Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Minning:
Guðmundur Halldórs-
son, fv. útsölusljóri
Fæddur 9. ágúst 1900
Dáinn 13. febrúar 1986
Þeim fækkar óðfluga bömunum
sem fæddust aldamótaárið og böm-
in sem vom lítið eitt eldri og gátu
stutt þau fyrstu skrefin í leit að
legg og skel em fæst til frásagnar.
Þannig tæmast tímaglösin án af-
láts. I dag kveðjum við eitt af
bömum aldamótanna.
Guðmundur Halldórsson fæddist
í Reykjavík 9. ágúst árið 1900.
Foreldrar hans vom Andrea Katrín
Guðmundsdóttir og Halldór Högna-
son, verslunarmaður. Hann ólst upp
í stómm systkinahópi, þriðji í röð-
inni af níu systkinum sem náðu
fullorðinsaldri, en þrjú dóu í
bemsku.
Guðmundur missti föður sinn er
hann var 19 ára gamall og kom
það því í hans hlut og eldri systkina
hans að styðja móður sína við að
sjá heimilinu farborða. Skólaganga
hans varð því ekki löng. Hann hóf
fljótt störf við verslun og réðst
ungur til starfa við Áfengisverslun
ríkisins og var þar mjög lengi út-
sölustjóri eða alit til ársins 1969.
Guðmundur var hraustur í upp-
vexti, vel vaxinn og glæsilegur
maður, enda fljótt liðtækur í íþrótt-
um og þá fyrst og fremst í knatt-
spymu og sundi. Hann gerðist
ungur félagi í knattspymufélaginu
Fram, og vann félag hans á næstu
ámm marga frækilega sigra og átti
hann marga verðlaunapeninga frá
því tímabili, einnig tók hann þátt í
sundkeppni, þótt aðstæður væm þá
ekki góðar og var meðal annars
keppt í sjósundi.
Guðmundur var gæfumaður.
Mesta gæfa hans var að kynnast
Ágústu Jóhannesdóttur sem vann
þá hjá Lyfjaverslun ríkisins og giftu
þau sig 4. júní 1927. Þau byggðu
sér hús á Laugavegi 130 og bjuggu
þar þangað til 1944 er þau fluttu
í nýtt hús á Flókagötu 35 og þar
bjuggu þau þangað til Ágústa dó
1981.
Þessi glæsilegu hjón áttu margt
sameiginlegt. Þau vom bæði mikið
gefin fyrir útiveru, ferðalög innan
lands og utan og heilluð af hestum
enda ferðuðust þau mikið um landið
á hestum meðan heilsan leyfði. Þau
áttu lengi sumarhús í Fossvogi þar
+
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG KJARTANSDÓTTIR,
Grenimel 16,
lést í Borgarspítalanum 18. febrúar.
Hávarður Valdimarsson,
Ásta Margrét Hávarðardóttir, Loftur Jónsson,
Hannes Hávarðarson,
Ingibjörg Loftsdóttir, Ágúst Arason,
Jón Loftsson.
t
Maðurinn minn,
EGGERT EGGERTSSON
frá Hellissandi,
Mariubakka 6, Reykjavík,
lést 18. febrúar í Borgarspítalanum.
Jensína Óskarsdóttir.
+
Faðir minn,
JÓHANN ÓLASON,
Hjarðarholti,
andaðist í Sjúkrahúsi Húsavíkur miövikudaginn 19. febrúar.
Guðrún Jóhannsdóttir
og aðstandendur.
Minningarathöfn um móður okkar, tengdamóður ömmu og
langömmu,
GUÐLAUGU PÉTURSDÓTTUR
frá Ingjaldshóli,
Vesturvallagötu 1,
Reykjavfk,
verður í Dómkirkjunni föstudaginn 21. febrúar kl. 10.30. Útförin
fer fram frá Hellnakirkju, Snæfellsnesi, laugardaginn 22. febrúar
kl. 14.00. Bílferð verðurfrá BSI klukkan 8.00.
Valný Bárðardóttir,
Gunnleif Bárðardóttir,
Pétur Bárðarson,
Kristín Bárðardóttir,
Guðrún Bárðardóttir,
Jón Bárðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Helgi Sæmundsson,
Kristin Kjartansdóttir,
Magnús Gunnar Magnússon,
Þráinn Agnarsson,
Ólafur Pótur Pétursson,
+
Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGUNN ÓLAFSDÓTTIR,
Álfaskeiði 14,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. febrúar
kl. 10.30.
Laufey Þorgrímsdóttir,
Árni Svavarsson, Guðbjörg Björnsdóttir,
Ólafur Svavarsson, Þórdís B. Eyjólfsdóttir,
Svavar Svavarsson, Stella Kristjánsdóttir,
Gunnar Svavarsson,
og barnabörn.
sem þau dvöldu á sumrin og þar
höfðu þau líka aðstöðu fyrir hesta
sína.
Ágústa og Guðmundur eignuðust
ekki böm en þau ættleiddu tvö böm,
Öldu Guðfinnu f. 2. júní 1938. Hún
er flugfreyja og býr í Bandaríkjun-
um, gift Edward Duin, og Halldór
f. 3. desember 1938. Hann er
bankamaður hér í Reykjavík, giftur
Lám Gísladóttur og eiga þau fimm
mannvænleg böm. Bæði Alda og
Halldór hafa reynst foreldrum sín-
ummjög vel.
Ágústa og Guðmundur áttu fag-
urt heimili þar sem ríkti glaðværð
og mikil gestrisni og þar var alltaf
gaman að koma, enda var þar alltaf
mannmargt á meðan þau gátu sinnt
gestum. Eg hefi þekkt þau frá því
ég var ungur maður og Ágústu frá
því ég var drengur, því að fyrri
maður hennar, Þórhallur Jóhannes-
son læknir, var móðurbróðir minn.
Systir mín dvaldi einn vetur á heim-
ili þeirra og ein af dætrum okkar
bjó líka hjá þeim einn vetur og
þakka ég það af alhug. Við Selma
og böm okkar áttum þar margar
gleðistundir. En nú eru þau horfin
en eftir er fogur minning. Nú er
ekki lengur hægt að koma við hjá
þeim á Flókagötunni eftir að hafa
notið listar á Kjarvalsstöðum en það
gerðum við Selma svo oft.
Og nú er Guðmundur í dag
kvaddur hinstu kveðju frá Háteigs-
kirkju, þar sem hann og þau hjónin
áttu svo mörg sporin en þar var
hann meðhjálpari um 10 ára skeið.
Við sem þekktum hann svo vel og
þótti vænt um hann þökkum honum
og þeim hjónum fyrir allar gleði-
stundimar, sem þau veittu okkur
og mér verður hugsað til systkina
Agústu í Kanada, sem þau höfðu
mikið samband við og heimsóttu.
Guðmundur átti mörg síðustu
árin við mikið heilsuleysi að stríða
og lá oft á sjúkrahúsum og nú síð-
ustu tvö árin dvaldi hann á öldr-
unarlækningadeild Landspítalans í
Hátúni lOb. Þar naut hann mikillar
og góðrar læknishjálpar og hjúkr-
unar. Eftir að Ágústa dó hafði hann
flutt til Láru og Halldórs þar sem
hann naut frábærrar umhyggju og
kærleika og eftir að hann vistaðist
á öldrunarlækningadeildinni tóku
þau hann heim um hveija helgi allt
til síðustu áramóta. Ef sjúkum
gamalmennum væri yfirleitt sýnd
slík umhyggja er Guðmundur mætti
á heimili tengdadóttur sinnar og
sonar þá væri gatan þeim oft greið-
færari.
Ég sendi systkinum Guðmundar
fjórum sem eru á lífi, börnum hans,
tengdabömum og afabömum og
systkinum Ágústu í Kanada og
öðrum skyldmennum innilegar
samúðarkveðjur.
Það er heiðríkja yfir minningu
Ágústu og Guðmundar.
Jón Gunnlaugsson
Þeim fer fækkandi aldamóta-
mönnunum, sem slitu bamsskóm
sínum hér í borg í upphafi aldarinn-
ar.
Einn þeirra var Guðmundur
Halldórsson, er við kveðjum í dag.
Hann fæddist 9. ágúst, aldamótaár-
ið, sonur hjónanna Halldórs Högna-
sonar og Ándreu Guðmundsdóttur,
er ættuð vom úr Ámessýslu. Hann
var fjórði í röðinni af stórum bama-
hópi þeirra hjóna, en alls urðu
bömin tólf. Þijú dóu ung, en níu
komust til fullorðinsára.
Guðmundur starfaði hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins mestan
+
STEINUNN LÁRA JÓNSDÓTTIR
fædd 12.7 1900 í Vatnsfjarðarseli, Reykjafjarðarhreppi, N-lsafjarð-
arsýslu, lést 20.2 1986, verður jarðsunginn frá Kálfholtskirkju
föstudaginn 21.2 kl. 14.00.
Fyrir hönd systkina og vina,
Guðbjörg Tyrfingsdóttir,
Leo V. Johansen,
Ljónsstöðum, Árnessýslu.
+
Sonurokkar, bróðirog mágur,
ÁKI GÍSLASON
bókasafnsfræðingur,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. febrúar kl.
13.30.
Sigríður Guðlaug Brynjólfsdóttir,
Gísli Friðrik Petersen,
Þórir Gislason,
Helga Sigurjónsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUNNLAUGS HALLDÓRSSONAR,
arkitekts,
verður gerð frá Bessastaðakirkju föstudaginn 21. febrúar nk. kl.
13.30.
Guðný Þorbjörg Klemensdóttir,
Jón Gunnar Gunnlaugsson, Inga Lóa Haraldsdóttir,
Þrúður Gunnlaugsdóttir, Þorgeir Andrésson,
Klemens Gunnlaugsson, Guðrún Eggertsdóttir
og barnabörn.
+
Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
ÓSKARS. JCNSSON,
Njálsgötu 49,
verður jarðsunginn frá Nýju kapellunni i Fossvogi föstudaginn 21.
febrúar kl. 15.00.
Theodór Óskarsson, Arnheiöur Árnadóttir,
Guðrún Theodórsdóttir, Óskar Theodórsson,
Bryndis Theodórsdóttir, Gunnar Jónsson.
hluta starfsævi sinnar og gat sér
þar góðan orðstír sem ábyggilegur
og duglegur starfsmaður, sem lýsir
sér best í því, að hann var gerður
að yfírverkstjóra og síðar útibús-
stjóra Áfengisverslunarinnar við
Snorrabraut, er hún var sett á
stofn. Þar vann hann þar til hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Guðmundur var á unga aldri
mikill íþróttamaður, enda maðurinn
stór og myndarlegur, svo eftir var
tekið. Knattspyman átti hug hans
allan og byijaði hann ungur að
„sparka bolta". Hann ólst upp við
Njálsgötuna, en þar var mikill áhugi
fyrir knattspymu og hver blettur
notaður til þess að iðka þessa íþrótt.
Aðallega vom þó notaðir gömlu
öskuhaugamir, þar sem Heilsu-
vemdarstöðin er núna. Hann gerð-
ist félagi í Knattspymufélaginu
Fram um árið 1919, en það skeði
þannig eftir frásögn hans sjálfs, að
hann hafði gengið suður á gamla
íþróttavöllinn við Hringbraut. Fram
var þar á æfingu og bað hann um
að fá að vera með. Hann fékk það
og þar með hófst starf hans fyrir
fram. Hann var óslitið í kappliði
Fram frá því um 1919 til 1930 og
því oft meistari á þessum árum.
Um árið 1927 er Fram komið niður
í mikinn öldudal. Félagslíf allt,
fundir jafnt sem æfingar lágu að
mestu leyti niðri. Þá tókst Guð-
mundi með áhuga sínum og eldmóði
að hefja vakningu meðal unglinga,
aðallega við Njálsgötuna og næsta
nágrenni, á Fram og stjómaði bæði
æfingum og lagði til knetti sjálfur
og undirbjó allt starfið á ný. Hann
fékk þó síðar mikla hjálp við upp-
byggingarstarfið, er þeir bræður
Kjartan og Ólafur Kalstad Þor-
varðssynir komu til hjálpar. Þessir
þrír menn vom allt í öllu hjá félag-
inu um þetta leyti, en Guðmundur
vildi ekki gegna formannsstöðu í
félaginu fyrst í stað, en þá varð
Ólafur formaður. Guðmundur varð
þó að gegna formannsstöðunni í
forföllum Ólafs meðan hann dvald-
ist við nám erlendis.
Guðmundur var síðan kosinn
formaður félagsins 1937 til 1939
og aftur 1946 til 1947.
Á formannsárum Guðmundar hóf
Fram, fyrst íþróttafélaga, byggingu
félagsheimilis og knattspymuvall-
ar. Þessum ungu mönnum, ásamt
öðrum dugmiklum félögum, hafði
tekist, vegna sérstakra aðstæðna í
skemmtanalífi höfuðstaðarins að
safna nokkru fé í byggingarsjóð og
var það notað til þess að koma
þessu í framkvæmd.
Það var alla tíð mikiil áhugi hjá
Guðmundi að treysta félagslíf og
auka áhuga manna í iðkun knatt-
spymunnar og leit hann ánægður
yfir þau verk, sem unnin vom í
félaginu á þessu sviði og var stoltur
af góðum árangri gamla „Fram“ á
seinni árum.
Guðmundur var kjörinn heiðurs-
félagi félagsins á aðalfundi 1933,
fyrir öll sín miklu og margvíslegu
störf í þágu félagsins.
Kona Guðmundar var Ágústa
Jóhannsdóttir og börn þeirra tvö
Alda og Halldór, bamabömin em
fimm.
Þessi fátæklegu kveðjuorð em
sett hér á blað til látins félaga og
fmmheija Knattspymufélagsins
Fram, til þess að þakka honum
hans miklu störf í þágu félagsins
og þá um leið í þágu knattspymu-
íþróttarinnar á íslandi, sem svo
margir ungir og aldnir dá.
Við sendum öllum eftirlifandi
ættingjum Guðmundar samúðar-
kveðjur.
Jörundur Þorsteinsson
Skreytum
við öll tækifæri
dom;
Reykjavikurvegi 60, simi 53848.
Álfheimum 6, simi 33978.