Morgunblaðið - 03.01.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
Minning:
Bergur Þorleifs
í Flatey
Fæddur 20. september 1898.
Dáinn 24. desember 1985.
Það mun hafa verið fyrir um
tuttugu árum sem ég kynntist
Bergi fyrst. Komum við þá sem
oft síðar ríðandi úr Suðursveit í
fylgd góðra félaga og skyldi nú
haldið austur og skyldi ríða „Fljót-
in“. Viðstaðan í Flatey var lengri
en ég bjóst við, enda vissi ég ekki
þá, hvern höfðingja ég var heim
að saekja.
Maðurinn var stór og sterklegur
og auðséð að ekki hafði alitaf verið
mulið undir hann, en handtakið
Fæddur 6. október 1935
Dáinn 24. desember 1985
„Hvað er það að deyja annað en standa
nakinn í blænum og hverfa inn í sól-
skinið." K.G.
Jón Kristinsson bróðir minn lést
í Landspítalanum þann 24. desem-
ber sl., aðeins fimmtugur að aldri.
Hann fæddist á Akureyri þann 6.
október 1935 og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum, þeim Önnu Sig-
rúnu Jónsdóttur, sem nú er látin,
og Kristni Jóhannessyni, sem lifir
son sinn. Mig langar að senda
honum kveðju mína og þakka
honum samfylgdina. Hann var
traustur vinur minn og foreldra
okkar, en við börnin vorum bara
tvö.
Lífið er skammvinn stund þegar
litið er til baka, og bernsku- og
æskuár í öruggu skjóli foreldra
líða hratt. Það sem eftir situr eru
minningarnar sem eru stór hluti
af okkur sjálfum og skýrast með
árunum, og hafa sín áhrif þegar
var traust og fannst fljótt að hér
var kominn maður, sem óhætt var
að treysta. Auk hans voru þá til
heimilis í Flatey á Mýrum, Sigurð-
ur Ketilsson, uppeldisbróðir hans,
sem látinn er í hárri elli fyrir um
ári síðan, Páll Ingvarsson, og
Guðrún fjörgömul kona, sem þar
hafði verið alla sína ævi, en er
látin fyrir nokkrum árum. A hin-
um Flateyjarbænum bjó svo Guð-
jón Jónsson og býr enn.
Samkomulag á þessum heimil-
um var með eindæmum gott og
vildi hér hver annan styðja og
halda uppi rausn og var það kapps-
hljóðnar í kringum okkur.
Eg kveð bróður minn og óska
honum góðrar ferðar.
Ella
mál að taka vel á móti gestum og
láta fara sem best um þá og þeirra
reiðskjóta, lét þar Bergur aldrei
sitt eftir liggja.
Margar ferðirnar kom ég síðar
að Flatey með Ingimar á Jaðri og
fleiri góðum hestamönnum og varð
svo heppinn að eignast tvo mósótta
gæðinga frá Bergi, voru þeir stórir
og sterkir, enda fengið gott uppeldi
hjá Bergi og annar reyndist einn
fljótasti hestur landsins á sinni
tíð. Þar gerði Bergur engan grein-
armun á, hann hugsaði eins vel (og
jafnvel betur) um hesta sína og
mannfólkið.
Bergur átti alltaf afburða hesta-
kyn og fékk að lokum fagran bikar
sem verðlaun fyrir kynbótahryss-
una Mön og afkvæmi hennar. Það
er margs að minnast úr samskipt-
um okkar þessi 20 ár, en það sem
aldrei gleymist er hans hlýja
handtak og fallega bros er mætti
manni í hvert sinn, að við hitt-
umst.
Bergur fluttist barnungur að
Flatey og lifði þar allan sinn aldur
ásamt uppeldisbróður sínum Sig-
urði Ketilssyni. Mér er ekki kunn-
ug þeirra saga fyrr en síðustu árin,
en þó veit ég, að lífið var enginn
leikur á þeim árum. Það var róið
og það var stritað, enda báru
handleggir þeirra beggja þess
vitni, að þeir hafa ekki dregið af
sér.
Bergur hafði gaman af að hitta
fólk og blanda við það geði. Fór
hann oft í langar ferðir á manna-
og þó sérstaklega á hestamanna-
mót. Var hann þá hrókur alls
fagnaðar og fagnaði vinum sínum
vel. Kom þá strax fram, hvað Bergi
leið miklu betur að fá að vera
veitandinn en þiggjandinn.
Síðustu árin átti Bergur við
nokkurn lasleika að stríða en með
mikilli hjálp og alúð Páls bónda í
Flatey hélt hann furðanlega sínu
striki og vildi hvergi frekar vera
en í Flatey.
Með Bergi er horfinn stórbrot-
inn maður og að honum er rnikill
sjónarsviptir. Minning hans mun
þó lifa og mannbætandi var að fá
að kynnast honum.
Sveinn K. Sveinsson
Borgarfjörður:
Reykholtsskóli
fær gjafir frá
gömlum nemendum
REYKHOLTSSKÓLi fékk nú í
haust veglega gjöf frá 20 ára nem-
endum, Ijóskastara til aö lýsa upp
skólahúsiö utanvert.
Einnig fékk skólinn veglega pen-
ingagjöf frá Þorsteini á Brúareykj-
um, sem var notuð til segulbands-
kaupa fyrir skólann. Lög um héraös-
skóla voru sett 1929 og 1930 var
héraðsskólinn í Reykholti stofnað-
ur.
f fyrstu var gert ráð fyrir að
námstíminn skyldi vera þrjú ár,
en í samræmi við fræðslulögin
1946 breyttist smám saman náms-
tíminn í héraðsskólunum, þar sem
tekið var upp nám til landsprófs
miðskóla. Héraðsskólanum var í
upphafi ætlað að vera eins konar
lýðháskólar, sem veittu almenna
fræðslu, reyndar með lokaprófi, en
án ákveðinna réttinda til fram-
haldsnáms.
Nú í dag er Reykholtsskóli með
9. bekk, skipulegt tveggja ára nám
samkvæmt námsvísi fjölbrautar-
skóla á Vesturlandi með íþrótta-
og verslunarbraut sem aðalgrein-
ar.
Skólastjóri í Reykholti er Jónas
Jónsson. Kennarar eru 10 auk
skólastjóra. Heimavistarrými er
fyrir 128 og í nýja mötuneytinu
verða 8 herbergi. Verið er að
byggja nýtt mötuneyti fyrir skól-
ann, sem verður tekið í notkun
1987. Fjöldi nemenda á fyrri hluta
ársins var 110 og geta nokkrir
nemendur komist að eftir áramót.
í Reykholti er rekið Eddu-hótel
á sumrin. Reykholt er eitt elsta
menningar- og menntasetur á
landinu og er fræðimannsandinn
þar enn í loftinu og varla til staður
þar sem betra er að stunda nám.
Birting afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minning-
argreinar verða að berast blaðinu meö góðum fyrir-
vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður.
Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að
frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning-
arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að
vera vélrituð og með góðu línubili.
Jón Kristins-
son - Kveðja
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dyrasímar — Raflagnir
Gestur rafvirkjam., s. 19637.
Aöstoöa námsfólk
í íslensku og erlendum málum.
Siguröur Skúlason, magister,
Hrannarstíg 3, sími 12526.
Til sölu Malibu station
Classic 1975
Mjög vel farinn. Á sérstökum
kjörum ef samið er strax. Upp-
lýsingar í síma 96-61672.
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferð sunnudaginn 5. janúar.
Brottför kl. 13.00 i gönguferö á
Úlfarsfell (285 m), létt ganga.
Fariö frá Umferöarmlðstöðinnl,
austanmegin. Farmiðar viö bfl.
Frítt fyrir börn i fylgd fullorðinna.
Farmiöar við bíl. Verð kr. 300.
Fararstjóri: Ólafur Sigurgeirs-
son.
Feröafélag Islands.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
i kvöld kl. 20.00 norrænn jóla—
fagnaöur. Frú Hrefna Tynes tal-
ar. Hátiöin fer fram á norsku.
Allir velkomnir.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Þórshafnarbúar
og nærsveitamenn
Sjálfstæöisfélaglö boöar til almenns fundar
um fiskveiöistjórnun og sjávarútvegsmál í
félagsheimilinu laugardaginn 4. janúar kl.
16.00. Frummælandi Björn Dagbjartsson
alþingismaður.
Stjórnin.
nauöungaruppboö
- ...-
Nauðungaruppboð
á Háeyrarvöllum 22, Eyrarbakka, þinglesinni eign Sveins Magnússon-
ar, fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfum Tryggingastofnunar rikisins,
Tryggingamiöstöðvarinnar hf. og Guöjóns Ármanns Jónssonar hdl.,
miövikudaginn 8. janúar 1986, kl. 10.00.
Sýslumaður Árnessýslu.
Nauöungaruppboð
Lausafjáruppboö veröur haldiö föstudaginn 10. janúar 1986 kl. 10.00
aö Litla Hvammi, Reykhólsdal, starfsstöö Breiöuverks hf. Selt veröur
allt lausafé bifreiöaverkstæðisins s.s. verkfæri, varahlutir o.fl.
Greiösla við hamarshögg.
ے
Bifreiðainnflytjendur
Áætlaö er aö kaupa um þaö bil 100 nýjar
bifreiðir fyrir ríkisstofnanir á árinu 1986.
Tilboösgögri eru afhent á skrifstofu vorri og
eiga tilboö aö berast fyrir 24. janúar 1986.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, sími 26844.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjaröarsýslu.