Morgunblaðið - 14.01.1986, Side 18

Morgunblaðið - 14.01.1986, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 breytinga Stórrýmingarsala -------- Ku/daúlpur. Verö kr ígon kf' 350 ““ 795- Fugmannajakkar VerÁu?\nn lr. "1,w' Barnaiogginggallar. VerO ■ 490. HerrasKyrtur, nt»aö uryai v >r 25_ ? * * #' ' • ^erö kr. 36. 750. Kvenskór. Verð ^ ,^^400°^ Karlmannaskor. o ^ 72Q SuSórtama. verölra kr. M9 - AOO.^^ Barnastígvéi veró kr. 2904 _ 199. Veró kr. Hliómplötur. Veró l^^-^lg^grTáaö: — " Þvouabalar. v x/askaföt. Verö kr. 71. Þvottálögur.sótthreinsandi 750 ml. Veró kr. 25. Ódýra hornið Verö frá kr. 25 — 200. Sælgæti, gjafavörur o.fl. o.fl. Heltt á könnunni. Grelöslukortaþjónusta. Viö opnum kl. 10 árdegis. Vöruloftið hf. Sigtúni 3, r_■ ■— Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna Seldi fyrir 7,6 milljarða 1985 Aukning frá fyrra ári 51,9% í krónum talið HEILDARÚTFLUTNINGUR frystra sjávarafurða hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna var á síðasta ári 88.008 lestir að verðmæti 7,6 milljarðar króna. Árið 1984 var útflutningurinn 82.596 lestir að verðmæti 5 milljarðar króna. Aukning milli áranna talin i krónum er 51,9% og 6,5% í magni. Sé sala miðuð við dollara, en 77,1% afurða SH eru seldar I þeim gjaldmiðli, nam hún 182,7 milljónum 1985 en 158 árið á undan, aukningin er 15,6%. Mest aukning milli áranna er i sölu til Japans og Bretlands. Útflutningur SH eftir helztu fersks og ísaðs fisks hafði í för markaðslöndum var sem hér segir: Bandaríkin 40.130 lestir 1984, 40.236 1985, aukning er 0,2%. Bretland 8.504 lestir 1984, 10.584 1985, aukning er 24,4%. Sovétríkin 14.617 lestir 1984, 16.435 1985, aukning er 12,4%. Frakkland 5.480 lestir 1984, 5.306 1985, 3,5% samdráttur. Vestur-Þýzka- land 7.044 lestir 1985, 5.135 1985, 27,1% samdráttur. Japan 3.151 lest 1984, 5.575 1985, 76,9% aukning. SH flutti alls utan 2.429 lestir af físki frystitogara. 1.400 lestir fóru til Bretlands, 550 til Japan og 310 til Bandaríkjanna. Samdráttur í frystingu karfa, ýsu og þorskblokkar átti veiga- mestan þátt í því, að ekki var aukning í útflutningi til Bandaríkj- anna árið 1985. Á því ári var markaðsstaðan í Bretlandi mun hagstæðari en árið á undan. Erfíð- ara um vik var í Vestur-Þýzka- landi, þar sem verðlag á markaðn- um tók ekki sambærilegum breyt- ingum til hækkunar eins og átti sér stað í helztu samkeppnislönfum á þeim afurðum, sem koma til greina inn á þennan markað. Á árinu 1985 var lögð aukin áherla á sölu til Japan og var mest aukn- ing á sölu þangað á karfaafurðum. Heildarbirgðir frystra sjávaraf- urða voru litlar í fíystihúsum innan SH um síðustu áramót og afskip- anir voru tíðar á árinu. Samkeppni um fískaflann milli helztu vinnslugreina var mikil á árinu 1985. Aukinn útflutningur með sér minnkandi frystingu í mörgum frystihúsum innan SH. Eins og fram kemur var mikil aukning í sölu hjá Icelandic Freez- ing Plants, dótturfyrirtækis SH í Bretlandi. Heildarsala fyrirtækis- ins á árinu 1985 nam 21,5 milljón- um punda, 1,3 milljörðum króna og jókst um 52% frá fyrra ári. Sala unninnar vöru nam 7,1 milljón punda, 433 milljónum króna og óunninna fískafurða 14,4 milljón- um punda, 878,4 milljónum króna. Aukningin milli ára er 69% og 45%. Aukningin er mest á Bret- landseyjum, en fyrirtækið selur einnig til annarra Evrópulanda. 20% af framleiðslu SH fóru á árinu 1985 í gegnum fyrirtækið. Ólafur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Icelandic Freezing Plants, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að verksmiðja fyrirtækisins skilaði lítils háttar hagnaði á síð- asta ári, þrátt fyrir tap fyrri hluta þess. Gangsetning verksmiðjunnar í upphafí hefði verið erfíð, en nú væri framleiðslan að komast í eðlilegt horf. Verið væri að setja upp vélar og tæki sem ykju fram- leiðsluna um þriðjung og yrðu veiðar með eðlilegum hætti, ætti nægilegt hráefni að fást. Staðan um áramótin væri því góð. Svo til öll framleiðsla síðasta árs væri seld og tæplega hefðist undan í verksmiðjunni og sama væri að segja um sölu flaka og blokka. Skortur á físki hefði verið í Bret- landi og Frakklandi á árinu, eink- um karfa, ufsa og grálúðu. Bandaríkin: Innflutnings- tollur á ferskan fisk frá Kanada Hugsanlegt að tollur á frystan fisk fylgi í kjölfarið YFIRVÖLD í Bandaríkjunum hafa nú ákveðið 6,85% toU á innflutn- ing fersks fisks frá Kanada og tekur ákvörðunin gildi innan skamms. Tollurinn verður síðan endurskoðaður í marz næstkomandi. Verði hann þá fastsettur er talið liklegt að farið verði fram á toll á fryst- an fisk frá Kanada vegna opinberra styrkja við sjávarútveg þar í landi. Tollur þessi er settur að kröfu sjómanna, sem telja sig bera skaða af samkeppninni frá Kanada. í bandarískum lögum er ákvæði þess efnis, að beri einhveijar atvinnu- greinar í landinu skaða af innflutn- ingi frá þjóðum, sem- styrkja- við- komandi útflutningsgreinar, sé toll- heimta heimil. Tollurinn nú fellur á allan ferskan fisk, hvort sem um er að ræða flök eða heilan físk, nema karfa og Kyrrahafsufsa. Hugsanlegt er talið að eigendur fíystitogara í Bandaríkjunum fari fram á toll á innflutningi á frystum físki frá Kanada. Það mun kosta nýjan málarekstur, sem gæti tekið langan tíma og hugsanlega fylgdu í kjöifarið aðgerðir gegn fleiri lönd- um svo sem Noregi, Færeyjum og Grænlandi, þar sem sjávarútvegur nýtur opinbers stuðnings. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood, dótturfyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum, sagði í samtali við Morgunblaðið að áhrif þessa væru mjög óljós. Alveg væri óvíst hvemig færi með ftysta fískinn og ábyggilega langt þangað til niðurstöðu í því máli væri að vænta. Þetta gæti komið illa við Norðmenn, Færeyinga og Grænlendinga, en allir vissu að sjávarútvegur á íslandi nyti ekki styrkja. Hins vegar gæti þáð bæði verið tímafrekt og kostnaðarsamt að hreinsa sig af slíkum áburði. Guðjón sagði, að skiptar skoðanir væru um það hvaða áhrif tollur á frystan físk frá þessum löndum gæti haft. Sumir teldu að fískverð hækkaði í Bandaríkjúnum, en sá möguleiki væri einnig fyrir hendi, að framleiðendur í viðkomandi lönd- um fengju aðeins minna í sinn hlut, tækju toilinn á sig og fleiri leiðir væru færar. Allt of snemmt væri ' að spá nokkm um það hver áhrifín yrðu. vmm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.