Morgunblaðið - 03.01.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
5
Tilboð í brúargerð á Leiruvegi opnuð:
Lægsta tilboð
frá Norðurverki
Akureyri, 30. desember.
NORÐIJRVERK hf. átti lægsta tilboðið í brúargerð á Leiruvegi viö Akur-
eyri. Tilboð voru opnuð í dag hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykja-
vík. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 23.733.000 en Norðurverk bauð kr.
23.707.670 krónur í verkið — 99,89 % af áætlun.
Fimm tilboð bárust í verkið —
fjögur frá verktökum á Akureyri
og eitt úr Reykjavík. Næstlægsta
tilboð átti SS Byggir sf. á Akur-
eyri, 23.912,460 (100,76%), þá kom
Híbýli sf. á Akureyri með
24.727.899 (104,19%), Aðalgeir og
Viðar hf. á Akureyri bauð
26.897.340 (113,33%) og Hamrafell
hf. í Reykjavík átti hæsta tilboðið
-26.994.096(113,74%).
Tilboð Norðurverks hf. var með
þeim fyrirvara að verð á steypu-
stáli miðist við gengi 23/12 og
breytist með gengi norsku krón-
unnar.
Brúin verður 135 metra löng.
Verkinu á að vera lokið á næsta
hausti. Vegurinn hefur þegar verið
lagður Vaðlaheiðarmegin en það
er á áætlun ársins 1987 að leggja
veg að brúnni vestanmegin — frá
Drottningarbrautinni á Akureyri.
Vegarkaflinn sem eftir á að leggja
vestanmegin verður ríflega 1.100
metra langur.
Séð yfir í Aóalstræti, innstu íbúðargötu á Akureyri. Myndin er tekin af
Leiruveginum austanmegin fjarðarins. Vegurinn vestanmegin verður frá
Drottningarbraut við Leirugarðinn svokallaða, í boga út á Pollinn inn að
brúnni sem rísa skal. Leirugarðurinn sést lengst til hægri á myndinni.
Borgarstjóri tendrar
ljós í öndvegissúlunum
DAVIÐ ODDSSON borgarstjóri tendraði Ijós á sex öndvegissúlum við
borgarmörk Reykjavíkur á nýjársdag. Súlurnar eru til marks um upphaf 200
ára afmælisárs höfuðborgarinnar, en fyrirhuguð eru margskonar hátíöahöld
í tilefni afmælisins.
Súlurnar eru við Vesturlandsveg,
Suðurlandsveg og á Reykjanes-
braut. Athöfnin fór fram á Vestur-
landsveginum, en tendrað var
samtímis á súlunum sex. Lúðrasveit
Reykjavíkur flutti nokkur lög og
borgarstjóri flutti ávarp. Kveikt
verður á súlunum allt árið, en með
björtum vornóttum er gert ráð fyrir
að flögg og borðar skreyti súlurnar,
og þær „blómstri" þannig með vor-
blómum. A súlurnar verða einnig
festar tilkynningar um helstu dag-
skráratriði afmælisins, en hátíða-
höldin verða einnig kynnt í sérstöku
almanaki sem sent verður öllum
borgarbúum á næstu dögum.
Hugmynd að súlunum og frum-
hönnun þeirra var í höndum Þor-
valdar S. Þorvaldssonar arkitekts
forstöðumanns Borgarskipulagsins
en heildarumsjón með verkinu
hafði Rafmagnsveita Reykjavíkur
og sáu starfsmenn hennar um lýs-
ingu og uppsetningu turnanna, en
yfirumsjón verksins og samræming
var í höndum Kristjáns Björnsson-
ar.
Davíð Oddsson borgarstjóri flytur
ávarp er tendruð voru Ijós í öndveg-
issúlunum á nýársdag.
Jólatrés-
skemmtun
Valskonur ath.: Jólatrésskemmtun veröur haldin
í Félagsheimilinu aö Hlíöarenda á morgun, laugar-
daginn 4. janúar kl. 15.00.
Valur.
Vetrardagskrá *
Naustsins“
í janúar:
„Úrgullkistu
\\ Eyjamanna“
I febrúar: \iv
„Þorrablót"
skemmtidagskrá \.\
tileinkuö þorra.
V í marz: \
„Gullfoss meö glæstum
V\ brag“
\\. Heiöursgestur
\\. Kristján
\\. Aöalsteinsson
\\skipstjóri.
Blásið til
ÞRETTANDAGLEÐi I NAUSTINU
sunnudagskvöldiö 5. janúar 1986
Fram koma:
Jónas Þ. Dagbjartsson, Jónas Þórir, Helgi og Hermann Ingi,
Vínarhljómsveit Þorvalds Steingrímssonar og Dixielandband Björns
R. Einarssonar.
Vönduö dagskrá í mat og drykk
Dansaö á Naustinu föstudags- og laugardagskvöld
Opiö til 03.
Tríó Jónasar Þóris leikur
Borðapantanir
í síma 17759