Morgunblaðið - 03.01.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
37
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
33 nemendur út-
skrifaðir á haustönn
Selfossi, 23. desember.
SKÓLASLIT haustannar Fjöl-
brautaskóla Suöurlands fór fram sl.
laugardag 21. desember. Útskrifaðir
voru 33 nemendur, 23 stúdentar og
10 nemar af styttri brautum.
Þeir nemendur sem útskrifast
stunduðu nám á 14 mismunandi
brautum og nokkrir útskrifuðust
af tveimur námsbrautum í senn.
Úr öldungadeild útskrifuðust 7
nemendur, þar af eru fjórir sem
hófu nám í öldungadeildinni í
Hveragerði, en þar hófst starfsemi
deildarinnar. Þeir nemendur sem
þá hófu nám hafa jafnan verið
stofninn í nemendahópi öldunga-
deildarinnar.
Við skólaslitin voru veitt verð-
laun frá nokkrum fyrirtækjum á
Selfossi fyrir góðan námsárangur
í einstökum greinum. Fyrirtækin
sem gáfu verðlaunin, bækur, voru
Mjólkurbú Flóamanna, Kaupfélag
Árnesinga, Guðmundur Tyrfings-
son, Söluskálinn Arnbergi, Radíó-
ver, Guðnabakarí, Landsbankinn
og Prentsmiðja Suðurlands.
Sigurður Ragnar Jónsson, stúd-
ent af málabraut, fékk sérstök
verðlaun frá skólanum fyrir góða
ástundun og árangur í námi. Að
auki fékk hann verðlaun í dönsku,
þýsku og íslensku.
í lokaorðum sínum til nemenda
benti Þór Vigfússon skólameistari
þeim á að gæta þess að spyrja sjálf
sinna spurninga um það sem þeim
lægi á hjarta og forðast að láta
aðra búa til spurningarnar fyrir
sig. „Svör er hvarvetna hægt að
fá en ekki er sama hvernig spurt
er,“ sagði Þór m.a.
Á haustönn skólans stunduðu
430 nemendur nám í dagskóla og
100 í öldungadeild. Á vorönn 1986
verða eitthvað færri nemendur í
skólanum. Á næstu önn hefur verið
ráðin bót á kennaraskorti í eðlis-
fræði og tölvufræði.
Þorlákur Helgason aðstoðar-
skólameistari lætur af því embætti
við skólann um áramót en mun
starfa áfram sem kennari við skól-
ann. Umsóknarfrestur um stöðu
hans rennur út um áramót.
Húsfyllir yar í Selfosskirkju við
athöfnina og meðal gesta voru
rektor og tveir eðlisfræðikennarar
Menntaskólans við Sund en þangað
sóttu nokkrir nemendur nám í
eðiisfræði og tölvufræði.
Að venju söng kór Fjölbrauta-
skólans við athöfnina undir stjórn
Jóns Inga Sigurmundssonar.
SÍg. JÓDB.
Kór Fjölbrautaskólans á Selfossi söng við athöfnina
Kynningsmolar um tímarit
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Historisk tidskrift, 3. hefti 1985
Útg. Universitetsforlaget
Þess hefur áður verið getið í
umsögnum um tímarit, að frændur
okkar í Noregi, alténd hjá ofan-
greindu útgáfufyrirtæki, eru iðnir
við að senda rit sin til Morgun-
blaðsins. Og eftir þeim áhuga að
dæma sem fyrri umsagnir og
kynningar á tímaritum hafa vakið
er ástæða til að halda slíkri kynn-
ingu áfram öðru hverju. Norska
sagnfræðingafélagið stendur fyrir
útgáfu og ritstjórar eru Ole Krist-
ian Grimnes, Hákon Hovstad og
Sölvi Sogner. Fjögur hefti koma
árlega.
Meðal efnis í ritinu nú má nefna
grein eftir Ottar Dahl, „Kvinne-
historie". í því samhengi er vert
að geta þess að Universitetsforlag-
et, er að senda frá sér Kvinnenes
leksikon, myndarlegt verk í tveim-
ur bindum, sem síðar verður vikið
að hér í blaðinu. Allmargar ágætar
greinar eru um nýútkomnar bæk-
ur, þar á meðal um bók Henriks
Nissen: Scandinavia during Second
World War, sem er kannski at-
hyglisverðust fyrir það að ástæða
þykir til að taka fram að íslands
sé þar að engu getið.
Þá eru tvær svokallaðar um-
ræðugreinar „Vil samfunnsviteren
og historikeren skrive den samme
minionitetshistoria?" eftir Einar
Arne Drivesen og Hverdagshist-
orie-debatt eftir Einar Terjesen.
Historisk tidskrift er að útliti
og búnaði ekki verulega aðgengi-
legt, öðrum en þeim sem það er
bersýnilega ætlað fyrst og fremst,
þ.e. sagnfræðingum og áhugafólki
á því sviði.
Nytt norsk Tidskrift, 3.
hefti 1985
Þetta er einnig ársfjórðungsrit
og efni öllu alþýðlegri en í því sem
fyrst var nefnt. Ritstjórar eru
Rune Slagstad, Francis Sejersted,
hans Skjervheim og Öyvind Öst-
erud.
Einhver allra læsilegasta grein
margra góðra í þessu blaði fannst
mér „Ungarske forviklinger" eftir
Hans Magnus Enzensberger og
önnur grein vekur snarlega for-
vitni; hún er eftir Yngve Finslo
og heitir „Treholt-saken som
mediadikt".
Lars Roar Langslet, menningar-
og vísindaráðherra, skrifar fýsi-
legan pistil „Den konservative
mediarevulusjon" og upplýsandi
grein er einnig „Hva er kvinne-
forskning i litteraturen?" eftir
Vigdisi Ystad.
Blytta, 2. hefti 1985
Enn ein sending frá Universit-
etsforlaget. Hér er sérrit grasa-
og gróðurfræðinga á ferðinni. Rit-
stjóri er Lis Borgen og í ritinu eru
ýmsar skýringar og teikningar
með greinum, sem ugglaust koma
þeim að notum sem með málum
fylgjast. Til að gefa hugmynd um
innihald er grein sem heitir
„Plante navn oppkalt eftir Christ-
en Smith“. Hann var fyrsti pró-
fessor í grasafræði í Noregi og í ár
eru liðin 200 ár frá fæðingu hans.
Hann þótti mikill og merkur
brautryðjandi í öllum grasafræði-
legum rannsóknum á sínum tíma
og enginn norskur grasafræðingur
hefur slegið honum við hvað varð-
ar fjölda plantna sem hafa verið
skírðar eftir honum. Þetta er
aðgengileg grein þótt grasafræði-
þekking sé í meðallagi. Annarrar
skal og getið, Fjellplantenes av-
hengighet av klimaet eftir Yngvar
Gauslaa og ennfremur Nökle-
blomstene i Tromsö eftir Reidar
Elven. Ýmsar skýringar eða ágrip
greinanna eru einnig þirt á ensku.
Kunst og kultur, 3. hefti
1985
Þriðja hefti Kunst og kultur er
helgað Knut Berg, sem er forstjóri
Þjóðminjasafnsins í Osló, og hefur
gegnt þeiri stöðu í tólf ár. Hann f
er sextugur um þessar mundir og
situr í hinum ýmsu lista- og menn-
ingarmálanefndum og er aðalrit-
stjóri nýs bókaflokks í sjö bindum,
Norges Kunsthistorie, sem ýmsir
hafa án efa gluggáð í. Á forsíðu
er málverk sem Frans Widerberg
málaði í tilefni afmælisins og
teikning eftir Gösta Hammarlund
er af honum í ritinu. En þó að
afmælis Knuts Berg sé minnzt
veglega er margt annað fróðlegt
þar að finna. Það tengist þó flest
starfi og þróun á norska Þjóð-
minjasafninu. Bo Ture Eliasson á
grein sem heitir En Huslig Scene.
Et Genrestykke af Adolph Tidem-
and, Sidsel Hellisen skrifar um
J.C. Dahl og den store tradisjon
og Trygne Nergaard: Madonna tar
av seg glorien. Mikið af fallegum
listaverkamyndum prýðir þetta
rit, sem er vandað að öllum frá-
gangi.
Bladid sem þú vaknar við!
uTSALA
hefst í dag.
við Laugalæk