Morgunblaðið - 04.12.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1985
45
Sykurlaust
appelsínu-kók?
SYKURLAUST appelsínu-kók?! Nei, ekki er það nú svo að ný gos-
drykkjartegund sé komin á markaðinn hér á landi. Svo gætu menn
þó haldið þegar þeir reka augun í flöskuna lengst til vinstri á með-
fylgjandi mynd — en hinar tvær eru með öllu eðlilegar.
Svo bar við þegar starfsmenn
Olís í Grafarvogi týndu appelsín
upp úr kössum á dögunum að við
þeim blasti undarleg sjón. Sykur-
laust appelsín frá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar í kókflösku
með appelsínmiða! Snúið ef til
vill, en á auðvitað sinar skýring-
ar. „Okkur fannst þetta svo fynd-
ið að við stilltum flöskunni upp
til sýnis fyrir gesti og gangandi,"
sagði Jóhannes Bachmann
starfsmaður Olís (á myndinni)
er blaðamaður ræddi við hann.
Ekki kunni Jóhannes skýringu á
þessu með flöskuna en Lárus
Berg hjá ölgerðinni sagði að hér
væri auðvitað um mannleg mis-
tök að ræða: „Þetta getur nátt-
úrulega alltaf komið fyrir. Við
erum með menn sem tína úr
flöskur sem ekki á að tappa á —
en það kemur fyrir annað slagið
að þær sleppa í gegn. Við tínum
þær þá úr þegar þær koma úr
átöppunarvélinni en þessi hefur
bersýnilega slæðst alla leið í
gegn."
Holti, Eyjafjöllum:
Fimmvöröu-
háls enginn
leikvöllur til
skemmtiferða
að vetri
Holti, 2. deuember.
AÐ KVÖLDI sunnudags barst Flug-
björgunarsveit Austur-Eyjafjalla
hjálparbeiðni frá lögreglunni á
Hvolsvelli. Saknað var þriggja
manna, sem lagt höfðu af stað yfir
Fimmvörðuháls frá Skógum á laug-
ardagsmorgun og ætluðu að koma
niður í Þórsmörk. Alls höfðu 6
manns, þar af 12 ára unglingur, lagt
af stað, en tveir með unglingnum
snúið við á heiðinni hjá Skógá og
komið til baka á laugardagskvöld.
f hóp með Flugbjörgunarsveit-
inni, sem fór á tveimur bílum,
komu björgunarsveitarmenn frá
slysavamadeild Dagrenningar á 4
bílum. Þegar upp á Fimmvörðu-
háls kom var þar algjörlega ófært.
Veðurofsi og kafaldsbylur. Björg-
unarsveitarmönnum var ekki fært
úr bílnum og fuku bílarnir oft
sinnis til. Tóku þeir þá það ráð að
bíða af sér mesta ofsann í skjóli í
nokkra klukkutíma og komust
síðan við illan leik alla leið upp í
skála sveitarinnar efst á hálsinum.
Þar voru þeir, sem leitað var, í
góðu yfirlæti.
Baldvin Sigurðsson í Eyvindar-
hólum, formaður Flugbjörgunar-
sveitarinnar, taldi að marggefnu
tilefni að rétt væri að íhuga að
banna ferðir yfir Fimmvörðuháls
að vetri, alltjent varaði hann mjög
við þeim ferðum. Þessi leið væri
hættuleg og veðrin þar viðsjár-
verð. Eyfellingar teldu Fimm-
vörðuháls engan leikvöll til
skemmtiferða að vetri.
Fréttaritari
BOSS
KEIMUR FYRIR KARLMENN
Clara Laugavegi 15 — Sævar Karl Ólason — Snyrti-
vörubúðin Glæsibæ — Elín Hafnarfirði — Rakara-
stofan Suðurlandsbraut 10 — Apótek Keflavíkur.
Gerður
Ævisaga
myndhöggvara
eftir Elínu
Pálmadóttur
Æviferill Gerðar Helgadóttur,
myndhöggvara, var stórbrotinn.
Leið hennar til heimsfrægðar, úr
Handfða- og myndlistaskóla
Lúðvfgs Guðmundssonar til
Flórens og Parísar var bæði örðug
og grýtt. Erfið einkamál áttu þar
hlut að máli.
Nánasta vinkona Gerðar, Elfn
Pálmadóttir, segir hér sögu
hennar af ástúð, virðingu og
mikilli hreinskilni.
Þetta er áhrifamikil og vel rituð
saga um stórbrotinn æviferil
mikillar listakonu, sem lést árið
1975, langt fyrir aldur fram.
----------- N
Stokkseyrí:
Tveir togarar fengnir til að veiða
þorskkvóta báta Hraðfrystihússins
Selfossi, 27. nóvember.
Hraðfrystihús Stokkseyrar hefur
fengið tvo togara, Sléttanes frá
Þingeyri og Runólf frá Grundar-
firði, til að veiða 300 tonna þorsk-
kvóta báta Hraðfrystihússins, sem
verið hafa í klössun á árinu. Þessi
afli mun ásamt öðru halda frysti-
húsinu gangandi fram í miðjan de-
sember.
Aflanum úr togaranum er ekið
frá löndunarstað, úr Hafnarfirði
þar sem Sléttanesið landar og frá
Grundarfirði úr Runólfi. Til þessa
ráðs var gripið þar sem ljóst var
að bátarnir næðu ekki þessum afla
á árinu. Þeir Einar Páll Bjarnason
og Einar Sveinbjörnsson hjá Hrað-
frystihúsinu sögðu, að þeir fengju
25 tonn úr hverri veiðiferð hjá
Runólfi og hvor togari mundi veiða
150 tonn af þorski. Hagræðið af
þessu sögðu þeir vera möguleika á
að jafna vinnsluna og halda stöð-
ugri atvinnu fram í miðjan des-
ember.
Á þessu ári hefur Hraðfrysti-
húsið tekið á móti 4.262 tonnum.
Til samanburðar má nefna að 1984
var tekið á móti 4.500 tonnum,
1983 5.767 tonnum og 9.140 tonnum
1982. Það eru 7 bátar sem leggja
upp afla í Hraðfrystihúsið auk eins
báts sem bættist við á humarver-
tíðinni. „Við höfum fundið fyrir
því í haust að togarinn er horfinn,"
sagði Einar Páll. „Á meðan hans
naut við var hægt að miðla fiski
og halda jafnri vinnu." Togarinn
Bjarni Herjólfsson var seldur á
uppboði fyrr á árinu og með honum
fór 3.200 tonna kvóti sem skiptist
jafnt á milli Eyrarbakka og
Stokkseyrar.
Mestum hluta aflans sem tekið
er á móti á Stokkseyri er ekið frá
Þorlákshöfn, um 4.000 tonnum það
sem af er árinu. Fyrir þunga-
skattshækkunina var kostnaður á
hvert ekið tonn 550 kr. en eftir
hækkun er gert ráð fyrir að kostn-
aðurinn verði 600 krónur á hvert
tonn. Einar Sveinbjörnsson sagð-
ist gera ráð fyrir því að kostnaður
vegna aksturs með afla yrði ekki
undir 3 milljónum á árinu og heild-
arkostnaður vegna aksturs hjá
Hraðfrystihúsinu á þessu ári gæti
farið upp í 5—6 milljónir. „Þetta
er mikill aðstöðumunur miðað við
þá sem geta tekið aflann beint upp
af hafnarbakkanum," sagði Einar
Páll, „en þetta breytist mikið með
brúnni yfir Ölfusárósa."
„Það er óhætt að segja að afkom-
an er slærn," sagði Einar Páll um
rekstur hússins. „Það er verst hvað
framleiðslan gefur lítið af sér.
Gengið er fast og innlendur kostn-
aður hækkar hráefnið, laun og
umbúðir. Það eru þessar kostnað-
arhækkanir sem eru að stöðva
okkur. Ljósi punkturinn í þessu er
þó sá að nú má taka afurðalánin
í dollurum í stað þess að vera
bundinn við SDR,“ sagði Einar
Páll Bjarnason.
Hraðfrystihúsið er stærsti og
nánast eini vinnuveitandinn á
Stokkseyri með um 100 manns á
launaskrá við vinnu í húsinu.
Sig. Jóns.
Aðventukvöld í
Laugagerðisskóla
Borg. Miklaholtshreppi. 2. desember.
í GÆRKVÖLDI var aðventukvöld
í Laugagerðisskóla. Séra Hreinn
Hákonarson, sóknarprestur í Söð-
ulsholtsprestakalli, sá um undir-
búning þess og stjórnaði því.
Mikill fjöldi fólks víðs vegar úr
prestakallinu mætti á þessu að-
ventukvöldi, sem f alla staði var
hið ágætasta.
Fjölbreytt dagskrá var og veit-
ingar rausnarlega fram bornar
án endurgjalds frá konum í
Eyjahreppi. Dagskrá kvöldsins
var þannig, að séra Rögnvaldur
Finnbogason, sóknarprestur á
Staðarstað, sýndi helgimyndir og
sagði nokkuð frá dvöl sinni í
Finnlandi, þar sem hann daldist
síðastliðinn vetur. Þorvaldur
Halldórsson, guðfræðinemi,
flutti talað mál og söng mikið
við mikinn fögnuð áheyrenda.
Daníel Jónsson, bóndi á Dröng-
um, las frumsamda sögu. Bland-
aður kór úr prestakallinu söng
undir stjórn Maríu Eðvarðsdótt-
ur. Þá flutti sóknarprestur ritn-
ingarlestur og bæn. Veður var
hið ákjósanlegasta og vegir eins
og á sumardegi. Tunglið óð í skýj-
um og lýsti okkur vel í húmi
kvöldsins. Páll
Nú ercáfn
tækifærí
• • •
Ný snið — ný efni og litir
KÁPUSALAN
BORGARTÚNI 22
sí m 123509 Næg bílastæði
KÁPUSALAN AKUREYRI
HAFNARSTRÆTI 88
SIMI 96-25250