D.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.