Morgunblaðið - 12.01.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1986
jgjlI.. ,^« .......
Morgunbladið/Júlíus
Guðmundur Sveinsson skólameistarí afhendir nemendum verð-
laun fyrir góðan námsárangur.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti:
Útskrifaði
58 stúdenta
á tíu ára
afmæli sínu
Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti útskrífaði 50 stúdenta úr
dagskóla og átta stúdenta úr
öldungadeild sinni þann 20.
desember sl., en nemendur
skólans nú eru 1.240 í dag-
skóla og rúmlega 900 í öld-
ungadeild. Skólinn er því
stærsti framhaldsskóli lands-
ins.
Útskriftin fór fram í Bústaða-
kirkju, þar sem einnig var
minnst tíu ára afmælis skólans,
en hann tók fyrst til starfa 4.
október árið 1975. Úr dagskóla
hlutu þeir Hörður Andrésson og
Albert Imsland bestan náms-
árangur og úr öldungadeildinni
dúxaði Hrefna Einarsdóttir.
Þá luku átta nemendur
sveinsprófí frá dagskóla, fímm
á rafvirkjabraut og þrír á húsa-
smíðabraut. Þrír luku þriggja
ára sérhæfðu verslunarprófí og
tólf almennu verslunarprófí, sem
er tveggja ára nám. Fimm
sjúkraliðar útskrifuðust eftir
þriggja ára nám. Frá öldunga-
deild fjölbrautarskólans luku
fjórir sérhæfðu verslunarprófí
og 14 luku almennu verslunar-
prófí.
í dagskóla er kennt á sjö
brautum og í öldungadeildinni
eru fímm brautir. Skólastjóri
Fjölbrautaskólans í Breiðholti er
Guðmundur Sveinsson.
Sínna ekki aukavöktum
Flugumferðarstjórar ákváðu á
fundi sínum á Hótel Borg á
fimmtudagskvöld að fresta
„skipulögðum vamaraðgerðum"
tíl 16 janúar næstkomandi. Segir
í ályktun, sem samþykkt var á
fundinum, að þetta sé gert „í
trausti þess, að flugmálastjórí
sjái að sér og láti af valdníðslu
gagnvart flugumferðarstjórum",
eins og það er orðað í samþykkt-
inni.
Að sögn forsvarsmanna flugum-
ferðarstjóra snýst deilan nú fyrst
og fremst um ráðningu tveggja
vaktstjóra og tilfærslur tveggja
varðstjóra og yfírflugumferðar-
stjóra í önnur störf þótt ýmislegt
fleira kæmi einnig til. „Aðalatriðið
er að menn séu ekki reknir úr þeim
störfum sem þeir hafa unnið við í
áratugi og hafa skipunarbréf frá
ráðherra upp á, gegn þeirra vilja,"
sagði einn forsvarsmanna flugum-
ferðarstjóra, sem Morgunblaðið
ræddi við. „Við viljum bara að það
sé farið að lögum, og þessi störf
auglýst. Við fórum upphaflega ein-
göngu fram á að þessu yrði frestað
fram yflr kjarasamninga þannig að
hægt yrði að taka upp þessi nýju
stöðuheiti í okkar kjarasamningum
og menn gætu sótt um stöðumar
í framhaldi af því. En flugmálastjóri
hefur verið ósveigjanlegur við að
knýja þetta í gegn og hann vill
ekki hvika með eitt né neitt í þessu
máli. Ég held að eins og staðan er
núna, sé eina lausnin að hann aftur-
kalli ráðningu þessara tveggja
vaktstjóra, þannig að unnt verði að
fínna einhvem samningsflöt á þessu
máli.“
Pétur Einarsson, flugmálastjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að við þessari kröfu gæti hann ekki
orðið. „Það var þrautreynt að ná
samkomulagi við Félag flugum-
ferðarstjóra og allt gert til að ná
samkomulagi í þessu máli. Eftir að
það tókst ekki var ákveðið að skipu-
ritið tæki gildi 1. þessa mánaðar
og jafnframt ákveðið að þessir
menn tælq'u sínar stöður. Þeir hafa
nú tekið þessar stöður og því verður
ekki breytt. Það er of seint,“ sagði
flugmálastjóri.
Á áðumefndum fundi flugum-
ferðarstjóra var harðlega mótmælt
áminningarbréfum flugmálastjóra
og samgönguráðuneytis og þess
farið á leit við ráðherra að bréfín
yrðu afturkölluð. Þá var og lögð
áhersla á, að félagsmenn sinntu
ekki aukavinnu á meðan núverandi
ástand varir. Má því búast við að
einhveijir erfíðleikar geti orðið við
að fullmanna allar vaktir, þar sem
göt í vaktatöflu hafa að undanfömu
verið fyllt með því að kalla menn út
í aukavinnu.
XSTRÁLÍA
Keflavík
Sidney
Keflavík
Kr. 54.950
Normalfargjald
kr. 207.950
—rtug*11
No’fí'0'
Ys-
63
58O
Keflavík
°lCeflJanG,ro
Kefíavík
Jkjrno
"N?rn)alf*9hkFm
Jll108.330
Fargjöldin hér í auglýsingunni eru dæmi um frábæran
árangur stöðugrar leitar okkar að hagstæðustu
ferðamöguleikunum fyrir fólk á leið til útlanda f einka-
eða viðskiptaerindum.
Hjá Samvinnuferðum-Landsýn er sérþjálfað starfsfólk
reiðubúið að leiðbeina hverjum einasta viðskiptavini í
gegnum vandrataðan fargjaldafrumskóginn. Þá
þjónustu, sem ef til vill getur sparað þér þúsundir, færðu
án nokkurs aukagjalds.
Góð sambönd okkar við útlenskar ferðaskrifstofur og
flugfélög gera okkur einnig kleift að bjóða margs konar
sérferðir sem annars stæðu ekki til boða. Að auki
bókum við svo fyrir þig hótelgistingu erlendis,
bílaleigubíla, jafnvel aðgöngumiða í leikhús og fleira
— allt á augabragði.
Láttu okkur um að finna hagkvæmustu leiðina til allra
heimsálfa!
* Öll verð eru miðuð við gengi 9/1 1986, og eru háð vissum skilyrðum.
„Normalfargjald" er hér birt til viðmiðunar. Afar fáir ferðast á þeim
kjörum. Það sýnir hins vegar að kostnaðarsamt getur verið að villast
I fargjaldafrumskóginuml
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727