Morgunblaðið - 04.12.1985, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
59
Hjördís Antonsdóttir.
Morgunblaðið/Emella
HJÖRDÍS ANTONSDÓTTIR
FYRSTA KONAN SEM KOSIN ER í STJÓRN SAL
„Leiðin hefur opnast,
þær fylgja
fleiri á eftir...“
Sem betur fer er nær dag-
lega unnt að flytja fréttir
af því að konur hasli sér völl á
fleiri sviðum en áður. Fyrsta
konan í stjórn Sambands al-
mennra lífeyrissjóða, Hjördís
Antonsdóttir, var kosin fyrir
stuttu og situr þar ásamt 19
karlmönnum. Frá upphafi hafa
75.000 konur greitt í lífeyrissjóði
og 83.000 karlmenn samkvæmt
skýrslu er fjármálaráðuneytið
gaf út í fyrra.
— Var ekki kominn tími til,
Hjördís, að konur eignuðust full-
trúa í stjórninni?
„Vitaskuld, konur eru það stór
hluti af meðlimum í SAL að það
má merkilegt heita að svo lengi
skuli hfa viðgengist að þær hafi
verið settar hjá.“
— Ekkert kvíðin að taka sæti
með herrunum?
„Nei, síður en svo, enda eru
þetta allt miklir ágætismenn
hvort sem þeir verða nú allir
hressir með að fá konu inn á
gafl í aðalstjórn."
— Hefurðu gegnt stjórnunar-
störfum í þínu stéttarfélagi?
„Ég er Sóknarkona og vil endi-
lega að fá að koma því fyrst að
hversu dugandi formann við
eigum, hana Aðaiheiði, en hún
var kjörin árið 1976. Og nú erum
við að koma upp myndarlegu húsi
yfir okkur. Ég hef setið í stjórn
Sóknar í ein 10 ár og verið gjald-
keri þetta árið.“
— Áttu einhverja draumsýn
varðandi lífeyrissjóðina?
„Líklega helst að allir lands-
menn sitji þar við sama borð
með sömu réttindi og að hlutur
húsmæðra verði þar tekinn til
greina. Einnig vildi ég gjaman
að unnt væri að njóta lífeyris-
réttinda við 65 ára aldur, þvi það
munar um tvö ár fyrir fólk sem
orðið bæði lúið og slitið, en að
minnsta kosti er þannig ástatt
um margar af okkar konum í
Sókn, enda fjölmargar þeirra
einstæðar af ýmsum orsökum og
slitnar af þrældómi."
— Heldurðu að þú fáir ein-
hverju áorkað í þessa átt, þegar
þú ferð að sitja stjórnarfundina?
„Það verður að koma í ljós.
Auðvitað verður auðvelt að
stinga upp í eina konukind ef því
er að skipta en leiðin hefur opn-
ast, þær fylgja fleiri á eftir ...
vonandi."
COSPER
— Eins og ég sagði í símanum, er það ekki glugginn,
sem hefur fest.
LENGSTA
HJÓLÍHEIMI
Safnað
handa
þurfandi
börnum
að er ýmislegt sem fólki
dettur í hug. Ekki er langt
síðan 22 ungmenni tóku sig til og
hjóluðu frá Leicester til London
með Fionu Fullerton fremsta í
flokki á hjóli, sem jafnframt er
það lengsta í heimi.
Hjólreiðatúrinn var farinn I
ákveðnum tilgangi, það er að segja,
til að safna fé fyrir þurfandi börn
og þegar þessari mynd var smellt
af höfðu vegfarendur þegar gefið
um 200.000 krónur I söfnunina.
GILDIHF
Er ekki kominn tími til að halda árshátíðina,
starfsmannahófið eða tækifærisveisluna í
glæsilegum veislusal með þjónustu eins og hún
gerist best?
Reyndu Átthagasal Hótels Sögu og
þú átt í vændum ógleymanlegt kvöld þar sem
veislugestir njóta þess besta sem 1. flokks hótel
býður upp á í mat, drykk, þjónustu og umhverfi,
- fyrir ótrúlega hagstætt verð.
Eitt símtal og þú ert laus við frekari
áhyggjur af undirbúningnum, hvort sem veislan
er 20 eða 200 manna, og getur einbeitt þér að
ræðu kvöldsins!
Við sjáum um allt:
• Matur og drykkur að eigin vali, í öllum
verðflokkum.
• Þjónusta faglærðra manna.
• Hljómsveit, einsöngvari, plötusnúður,
harmóníkuleikari... við útvegum allt sem
henta þykir á góðu kvöldi.
• Skemmtikraftar af öllum stærðum og
gerðum.
• Skemmtilegt kvöld í fallegu umhverfi.
Þetta kostar allt minna en þig grunar
-"og það sem meira er; þú þarft ekki
að greiða sérstakt leigugjald fyrir salinn!
Hafðu samband sem fyrst í síma 29900