Morgunblaðið - 04.12.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1985
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
í leit að
réttu orði
Vöndum utan-
áskrift bréfa
Þegar maður les ritverk karla og
kvenna frá síðustu öld, slíkt hið
sama texta þeirra höfunda sem voru
í broddi lífsins um miðbik þessarar
aldar eða fyrr, getur maður ekki
annað en dáðst að fundvísi þessa
fólks á rétt orð í næstum hvaða
sambandi sem er. Með hrakandi
máltilfinningu og vondum vinnu-
brögðum blaðamanna gerist það æ
oftar, að orð eru valin af handahófi
eða merkingu þeirra hreinlega snúið
við, stundum undir yfirskini frum-
leika eða framstefnusjónarmiða. Nú
eru sum íslensk orð vandmeðfarin,
en það er einmitt oft höfuðprýði
þeirra.
Eitt af þessum vandmeðförnu
orðum er vonarpeningur, en það er
sá búsmali sem ekki hefur vísa von
til að lifa af hinn harða íslenska
vetur eða einhverjar aðrar álíka
raunir.
Orðabók háskólans hefur m.a.
þessi dæmi:
a) „og þar til vonarpeningur
vegna veikinda" (1733).
b) „Eg er altaf all-lasinn vonar-
peningur" (Æfisaga Bjarna
Pálssonar, samantekin af
Sveini Pálssyni 1777).
c) „Peningur sumstaðar orðinn
dreginn og vonarpeningur"
(Norðri 1855,39).
d) „annað [lambið] var svo mikill
vonarpeningur, að dýralæknir-
inn tók það aldrei í öðru skyni,
en rétt til reynslu" (Alþ. 1857.
830).
e) „Ég óttast mest fyrir, að hann
dragist með dauðann, í öllu
falli er hann vonarpeningur
eins og nú stendur" (Dagsett í
Reykjavík 1874. Úr fórum Jóns
Árnasonar, bls. 208).
Ég hirði ekki um að sýna fleiri
dæmi, þótt af nógu sé að taka. Svip-
aðar merkingar er orðið vonargripur,
og verður eitt dæmi að nægja:
„Eru þá eptir óstaðfest 7 lög frá
síðasta þingi-----og munu flest
vera vonargripir (ísafold 1894,94).
Þessar athugasemdir eru settar á
blað vegna þess, að í fyrravetur,
meðan skákmót stóð yfir í Noregi,
var þess getið í Þjóðviljanum að
pilturinn Agðasteinn (Ágdestein)
mundi nú vera helsti „vonarpening-
ur“ Norðmanna. Þetta orðalag kom
illa við mín gömlu sveitamannseyru,
en ég ákvað að halda vana mínum
og stilla mig um nöldrið. En þegar
rithöfundarnir í „Klippt og skorið"
fara aftur á stúfana með vonarpen-
inginn sinn, var mér næstum því nóg
boðið (Þjóðv. 20. júní ’85): „Hannes
segir Davíð borgarstjóra mikinn
vonarpening, margir bíða þess „með
óþreyju að Davíð setjist á þing“.“
Þó að orðið „vonarpeningur" sé
eignað „Hannesi", mun það senni-
lega orðalag þeirra Þjóðviljamanna.
— Þetta þóttu mér ómakleg ummæli
um borgarstjóra vorn, sem af mynd-
um að dæma hefur ekki einu sinni
fengið kvef.
En það var meira blóð í kúnni. í
Þjóðv. 26. nóv. síðastliðinn, bls. 4,
segir svo. „Annar vonarpeningur er
talinn hafa það „ferska blóð“ sem
Sjálfstæðisflokkurinn þarf til „að
tryggja ferskleika hugmynda og
fyrirbyggja stöðnun“.“
Mér dettur nú í hug: Átti allt þetta
tal um vonarpening að vera aðeins
meinlaus brandari eftir allt saman?
En þá hefðu þeir góðu menn átt að
minnast þess, að sumir brandarar
eru svo rýrir í roðinu að þeir þola
ekki endurtekningu.
Nú eru kosningar í nánd og mun
þá koma í ljós, hve margur vonar-
peningurinn leynist í röðum fram-
bjóðenda, eða hvort Davíð Oddsson
reynist sú vonarstjarna sem þeir
sjálfstæðismenn almennt búast við.
Það er von mín, að eftir þessar
fátæklegu upplýsingar hætti Þjóð-
viljinn að stríða gömlum sveita-
mönnum.
M.Ó. sendi póstþjónustunni
kveðju í Velvakanda þann 29. nóv.
sl. Bréfið er kvörtun um seinagang
í pósti, vegna bréfs frá Lánasjóði
ísl. námsmanna, sem tók 9 daga
að koma til viðtakanda, þrátt fyrir
loforð póstsins um betri þjónustu.
Póstur sem póstlagður er í póst-
húsi í Reykjavík eða kominn í póst-
kassa fyrir síðustu tæmingu er
borinn út til viðtakenda næsta dag
undir eðlilegum kringumstæðum.
Því miður eru mörg bréf með
ófullkominni utanáskrift eða bein-
línis rangri, t.d. röngu póstnúmeri,
þau bréf geta því miður tafist í
pósti. Póststimpill sem M.ó. segir
að hafi verið á bréfinu er ekki
póstsins heldur úr frímerkingavél
Lánasjóðs ísl. námsmanna.
Því miður hefur það komið fyrir
að bréf frá þessari stofnun hafi
verið með röngum dagstimpli, og
hefur póstþjónustan nokkrum
sinnum kvartað yfir þessu við
Lánasjóðinn.
Því miður taka starfsmenn okk-
ar ekki alltaf eftir þessum röngu
póststimplum og gæti það t.d. verið
skýring á seinkun bréfsins. Póst-
þjónustan harmar þessi mistök
hvort sem þau eru henni að kenna
eða öðrum og hvetur fólk til þess
að vanda utanáskrift á bréf til
þess að þau berist fljótt og vel til
viðtakenda.
Virðingarfyllst
Björn Björnsson, póstmeist-
ari
1/1 cn HEILRÆÐI
f anQ\/
f 1, b* * r ' :Á~ .. E
Slysalaus jólaundirbúningur
Aðventan er gengin í garð og og athafnaþrá barnanna. Leyfum
undirbúningur jólanna hafinn. A þeim að vera þátttakendur og
heimilunum verður því mikið að leiðbeinum þeim í leik og starfi.
sýsla og að mörgu að hyggja. öll Njótum undirbúnings jólanna
umsvif hinna eldri vekja forvitni með slysalausum dögum.
RÍKISÚTVARPIÐ
NÝ ÞJÓNUSTA
SVÆÐISÚTVARP
FYRIR REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
Útvarpað verður daglega frá mánudegi til
föstudags kl. 17.03-18.00 með tíðninni 90,1
MHz.
Auglýsendur athugið!
Móttaka leikinna auglysinga er í síma 687511
en lesinna í síma 22274 og 22275 til kl. 14.00
útsendingardaga.
Svæðisútvarp áAkureyri lengist um30mín-
útur og verður útsendingartími kl. 17.03-
18.30 alla virka daga.
Móttaka leikinna og lesinna auglýsinga er í
síma 26496 Fjölnisgötu 3a kl. 10.00-5.00
útsendingardaga.
KAUPMENN - INNKAUPASTJÓRAR:
TÍSKAN
FYRIR
TÆRNAR!
Sívaxandi vinsældir sanna
ágæti sokkanna frá Víkur-
prjóni hf. Og nú veitum við
stórkostlega verðlækkun á
vinsælu íþróttasokkunum
okkar.
KRISTJÁNSSON HF.
Ingólfsstræti 12. Sími 12800
Ingólfur Pálmason