Morgunblaðið - 03.01.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
Margeir í
efsta sæti
MARGEIR I’étursson er efstur að
loknum fimm umferðum á alþjóðlega
skákmótinu í Hastings á Englandi.
Hann hefur hlotið fjóra vinninga,
hefur unnið þrjár síðustu skákir sínar.
Jóhann Hjartarson er í 2.-5. sæti með
3 vinninga og biðskák, sem er jafn-
teflisleg.
Margeir tefldi við ísraelska stór-
meistarann Greenfeld í 1. umferð
og lyktaði viðureign þeirra með
jafntefli eftir hörkuskák. Greenfeld
fórnaði drottningu í sókn, sem hefði
átt að leiða til vinnings, en Margeir
varðist af mikilli hörku. „Ég missti
af vinningsleið skömmu fyrir bið
og náði ekki að knýja fram sigur í
biðskákinni," sagði Margeir Péturs^
son í samtali við Morgunblaðið. í
2. umferð telfdi hann við sovéska
stórmeistarann Mikhail Chisin og
lyktaði viðureign þeirra með jafn-
tefli. f 3. umferð tefldi Margeir við
Rukavina, alþjóðlegan meistara frá
Júgóslavíu, og hafði vinning. f 4.
umferð vann hann Braga, sem er
alþjóðlegur meistari frá Argentínu
og í 5. umferð vann hann svo
spánska stórmeistarann Bellon. í
dag teflir Margeir við enska stór-
meistarann Plaskett.
Jóhann Hjartarson tefldi við
sovéska stórmeistarann Balashov í
1. umferð og lyktaði viðureign
þeirra með jafntefli. í 2. umferð
vann Jóhann Formanek frá Banda-
ríkjunum og sænsku skákkonuna
Piu Cramling í 3. umferð. í 4. um-
ferð gerði hann jafntefli við Fed-
erowic frá Bandaríkjunum og á
biðskák við Conquest frá Bretlandi,
sem er eini þátttakandinn, sem ekki
er annaðhvort alþjóðlegur meistari
eða stórmeistari.
Staða efstu manna er nú:
1. Margeir Pétursson, 4.
2. -4. Jóhann Hjartarson, Green-
feld og Watson 3 og biðskák.
5.-7. Balashov, Chisin og Braga 3
vinninga.
Réttindalausir
unglingar á
stolnum bflum
LÖGREGEAN á Selfossi tók ökurétt-
indalausa unglinga á stolnum bfl í
Þorlákshöfn í gærmorgun og aðra í
gærkvöldi. í bæði skiptin náðust
unglingarnir eftir stutta eftirfór eftir
að þeir höfðu virt að vettugi stöðvun-
armerki lögreglu við venjulegt um-
ferðareftirlit.
Þrír unglingar voru í bílnum sem
tekinn var í gærkvöldi og er öku-
maðurinn 15 ára gamall. Þeir stálu
bíl í Reykjavík síðdegis í gær og
skildu hann eftir á Alftanesi þar
sem þeir tóku annan bíl og óku
austur fyrir fjall. í öðru tilvikinu
komu krakkarnir að bílnum í gangi
þar sem ökumaðurinn hafi skroppið
frá honum þannig. Bílarnir komust
óskemmdir í hendur eigenda. 16 ára
piltur var ökumaður bílsins sem
tekinn var í Þorlákshöfn. Áður en
þeir náðust óku þeir utan í og
skemmdist stýrisgangur bifreiðar-
innar eitthvað við það.
Tíminn kem-
ur út að nýju
DAGBMÐIÐ Tíminn kemur út að
nýju í dag, en síðasta tölublaö NT
kom út á gamlársdag. Að sögn Helga
Péturssonar ritstjóra verður blaðið 20
síður að stærð, heldur minna en áður.
Teiknaður hefur verið nýr blaöhaus
og uppsetning efnis verður önnur, en
aðrar breytingar á blaðinu eru ekki
fyrirhugaðar í byrjun, að sögn Helga.
Framsóknarflokkurinn og fram-
sóknarfélögin í Reykjavík gefa
Tímann út og verður gerður sam-
starfssamningur þeirra í milli. Ný
stjórn er ekki tekin til starfa og
mun Tíminn kaupa vinnu og þjón-
ustu af Nútímanum hf. til að byrja
með. Framsóknarfélögin í Reykja-
vík hafa tilnefnt Kristin Finnboga-
son, Alfreð Þorsteinsson og Sigrúnu
Magnúsdóttur í blaðstjórnina en
Framsóknarflokkurinn hefur ekki
gengið frá tilnefningu sinna manna,
sem verða einnig þrír.
Gamla árið kvatt í Kópavogi
MorgunDiaoio/KAA
Flugvallarskattur, kökur og
ýmis þjðnustugjöld hækka
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
nýta sér heimild til að innheimta
vörugjald af kökum og sætabrauði.
Vörugjaldið er 30%, sem leggst á
framleiðslukostnaðarverð og þýöir í
raun um 25% hækkun á þessum
vörum út úr búð. Ennfremur hefur
verið ákveðið að afla viöbótartekna
með hækkun ýmissa þjónustu-
gjalda, svo sem skrásetningar-
gjalda, leyfisgjalda og gjalda vegna
útgáfu skírteina af ýmsu tagi. Þá
verður flugvallarskattur, eða brott-
fararskattur, hækkaður þann 1.
mars nk. úr 250 krónum í 750 krón-
ur.
Lárus Ögmundsson í fjármála-
ráðuneytinu sagði að heimild væri
,11 ||/í ffT TT
P . I ;
«isí! jjlp
Ritstjórnarskrifstofa Morgunblaösins er í Hafnarstræti 85 á Akureyri.
Morgunblaðið opn-
ar ritstjórnarskrif-
Qmfli ú SflirPVH
ö IU1 il 4X iln wi vj i i
A lrn
NÝLEGA opnaði Morgunblaöið ritstjórnarskrifstofu á Akureyri. Er
þetta jafnframt fyrsta ritstjórnarskrifstofan, sem blaðið opnar utan
Reykjavíkur. Hún er til húsa í Hafnarstræti 85, sími 21100. Áformað
er að opna afgreiðslu og auglýsingamóttöku í sama húsnæði síðar á
árinu.
Á ritstjórn Morgunblaðsins á
Akureyri starfar einn blaðamað-
ur, Skapti Hallgrímsson. Skapti
hefur verið blaðamaður á Morg-
Skapti Hallgrímsson blaðamaður
Morgunblaðsins á Akureyri.
unblaðinu frá 1982 og hann var
áður íþróttafréttaritari þess á
Akureyri. Skapti mun senda all-
ar almennar fréttir frá Akureyri
og nágrannabyggðarlögum og
hann mun starfa í nánu sam-
starfi við fréttaritara Morgun-
blaðsins á Norðurlandi. Þá mun
hann veita viðtöku þjónustu-
fréttum fyrir félög og einstakl-
inga og taka við aðsendum grein-
um, s.s. minningargreinum.
Morgunblaðið vill nota þetta
tækifæri til að hvetja Eyfirðinga
og aðra Norðlendinga að notfæra
sér þá möguleika sem opnast með
opnun ritstjórnarskrifstofu
Morgunblaðsins á Akureyri.
Heimilisfangið er sem fyrr segir
Hafnarstræti 85, síminn 21100,
pósthólf 703 og heimasími
Skapta 26151.
fyrir því í lögum að hækka flugvall-
arskattinn í takt við byggingarvísi-
tölu, en sú heimild hefði ekki verið
nýtt síðan í mars 1983. Reiknað er
með að tekjur ríkissjóðs af þessum
skatti verði um 100 milljónir króna
á árinu 1986, en hefðu orðið 40
milljónir án hækkunar. Stjórn
Ferðamálaráðs lýsti í gær yfir
óánægju og undrun með þessa
hækkun flugvallarskattsins.
Að sögn Lárusar Ögmundssonar
er hækkunin á fyrrnefndum þjón-
ustugjöldum nokkuð misjöfn, en
almennt á bilinu 50-100%. Þinglýs-
ingargjald hækkar til dæmis úr 110
krónum í 170 krónur. Gert er ráð
fyrir að tekjur ríkisins vegna þess-
ara hækkana nemi um 110 milljón-
umkrónaáárinu.
Álagning er frjáls á kökum, en í
bakaríi sem Morgunblaðið hafði
samband við í gær vegna vörugjalds
á kökum, kostaði'venjuleg jólakaka
102 krónur, en hækkar nú upp í
127,50 krónur. Vínarbrauð og snúð-
ar hækka úr 21 krónu í rúmar 26
krónur. Að sögn Lárusar er gert ráð
fyrir að vörugjaldið muni afla ríkis-
sjóði um 100 milljóna króna á þessu
ári.
„Við erum vægast sagt mjög
óánægðir með þessa ráðstöfun fjár-
málaráðherra. Þessi mikla hækkun
á örugglega eftir að koma fram í
minnkandi eftirspurn, og þar með
minnkandi framleiðslu bakara, en
aukinni framleiðslu mötuneyta,
sem geta komist hjá því að inn-
heimta vörugjaidið. Og þá er ég
hræddur um að einhverjir af 700
starfsmönnum í iðninni missi at-
vinnuna," sagði Jóhannes Björns-
son, formaður Landssambands
bakarameistara, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Bakarar
fengu bréflega tilkynningu um
vörugjaldsinnheimtuna um miðjan
dag í gær og áttu saman fund um
málið síðdegis sama dag. „Það er
útilokað að við getum lagt þetta
gjald á strax. Það átti, samkvæmt
bréfi ráðuneytisins, að byrja að
innheimta gjaldið frá 1. janúar, og
við fáum að vita um það fyrst í
dag, 2. janúar. Ennfremur er ekki
ljóst nákvæmlega á hvaða bökunar-
vörur vörugjaldið leggst, til dæmis
hvort smábrauð og flatkökur eru
inni í myndinni," sagði Jóhannes.
Bakarar munu taka ákvörðun um
aðgerðir á félagsfundi síðdegis í
dag.
Sjá nánar mótmæli stjórnar
Ferðamálaráðs og Landssam-
bands bakarameistara á blaðsfðu
33.
70—80 þúsund
með lausa
samninga
KJARASAMNINGAR allflestra laun-
þega og vinnuveitenda eru nú lausir.
A þetta við um þá sem eru í stóru
launþegasamböndunum, ASÍ og
BSRB, og ýmsum smærri félögum og
samtökum. Ekki er ólíklegt að í þess-
ari stöðu séu 70-80 þúsund manns.
Samninganefndir Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins hittust á fundi fyrir jól
og er búist við að annar fundur verði
haldinn fljótlega. Magnús Gunnars-
son framkvæmdastjóri VSÍ sagði í
gær að ekki væri enn ljóst hvað
bæri á milli í samningum ASÍ og
VSÍ; sagði að ekki væru allar boðað-
ar kröfur komnar fram ennþá, en
bjóst við að mál skýrðust um miðjan
mánuðinn.
Aramótadansleikur sjónvarpsins:
Auglýsingar báru
uppi kostnaðinn
ÁRAMÓTADANSLEIKUR sjónvarpsins á nýjársnótt var fjármagnaður með
auglýsingum, að sögn Hrafns Gunnlaugssonar deildarstjóra innlendrar
dagskrárgerðar bjá sjónvarpinu. Sagði Hrafn að kostnaður við útsendinguna
hefði samtais verið um ein milljón en auglýsingar sem skotið var inn á
milli atriða í þættinum færu langt með að jafna þann kostnað.
Hrafn sagði að þessi nýja þjón-
usta hjá sjónvarpinu hefði mælst
mjög vel fyrir. Hann sagði að það
færðist mjög í vöxt að fólk vildi
vera heima hjá sínu fólki á gamlárs-
kvöld og væri gott að geta gefið
þjóðinni kost á danshljómlist á
þessu kvöldi. Hann sagði að þetta
ætti að geta orðið árlegt hjá sjón-
varpinu og frekar ætti að lengja
útsendinguna en hitt.