Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986 29 tiar sjálfrar nnar fólgið sdag ili jafnframt vinnustaðir kynslóð- anna, yngri sem eldri. Þar gengu allir til sinna verka. Þar var hvort tveggja í senn griðarstaðurinn og vinnustaðurinn. Með iðnbyltingu og tæknivæðingu gerbreyttust hlutverk heimilisins. Atvinnulífið fluttist burt og með atvinnulífinu sá hluti fjölskyldunnar sem mest hvíldi á, fyrst heimilisfaðirinn, síðan móðirin, — og þá afi og amma. Um leið og samskipti kynslóð- anna á heimilinu breyttust, fór að gæta sterkar en fyrr tilhneigingar til sundurgreiningar á tilveru kynslóðanna. Atvinnulaus börn og unglingar heima fyrir kölluðu á nýja þjónustu, nýjan skilning umhverfisins. Og um leið var farið að líta á þau sem sérstæðari verur en fyrr, sem sérstakan hóp neyt- enda. Sá skilningur blasir við augum hvert sem litið er í dag. Mér er sagt að nú eigi fjölmörg íslensk börn erfitt með að gera sér mynd af foreldrum sínum á vinnu- stað, einfaldlega vegna þess að þau hafa aldrei séð pabba og mömmu við verk sín. Mér er einnig sagt að sumir íslenskir unglingar eigi í þrengingum með að tjá sig, því að við þá sé lítið talað nema gegn- um útvarp og sjónvarp. Og í þeim samræðum er aðeins annar aðilinn virkur, — hinn óvirkur þiggjandi. Samtal og skoðanaskipti eiga sér ekki stað á þann veg. En sé mönn- um vandinn ljós er hægt að stefna að því að bæta úr, og það gerir hver og einn sjálfur best með eigin metnaði. Auðvitað eru unglingar öðruvísi en fullorðnir. Til allrar hamingju! Auðvitað hafa þeir annan skilning á tilveru sinni en þeir sem þegar hafa aflað sér miklu víðtækari lífsreynslu. Svo hefur alltaf verið, og þannig á það að vera. Ungling- urinn með hvassa gagnrýni sína á hegðun fyrri kynslóða er engin nýlunda heldur endurtekning sög- unnar. Hins vegar kann okkur nú að vera meiri þörf en fyrr á að rísa gegn þeim sundrandi skilningi sem að hefur verið vikið. Að leggja þess í stað áherslu á það sem tengir kynslóðirnar saman og sýn- ir að við erum öll í eðli okkar eins, tilheyrum sama mannkyni. Öll getum við verið sammála um að fátt tengi kynslóðir þessa lands betur sama en sú tunga sem er stolt okkar. í auðlegð tungunnar sjálfrar, íslenskunnar og sam- hengis hennar, er fjöregg þjóðar- innarfólgið. Þær tæknibyltingar sem yfir okkur hafa dunið á skömmum tíma hafa vitanlega leitt til mikilla breytinga í orðaforða okkar og Vigdís Finnbogadóttir allri málnotkun. Aldrei fyrr hefur reynt sem nú á þanþol tungumáls- ins, á hæfni þess til endurnýjunar. Aldrei fyrr hefur blasað við jafn- mikil hætta á að samhengið í mál- sögu okkar gæti rofnað. Því skal þó ekki gleymt að hér hefur þegar verið unnið mikilvægt starf. Orða- smíð og nýjungar í máli hafa orðið okkur þjóðaríþrótt og í samfélagi þjóðanna getum við verið stolt. Hins vegar má okkur ekki gleym- ast að tengja þráðinn til fortíðai- innar. Sá þráður einn er þess megnugur að varðveita þjóðarsál okkar og lifandi tjáningarmiðil hennar, íslenska tungu. Því án tungunnar erum við ekki þjóð meðal þjóða. Og með þvi að vera sjálfstæð þjóð með öðruvísi tungu og öðruvísi menningu en aðrir, höfum við eitthvað að gefa sem er öðruvísi. Alls þess sem því tengist ber okkur að gæta vel — láta ekki taka það frá okkur, af því að annars staðar séu menn vanir einhverju öðru ... Eitt af sérkennum okkar íslend- inga er nafnahefð okkar. Við höf- um haldið fast við þann gamla sið að heita skírnarnöfnum okkar og vera dætur og synir feðra okkar. Alls staðar þar sem við erum skráð er það fyrst og fremst með skírnarnafni, í þjóðskrá, símaskrá eða íslenskum æviskrám. Meðal annarra þjóða eru hins vegar ættarnöfn aðalnöfn manna og eru það þeirra siðvenjur. Nú hættir okkur við að gangast möglunar- laust undir það að afsala okkur þessum þætti í sjálfstæði og þjóð- areðii. Á ráðstefnum með erlendu fólki, á flugfarseðlum og í erlend- um gistihúsum, meira að segja á flugfarseðlum sem gefnir eru út á heimavettvangi heitum við ekki lengur Jón og Guðrún heldur Sig- urðsson (komma) Jón, eða Jóns- dóttir (komma) Guðrún. Og nú má spyrja, af hverju megum við ekki vera þar eins og hér heima, Guðrún Jónsdóttir og Jón Sigurðs- son? Ekki er úr vegi að við höfum það sem nýársheit að leiðrétta þennan misskiining meðal er- lendra manna og kenna þeim að virða sið sem oft hefur orðið efni í frásögu af sterkum þjóðarein- kennum. Sú tunga sem við lærðum ung við móðurkné er vandmeðfarin arfur. Rætur hennar liggja í fortíð, í horfinni menningu. Krónan breiðir sig yfir fjölhyggjuheim nútímans. Næringin milli róta og krónu fer um æðar sögunnar og án hennar verður laufskrúðið dauf- legt og iitsnautt. Á fyrri tíð var órofa samhengi í þróun tungunnar tryggt vegna þess að heimilin voru jafnframt vinnustaðurinn. Þá þurfti litlar áhyggjur að hafa af því að ungling- arnir töluðu annað mál en foreldr- arnir. Með breytingum sem orðið hafa, hefur hið mállega uppeldi þjóðarinnar raunverulega færst út af heimilinu og inn í skólana. Þess vegna verður aldrei ofbrýnt fyrir okkur mikilvægi þess uppeldis- starfs sem þar fer fram og kann að vera það sem skilur milli feigs og ófeigs í sögu okkar á næstunni. Þess vegna á ekki við neinn betur að gera en kennarana, sem hafa axlað þá ábyrgð með okkur for- eldrum að koma börnum okkar til manns. Við lifum á erfiðum tímum, er oft sagt. í viðtali sem nýlega birt- ist við hinn heimskunna enska rithöfund Harold Pinter komst hann m.a. svo að orði: „Víst má túlka veruleikann á marga vegu. En samt er hann alltaf einn. Og ef þessi veruleiki er sá að þúsundir manna sé verið að pynta til dauða á þessu andartaki og hundruð þús- unda megatonna af kjarnorku- sprengjum bíði þess að vera skotið á þessu augnabliki, þá er það svo, og það er mergurinn málsins. Við verðum að horfast í augu við það.“ Að horfast í augu við raunveru- leikann felur það í sér að takast á við hann. Gleðjast yfir því sem gott er og hafna því sem við viljum ekki að yfir okkur dynji. Hinn kunni vísinda- og lær- dómsmaður, landi okkar Wolfgang Edelstein, hefur um langt árabil unnið með íslenskum börnum og unglingum og kannað viðhorf þeirra til samtíðarinnar og um- hverfis. Könnun hans hefur leitt í ljós að mikill fjöldi íslenskra ung- menna lifir í stöðugum ótta við tortímingu. I þess konar veruleika er okkur mikil þörf á von, von um betri heim, von um varanlegan heimsfrið. Og okkur er mikil þörf á því, kynslóðum landsins, að geta rétt hver annarri höndina, tekist sameiginlega á við að byggja okkur brú, milli fortíðar og framtíðar, beint athygli okkar og kröftum að því sem sameinar okkur, en ekki sundrar, geta gengið til liðs við vonina og trúna á hin góðu öfl tilverunnar á nýju ári. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs árs. trúarinnar Péturs Sigurgeirssonar er kominn með bænheyrslu sína á sama degi og þjóðum heims tekst sameiginiega að snúa huga sínum til Guðs og, opna sál sína fyrir friðargjöf hans. Þá, og þá fyrst víkur hatrið og hefndin, sem sifellt er að stofna til styrjaldarátaka. Ástand heimsins sýnir okkur, að ekki er nóg að vita af Frelsaranum, sem vill frelsa lýð sinn frá syndum þeirra. Við verðum að vilja það líka. Heimurinn verður að vilja það. Mannkynið hefur verið leitt svo iangt frá Guðs vegum, að ef áfram er haldið sem horfir, er aðeins eitt framundan. Ef til kjarnorkustyrj- aldar kemur, hvort sem það verður af ásettu ráði eða slysni, eru mannkyni búin endalok og öllu, sem lífsanda dregur á jörðinni. Vonin er ein, að svo fari ekki. Sú von og það líf er Jesús Kristur. Þrátt fyrir óheyrileg hermdar- verk þeirra stríðsæstu manna, er engu þyrma og vekja óhug um alla jörð, er eins og örli á vonarbjarma friðar hér og þar á ófriðarsvæðum. í fyrsta sinn eftir áratugar styrj- öld í Líbanon komu stríðsaðilar til að semja um sátt og frið, — hver svo sem árangurinn kann að verða. Einn hershöfðingjanna í Afríku gaf upp ástæðuna fyrir vopnahléi í sínum herbúðum, er hann sagði: „Jólin eru að þessu sinni friðar- gjöf til allra þeirra, sem starfa af heilindum.'* Svo virðist sem vakning sé að verða til friðar: Hingað og ekki lengra. Nú er nóg komið. Tökum saman höndum um að breyta heiminum. íslenska þjóðin hefur tekið virkan þátt í að biðja um og starfa að breyttum heimi. Margir hafa gengið fram fyrir skjöldu og tjáð vilja sinn í verki. Þar á ég t.d. við stóran hóp listafólks, sem lagði fram krafta sína og hæfi- leika, — en einnig trú sína og bæn til að svara kalli tímans. Þannig varð til lag og texti Axels Einars- sonar og Jóhanns G. Jóhannsson- ar, sem flytur okkur gleðiboðskap, eins og ljóðlínur þessar vitna um: í von og trú er fólginn styrkur, sem öllu myrkri getur eytt, í hverjum manni — Jesús Kristur, er mannkyn getur leitt. Búum til betri heim, sameinumst, hjálpum þeim, sem minna mega sín, þau eru systkin mín. Vinnum að friði á jörð, um lífsréttinn stöndum vörð, öll sem eitt. Stór hópur ungra listamanna stóð að því að fylgja þessum boð- skap eftir. Þess hafa víða sést merki um þessi jól, að fólk finnur takmark sitt og tilgang í að snúa gangi mála á betri veg, breyta heiminum. Þetta lýsandi dæmi skín skært um þessi jól öðrum til fyrirmyndar. Við eigum ágætt listafólk, sem gengur upp í hlutverkum sínum. En af hvaða ástæðu sem það er, þá finnst mér skorta ákjósanleg verkefni margoft í lista- og menn- ingarlífi okkar, og kemur það ekki hvað síst fram á hinni kristnu trú- arhátíð. Einu sinni áttu trúin og listin samleið að boðun og sköpun Pétur Sigurgeirsson hins góða, fagra og fullkomna. Svo þyrfti áfram að vera. Hugsanir okkar og tilfinningar eru í svo ríkum mæli í sjónmáli og undir áhrifum yfirþyrmandi ótta og böls, að við erum í þörf fyrir hin leiftr- andi tákn vonar og þeirrar vissu, að hægt sé að búa mannkyninu betri heim. Við þurfum á þeirri handleiðslu að halda á sviði trúar og listar, sem leiðir okkur frá myrkri til ljóss, — en ekki öfugt frá ljósi til myrkurs. Það er margt i dag, sem styður kenningu hlutverks listsköpunar, sem John Steinbeck lýsti 1962, er hann tók við bókmenntaverðlaun- um Nóbels og sagði: „Rithöfundurinn á að skýra og hylla eiginleika mannsins til and- legrar göfgi, hvetja hann til dáða á tímum ósigra, til hugprýði sam- úðar og kærleika. f hinni þrotlausu baráttu við veikleika og örvænt- ingu eru þessir eiginleikar hin leiftrandi tákn vonarinnar. Hér er tekið í sama strenginn og þegar Páll Ólafsson kvað: Vonin styrkir veikan þrótt voninkvíðahrindir vonin hverja vökunótt vonarljósin kyndir. Sameinumst um tákn vonarinn- ar, vissu trúarinnar, að friður er til, sé við honum tekið. Þar á ekki að skipta neinu máli hvaða stétt eða stöðu við skiptum, listgrein er við iðkum, eða starf, sem við stundum. í þriðja lagi vil eg nefna, að nýja árið á erindi við íslensku þjóðina í heild. ísland á við sína erfiðleika aö stríða og vandamál. En hvað er það borið saman við þrengingar, sem sumar aðrar þjóðir þurfa að ganga í gegnum. Ef grannt er skoðað, erum við í þúsundfaldri þakkarskuld við forsjónina: „Guðs vors lands." Hvar í heiminum er nú betra að búa en á íslandi? En við megum gæta okkar. Þegar á allt er litið, eru það ekki erfiðleikarnir, sem skipta mestu máli, heldur hvernig þeim er mætt, hvernig við þeim er brugðist, hvernig á þeim er haldið. Það hefur alla tíð skipt sköpun í lífi íslensku þjóðarinnar. í ávarpi sínu til þjóð- arinnar í gærkvöldi, sagði forsæt- isráðherra: „Hin forna arfleifð hefur bjargað íslendingum." Þjóðin þoldi margt mótlætið áður fyrr en bjargaðist úr hverri eldraun fyrir trú og festu hins forna arfs. En á þjóðin í dag sjálfs- agann til að þola meðlætið? Engin þjóð lifir án aga og umvöndunar Drottins. í kærleika Guðs er hvort tveggja: Elska og agi. „Drottinn agar þann sem hann elskar." (Orðskv. 3:12.) Skynsemin setur þjóðum lög, samviskan fylgir þeim eftir jafnt virka daga sem helga. Nú er það aginn, sem er okkur lífsnauðsyn. Gerum allt, sem í okkar valdi stendur til þess að forða þjóð okkar frá böli áfengis og eiturlyfja. Við þurfum á heit- strengingu að halda líkt og kemur fram í ættjarðarljóði Guðmundar Magnússonar: Eg vil elska mitt land! Þar syngjum við þessa hvatn- ingu: „Eg vil láta það sjá margan hamingjudag." Hvernig getum við látið þá vilja- yfirlýsingu verða okkar á komandi ári? Mér koma í hug hin viskuríku orð læriföður míns frá skólaárum, er hann eitt sinn sagði: „Gerðu eitthvað á hverjum degi, er þú tekur ekki peninga fyrir.“ í fjórða lagi, og síðast en ekki síst, er það að segja um áramótin, er ristir dýpst í sál okkar og knýr okkur til umhugsunar. „Tíminn líður óðum á æðsta ráði bundinn." Guð gefur okkur aðeins einn dag í senn, og sá dagur er reyndar ekki til enda tryggur. „Heill í gær, nár í dag! Ó hve getur undra skjótt yfirskyggt hin dimma nótt.“ (Matth. Jochumsson.) „Eitt er þó víst“ um áramótin eins og öldina, sem Hannes Hafstein kvað um: Hún geymir Hel og Hildi hlífi þér, ættjörð, Guð í sinni mildi. Hvernig hlífir Guð kynslóð sinni, okkur sem lifum og deyjum. Já, jafnvel svo, eins og Biblían segir: „Sannlega, sannlega segi eg yður: Sá sem varðveitir mitt orð, skal aldrei að eilífu deyja!“ (Jóh.8:51). Þannig hefur faðirinn himneskur og eilífur séð fyrir burtför okkar af þessum heimi. Hann er sjálfur kominn til að gera sig að leiðsögumanni í syni sínum og tjá heiminum allan kærleik sinn, leysandi okkur hvert og eitt undan valdi syndar og dauða. Þetta eru stór orð, en þetta er líka allur sannleikurinn. Heim til himins tefur hindrun ei nein. Vérerumeittíhonum. Er tekið á móti honum? Gerum við það i dag? Gerir heimurinn það á árinu? Notum tímann á meðan hann er okkur gefinn! Fylgjum Kristi fast eftir áfram og inn í eilífðina: Til þess er eg fæddur og til þess er eg kominn í heiminn. að eg beri sannleikanum vitni.“ I Jesú nafni. Amen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.