Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
5
Verslun
Víðis í
Starmýri
seld
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingfi um sölu á Versluninni Víði
í Starmýri. Kaupandinn er Guð-
mundur Ragnarsson, einn af
eigendum Bílasölunnar Blik i
Skeifunni. Guðmundur hyggst
selja hlut sinn í bílasölunni á
næstunni. Eigendur Verslunar-
innar Víðis eru bræðurnir Matt-
hías og Eiríkur Sigurðssynir og
móðir þeirra Vigdís Eiríksdóttir.
Sölusamningurinn var undirrit-
aður þann 11. febrúar sl. og
tekur Guðmundur við verslun-
inni í Starmýri 1. mars og kemur
verslunin til með að heita Star-
mýri. Ekki fékkst uppgefið hvert
kaupverð er.
- Að sögn Eiríks Sigurðssonar
hefur verslunin í Starmýri verið til
sölu í tvö ár: „Við erum alls ekki
að draga saman seglin. Það stóð
alltaf til að selja búðina í Starmýri
þegar við fluttum í Mjóddina í
desember 1984. Framtíðin er í
Mjóddinni," sagði Eiríkur.
Fjallað um
skipulagsmál á
búnaðarþingi
BÚNAÐARÞING verður sett í
Súlnasal Hótel Sögu á mánudag-
inn, 24. febrúar, klukkan 10.
Ásgeir Bjarnason formaður Bún-
aðar-félags íslands mun setja
þingið og flytja yfirlitsræðu sína
og síðan mun Jón Helgason
ávarpa þingfulltrúa.
25 fulltrúar sitja búnaðarþing og
stendur það í um það bil tvær vikur.
Að sögn Jónasar Jónssonar búnað-
armálastjóra er búist við að stærstu
málin á þessu búnaðarþingi verði
umræður og afgreiðsla frumvarpa
til nýrra jarðræktarlaga, búfjár-
ræktarlaga og lagaákvæða um
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Bjóst hann við að skipulagsmál
Búnaðarfélags Islands og bænda-
samtakanna yrðu mikið rædd, en
milliþinganefnd búnaðarþings hefur
unnið að gerð tillagna um breyting-
ar á skipulaginu. Á sunnudag,
daginn áður en búnaðarþing hefst,
verður fjallað um þau mál á fundi
búnaðarþingsfulltrúa, formanna
búnaðarsambandanna, formanna
búgreinafélaganna og fleiri.
V erkakvennaf élagið
Framsókn:
Samþykkt heim-
ild til verk-
fallsboðunar
MÁNUDAGINN 17. febrúar 1986
var haldinn fundur í stjórn og trún-
aðarmannaráði Verkakvennafé-
lagsins Framsókn. Samþykkt var
einróma heimild til verkfallsboðun-
ar.
Fréttatilkynning
Hinn eini og sanni
hefst á morgun
að Fosshálsi 27
(fyrir neðan Osta- og smjörsöluna,
Árbæ, við hliðina á nýju Mjólk-
urstöðinni)
OPIÐ
daglega frá kl. 13—18 e.h.
föstudaga kl. 13-19 e.h.
laugardaga frá
kl. 10—16 e.h.
Fjöldi
fyrirtækj a
□ Karnabær □ Steinar □ Axel Ó.
□ Radíóbær □ Setubrautir □ Vogue
□ Garbó □Hummel □ Skinnadeild SÍS
□ BonaparteDYrsa skartgripaverslun
□ Barnafataversl. Fell □ Gjafavöru-
deildin □ Verðlistinn og ýmsir fleiri
Strætisvagnaferðir á
1 5 mín. fresti, leið 10
Videó-horn
fyrir börnin.
Frítt kaffi — Hægt að fá heitar
vöfflur m/rjóma, kleinur o.m.fl.
Musica Antica í
Naustinu í kvöld
MUSICA Antica kemur fram í
Naustinu í kvöld og leikur nokkur
miðalcjalög í tilefni flutnings Sin-
fóníuhljómsveitar íslands á Carm-
ina Burana eftir Carl Orff á tónleik-
um í Háskólabíói í kvöld.
Auk þess mun Dúó Naustsins, þau
Hrönn Geirlaugsdóttir og Jónas
Þórir, leika ljúf lög fyrir matargesti.
Fréttatilkynning
Gifurlegt vöruúrval — ótrúlegt verd
□ Dömufatnaður □ Herrafatnaður □ Unglingafatnaður □ Barnafatnaður □ Ungbarnafatnaður
□ Sportfatnaður □ Vinnufatnaður □ Gífurlegt úrval af alls konar efnum og bútum □ Sængur-
fatnaður □ Handklæði □ Gardínuefni □ Hljómplötur og kassettur í stórglæsilegu úrvali □
Skór á alla fjölskylduna □ Sportvörur í miklu úrvali □ Snyrtivörur □ Skartgripir □ Gjafavörur
í sérflokki □ Slæður, hanskar □ Hjartagarn 5 teg. 50 litir □ Frúarfatnaður □ Mokkajakkar □
Mokkafrakkar □ Mokkakápur □ Leikföng □ Sælgæti □ Blóm □ Bílaútvörp □ Bílamagnarar □
Hljómflutningstæki □ Kassettutæki □ Plötuspilarar □ Útvörp □ Myndbönd □ Vasadiskó □
Hátalarar □ Vasatölvur □ Gaslóðboltar o.m.fl. o.m.fl.