Morgunblaðið - 14.01.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR1986
29
Davíð Oddsson borgarstjóri
leggur homstein að Borgar-
leikhúsinu.
miiljónum króna til byggingar húss-
ins. Reykjavíkurborg hefur greitt
91,5% en Leikfélagið 8,5%. Á þessu ^
ári er áætlað að veija 85 milljónum
króna til byggingarinnar. Upphaf-
Iegur kostnaður var áætlaður 670
milljónir en eftir endurskoðun og
áætlun um spamað á ýmsum svið-
um er gert ráð fyrir að heildarkostn-
aður nemi 535 milljónum króna.
Arkitektar Borgarleikhússins eru
Guðmundur Kr. Guðmundsson, Ól-
afur Sigurðsson og Þorsteinn Gunn-
arsson.
Happdrætti
Laugarnessóknar
SÓKNARNEFND Laugamessókn-
ar fór af stað með happdrætti í lok
síðasta árs. Ráðgert var að draga
23. desember 1985. Vegna ófyrir-
sjáanlegra atvika verður dregið 10.
mars 1986.
Velunnurum Laugameskirkju er
bent á að hægt er að nálgast miða
í kirkjunni. Aðeins eru útgefnir
7.500 miðar. Hægt er að fá senda
miða heim í gíró. Haft er samband
í síma kirkjunnar.
(Fréttatilkynning)
Davíð Oddsson
lag-ði homstein að
Borgarleikhúsinu
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri lagði hornstein að Borgarleik-
húsinu sl. laugardag þann 11. janúar, á 89 ára afrnæli Leik-
félags Reykjavíkur. Viðstödd var Vigdís Finnbogadóttir forseti
Islands ásamt öðrum gestiun og leikurum Leikfélags Reykjavík-
ur.
Athöfnin hófst á því að blásara-
kvintett lék og Kór Leikfélags
Reykjavíkur söng undir stjóm Jó-
hanns G. Jóhannssonar. Þá lagði
borgarstjóri homsteininn og flutti
ávarp. Hann rakti byggingarsögu
hússins og lýsti því yfir að fullur
rekstur leikhússins mjmdi hefjast í
byrjun september 1988. Stefán
Baldursson leikhússtjóri flutti einn-
ig ávarp og afhenti borgarstjóra
Ijósmynd af Iðnó. Að lokum söng
Kór Leikféiagsins lokalagið úr
Ævintýri á gönguför, en það hefur
verið flutt oftar en nokkuð annað
hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Framkvæmdir við Borgarleik-
húsið hófust síðla árs 1976. Lokið
var við að steypa sökkla og neðstu
plötu 1978. I lok mars 1985 var
lokið við að steypa húsið upp og í
byijun október vora þök tilbúin
undir álklæðningu. Nú er verið að
ljúka þvf verki og undirbúa frágang
innanhúss. Hitalagnir era komnar
í hluta hússins og gler í glugga. Á
þessu ári verður lokið við innrétt-
ingar í anddyri, aðalinngangi og
forsal og lokið verður við litla sviðið
að mestu leyti. Gengið hefur verið
frá nokkram skrifstofum til bráða-
birgða og hafa þær verið teknar í
notkun. I tilefni afmælis Reykjavík-
urborgar á þessu ári er fyrirhugað
að halda tæknisýningu í þessum
hluta hússins og í hluta bílakjallara
og einnig verða leiksýningar á litla
sviðinu.
Borgarleikhúsið er 10.400 fm að
flatarmáli. Þar verður starfsemi
Leikfélags Reykjavíkur til húsa og
auk þess mun Reykjavíkurborg
hafa afnot af húsinu fyrir ráðstefn-
ur og fundi. í byggingunni era tveir
salir með sitt leiksviðið hvor. í
stærri salnum era 540 sæti á einu
hallandi gólfi. Sviðið er með hring-
sviði í gólfinu og yfír því er sviðs-
tum með ljósa- og leiktjaldarám.
Aftan við aðalsviðið er baksvið og
hliðarsvið til beggja handa. Framan
við það verður hljómsveitargryúa
sem rúmar yfír 50 hljóðfæraleikara.
í minni salnum rúmast 170-270
Kór Leikf élags Reykjavíkur söng undir sljórn Jólianns G. Jóhannssonar.
Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir, Davíð Oddsson borgar-
stjóri, Ástrfður Thorarensen og Stefán Baldursson leikhússtjóri.
manns í sæti eftir sætaskipan og
stærð leiksviðs. Salurinn er sex-
hymdur og með svölum allt í kring.
Anddyri og aðalinngangur er í
suðausturhomi byggingarinnar og
þaðan er einnig hægt að ganga í
bílageymslu sem er í kjallara húss-
ins. Innan anddyris er 700 fm for-
salur. Þar er fatageymsla, veitinga-
sala og inngangur í báða salina.
Suðvestanmegin í byggingunni er
inngangur starfsfólks, skrifstofur
og önnur aðstaða. Búningsherbergi
leikara era á tveimur hæðum. A
fyrstu hæð era verkstæði og rými
fyrir samsetningu leiktjalda. Á efri
hæðum era minni verkstæði, teikni-
stofur, leikmuna- og búninga-
geymsla og æfingasalur fyrir lík-
amsrækt og ballet.
Nú hefur verið varið um 242
Morgunblaúið/ól.K.M.
„Ritskoðun“ í höndum heilbrigðiseftirlits?
Heilbrigðisnefndir geta
stöðvað sölu á blöðum
— meti þær efni þeirra sem tóbaksauglýsingu
„SAMKVÆMT lögum númer 109/1984 nm hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit, sem heilbrigðiseftirlit sveitarf élaganna starfa eftir,
m.a. varðandi tóbaksvarnir, getur eftirlitið gripið til stöðvunarað-
gerða meti það málið svo alvarlegt, eða sé um ítrekað brot að
ræða, sem er í þessu tilviki,“ sagði Ingimar Sigurðsson, deildar-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, í samtali við blm. Morgunblaðsins
um þá ákvörðun heilbrigðiseftirlitsmanna á landsbyggðinni að
stöðva sölu á desemberhefti tímaritsins Samúels vegna meintrar
tóbaksauglýsingar í blaðinu.
„í lögunum um tóbaksvamir er
tekið til bæði beinna og óbeinna
auglýsinga," sagði Ingimar. „Það
sem átt er við með óbeinum auglýs-
ingum er meðal annars allskonar
tilkynningar til almennings, sýning-
ar á tóbaki og tóbaksvöram, upplýs-
ingar um tóbak og tilkynningar um
það. En það sem skiptir höfuðmáli
í þessu sambandi er notkun tóbaks-
vöraheita og tóbaksvöruauðkenna
og um það atriði era lögin mjög
skýr. Lagatextinn er afdráttarlaus
og það er hann, sem hlýtur að gilda
í þessu sambandi. Undantekning-
amar era sérstaklega tíundaðar:
bann við tóbaksauglýsingum gildir
ekki gagnvart erlendum tímaritum
á erlendum tungumálum, nema
höfuðmarkmið með útgáfu þeirra
sé að auglýsa tóbak. Auðvitað er
viss tvískinnungur í þessu, en á
þennan hátt náum við yfír 70—80%
af blaðamarkaði á íslandi. En það
er beinlínis rangt, að með lögunum
sé verið að leggjast gegn hverskon-
ar umfjöllun um tóbak.“
— En er það þá alfarið á valdi
heilbrigðisnefnda og starfsmanna
þeirra, heilbrigðisfulltrúa, að stöðva
sölu á blöðum?
„Samkvæmt tóbaksvamalögun-
um er eftirlitið í höndum heilbrigðis-
nefnda sveitarfélaganna. Stöðvun á
sölu Samúels nú er tilkomin vegna
þess, að heilbrigðiseftirlitinu var
bent á þessa umfjöllun og þeir
ákváðu að höfðu samráði við Holl-
ustuvemd ríkisins að grípa til sinna
ráða. Samkvæmt lögunum um holl-
ustuhætti og heilbrigðiseftirlit geta
þeir gripið til ýmissa ráðstafana —
lögin bjóða upp á margvísleg úr-
ræði. Telji heilbrigðisneftid til
dæmis að brotið sé gegn lögunum,
þá er hægt að veita áminningu, í
öðra lagi áminningu og ákveðinn
frest til úrbóta og svo í þriðja lagi,
ef í harðbakkann slær með ítrekun
eða sé brotið mjög alvarlegt, þá
getur heilbrigðiseftirlit gripið til
stöðvunaraðgerða, með aðstoð lög-
reglu ef með þarf. Nefndimar víðs-
vegar um landið telja, eins og holl-
ustuvemdin, að í þessu tilviki sé
um að ræða óbeina auglýsingu,
augljósa tilkynningu til almennings
og notkun á tóbaksvöruauðkenn-
um “ sagði Ingimar Sigurðsson.
Olafur Hauksson, ritstjóri Samú-
els, sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann teldi vægast sagt „vafa-
samt, að þau lög sem samþykkt
vora 1984 um tóbaksvamir, stand-
ist gagnvart prentfrelsisákvæðum
stjómarskrárinnar. Lögin ganga
nefnilega svo langt," sagði Olafur,
„að þau heimila hvaða heilbrigðis-
nefnd sem er á landinu að stöðva
sölu blaðs, ef þar birtist mynd af
sígarettupakka, jafnvel þótt myndin
fylgi frétt. Það er fáránlegt, og
hrein lögleysa, að starfsmenn heil-
brigðiseftirlits geti kveðið upp dóm
um það hvað sé auglýsing og hvað
ekki — og á grandvelli þess dóms
ákveðið að stöðva útbreiðslu við-
komandi fjölmiðils.
Það er grandvallarregla hér á
landi að ef menn telja á sér brotið,
þá sé málinu skotið til dómstóla.
Upptaka blaðs án dóms er mjög
alvarlegt mál og verður aðeins rétt-
lætt með því að brýn ástæða hafí
verið til að verja almannaheill. |
Heilbrigðiseftirlit fer því offari
þegar það ákveður að stöðva sölu
Samúels. Ef um raunveralega
hættu var að ræða, hvers vegna
var blaðið þá ekki stöðvað fyrr en
8. janúar úr því að það var komið
á sölustaði 5. desember, mánuði
fyrr?“ spurði Ólafur Hauksson.
Hann sagðist ekki reykja sjálfur
og vera sammála flestum öðram
um að reykingar væra skaðlegar
heilsu manna. „Þess vegna hafa
tóbaksvamarlög verið sett — það á
að koma í veg fyrir það með sem
flestum ráðum að fólk reyki," sagði
hann. „En offorsið má ekki vera
svo mikið, að reynt verði að bijóta
á prentfrelsisákvæðum stjórnar-
skrárinnar. Heilbrigðiseftirlit hefur
úrskurðað að frétt í Samúel sé
auglýsing, eða tilkynning, til al-
mennings. En hvar vora þessir
heilbrigðiseftirlitsmenn þegar
Morgunblaðið birti 21. nóvember
síðastliðinn frétt með mynd um
sömu sígarettutegundir og sagt er
frá í desemberhefti Samúels? Mér '
vitanlega var Morgunblaðið ekki
kært fyrir „tóbaksauglýsingu" þá,
né var gerð tilraun til að stöðva
sölu þess.
En kjami málsins er að sjálf-
sögðu sá,“ sagði Ólafur Hauksson
að lokum, „hvort það sé í raun
eðlilegt í réttarríki að heilbrigðiseft-
irlit sjái um ritskoðun blaða."